Blue Bird Song |
|||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Muskat eða DROPS Belle með gatamynstri og sjalkraga. Stærð S - XXXL
DROPS 161-1 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-*. GARÐARJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. STUTTAR UMFERÐIR Í KANTI AÐ FRAMAN: Prjónaðar eru stuttar umferðir yfir l í kanti að framan, svo að stykkið dragist ekki saman á hæðina. Prjónið frá réttu í 20. hverri umf þannig: Prjónið 5 l sl (= hægri kantur að framan), snúið við og prjónið til baka. Prjónið 1 umf yfir allar l eins og áður. Snúið við og prjónið 5 l sl (= vinstri kantur að framan), snúið við og prjónið til baka. Snúið við og prjónið 1 umf yfir allar l eins og áður. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1-A.4. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING: Öll útaukning er gerð frá réttu. Aukið er út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 l. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn br til þess að koma í veg fyrir göt. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR: Prjónið 4 l snúnar slétt saman þannig: Prjónið 4 l sl, steypið næst síðustu l sem prjónuð var yfir síðustu l, þá liggur þessi lykkja utan um síðustu l, endurtakið þar til allar 3 l hafa verið steyptar yfir (= 3 l færri). Prjónið 4 l slétt saman þannig: Prjónið 4 l sl, takið þær til baka á vinstri prjón, steypið næst síðustu l yfir síðustu l, þá liggur þessi l utann um síðustu l, endurtakið þar til allar 3 l hafa verið steyptar yfir (= 3 l færri, takið síðustu prjónuðu l á hægri prjón. LYKKJUFJÖLDI: Þegar lykkjufjöldinn er gefinn upp í mynstri er miðað við fyrstu umf í A.2 (lykkjufjöldi breytist í umferðum). HNAPPAGAT: Fellt er af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið aðra og þriðju l frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: STÆRÐ S: 21, 30, 39, 48 og 57 cm. STÆRÐ M: 22, 31, 40, 49 og 58 cm. STÆRÐ L: 22, 32, 41, 50 og 59 cm. STÆRÐ XL: 22, 32, 42, 51 og 60 cm. STÆRÐ XXL: 17, 26, 35, 44, 53 og 62 cm. STÆRÐ XXXL: 19, 28, 37, 46, 55 og 64 cm. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 300-320-336-364-376-404 (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið á stykki) á hringprjóna nr 3,5 með Muskat eða Belle. Prjónið 2 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, JAFNFRAMT í síðustu umf eru auknar út 20 l jafnt yfir = 320-340-356-384-396-424 l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4. Prjónið 2 umf sléttprjón með 5 kantlykkjum að framan í hvorri hlið í garðaprjóni. Prjónið áfram frá réttu: 5 kantlykkjur í garðaprjóni, A.2 (= 6 l), A.1 (= 17 l), A.2 0-0-0-1-1-2 sinnum, 19-21-23-21-22-22 l sléttprjón, A.2, 28-31-33-36-38-39 l sléttprjóni, A.2, 28-31-33-36-38-39 l sléttprjón, A.2, 19-21-23-21-22-22 l sléttprjón, A.2 0-0-0-1-1-2 sinnum, A.3 (= 17 l), A.2, A.1, A.2 0-0-0-1-1-2 sinnum, 19-21-23-21-22-22 l sléttprjón, A.2, 28-31-33-36-38-39 l sléttprjón, A.2, 28-31-33-36-38-39 l sléttprjón, A.2, 19-21-23-21-22-22 l sléttprjón, A.2 0-0-0-1-1-2 sinnum, A.3, A.2, endið á 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Kantlykkjur eru prjónaðar í garðaprjóni til loka. A.1-A.3 eru endurtekið á hæðina til loka. Haldið svona áfram með mynstur. Munið eftir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Í 20. hverri umf (þ.e.a.s. 5 