DROPS Belle
DROPS Belle
53% Bómull, 33% Viscose, 14% Hör
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5742.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Sandy Shore

Prjónuð peysa úr DROPS Cotton Light eða DROPS Belle með laskalínu. Prjónið ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.

DROPS 159-9
DROPS Design: Mynstur nr vs-001
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS COTTON LIGHT frá Garnstudio
400-400-450-500-550-600 gr litur nr 21, ljós beige
Eða notið:
DROPS BELLE frá Garnstudio
400-400-450-500-550-600 gr litur nr 03, ljós beige

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l og 28 umf verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 3,5 – fyrir stroff.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Belle
DROPS Belle
53% Bómull, 33% Viscose, 14% Hör
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5742.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

LASKALÍNA:
Aukið út um 1 l hvoru megin við hvert prjónamerki (= 8 l fleiri):
Byrjið 2 l á undan prjónamerki: Sláið uppá prjóninn, 4 l sl (prjónamerki er staðsett á milli þessa 4 l) sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður slétt – það eiga að myndast göt.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Peysan er prjónuð ofan frá og niður á hringprjóna. Ermin er prjónuð í hring á hringprjóna / sokkaprjóna.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 114-120-123-129-132-135 l á stutta hringprjóna nr 3,5 með Cotton Light eða Belle. Prjónið stroff 1 l sl, 2 l br í 3 cm. Í næstu umf er skipt yfir á hringprjóna nr 4, prjónið sléttprjón og aukið út um 10-16-29-39-52-73 l jafnt yfir = 124-136-152-168-184-208 l. Nú er prjónað frá miðju að aftan (byrjun umf) þannig: 18-21-25-29-33-39 l sléttprjón (= bakstykki, setjið prjónamerki, 26 l sléttprjón (= ermi), setjið prjónamerki, 36-42-50-58-66-78 l sléttprjón (= framstykki), setjið prjónamerki, 26 l sléttprjón (= ermi), setjið prjónamerki, sléttprjón yfir síðustu 18-21-25-29-33-39 l í umf (= bakstykki). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Í næstu umf byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan! Aukið er út um 1 l hvoru megin við hvert prjónamerki í annarri hverri umf 26-27-28-29-31-32 sinnum = 332-352-376-400-432-464 l. Stykkið mælist 27-28-29-30-31-32 cm frá öxl (21-22-23-24-25-26 cm frá uppfitjunarkanti). Prjónið nú þannig: Prjónið fyrstu 44-48-53-58-64-71 l, setjið næstu 78-80-82-84-88-90 l á band (= ermi), fitjið upp 8 l undir vinstri ermi (setjið eitt prjónamerki mitt á milli þessa nýju l), prjónið næstu 88-96-106-116-128-142 l, setjið næstu 78-80-82-84-88-90 l á band (= ermi), fitjið upp 8 l undir hægri ermi (setjið prjónamerki mitt á milli þessa nýju l), prjónið næstu 44-48-53-58-64-71 l. HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Nú eru 192-208-228-248-272-300 l fyrir fram- og bakstykki. Prjónið sléttprjón í hring þar til stykkið mælist 25-26-27-28-29-30 cm. Prjónið 1 umf þar sem aukið er út um 21-23-24-25-28-30 l jafnt yfir = 213-231-252-273-300-330 l. Skiptið yfir á hringprjónar nr 3,5 og prjónið stroff 1 l sl, 2 l br í 3 cm, síðan er fellt af með sl yfir sl og br yfir br.

ERMI:
Ermin er prjónuð í sléttprjóni, í hring á hringprjóna/sokkaprjóna. Það eru 78-80-82-84-88-90 l fyrir hvora ermi. Setjið til baka l af þræði á hringprjón/sokkaprjóna nr 4 og fitjið upp 8 l undir ermi = 86-88-90-92-96-98 l. Prjónið sléttprjón í hring, JAFNFRAMT er sett prjónamerki fyrir miðju í nýja l undir ermi. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerki. Nú er fækkað um 1½- 1½-1½-1½-1-1 cm millibili alls 16-16-16-16-17-17 sinnum = 54-56-58-60-62-64 l. Þegar ermin mælist 30-29-29-28-28-27 cm er aukið út um 6-7-8-9-10-11 l jafnt yfir = 60-63-66-69-72-75 l. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5 og prjónið stroff 1 l sl, 2 l br í 3 cm, fellið síðan af með sl yfir sl og br yfir br. Ermin mælist 33-32-32-31-31-30 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna víðari hálsmáls og breiðari axla.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið saman og undir ermum.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Sandy Shore

Annalor, France

Sandy Shore

Agnieszka, Poland

Skrifaðu athugasemd um DROPS 159-9

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (74)

country flag Diana Jensen wrote:

Hej. Jeg skal til, at starte på denne trøje og er lidt i tvivl om starten. Skal jeg strikke rundt på rundpindende, så der bliver et "rør" eller skal jeg strikke frem og tilbage, så jeg får et firkantet stykke? (Bliver især i tvivl, da retstrik bliver beskrevet som først ret og så vrang ) Mvh Diana

06.06.2017 - 12:09

DROPS Design answered:

Hei Diana. Det skal strikkes rundt på rundpinne (som et rør). Teksten: RETSTRIK (strikkes rundt således): 1 omg ret og 1 omg vrang osv. - har nok blitt med ved en feiltakelse, den skal bli slettet.

