DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 13640.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale
DROPS 166-1
DROPS Design: Mynstur nr ai-014
Garnflokkur C eða A + A
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS AIR frá Garnstudio
300-300-350-350-400-450 gr litur nr 03, perlugrár
50-50-50-50-50-50 gr litur nr 01, natur
50-50-50-50-50-50 gr litur nr 05, brúnn
50-50-50-50-50-50 gr litur nr 11, páfuglablár
50-50-50-50-50-50 gr litur nr 12, mosagrænn

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 5,5 – eða þá stærð sem þarf til að 16 l og 20 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 5 – fyrir stroff.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Air
DROPS Air
65% Alpakka, 28% Polyamide, 7% Ull
frá 1364.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 13640.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mysnsturteikningu A.1. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni.

LEIÐBEININGAR:
Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þá er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki þegar mynstrið er prjónað. Notið e.t.v. grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist aðeins saman.

ÚRTAKA-1 (á við um fram- og bakstykki):
Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig (byrjið 3 l á undan prjónamerki): 2 l slétt saman, 1 l sl.
Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: 1 l sl, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.

ÚRTAKA-2 (á við um berustykki):
Til þess að reikna út hversu oft eigi að taka úr í umf, þá eru tekin heildartala í umf (t.d. 264 l) og deilt með fjölda úrtöku sem á að gera (t.d. 32) = 8,25. Þ.e.a.s. í þessu dæmi þá er ca 7. hver og 8. hver l prjónuð slétt saman.

ÚTAUKNING:
Byrjið 1 l á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 148-160-176-196-212-232 l á hringprjóna nr 5 með litnum perlugrár.
Prjónið 1 umf sl, prjónið síðan stroff (= 2 l sl, 2 l br) í 4 cm. Skiptið yfir á hringprjóna nr 5,5 og prjónið 1 umf þar sem fækkað er um 2-0-0-2-0-2 l jafnt yfir = 146-160-176-194-212-230 l. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf og 1 prjónamerki eftir 73-80-88-97-106-115 l (= hliðar). Prjónið nú sléttprjón. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 8 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚRTAKA-1 (= 4 l færri). Endurtakið úrtöku með 3 cm millibili, 4 sinnum til viðbótar = 126-140-156-174-192-210 l. Þegar stykkið mælist 24 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚTAUKNING (= 4 l fleiri). Endurtakið útaukningu með 6 -6-7-7-8-8 cm millibili, 2 sinnum til viðbótar = 138-152-168-186-204-222 l. Þegar stykkið mælist 38-39-40-41-42-43 cm fellið af miðju 8 l í hvorri hlið fyrir handveg (þ.e.a.s. fellið af 4 l hvoru megin við bæði prjónamerkin) = 61-68-76-85-94-103 l eftir á fram- og bakstykki. Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 36-40-40-44-44-48 l á sokkaprjóna nr 5 með litnum perlugrár. Prjónið 1 umf sl, prjónið síðan stroff (= 2 l sl, 2 l br) í 5 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 5,5 og prjónið 1 umf sl þar sem fækkað er um 1-4-2-3-2-3 l jafnt yfir = 35-36-38-41-42-45 l. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf (= miðja undir ermi) og prjónið sléttprjón. Þegar stykkið mælist 8 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerkið. Endurtakið útaukningu með 2½-2-2-2-1½-1½ cm millibili, 9-11-12-12-13-13 sinnum til viðbótar = 55-60-64-67-70-73 l. Þegar stykkið mælist 35-35-34-34-33-33 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla), fellið af 8 l mitt undir ermi (þ.e.a.s. fellið af 4 l hvoru megin við prjónamerkið) = 47-52-56-59-62-65 l eftir á prjóni. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið ermar á sama hringprjóna og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 216-240-264-288-312-336 l. Prjónið 0-1-1-2-2-3 cm sléttprjón með litnum perlugrár. Prjónið síðan mynstur hringinn eftir mynstri A.1, JAFNFRAMT í umf merkta með ör 1 í mynstri er fækkað um 24-24-32-32-40-48 l jafnt yfir – LESIÐ ÚRTAKA-2 og LEIÐBEININGAR = 192-216-232-256-272-288 l. Haldið áfram með mynstur.
Í umf merktri með ör 2 í mynstri er fækkað um 28-36-40-40-48-48 l jafnt yfir = 164-180-192-216-224-240 l. Haldið áfram með mynstur.
Í umf merktri með ör 3 í mynstri er fækkað um 32-42-42-54-56-60 l jafnt yfir = 132-138-150-162-168-180 l. Haldið áfram með mynstur.
Í umf merktri merð ör 4 í mynstri er fækkað um 42-44-52-60-62-70 l jafnt yfir = 90-94-98-102-106-110 l.
Í umf merktri með ör 5 í mynstri (= síðasta umf), fækkið um 10 l jafnt yfir í öllum stærðum = 80-84-88-92-96-100 l. Prjónið nú upphækkun aftan við hnakka í sléttprjóni með litnum perlugrár, setjið 1 prjónamerki fyrir miðju að aftan, klippið frá og byrjið hér: Prjónið 7 l framhjá prjónamerki fyrir miðju að aftan, snúið við, herðið á þræði og prjónið 14 l br til baka, snúið við og herðið á þræði og prjónið 21 l sl, snúið við, herðið á þræði og prjónið 28 lykkjur brugðið til baka.
Haldið svona áfram – prjónið yfir 7 l fleiri í hvert skipti sem snúið er við og prjónað hefur verið yfir alls 56-56-56-70-70-70 l, snúið við og prjónið 1 umf sl fram að miðju að aftan.
Skiptið yfir á hringprjóna nr 5, prjónið síðan stroff 2 l sl, 2 l br hringinn yfir allar l í 3-3-4-4-5-5 cm.
Fellið laust af með sl yfir sl og br yfir br. Berustykkið mælist ca 20-21-22-23-24-25 cm og öll peysan mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum.

