DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Super Sale
DROPS 160-4
DROPS Design: Mynstur nr bs-077
Garnflokkur A
----------------------------------------------------------

Stærð: S/M – L/XL – XXL/XXXL

Efni:
DROPS BABYALPACA SILK frá Garnstudio
200-200-200 gr litur, nr 3125, ljós bleikur

DROPS HRINGPRJÓNN (60 cm) NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 l og 32 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 2,5 – fyrir kant.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1-A.8. Mynsturteikning sýnir allar umf séð frá réttu.

ÚRTAKA:
Fækkið lykkjum innan við 1 kantlykkju í garðaprjón. Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið lykkjum á undan 1 kantlykkju og 2 l þannig: 2 l slétt saman.
Fækkið lykkjum á eftir 1 kantlykkju þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn br (þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan) til þess að koma veg fyrir göt.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

BOLERO - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fyrst er bakstykkið prjónað. Síðan eru lykkjurnar teknar upp á bakstykki fyrir ermar.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 79-87-97 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna nr 3 með BabyAlpaca Silk. Prjónið eftir mynstri A.1 innan við 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í hvorri hlið (í 7. umf í A.1 er síðasta l prjónuð á undan kantlykkju í garðaprjóni), A.1 er prjónað alls 1-1-2 sinnum á hæðina, JAFNFRAMT í síðustu umf frá réttu í mynstri er aukið út um 2-0-2 l jafnt yfir = 81-87-99 l. ATH: Kantlykkjan er áfram prjónuð í garðaprjóni til loka! ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Prjónið nú innan við kantlykkju í hvorri hlið: A.2, A.3 11-12-14 sinnum á breiddina, A.4. Þegar A.2-A.4 hefur verið prjónað til loka á hæðina er A.5 prjónað (í 5. umf er síðasta l prjónuð á undan kantlykkju slétt). Þegar A.5 hefur verið prjónað til loka á hæðina er næsta umf prjónuð þannig: 3-0-0 l sléttprjón, A.6 6-7-8 sinnum á breiddina, 4-1-1 l í sléttprjóni. Þegar A.6 hefur verið prjónað til loka á hæðina er haldið áfram með A.1 (í 7. umf er síðast l prjónuð á undan kantlykkju slétt), JAFNFRAMT í síðustu umf frá réttu í mynstri er fækkað um 2-0-0 l jafnt yfir = 79-87-99 l.
Næsta umf frá réttu er prjónuð þannig: 2-2-0 l sléttprjón, A.7 9-10-12 sinnum á breiddina, 3-3-1 l sléttprjón. Þegar A.X hefur verið prjónað til loka á hæðina er endurtekið A.X 0-1-1 sinni áður en haldið er áfram þar til allt A.7 hefur verið prjónað til loka á hæðina. Prjónið nú 4 umf garðaprjón, JAFNFRAMT í síðustu umf frá réttu er lykkjufjöldinn jafnaður út til 81-87-99 l (meðtalin 1 kantlykkja á hvorri hlið). Prjónið nú þannig: A.2, A.3 11-12-14 sinnum á breiddina, A.4. Þegar A.2-A.4 hefur verið prjónað til loka á hæðina, haldið áfram með a.5 (í 5. umf er síðasta l prjónuð á undan kantlykkju slétt). Fellið af þegar allt A.5 hefur verið prjónað 1-1-2 sinnum á hæðina. Stykkið mælist 36-42-47 cm frá uppfitjunarkanti.

ERMI:
Takið upp frá réttu 88-102-114 l (meðtalin 1 kantlykkja í garðaprjóni í hvorri hlið) innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni í annarri hlið á bakstykki með BabyAlpaca Silk á hringprjóna nr 3. Prjónið þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 3-0-1 l sl, A.8 þar til eftir eru 4-1-2 l, 3-0-1 l sl, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram fram og til baka. Þegar stykkið mælist 4 cm byrjar úrtaka í hvorri hlið á stykki – LESIÐ ÚRTAKA! Endurtakið úrtök með ca 2-1½-1 cm millibili 10-14-18 sinnum til viðbótar = 66-72-76 l. ATH: Þegar ekki eru nægilega margar l fyrir mynstur eru l prjónaðar í sléttprjóni. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 10 cm frá uppfitjunarkanti er sett prjónamerki í hvora hlið (hér endar ermasaumur neðst niðri á ermi).

Þegar stykkið mælist 27 cm er aukið út um 6-4-4 l jafnt yfir í næstu umf frá réttu = 72-76-80 l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 2,5 og prjónið í garðaprjóni í 2 cm. Fellið laust af.
Takið upp lykkjur og prjónið aðra ermi á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið sauma undir ermum neðst niðri þar sem kantur er í garðaprjóni og upp að prjónamerki innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni.

KANTUR:
Prjónið nú kant með stroffi hringinn þannig: * Byrjið frá réttu við sauminn undir ermum (prjónið), prjónið upp 135-145-155 l með BabyAlpaca Silk á hringprjóna 2,5 meðfram ermi, yfir bakstykki og niður meðfram annarri hlið á hinni ermi að saum (prjónamerki) *, endurtakið frá *-* yfir gagnstæða hlið á jakkanum = 270-290-310 l. Prjónið stroff (2 l sl, 3 l br) yfir allar l. Þegar stykkið mælist 2 cm er aukið út um 1 l í hverri mynstureiningu með br – LESIÐ ÚTAUKNING! Nú eru 324-348-372 l. Haldið síðan áfram með (2 l sl, 4 l br) þar til prjónaðir hafa verið 4 cm frá kanti sem l voru prjónaðar upp. Aukið nú út um 1 l í hverri mynstureiningu með br alveg eins og áður = 378-406-434 l. Haldið áfram með (2 l sl, 5 l br) í 2 cm. Stroffið mælist 6 cm. Fellið laust af með sl yfir sl og br yfir br.

