DROPS Lace
DROPS Lace
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Super Sale
DROPS 164-41
DROPS Design: Mynstur nr la-025
Garnflokkur A
----------------------------------------------------------

Mál:
Mælt fyrir miðju að aftan ca 70 cm
Mælt meðfram efri hlið ca 140 cm

Efni:
DROPS LACE frá Garnstudio
100 gr litur nr 3620, rauður
Eða notið:
DROPS BABYALPACA SILK frá Garnstudio
Ca 350 gr litur nr 3609, rauður

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 3 mm - ATH:
Lesið um prjónfestu hér að neðan!

PRJÓNFESTA:
Sjalið á að bleyta og strekkjast út í rétta stærð í lokin þannig að prjónfestan er ekki svo mikilvæg, en til þess að hafa einhverja hugmynd um hvort prjónað sé of laust/fast er gott að gera prufu á prjóna nr 3 og að ca 24 l og 32 umf í sléttprjóni verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Lace
DROPS Lace
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.23. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

LEIÐBEININGAR:
Hægt er að prjóna sjalið í öðrum grófleika prjóna en það sem gefið er upp hér. Notið fínni prjóna fyrir minna sjal og grófari prjóna fyrir stærra sjal. Sjalið er strekkt og formað til í lokin, þá koma allar ójöfnur til með að jafnast út.

FORMUN:
Ef skipt er um annað garn en Lace frá garnhópi A þarf ekki að strekkja sjalið út í lokin í rétta stærð, heldur er nóg að leggja það til í rétt form. Látið það þorna. Endurtakið þetta í hvert skipti sem sjalið er þvegið.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna til þess að fá pláss fyrir allar lykkjurnar. LESIÐ LEIÐBEININGAR.

SJAL:
Fitjið upp 9 l með Lace eða BabyAlpaa Silk á hringprjóna nr 3 og prjónið 1 umf sl frá röngu. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan þannig (= rétta): 3 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn og 3 l sl = 13 l. Setjið 1 prjónamerki í miðjulykkju og látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu.
Aukið síðan út um 4 l í hverri umf frá réttu þannig: Aukið út um 1 l innan við 3 kantlykkjur í hvorri hlið og 1 l hvoru megin við miðjulykkju. Aukið út alls 5 sinnum, það eru 33 l á prjóni.

Prjónið nú áfram eftir A.1 þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni, A.1 yfir næstu 13 l, 1 l sléttprjón (= miðjulykkjan er alltaf prjónuð í sléttprjóni), A.1 yfir 13 l og 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Prjónið A.1 1 sinni á hæðina = 61 l á prjóni (þ.e.a.s. það eru 30 l hvoru megin við miðju-l).

Prjónið síðan eftir A.2-A.4 þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni, A.2 yfir 7 l, A.3 yfir 14 l, A.4 yfir 6 l, 1 miðjulykkja, A.2 yfir 7 l, A.3 yfir 14 l og A.4 yfir 6 l og 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Þegar A.2-A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er pláss fyrir 1 endurtekningu af A.3 á milli A.2 og A.4. haldið áfram að prjóna eftir mynstri þar til mynstur A.2-A.4 hefur verið prjónað alls 3 sinnum á hæðina = 145 l á prjóni (þ.e.a.s. nú eru 72 l hvoru megin við miðjulykkju).

Prjónið síðan eftir A.5-A.10 þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni, A.5 yfir 11 l, A.6 er endurtekið þar til 10 l eru eftir á undan miðjulykkju, A.7 yfir 10 l, 1 miðjulykkju, A.8 yfir 10 l, A.9 er endurtekið þar til 14 l eru eftir, A.10 yfir 11 l og 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Prjónið A.5-A.10 1 sinni á hæðina = 2147 l á prjóni (þ.e.a.s. það eru 108 l hvoru megin við miðjulykkju).

Prjónið eftir mynstri A.11-A.16 þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni, A.11 yfir 4 l, A.12 er endurtekið þar til 5 l eru eftir á undan miðjulykkju, A.13 yfir 5 l, 1 miðjulykkju, A.14 yfir 5 , A.15 er endurtekið þar til 7 l eru eftir, A.16 yfir 4 l og 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Prjónið mynstur A.11-A.16 1 sinni á hæðina = 267 l á prjóni (þ.e.a.s. það eru 133 l hvoru megin við miðjulykkju).

Prjónið mynstur A.17-A.23 þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni, A.17 yfir 4 l, A.18 er endurtekið þar til 6 l eru eftir á undan miðjulykkju, A.19 yfir 3 l, A.20 yfir 7 l (miðjulykkjan er mitt í þessum lykkjum), A.21 yfir 3 l, A.22 er endurtekið þar til 7 l eru eftir, A.23 yfir 4 l og 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Þegar mynstrið hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er fellt laust af. ATH! Tvöfaldi uppslátturinn í síðustu umf í mynstri er prjónaður á meðan fellt er af þannig: 1. uppslátturinn er prjónaður slétt, 2. uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt.

