DROPS Cotton Light
DROPS Cotton Light
50% Bómull, 50% Polyester
frá 374.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3740.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Blue Spring

Prjónuð peysa úr DROPS Cotton Light með gatamynstri, laskalínu og tölum að aftan. Hægt að snúa peysunni við og hneppa að framan. Stærð S - XXXL.

DROPS 161-27
DROPS Design: Mynstur nr cl-043
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS COTTON LIGHT frá Garnstudio
500-500-550-600-650-750 gr litur nr 27, mintu

DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 og 28 umf sléttprjón verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 3,5 – fyrir garðaprjón.
DROPS PERLUTALA: Bogalaga (hvít), NR 521: 6-6-6-6-6-6 stk.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Cotton Light
DROPS Cotton Light
50% Bómull, 50% Polyester
frá 374.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3740.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

LASKALÍNA:
Fækkið um 2 l í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma.
Fækkið lykkjum frá réttu þannig:
Byrjið 3 l á undan prjónamerki og prjónið þannig: 2 l slétt saman, 2 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 l), takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.
Fækkið lykkjum frá röngu þannig:
Byrjið 3 l á undan prjónamerki og prjónið þannig: 2 l snúnar br saman, 2 l br (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 l), 2 l br saman.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í fyrri kanti frá réttu. 1 hnappagat = prjónið 3. og 4. l frá miðju að aftan slétt saman og sláið síðan 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
STÆRÐ S: 10, 17, 24, 31, 38 og 46 cm.
STÆRÐ M: 10, 17, 24, 32, 40 og 48 cm.
STÆRÐ L: 10, 18, 26, 34, 42 og 50 cm.
STÆRÐ XL: 10, 18, 26, 34, 43 og 52 cm.
STÆRÐ XXL: 10, 18, 27, 36, 45 og 54 cm.
STÆRÐ XXXL: 11, 20, 29, 38, 47 og 56 cm.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að aftan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 213-229-245-269-293-317 l (meðtaldar 5 kantlykkjur í hvorri hlið við miðju að aftan) á hringprjóna nr 3,5 með Cotton Light. Prjónið 6 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4, prjónið nú frá réttu – þannig: 5 l garðaprjón (= kantur), A.1 A (= 2 l), A.1 C (= 15 l), sléttprjón yfir næstu 52-52-52-64-68-72 l , A.1 A ( = 2 l), A.1 B yfir næstu 48-64-80-80-96-112 l, A.1 C (= 15 l), sléttprjón yfir næstu 52-52-52-64-68-72 l, endið á A.1 A (= 2 l), A.1 C ( = 15 l) og 5 l garðaprjón (= kantur). Haldið áfram með þetta mynstur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 8 cm eru sett 2 prjónamerki í stykkið, 56-60-64-70-76-82 l inn frá hvorri hlið (= 101-109-117-129-141-153 l á milli prjónamerkja á framstykki). Fækkið um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin (= 4 l færri). Endurtakið úrtöku með 9-9-9-10-10-10 cm millibili alls 4 sinnum = 197-213-229-253-277-301 l. Fellið af fyrir HNAPPAGAT í fyrri kanti – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 38-39-40-41-42-43 cm fellið af fyrir handveg í hvorri hlið þannig: Prjónið þar til 4 l eru eftir á undan fyrra prjónamerki í hlið, fellið af næstu 8 l, prjónið þar til 4 l eru eftir á undan prjónamerki í hinni hliðinni, fellið af næstu 8 l og prjónið út umf. Nú eru 85-93-101-113-125-137 l á framstykki og 48-52-56-62-68-74 l á hvoru bakstykki. Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 48-50-52-54-56-58 l á sokkaprjóna nr 3,5 með Cotton Light. Prjónið 6 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 4. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf = miðja undir ermi. Prjónið nú sléttprjón. Þegar stykkið mælist 6-6-6-6-8-8 cm aukið út um 2 l mitt undir ermi. Aukið út með 3-3-2½-2½-2-2 cm millibili alls 13-14-15-16-17-18 sinnum = 74-78-82-86-90-94 l. Þegar stykkið mælist 49-49-49-49-48-48 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla) fellið af miðju 8 l undir ermi = 66-70-74-78-82-86 l eftir á prjóni. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 313-337-361-393-425-457 l. Setjið 1 prjónamerki í skiptingar á milli fram- og bakstykkis og erma (= 4 prjónamerki). Haldið áfram í sléttprjóni og mynstri eins og áður JAFNFRAMT í næstu umf frá réttu byrjar úrtaka fyrir laskalínu sjá LASKALÍNA að ofan (= 8 l færri). Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf alls 20-21-22-22-23-24 sinnum og síðan í hverri umf 3-4-5-7-8-9 sinnum. Eftir úrtöku fyrir laskalínu eru 129-137-145-161-177-193 l eftir á prjóni. Prjónið 4 umf garðaprjón yfir allar l, JAFNFRAMT eins og í fyrstu umf er fækkað um 20-26-32-45-50-58 l jafnt yfir = 109-111-113-116-127-135 l. Fellið af.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í kant.