Mynstur

symbols = perlugrár
symbols = natur
symbols = brúnn
symbols = páfuglablár
symbols = mosagrænn
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Sjona

Micha, Germany

Sjona in DROPS Air

Isabel, Portugal

Sjona

Manuela, Germany

Skrifaðu athugasemd um DROPS 166-1

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (57)

country flag Hanne wrote:

Hei, går det ann å strikke denne genseren i Flora ?

09.01.2018 - 13:02

DROPS Design answered:

Hei Hanne. Ja, men da må du bruke dobbelt tråd. Husk å sjekke strikkefastheten. Her er en link hvordan du selv kan regne ut garnmengde: Omregn garnmengde fra en kvalitet til en annen. God Fornøyelse!

11.01.2018 - 14:01

country flag Renate Nordal wrote:

Hei. Har ei datter på 7 år som gjerne vil ha samme genser som mamma, men eg atns det er vanskelig å rekne om til barnestørrelse. Har du/dere noko råd? Tenkte å finne en barnegensar i samme strikkefasthet/air, og rundt bærestykke, og tilpasse etter mønsterrapportane, men finn ingen barnegensar som passer. Takk for mange gode råd her inne 👌🏻

28.08.2017 - 16:15

DROPS Design answered:

Hei Renate. Som du allerede har sjekket, så har vi dessverre ikke en barnegenser med akkurrat den sammen strikkefastheten. Du kan evnt ta en titt på barnejakken i Children DROPS 26-12. Den er også strikket Air /rundt bærestykke, men med en liten forskjell på strikkefastheten. Kanskje du kan ta utgangspunkt i den og tilpasse mønsterrapporten etter den og justere pinnestørrelse/ strikkefastheten? God Fornøyelse!