STREKKING:
Leggið sjalið í volgt vant þar til það er orðið gegnblautt. Pressið vatnið varlega úr sjalinu – það á ekki að vinda, rúllið síðan sjalinu inn í handklæði og pressið til þess að ná burtu meira vatni – sjalið á nú að vera aðeins rakt. Ef BabyAlpaca Silk er notað – LESIÐ FORMUN!
Leggið sjalið á mottu eða á dýnu – dragið það varlega út í rétta stærð og notið nálar til að festa það með, dragið í hornin á blöðunum meðfram affellingarkantinum. Látið sjalið þorna. Endurtakið í hvert skipti sem sjalið er þvegið.

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = 2 l slétt saman
symbols = takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana br (með bandið aftan við stykkið), 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l
symbols = takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana br (með bandið aftan við stykkið), 2 l slétt saman og steypið óprjónuðu l yfir
symbols = sláið 2 uppá prjóninn á milli 2 l, í næstu umf er fyrri uppslátturinn prjónaður slétt, seinni uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt á meðan fellt er af.
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 164-41

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (55)

country flag Kassalia Maria wrote:

Liebes Team wenn ich die ersten 13M gestrickt habe bei A1 bleiben noch 7M übrig wie komme ich weiter vielen dank

01.03.2023 - 09:51

DROPS Design answered:

Liebe Frau Kassalia, wenn Sie so stricken: 3 M kraus rechts, A.1 (= 13 M), 1 M glatt rechts (Mittel-M), A.1 (=13M) und 3 M kraus rechts stricken Sie: 3+13+1+13+3=33 Maschen (nach der 1. Reihe haben Sie 4 Maschen zugenommen). Schauen Sie mal ob 1. Reihe in A.1 richtig über 13 M gestrickt wurde. Viel Spaß beim stricken!

01.03.2023 - 10:07

country flag Kassalia Maria wrote:

Hallo liebes Team ich versuche zum ersten mal ein solches tuch zu stricken Frage wird es von oben nach unten gestrickt ? Ich komme nicht klar bei A1 muß ich es doppelt stricken . VIELEN DANK

28.02.2023 - 17:21

DROPS Design answered:

Liebe Frau Kassalia, ja genau, das Tuch wird von oben nach unten gestrickt. Zuerst sollen Sie krausrechts stricken und 4 Maschen bei jeder Hinreihe zunehmen bis 33 M sind. Dann stricken Sie so: 3 M kraus rechts, A.1 (= 13 M), 1 M glatt rechts (Mittel-M), A.1 (=13M) und 3 M kraus rechts. A.1 wird so beidseitig von der Mittel-M gestrickt. Viel Spaß beim stricken!

28.02.2023 - 17:59

country flag Fontaine wrote:

Bonjour, Les photos du modèle le montre en jersey endroit et les explications le donnent en point mousse. Je viens de le commencer, il ne correspond pas aux photos.... je suis seule dans ce cas ?

13.04.2022 - 23:53

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Fontaine, les tous premiers rangs du châle se tricotent au point mousse, puis lorsque l'on tricote les diagrammes, il est bien indiqué de tricoter: 1 m end sur l'endroit, env sur l'envers autrement dit jersey endroit. Ou bien ai-je mal compris votre question?

19.04.2022 - 14:22

country flag Milalala wrote:

Oh, das hilft mir leider gar nicht: A2 beginnt eben nicht mit einem Umschlag, sondern mit einer (glatt) rechtsgestrickten Masche, d. h. am Anfang: drei kraus rechts gestrickte Maschen, dann eine glatt rechtsgestrickte Masche aus A2, dann der Umschlag. Ebenso bei der Mittelmasche: Mittelmasche, dann eine dann eine glatt rechtsgestrickte Masche aus A2, dann der Umschlag. So sieht es die Anleitung vor, was jedoch falsch aussieht.

15.12.2021 - 11:20

DROPS Design answered:

Liebe Milalala, A.2 beginnt doch mit einem Umschlag und wird so über 7 Maschen gestrickt (Hinreihen liest man rechts nach links): 1 Umschlag, 1 re, 2 M re zs, 1 Umschlag, 1 re, 2 M re zs, 1 Umschlag, 1 re = es sind jetzt 8 M. Die MittelMasche wird nach dem Umschlag A.4 gestrickt, dann nach dieser Masche stricken Sie A.2 und damit immer bei Hinreihen mit 1 Umschlag anfangen. Kann das Ihnen helfen?