endurtekningar á A.1) eru prjónaðar STUTTAR UMFERÐIR Í KANTI AÐ FRAMAN – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 8 cm er fellt af frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.2, A.1, A.2 0-0-0-1-1-2 sinnum, 2 l snúnar slétt saman, 15-17-19-17-18-18 l sléttprjón, 2 l slétt saman, A.2, 2 l snúnar slétt saman, 24-27-29-32-34-35 l slétt saman, 2 l slétt saman, A.2, 2 l snúnar slétt saman, 24-27-29-32-34-35 l sléttprjón, 2 l slétt saman, A.2, 2 l snúnar slétt saman, 15-17-19-17-18-18 l sléttprjón, 2 l slétt saman, A.2 0-0-0-1-1-2 sinnum, A.3, A.2, A.1, A.2 0-0-0-1-1-2 sinnum, 2 l snúnar slétt saman, 15-17-19-17-18-18 l sléttprjón, 2 l slétt saman, A.2, 2 l snúnar slétt saman, 24-27-29-32-34-35 l sléttprjón, 2 l slétt saman, A.2, 2 l snúnar slétt saman, 24-27-29-32-34-35 l sléttprjón, 2 l slétt saman, A.2, 2 l snúnar slétt saman, 15-17-19-17-18-18 l sléttprjón, 2 l slétt saman, A.2 0-0-0-1-1-2 sinnum, A.3, A.2, endið á 5 kantlykkjur í garðaprjóni (= 16 l færri). Endurtakið úrtöku með 4 cm millibili 7 sinnum til viðbótar = 192-212-228-256-268-296 l – LESIÐ LYKKJUFJÖLDI. EINUNGIS Í STÆRÐ M-L: Fellið nú af í næstu umf frá réttu í stærð M-L: 5 kantlykkjur í garðaprjóni, A.2, A.1, 2 l snúnar slétt saman, 1-3 l sléttprjón, 2 l slétt saman, A.2, 15-17 l sléttprjón, A.2, 15-17 l sléttprjón, A.2, 2 l snúnar slétt saman, 1-3 l sléttprjón, 2 l slétt saman, A.3, A.2, A.1, 2 l snúnar slétt saman, 1-3 l sléttprjón, 2 l slétt saman, A.2, 15-17 l sléttprjón, A.2, 15-17 l sléttprjón, A.2, 2 l snúnar slétt saman, 1-3 l sléttprjón, 2 l slétt saman, A.3, A.2, endið á 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni (= 8 l færri) = 204-220 l. ALLAR STÆRÐIR: Næsta umf er frá réttu og er prjónuð þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, A.2, A.1, A.2 0-0-0-1-1-2 sinnum, 3-3-5-5-6-6 l sléttprjón, A.2, 11-14-16-19-21-22 l sléttprjón, setjið 1. prjónamerki, 1 l sléttprjón, A.2, 1 l sléttprjón, setjið 2. prjónamerki, 11-14-16-19-21-22 l sléttprjón, A.2, 3-3-5-5-6-6 l sléttprjón, A.2 0-0-0-1-1-2 sinnum, A.3, A.2, A.1, A.2 0-0-0-1-1-2 sinnum, 3-3-5-5-6-6 l sléttprjón, A.2, 11-14-16-19-21-22 l sléttprjón, setjið 3. prjónamerki, 1 l sléttprjón, A.2, 1 l sléttprjón, setjið 4. prjónamerki, 11-14-16-19-21-22 l sléttprjón, A.2, 3-3-5-5-6-6 l sléttprjón, A.2 0-0-0-1-1-2 sinnum, A.3, A.2, endið á 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Látið prjónamerki fylgja með í stykkinu. Þegar stykkið mælist 41 cm er aukið út um 1 l á undan 1. og 3. prjónamerki og á eftir 2. og 4. prjónamerki (= 4 l fleiri) – LESIÐ ÚTAUKNING. Útauknu l eru prjónaðar í sléttprjóni. Endurtakið útaukningu með 3-3-3-5-2½-2½ cm millibili 5-5-5-3-7-7 sinnum til viðbótar = 216-228-244-272-300-328 l. Þegar stykkið mælist 58-59-60-61-62-63 cm er stykkinu skipt upp þannig: Setjið fyrstu og síðustu 58-61-65-72-79-86 l á band fyrir framstykki, klippið frá, prjónið nú einungis yfir miðju 100-106-114-128-142-156 l (= bakstykki). BAKSTYKKI: Fellið nú af fyrir handveg í byrjun á hverri umf í hvorri hlið á stykki þannig: Fellið af 3-3-3-5-6-8 l 1 sinni, síðan 2 l 2-3-4-4-5-5 sinnum og 1 l 3-4-4-4-5-7 sinnum = 80-80-84-94-100-106 l. Þegar stykkið mælist 74-76-78-80-82-84 cm fellið af miðju 24-24-26-26-28-28 l af fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig = 28-28-29-34-36-39 l. Í næstu umf frá hálsi eru prjónaðar 2 fyrstu l slétt saman = 27-27-28-33-35-38 l. Haldið áfram að prjóna A.2 og sléttprjón eins og áður, aðrar lykkjur af A.1 og A.3 eru prjónaðar í sléttprjóni og br yfir br. Þegar stykkið mælist 75-77-79-81-83-85 cm prjónið nú 2 umf garðaprjón yfir allar l, fellið nú síðan af. Prjónið hina öxlina á sama hátt. HÆGRA FRAMSTYKKI: = 58-61-65-72-79-86 l. Fellið nú af fyrir handveg í byrjun á hverri umf frá hlið þannig: Fellið af 3-3-3-5-6-8 l 1 sinni, síðan 2 l 2-3-4-4-5-5 sinnum og 1 l 3-4-4-4-5-7 sinnum = 48-48-50-55-58-61 l. Haldið áfram að prjóna í garðaprjóni, A.1, A.2, og sléttprjóni eins og áður. Þegar stykkið mælist 75-77-79-81-83-85 cm prjónið nú 2 umf garðaprjón yfir allar l, fellið nú af fyrstu 27-27-28-33-35-38 l af fyrir öxl í næstu umf frá réttu = 21-21-22-22-23-23 l eftir fyrir sjalkraga. Prjónið nú sjalkraga í garðaprjóni yfir þær l sem eftir eru með byrjun frá miðju að framan (1. umf = rétta) þannig: * Prjónið 2 umf fram og til baka yfir fyrstu 13-13-14-14-15-15 l, prjónið 2 umf fram og til baka yfir allar l *, endurtakið frá *-* þar til kraginn mælist 8-8-9-9-10-10 cm þar sem er styst. Fellið af. VINSTRA FRAMSTYKKI: Prjónið á sama hátt og hægra framstykki nema gagnstætt. Fellið af fyrir öxl frá réttu. Sjalkragi byrjar frá röngu. Fellið ekki af fyrir hnappagötum. ERMI: Ermin er prjónuð í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 51-53-55-57-59-61 l á sokkaprjóna nr 3,5 með Muskat eða Belle. Prjónið 2 umf GARÐARPJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 4. Prjónið 2 umf sléttprjón. Prjónið nú þannig: 12-13-14-15-16-17 l sléttprjón, A.2, A.4 (= 15 l), A.2, 12-13-14-15-16-17 l sléttprjón, setjið 1 prjónamerki í byrjun umf. Haldið nú áfram með mynstur svona. Þegar stykkið mælist 8-8-8-12-8-7 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki, endurtakið útaukningu með 3½-3-2½-2-2-2 cm millibili 11-12-14-15-16-17 sinnum til viðbótar = 75-79-85-89-93-97 l. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 49-49-48-46-44-43 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna lengri ermakúpu og breiðari axla), fellið af fyrir ermakúpu í byrjun á hverri umf í hvorri hlið: Fellið af 4 l 1 sinni, 2 l 3 sinnum og 1 l 6 sinnum, fellið síðan af 2 l í hvorri hlið þar til stykkið mælist 56-57-57-56-55-55 cm, fellið nú af 3 l 1 sinni í hvorri hlið. Fellið af þær l sem eftir eru, stykkið mælist 57-58-58-57-56-56 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermar í. Saumið kraga saman við miðju að aftan og saumið við hálsmál. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (110)
Kathleen wrote:
I hope that this pattern will be offered in plus sizes of LX to 2X. It is a very chic design and one that I will love to wear.
14.12.2014 - 19:19Karoline Haga wrote:
Fantastisk, en must-have!
14.12.2014 - 19:15Susanne wrote:
Spitze !
14.12.2014 - 13:07Judy Hynes wrote:
I have always loved this style! The fitted waist style is so flattering!
14.12.2014 - 01:02Merete Mjøen wrote:
Nydelig og delikat sommerjakke
13.12.2014 - 10:35Kalhöfer wrote:
Sehr feminin.
12.12.2014 - 23:15Eva wrote:
Härlig kappklänning i sommar
12.12.2014 - 16:18Iviva wrote:
Très élégant .
12.12.2014 - 07:14Jette Pedersen wrote:
Meget elegant.
11.12.2014 - 22:30Anja wrote:
Stilvoll
11.12.2014 - 21:10