DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3080.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

White Romance

Prjónaður toppur úr DROPS Safran með gatamynstri, stuttum ermum og hringlaga berustykki. Stærð S - XXXL.

DROPS 159-12
DROPS Design: Mynstur nr e-226
Garnflokkur A
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS SAFRAN frá Garnstudio
350-350-400-450-500-550 gr litur nr 17, hvítur

DROPS HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 l og 32 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 2,5 – fyrir kant.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3080.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á hringprjóna):
*1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.10. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 l með því að slá uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Útauknnar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni.

LASKALÍNA:
Lykkjum er fækkað fyrir laskalínu hvoru megin við A.4 í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma.
Fækkið lykkjum á eftir A.4: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.
Fækkið um 2 l á undan A.4: Prjónið 2 lykkjur slétt saman.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 336-372-408-456-516-576 l á hringprjóna nr 2,5 með Safran. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 3 og prjónið mynstur eftir A.1. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 168-186-204-228-258-288 l á prjóni. Prjónið nú mynstur eftir mynsturteikningu A.2. Eftir A.2 eru prjónaðar 2 umf slétt JAFNFRAMT er aukið út um 0-6-0-0-6-0 l jafnt yfir í síðustu umf = 168-192-204-228-264-288 l. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf og 1 prjónamerki eftir 84-96-102-114-132-144 l (= hliðar). Prjónið nú mynstur eftir A.3. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 12 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚTAUKNING (= 4 l fleiri). Endurtakið útaukningu með 4-4-4-5-5-5 cm millibili alls 6 sinnum í hvorri hlið = 192-216-228-252-288-312 l – ATH: Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 35-36-38-38-40-40 cm. Næsta umf er prjónuð þannig: Fellið af 5-5-5-6-6-6 l fyrir handveg, prjónið 86-98-104-114-132-144 l (= framstykki), fellið af 10-10-10-12-12-12 l fyrir handveg (þ.e.a.s. 5-5-5-6-6-6 l hvoru megin við hvort prjónamerki), prjónið 86-98-104-114-132-144 l (= bakstykki) og fellið af þær 5-5-5-6-6-6 l sem eftir eru. Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna.
Fitjið upp 144-156-156-168-168-180 l á hringprjóna nr 2,5 með Safran. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 3 og prjónið mynstur eftir mynsturteikningu A.1A. Þegar A.1A hefur verið prjónað eru 72-78-78-84-84-90 l á prjóni. Prjónið 4 umf garðaprjón. JAFNFRAMT í síðustu umf eru felldar af miðju 10-10-10-12-12-12 l mitt undir ermi = 62-68-68-72-72-78 l eftir á prjóni. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg (þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar) = 296-332-344-372-408-444 l. JAFNFRAMT er sett 1 prjónamerki í fyrstu og síðustu l á báðum ermum (= 4 prjónamerki). Byrjið við miðju að aftan og haldið áfram með mynstur eins og áður á fram- og bakstykki JAFNFRAMT er A.3 einnig prjónað á ermum (ör í mynstri á að passa við miðju á ermi, byrjið í sömu umf í mynstri eins og á fram- og bakstykki). Að auki er A.4 prjónað í hverja skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (ör í mynstri á að passa við l með prjónamerki í). Þegar prjónaðar hafa verið 2 umf hringinn yfir allar l byrjar úrtaka fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan (= 8 l færri). Endurtakið úrtöku í 4. hverri umf alls 4-5-5-7-7-8 sinnum = 264-292-304-316-352-380 l. Prjónið 4 umf garðaprjón yfir allar l. JAFNFRAMT er fækkað um 4-12-4-6-12-10 l jafnt yfir í 1. umf = 260-280-300-310-340-370 l. Prjónið 2 umf slétt. Nú byrjar hringlaga berustykkið og mynstrið prjónað í hring eftir A.5 (= 26-28-30-31-34-37 mynstureiningar í umf – ATH: Skiptið yfir í styttri hringprjóna eftir því sem l fækkar á prjóni). Þegar A.5 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er A.6 prjónað í stað A.5. Þegar A.6 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 156-168-180-186-204-222 l á prjóni. Prjónið nú A.7 í stað A.6. Þegar A.7 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónuð upphækkun aftan í hnakka. Setjið 1 prjónamerki við miðju að framan. Byrjið við miðju að aftan og prjónið sl þar til 14-14-16-16-18-20 l eru eftir á undan prjónamerki. Snúið við, prjónið sl til baka þar til eftir eru 14-14-16-16-18-20 l á undan prjónamerki í hinni hliðinni. Snúið við, prjónið sl þar til eftir eru 30-30-34-34-38-42 l á undan prjónamerki. Snúið við, prjónið sl til baka þar til eftir eru 30-30-34-34-38-42 l á undan prjónamerki í hinni hliðinni. Snúið við, prjónið sl þar til eftir eru 46-46-52-52-58-64 l á undan prjónamerki. Snúið við, prjónið sl til baka þar til eftir eru 46-46-52-52-58-64 l á undan prjónamerki í hinni hliðinni. Snúið við, prjónið sl þar til eftir eru 62-62-70-70-76-86 l á undan prjónamerki. Snúið við, prjónið sl til baka þar til eftir eru 62-62-70-70-76-86 l á undan prjónamerki í hinni hliðinni. Snúið við og prjónið sl til baka að byrjun umf.

HÁLSMÁL:
Skiptið yfir á hringprjóna nr 2,5 og prjónið mynstur hringinn yfir allar l eftir A.2. JAFNFRAMT í 1. umf er fækkað um 22-24-24-26-30-32 l jafnt yfir = 134-144-156-160-174-190 l. Eftir A.2 er fellt laust af með sl. Toppurinn mælist nú ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl og niður.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum.