15.12.2021 - 11:55

country flag Milalala wrote:

Im Anleitungsteil, in dem man 3 + A2 + A3 + A4 + 1 + A2 + A3 + A4 + 3 stricken soll, habe ich folgende Fragen: 1. Stimmt das so, dass es nicht symmetrisch ist? Soll es wirklich nicht 3 + A2 + A3 + A4 + 1 + A4 + A3 + A2 + 3 sein? 2. In diesem Teil schließt die Mittelmasche zum ersten Mal nicht an einen Umschlag an, was ich nicht verstehe: Aus A4 kommend gibt es einen Umschlag, dann die Mittelmasche, aber mit A2 fortfahrend kommt wieder eine rechte Masche. Kann das stimmen? Hilfe!

14.12.2021 - 20:59

DROPS Design answered:

Liebe Milalala, so stimmt es, die beiden Seiten sind beidseitig von der Mittelmasche gleich: A.2-A.3-A.4. So stricken Sie weiter über A.1. Am Anfang der Reihe gibt es 1 Umschlag (vor der 1. Masche in A.2), am Ende A.4 vor der Mittelmasche, am Anfang A.2 nach der Mittelmasche und am Ende der Reihe am Ende A.4. Kann das Ihnen helfen?

15.12.2021 - 08:00

country flag Julie wrote:

Bonjour.pour être sure de la taille, j'ai fait des calculs :il y a effectivement un problème. Pour un échantillon de 24*32 -> 10*10, on devrait tricoter 224 rangs pour avoir 70 cm au milieu du dos (et 140 d envergure). En faisant la somme des rangs des motifs ( A1, 3*A2, A5, A11, A17), on obtient 160 rangs (soit 50 cm au lieu de 70cm). Il semble difficile d étirer le châle de 50 à 70 juste en le bloquant. La photo aussi est plus cohérente avec les 50 cm, sauf si la femme mesure 2.5m

23.03.2021 - 18:17

DROPS Design answered:

Bonjour Julie, un modèle ajouré de ce type ne peut pas se recalculer ainsi, le milieu dos (le long de la maille centrale), vous n'aurez que des jours, et après blocage, les mesures seront plus que les 32 rangs de l'échantillon. Vous pourrez trouver les photos de différentes tricoteuses ici, sur Ravery. Bon tricot!

24.03.2021 - 09:34

country flag Tewia wrote:

Bonjour, je suis arrivée à la fin de la troisième étape où je dois avoir 72 mailles de chaque côté de la maille centrale. Mais j'arrive à 86 mailles, je n'arrive pas à comprendre pourquoi. J'ai pourtant suivi les instructions et fais 3 fois en hauteur A2-A4. J'obtiens bien les motifs de feuilles régulier. Pouvez-vous m'aider? Merci.

07.02.2021 - 17:08

DROPS Design answered:

Bonjour Tewia, il semble que vous avez tricoté 1 fois de trop les diagrammes en hauteur, après 3 motifs en hauteur vous devez avoir: 3 m point mousse, 14 m de A.2, 42 m de A.3, 13 m de A.4, 1 m centrale, 14 m de A.2, 42 m de A.3, 13 m de A.4, et 3 m point mousse = 145 m et 72 de chaque côté de la m centrale - Après la 1ère fois, vous avez 89 m, après la 2ème fois, vous avez 117 m et après la 3ème fois, 145 m au total. Bon tricot!

08.02.2021 - 10:24

country flag Lynne wrote:

Is there a photo of this shawl laid flat. I need to view the placement of graphs A2, A3 and A4. at the top of the garment. Thankyou

20.07.2020 - 11:01

DROPS Design answered:

Dear Lynne, we do not have much pictures - work A.2-A.4 over the stitches of A.1 = there are 27sts in each A.1 after last row in diagram, work then these 27 sts with: A.2 (= 7 sts), A.3 (= 14 sts) and A.4 (= 6 sts). Continue the 3 sts in garter stitch on each side and the middle stitch in stocking stitch. Happy knitting!

29.07.2020 - 08:09

country flag Joëlle Gac wrote:

Oui ,il est magnifique ! Mais trop petit à mon goût . J'ai utilisé la laine et la grosseur d'aiguilles recommandées et j'obtiens un châle plus petit que ce que vous avez dit même après l'avoir bloqué . Je ne suis pas une débutante et en principe les échantillons sont respectés . Aux personnes qui souhaitent le réaliser ,tenez compte de ma remarque .

09.07.2020 - 19:06

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Gac, il doit mesurer 140 cm d'envergure, donc peut être vous l'auriez souhaité plus grand? Si votre tension était juste = 24 m x 32 rangs jersey, vous devriez avoir les bonnes mesures finales. Bon tricot!

10.07.2020 - 08:30

country flag Esther wrote:

Buenas noches mi pregunta es cuando se empieza la segunda tanda de aumentos pone de los tres primeros hacer un aumento este aumento se hace sacando de un punto dis o con una hebra? Gracias

27.04.2020 - 22:32

DROPS Design answered:

Hola Esther. Los aumentos se trabajan de la misma manera que antes, es decir, echando 1 hebra.

28.04.2020 - 16:40