06.06.2017 - 14:20

country flag Valeria wrote:

Hola me podría explicar cómo agregar los puntos debajo de la manga. No entiendo que significa. Muchas gracias

27.05.2017 - 01:39

DROPS Design answered:

Hola Valeria. Los puntos bajo la manga (que necesitamos para completar la sisa) puedes montarlos siguiendo este video:

How to cast on new stitches at side of work from Garnstudio Drops design on Vimeo.

28.05.2017 - 21:04

country flag Julia wrote:

How to print this pattern? Print Photo buttons work fine but I cannot print the pattern. When I try to Print Pattern I see only a one page advertisement of some sort, not a pattern. Thank you.

07.05.2017 - 16:24

DROPS Design answered:

Dear Julia, please click on the print pattern button, and just above the picture of advertisement there is a small text saying "continue to print the pattern" and a small arrow. If you clicj on this text it will take you to the printing page. I hope this helps. Happy knitting!

07.05.2017 - 18:57

country flag Lois Holt wrote:

I am where to divide for sleeves, and have been increasing in the middle of the back of the water as directed; DO I CONTINUE THESE INCREASES DOWN THE BACK AFTER I PUT SLEEVE STS. ON A HOLDER, OR DISCONTINUE THOSE INCREASES FOR THE REST OF THE BACK?

13.01.2017 - 18:51

DROPS Design answered:

Dear Mrs Holt, when dividing piece for sleeve, all inc for raglan should have been done, work 1 the last row on yoke slipping sts for sleeve on a st holder and casting on new sts under sleeve and continue body in the round without inc. Happy knitting!

16.01.2017 - 08:53

country flag Barbara Philipsen wrote:

Ik heb deze trui gebreid in garen Belle, maat M. Ik heb een proeflapje gemaakt, maar dat gaf blijkbaar toch niet de juiste verhouding aan. Als ik mijn trui nu 1 dag draag, zakt deze te ver uit en valt van mijn schouders. Oorzaken: het garen is zwaar en ik brei blijkbaar los. Voor een vriendin ga ik deze trui in maat S breien, maar dan wel op dunnere naalden, 3,5 mm ipv 4 en 3 ipv 3,5 mm. Denken jullie dat dat de juiste aanpak is?

05.07.2016 - 14:52

country flag Ans.de Bruijn wrote:

Waarom zijn bijna alle patronen met een rondbreinaald. Jammer genoeg kan ik daarmee niet werken,

28.03.2016 - 09:32

DROPS Design answered:

Hoi Ans. Breien met rondbreinaald is heel uitgebreid in o.a. Scandinavië en VS, maar kijk hier hoe je eventueel kan aanpassen naar rechte naalden

29.03.2016 - 15:46

country flag Alessandra wrote:

Buongiorno, Il campione corrisponde, tutte le misurazioni corrispondono, Solo che Come spesso succede le maniche Sono corte, Ma Questo non e' importante poiche ognuno le puo allungare a proprio piacimento. Il problema e' La quantita Di cotone. Quando si ordina Di nuovo non si e' sucuri Di avere lo stesso colore, per questo ho fatto La segnalazione. Siete una Ditta fantastica 👍🏻😉 Grazie per La tempestiva risposta

04.03.2016 - 08:11

DROPS Design answered:

Buongiorno Alessandra, la ringraziamo per l'ulteriore precisazione, di solito la quantità di filato nei modelli DROPS è corretta, in questo caso abbiamo fatto la segnalazione alla casa madre e ci sono altri commenti di clienti che hanno riscontrato lo stesso problema. Buon lavoro!

04.03.2016 - 09:53

country flag Alessandra wrote:

Il cotone non basta, e le maniche sembrano piu' larghe e piu' corte rispetto alla foto. Ho eseguito alla lettera le istrizioni. Vi consiglio di aggiungere minimo in gomitolo in piu'.

03.03.2016 - 17:00

DROPS Design answered:

Buonasera Alessandra, il suo campione corrisponde a quello indicato? Abbiamo inviato una segnalazione per la quantità di filato. Le misure delle maniche corrispondono a quelle dello schema? Buon lavoro!

03.03.2016 - 22:09

country flag Vita Schulz wrote:

Hej . Jeg strikker trøjen i xxl men kan ikke få målene til at passe . Jeg er færdig med raglan , men har færre cm . Hvad gør jeg? - Tusind Tak på forhånd . Vita

20.01.2016 - 21:03

DROPS Design answered:

Hej Vita. Passer din strikkefasthed? Det er meget vigtigt ved raglan ellers kan höjden bliver forkert

26.01.2016 - 14:56

country flag 88bubble wrote:

Mir fehlt mindestens ein Garnknäuel. Ich brauch 450 g bis 500 g für Größe M. Die Ärmel sind meiner Meinung nach zu kurz. Der Pulli, den das Modell trägt hat normal lange Ärmel. Laut Anleitung wären es 3/4 Ärmel.

14.09.2015 - 20:51