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = 2 l slétt saman
symbols = takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = takið 1 l óprjónaða, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = sláið uppá prjóninn
symbols = takið 2 l óprjónaða eins og prjóna eigi þær slétt saman, 1 l sl, steypið 2 óprjónuðu l yfir
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

161-27 Blue Spring

Inger, Sweden

Mon Pull Blue Spring

Natlie, France

MON PULL Blue Spring by Drops Design

NatLie Mes Petites Realisations, France

Skrifaðu athugasemd um DROPS 161-27

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (48)

country flag Quynh wrote:

Love the lacey back and would love to give it a try. Can you help explain how to decrease for raglan over the lace pattern? Thanks

07.02.2023 - 07:47

DROPS Design answered:

Dear Quynh, decrease for raglan as described under RAGLAN and make sure when working the lace pattern that there is always the same number of stiches decreased as you made yarn overs, this means do not work the yarn over if you cannot decrease the matching stitch, do not decrease the stitches if you have not enough stitches to make the matching yarn over- just knit these stitches. Happy knitting!

07.02.2023 - 10:34

country flag Sylviane wrote:

Dans ce modèle, pouvez vous m'indiquer comment enchainer A-B et A-C lorsque je dois tricoter 2 mailles ensemble "à cheval" sur les 2 parties ? La façon dont je procède créé systématiquement un décalage. Je suis perdue ...

03.11.2022 - 11:37

DROPS Design answered:

Bonjour Sylviane, vous devez toujours avoir le bon nombre de mailles dans chaque A, B et C, autrement dit, au 3ème rang par ex, tricotez 1 m end, 2 m ens à l'end (= 2 m dans A), puis pour B: 1 jeté (= 1ère maille de B), tricotez la dernière m de B avec la 1ère m du B suivant/de C - le jeté sera la 1ère m du B suivant/de C. Bon tricot!

03.11.2022 - 13:58

country flag Hilde Van Looke wrote:

Bestaat dit patroon ook gewoon als trui. Of kan het op de een of andere manier aangepast worden om een trui te bekomen? Misschien twee keer de voorkant gebruiken? Bedankt.

03.06.2021 - 21:27

DROPS Design answered:

Dag Hilde,

Nee, hier is alleen een vest van. Als je hem als trui wilt maken, zou je hem in de rondte kunnen breien en de voor en achterkant het zelfde kunnen maken.

05.06.2021 - 09:35

country flag Hazel Rodgers wrote:

How do you incorporate the sleeves into the main body when they are tubes and there is only an 8 stitch space where cast off for wormholes?

24.09.2020 - 21:03

DROPS Design answered:

Dear Mrs Rodgers, this video shows how to put the sleeves on the same needle as body, over the cast off sts for armholes, the first rows might sometimes appear tricky (you can get help with double pointed needles or another circular needle) but after some rows it will work nice. Happy knitting!