Mynstur

symbols = sl
symbols = br
symbols = engin lykkja, hoppið yfir þennan ferning
symbols = sláið uppá próninn á milli 2 l
symbols = 2 l slétt saman
symbols = takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = 2 l br saman
symbols = takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = 3 l br saman
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 159-12

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (43)

country flag Laura Wilkinson wrote:

Hi, I am having trouble when placing sleeves into yoke, when I am knitting them the sleeve stitches are so tight that threads are snapping and thus getting knotted and I have to unpick it all again. The garment is looking so good I don't want to lose it completely, I have watched the tutorial video for doing this but mine doesn't lay flat like yours, please can you help?? Thanks

13.04.2024 - 17:18

DROPS Design answered:

Dear Laura, have you checked the gauge of your garment? If you have trouble working the sleeve stitches then maybe some part of these stitches has been worked too tight, so it makes it difficult to work the sleeve stitches and the high tension makes the thread snap. Check if your gauge in your sleeves/body pieces is correct or try and make it looser so that you can work it more easily. Take into account that the way this piece is worn it requires to be loosely worked so that the garment will flow down; if it's too tight the shaping will be incorrect too. Happy knitting!

14.04.2024 - 23:48

country flag ILANA wrote:

Hello. can you explain me how I should knit sleeves +front+back together on on a circular needle and gradually knit till the neck ? Should I change the needle length? Thanks

20.08.2022 - 17:27

DROPS Design answered:

Dear Ilana, you can see how to join the different parts in this video: https://www.garnstudio.com/video.php?id=335&lang=en. Happy knitting!

21.08.2022 - 21:06

country flag Diane wrote:

Bonjour, j’ai un autre problème, quand on arrive aux diminutions pour le raglan, au début, les explications disent de diminuer après A4 : glisser une m à l’endroit, 1 m end passer etc , même chose pour après A4 2 m ens à l’endroit cela fait une diminution de 4 mailles par rangs et non 8 mailles. Qu’est-ce que je ne comprends pas? C’est supposé être 8 mailles par rang x 8 pour arriver de 444 m à 380 m? Où est-ce que je me trompe?Merci

08.06.2021 - 21:09

DROPS Design answered:

Bonjour Diane, vous devez diminuer de chaque côté de chaque A.4, autrement dit: tricotez jusqu'à ce qu'il reste 2 m avant A.4, tricotez ces 2 m ensemble à l'endroit, tricotez A.4, glissez 1 m à l'end, 1 m end, passez la m glissée par-dessus la m tricotée, et répétez à chaque A.4, vous diminuez ainsi 2 mailles à chaque A.4 (=1 m avant + 1 m après) x 4 raglan = 8 mailles. Bon tricot!

09.06.2021 - 07:30

country flag Diane wrote:

Bonjour, je fais la grandeur xxxl, je suis rendu à l’empiètement, si je comprends bien, je dois commencer à la maille 72 du dos et faire le diagramme A3 à partir du 9e rang puisque j’étais là quand j’ai rabattu mes mailles pour l’emmanchure? Après, avoir fait les rangs 9 et 10, je devrai commencer le raglan? Merci

06.06.2021 - 14:50

DROPS Design answered:

Bonjour Diane, tout à fait, vous commencez au milieu dos et tricote le point ajouré comme avant avec en plus A.3 sur les manches et A.4 à chaque transition (cf flèches). Après avoir tricoté 2 rangs (= les 9 et 10 de A.3 pour vous et le rang 3 de A.4), vous commencez à diminuer pour le raglan. Bon tricot!

07.06.2021 - 07:36

country flag Kristy wrote:

Just had a look at the Drops gallery. What outstanding knitters there are in the world!

03.06.2021 - 17:20

country flag Kristy wrote:

Thanks it did help. I must have repeated the decrease row twice in A6. On the right track to finish and it’s looking lovely!

02.06.2021 - 13:45

DROPS Design answered:

Super, thanks for your feedback! Remember you can share your pictures with us - read more here. Happy finishing!

02.06.2021 - 16:11

country flag Kristy wrote:

Got it. 240 sts thnx

02.06.2021 - 06:51

country flag Kristy wrote:

I ended up with 30 stitches less after finishing A6 in the yoke. Not sure where I went wrong but do you know how many stitches should be on the needle after finishing A5 for size L? I had to rip it back to the ridges and start from A5 again, if I know how many stitches on the needle after I finish A5 that might help.

01.06.2021 - 17:44

DROPS Design answered:

Dear Kristy, after A.5 has been worked, there are 8 sts in each A.5 x 30 repeats on the round = 240 sts on needle. You now work A.6 = 8 sts a total of 30 times in the round - when A.6 has been worked, you have decreased 2 sts in each A.6 = 6 sts x 30 = 180 sts. Can this help?

02.06.2021 - 07:30

country flag Kristy wrote:

Thank you very much for the detailed explanation. I have worked out what I did wrong on the first garment. I did not have the arrow lined up correctly on the graph and that has made the difference. I have almost finished the 2nd one and it’s looking pretty darn perfect. Thanks again!

29.05.2021 - 11:45

DROPS Design answered:

Dear Kristy, we are happy that you managed to make it work. We always try to help. Happy Knitting!

29.05.2021 - 13:27

country flag Mrs Ellis wrote:

What does the arrow mean on the graph in A3?\r\nThanks in advance

27.05.2021 - 14:08

DROPS Design answered:

Dear Mrs Ellis, the arrow in A.3 will be used when working yoke, ie the arrow in A.3 should match the middle of sleeve. Happy knitting!

28.05.2021 - 08:28