29.08.2017 - 07:07

Carol wrote:

Really not keen on the three quarter sleeve,how do I make them into normal length sleeves,where do I place the increases? 🤔

07.05.2017 - 23:10

DROPS Design answered:

Dear Carol, the increases on the sleeve, a couple of cm's below the elbow. If you want to lengthen the sleeve you can measure the distance between the underarms and about 10 cm's after the ribbing and divide with the sumber of the increases for your size, thus you will get how often you should do the increases. I hope this helps. Happy knitting!

08.05.2017 - 07:06

country flag Ann Tove wrote:

Hei. Strikker SJona i str. L. Legger opp med 176 masker på bolen, og så skal jeg felle etter vrangborden. Hvor mange masker skal totalt felles på den runden? Det står fortsatt at det skal være 176 masker etter felling i oppskrift, og merketråden skal settes etter 88 msker. Dette tilsvarer jo ikke felling.

14.03.2017 - 11:04

DROPS Design answered:

Hej Ann Tove. Du feller ingen masker in str L (der staar 0), du har 176 m og det er 88 m til for og rygstk (176/2 = 88)

14.03.2017 - 14:56

country flag Liv Hilde wrote:

Hva skal jeg med rundpinne 40 cm? Armene skal vel strikkes på settpinner? I oppskriften står det rundpinne 40 og 80 cm og det har jeg fått med fra butikk....

27.02.2017 - 18:32

DROPS Design answered:

Hej Liv. Du skal strikke det överste af baerestykket med 40 cm - 80 cm er for lang her. Men kan du strikke magic loop teknik eller rundt paa settpindene ogsaa.

28.02.2017 - 15:52

country flag Karine wrote:

Hvor står det hvor store størrelsene er både i armene og vidde rundt livet?

21.01.2017 - 13:50

DROPS Design answered:

Hej Karine. Se nederst i opskriften. Her staar alle maal i cm per str. Det er ikke omkreds (vidde rundt livet), men det er saa nemt at regne ud

23.01.2017 - 12:00

country flag Ineke wrote:

Ik wil de mouwen graag langer maken. Hoe doe ik dat op de goede manier?

17.11.2016 - 09:41

DROPS Design answered:

Hoi Ineke. Ik zou de afstand tussen elke meerdering wat groter maken (Herhaal dit meerderen elke 2½-2-2-2-1½-1½ cm). Als je weet hoe groot je de mouw wilt hebben, kan je het berekenen.

17.11.2016 - 13:18

country flag Jenny Douglas wrote:

My store does not cary enough stock of your suggested co!ours. Can you suggest other combinations please. I was thinking wheat as main, with ruby red, brown, moss green, but am stuck for final colour. It is difficult to judge actual colours from a screen, so these may not blend well.

20.09.2016 - 18:59

DROPS Design answered:

Dear Mrs Douglas, for any individual assistance choosing a colour you are welcome to contact a DROPS store that carry all colours, they will be then able to help you to find the best colours matching your desires. Happy knitting!

21.09.2016 - 09:12

country flag Jenni Glasdam wrote:

Jeg har også to nøgler tilovers af bundfarven. Ærgerligt, det var penge jeg godt ville have sparet. Strikkede ellers ærmerne dejligt lange:50 cm og det passer fint når man er 175 cm høj og har lange arme. Andre kan passende lave dem 5 cm kortere. Jeg strikkede som opskrift indtil ærmet var 14 cm. Tag så ud hver 3 cm 5 gange. Derefter hver 2 cm 8 gange. Strik videre indtil ærmet er 50 cm og luk så 2x4m i start og slut af ærmet.

22.08.2016 - 21:17

Ellen Lewis wrote:

I have done everything possible to figure out this pattern along with the help of a knitting teacher at the store where I bought my yarn and we are both at a loss. It is quite discouraging because I have used a lot of yarn to get to the yoke. Is there anyone who has done this sweater who can help me or provide me a pattern which coincide with the number of stitches .

16.05.2016 - 14:56

DROPS Design answered:

Dear Mrs Lewis, this pattern has already been done succesfully (see for example here), feel free to ask your question here giving more informations where you are stuck. Happy knitting!

17.05.2016 - 10:58