25.09.2020 - 08:56

country flag Caroline wrote:

Très joli pull. Je commence les diminutions du raglan. Comment faire pour le devant car on arrive dans le point fantaisie. Comment diminuer pour que cela soit régulier ? Merci pour la réponse

13.11.2019 - 00:50

DROPS Design answered:

Bonjour Caroline, si vos diminutions entament le point ajouré, tricotez les mailles du point ajouré en jersey pour éviter de trop diminuer ( si par ex, vous n'avez pas assez de mailles pour faire 1 dim, 1 jeté dans le point ajouré, tricotez ces 2 m à l'end). Bon tricot!

13.11.2019 - 09:19

country flag Joke Leijdsman wrote:

Op het plaatje (schema met de afmetingen) zie ik duidelijk verschil tussen de voor- en achterhals. In de patroonbeschrijving kan ik dit nergens terug vinden. Ik had iets als verkorte toeren voor de achterhals verwacht. Zie ik iets over het hoofd?

24.07.2019 - 19:51

DROPS Design answered:

Dag Joke,

Je hebt inderdaad gelijk dat er verschil is in de tekening, maar de voor en achterpanden zijn qua hoogte gelijk, dus er zijn geen verkorte toeren aan de achterkant.

24.07.2019 - 20:15

country flag Anne-Marie wrote:

Ik heb een probleem op het voorpand. Tussen de vijfde en de zesde heengaande rijen komt dit bij mij niet meer overeen. Wat doe ik verkeerd. Ben reeds drie keer herbegonnen. Alvast bedankt en groetjes.

17.08.2018 - 20:14

DROPS Design answered:

Dag Anne-Marie, Helaas kan ik niet met je meekijken wat er evt. mis gaat. Ik heb het telpatroon nagekeken en het zou moeten kloppen. Bij de zwarte driehoeken minder je 2 steken, deze worden gecompenseerd door extra omslagen. Kan het zijn dat je omslagen hebt gemist?

20.08.2018 - 08:37

country flag Anne-Marie wrote:

Hallo. Ik heb een probleem met het telpatroon op het voorpand. Tussen de vijfde en zesde rij komt dit niet meer overeen. Wat doe ik verkeerd. Ben reeds drie keer herbegonnen. Alvast bedankt en groetjes.

17.08.2018 - 19:09

country flag Margit wrote:

Liebes Drops-Team, ich bin eine sehr erfahrene Strickerin, und ich komme immer auf die richtige Maschenprobe, nur bei Cotton light komme ich einfach nicht auf die 21 Maschen mit Nadel 4. Das Probestück ist viiiiel zu groß. Soll ich einfach 2 Kleidergrößen kleiner wählen? LG Margit

11.04.2017 - 11:25

DROPS Design answered:

Liebe Margit, wenn Sie die richtigen Maschenprobe nicht haben, sollen Sie mit kleineren Nadeln versuchen. Mehr über Maschenprobe lesen Sie hier. Viel Spaß beim stricken!

12.04.2017 - 12:41

Ros wrote:

Thanks for your help. However, i have another question - from Row 3 onwards do i knit A1 followed by B followed by C with the stocking stitch inbetween or do i try to follow the ACB configuration as laid out in Row 1. This pattern is exquisite and I would like to do it correctly. Must say I am finding it a little confusing as i am not used to knitting off a chart.

09.04.2017 - 17:19

DROPS Design answered:

Dear Mrs Ros, you will always have to work as explained, ie: from RS: 5 sts in garter st (= band), A.1 A (= 2 sts), A.1 C (= 15 sts), stocking st over the next 52-52-52-64-68-72 sts , A.1 A ( = 2 sts), A.1B over the next 48-64-80-80-96-112 sts (= repeat A.1B over these sts), A1.C (= 15 sts), stocking st over the next 52-52-52-64-68-72 sts, finish with A.1 A (= 2 sts), A.1 C ( = 15 sts) and 5 sts in garter st (= band). ie on half back piece, you will work A.1A, A.1C, on front piece piece: A.1A, repeat A.1B and finish with A.1C, on half back piece piece A.1A, A.1C with stocking st between diagrams and 5 front band sts on each side. Happy knitting!

12.04.2017 - 13:00