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = br frá réttu, sl frá röngu
symbols = sláið uppá prjóninn, takið 1 l óprjónaða, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir, sláið uppá prjóninn
symbols = 2 l slétt saman, sláið uppá prjóninn
symbols = sláið uppá prjóninn, takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = hvernig nota á flíkina
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 160-4

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (41)

country flag Solveig wrote:

Kan man sticka hela boleron i samma mönster som ärmarna utan att ändra något annat? Mvh Solveig Eriksson

31.08.2023 - 14:42

DROPS Design answered:

Hej Solveig, ja det kan du :)

08.09.2023 - 15:28

country flag Francoise Calandriello wrote:

Puis-je remplacer ce point fantaisie par le point de blé ?

17.09.2022 - 08:34

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Calandriello, vous pouvez probablement remplacer les différents points ajourés par un point de blé, veillez bien à bien respecter les indications pour conserver la bonne hauteur en cm (il vous faudra peut-être ajuster si besoin) - et naturellement aussi la bonne tension en largeur. Bon tricot!

19.09.2022 - 09:18

country flag Laila Gunthel wrote:

Hej igen Jeg strikker med baby alpaca silk og er ikke typen der strikker særligt stramt. Jeg har valgt at strikke A5 + A2/A3/A4 + A1 og lukket af. Valgt at kører videre i small og slået 88 masker op til ærme. Det fungere fint på den måde. Jeg bemærker at der er flere som har skrevet lign. Ift. målene før mig. God aften Vh Laila

19.05.2022 - 17:06

country flag Laila wrote:

Hej Jeg har strikket alt det anviste i den rigtige rækkefølge i m. Det skulle måle 42 cm. Jeg har kigget dobbelttjekket og andre har set med. Det færdige arbejde fra opslåningskanten måler kun 32 cm. Målene passer ikke🤔 Vh Laila

17.05.2022 - 16:38

DROPS Design answered:

Hej Laila, for at få målene til at stemme er det vigtigt at du har 24 masker på 10 cm i bredden OG 32 pinde glatstrik på 10 cm i højden, det lyder til at du har flere pinde på 10 cm end de 32... Hvilket garn strikker du i?

18.05.2022 - 11:53

country flag Jennie wrote:

Hei! Ja jeg har strikket alle diagrammer slik de skal være. Har gått gjennom flere ganger og har også fått andre til å sjekke sammen med meg. Stemmer fortsatt ikke. Ja det trekker seg sammen litt, men man ska vel ikke dra i strikketøyet når man måler? Har aldri vært borti det før at det skal gjøres

18.01.2022 - 10:59

country flag Jennie wrote:

Har strikket bakstykket men får ikke lengden til å stemme med det som står i oppskriften. Jeg har 28 cm og det står at det skal være 36. Kan dette stemme? Har sjekket strikkefastheten min og den stemmer. Bredden stemmer..

14.01.2022 - 14:36

DROPS Design answered:

Hei Jennie. Har du fått med deg alle diagrammene i høyden? Om du strikker str. S/M skal du strikker A.1+A.2/A.3/A.4+A.5+A.6+A.1+A.7+2 riller + A.2/A.3/A.4+A.5 = 124 pinner i høyden. Rillene mellom A.7 og A.2/A.3/A.4 og i diagram A.1 og A.5 vil trekker litt sammen, men da ser du på strikkefastheten i høyden at det vil det stemme med ca 36 cm. mvh DROPS Design

18.01.2022 - 09:23

country flag Sandra Wever wrote:

Ik wil beginnen met het opzetten van 87 steken. Maar als ik dan A1 wil breien en ik trek daar de 2 kantsteken vanaf dan houd ik 85 steken over en A1 is 2 steken breed dan kom ik toch niet uit? 85 is toch niet deelbaar door 2? Alvast bedankt. Groetjes Sandra

14.08.2020 - 21:48

DROPS Design answered:

Dag Sandra,

A.1 bestaat inderdaad uit een herhaling van 2 steken, maar in de 7e naald brei je de laatste steek voor de kantsteek recht. De overige naalden brei je steeds in zijn geheel recht of averecht.

17.08.2020 - 19:54

country flag Carmen Cueto González wrote:

Gracias por compartir tantas cosas hermosas, quisiera seguir recibiendo sus patrones y modelos ,es una gran enseñanza. Gracias

13.06.2020 - 15:24

country flag Ankie wrote:

Perfect! This works! I guess I hadn't tried the right combination. Thank you.

25.06.2019 - 17:36

country flag Ankie wrote:

Hello Drops Design, I'm stuck at A.6. I managed to figure out the first row ( 3-0-0 sts in stockinette st, A.6 6-7-8 times in width, 4-1-1 in stockinette st, not including edge stitches) but do I continue with this pattern for the following rows? That is 1 edge stitch 3-0-0 Sts in stockinette st, A.6 6-7-8 times in width, 4-1-1 in ss stitch? I've tried several combinations and so far nothing works!

14.06.2019 - 19:33

DROPS Design answered:

Dear Ankie, depending on your size you should have 81-87-99 sts, you will work: 1 edge st as before, 3-0-0 sts in stocking st, then repeat A.6 (= 12 sts) total of 6-7-8 times (= over the next 72-84-96 sts), and finish with 4-1-1 st in stsocking st and 1 edge st as before = 1 + 3-0-0 + 72-84-96 + 4-1-1 +1= 81-87-99 sts. Happy knitting!

17.06.2019 - 07:00