Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
Þetta mynstur hefur verið leiðrétt. Smelltu hér til að sjá leiðréttinguna/arnar.
= milligrár | |
= natur | |
= sláið uppá prjóninn á milli 2 l (uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umf). |
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Silver Stag Cardigan |
||||||||||
|
||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Karisma með hringlaga berustykki og hreindýramynstri, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.
DROPS 157-24 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1- A.4. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við hliðar og ermar): Fækkið lykkjum á undan prjónamerki og 1 l sl þannig: 2 l slétt saman. Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki og 1 l sl þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. ÚTAUKNING (á við um hliðar): Öll útaukning er gerð frá réttu. Aukið út alls 4 l á prjóni. Prjónið fram að 1 l á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn = 2 l fleiri. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt (þ.e.a.s. prjónað aftan í lykkjubogann í stað framan) til að koma í veg fyrir göt. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka, ofan frá og niður á hringprjóna. Ermarnar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna. BERUSTYKKI: Fitjið upp 90-98-106-122-130-138 l á hringprjóna nr 4 með litnum milligrár. Prjónið 1. umf þannig (= rétta): 1 kantlykkja GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, A.1 þar til 1 l er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 266-290-314-362-386-410 l á prjóni. Haldið áfram með 3-5-9-5-7-11 umf sléttprjón (með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið) með litnum milligrár. Næsta umf frá röngu er prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 38-41-47-53-59-65 l (meðtalin 1 kantlykkja í garðaprjóni), setjið næstu 58-64-64-76-76-76 l á þráð (= ermi), fitjið upp 10 nýjar l undir ermi, setjið prjónamerki mitt á milli þessa 10 l, prjónið næstu 74-80-92-104-116-128 l (= framstykki), setjið næstu 58-64-64-76-76-76 l á þráð (= ermi), fitjið upp 10 l undir ermi, setjið prjónamerki mitt á milli þessa 10 l, prjónið næstu 38-41-47-53-59-65 l. FRAM- OG BAKSTYKKI: Nú eru 170-182-206-230-254-278 l fyrir fram- og bakstykki. Prjónið nú þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, A.2 (= 12 l) þar til 1 l er eftir, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram þar til A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina. Stykkið er nú prjónað áfram í sléttprjóni með litnum milligrár. Í næstu umf frá réttu er fækkað um 1 l hvoru megin við hvort prjónamerki í hliðum – LESIÐ ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku með 2 cm millibili 2 sinum til viðbótar = 158-170-194-218-242-266 l. Þegar stykkið mælist 12-13-14-15-16-17 cm frá prjónamerki undir ermum er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið á stykki – LESIÐ ÚTAUKNING! Endurtakið útaukningu með cm millibili 2 sinnum til viðbótar = 170-182-206-230-254-278 l. Þegar stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm er skipt yfir á hringprjóna nr 3 og aukið út um 22-26-26-30-30-34 l jafnt yfir = 192-208-232-260-284-312 . Prjónið síðan stroff frá réttu þannig: * 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* þar til 3 l eru eftir, 2 l sl, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Fellið af með sl yfir sl og br yfir br þegar stroffið hefur verið prjónað í 4 cm. ERMI: Setjið til baka l af þræði yfir á sokkaprjóna nr 4. Nú eru 58-64-64-76-76-76 l fyrir ermi. Prjónið 1 umf sléttprjón. Fitjið síðan upp 10 l undir ermum = 68-74-74-86-86-86 l. Setjið prjónamerki mitt á milli þessa nýju l. Prjónið síðan ermina hringinn. Prjónið nú A.2. ATH: Passið uppá að 2 miðju-l í mynstri (sjá ör) eru 2 miðju-l á ermi! Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka er haldið áfram með A.3. ATH: Stillið mynstur af þannig að miðju l í mynstri (sjá ör) sé ein af 2 miðju-l á ermi, JAFNFRAMT í 1. umf í A.3 byrjar úrtaka undir ermi – Munið eftir ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku með 3-2½-2½-2½-2½-2½ cm millibili 9-12-12-12-12-12 sinnum til viðbótar = 48-48-48-60-60-60 l. Þegar ermin mælist 38 cm er A.4 prjónað. ATH: Stillið mynstrið af þannig að miðju-l í mynstri (sjá ör) sé ein af 2 miðju l á ermi. Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka á hæðina er skipt yfir á sokkaprjóna nr 3 og aukið út um 4-8-8-0-4-4 l jafnt yfir = 52-56-56-60-64-64 l. Prjónið síðan stroff (2 l sl, 2 l br) í 3 cm. Fellið af með sl yfir sl og br yfir br. Prjónið hina ermina á sama hátt. VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN: Kanturinn að framan er prjónaður fram og til baka á hringprjóna nr 3. Prjónið upp ca 144 til 168 l (deilanlegt með 4) innan við 1 kantlykkju meðfram vinstri kanti að framan með milligrár. Prjónið stroff frá röngu þannig: 1 l garðaprjón, * 2 l br, 2 l sl *, endurtakið frá *-*, endið á 2 l br og 1 l garðaprjón. Frá réttu byrjar og endar stroff með 2 l sl og 1 l garðaprjón. Haldið áfram þar til stroffið mælist 3 cm. Fellið af með sl yfir sl og br yfir br. HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN: Prjónið á sama hátt og vinstri kantur en eftir 1 cm er fellt af fyrir 7 hnappagötum jafnt yfir (hnappagötin eru felld af í br mynstureiningu séð frá réttu). 1 HNAPPAGAT = Prjónið 2 l br saman og sláið uppá prjóninn – efsta hnappagatið á að vera ca 6-7 cm ofan frá (það einnig að vera 1 hnappagat í hálsmáli) og neðsta ca 5-6 cm frá kanti að neðan. HÁLSMÁL: Prjónið upp 96-100-104-108-112-116 l yfir kant að framan og uppfitjunarkantinn á hringprjóna nr 3 með litnum milligrár. Prjónið stroff þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 2 l br, 2 l sl *, endurtakið frá *-* þar til 3 l eru eftir á prjóni, 2 l br, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Þegar hálsmálið mælist 1 cm er fellt af fyrir 1 hnappagati yfir hin í hægri kant að framan með því að prjóna 2 l slétt saman og slá 1 sinni uppá prjóninn. Haldið svona áfram þar til stroffið mælist 3 cm. Fellið af með sl yfir sl og br yfir br. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6940 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (30)
Maple wrote:
Hi, i am knitting drops 157-24. U say, when work WS rows have the yarn following in front of work, is that mean, purl on the wrong side when knit fair isle WS rows ????
04.09.2015 - 01:35DROPS Design answered:
Dear Mrs Maple, that's right, you are working in stocking st, ie rows from WS are purled (= K 1 row, P 1 row following at the same time the diagram: 1 square = 1 st x 1 row). Happy knitting!
04.09.2015 - 09:53Maple wrote:
Hi,i'm knitting silver stag cardigan drops 157-24. I want to know, do sliver stag cardigan have purl stitches ??? Because drops fair isle video show purl stitches on wrong side row.. is this cardigan knit all ,right side row and wrong side row,all knit stitches ????
03.09.2015 - 22:38DROPS Design answered:
Dear Mrs Maple, this jacket is worked in stocking st, back and forth on circular needle, ie you will K every row from RS and P every row from WS when working the body. Sleeves are then worked in the round with double pointed needles, ie you will then K every round. Happy knitting!
04.09.2015 - 09:22Maple wrote:
Hi i am knitting silver stag cardigan with circular needle.large size chart A.1.i try to knit row 6=(wrong side). But the floats is show on the right side... should i keep knitting row 6 even the floats is show in right side. Or i do wrong....please help...
03.09.2015 - 02:15DROPS Design answered:
Dear Mrs Maple, When working WS rows have the yarn following in front of work, again make sure you have the right tension on the thread. Happy knitting!
03.09.2015 - 09:30Maple wrote:
Hi, i am knitting sliver stag cardigan drop 157-24. I don't know how to knit row 6 and i watch the fair isle video but doesn't help me because the video use straight needle to knit fair isle. But sliver stag cardigan use circular needle to knit fair isle...i don't know how to knit fair isle with circular needle and knit wrong side row...because don't seen right...
03.09.2015 - 01:56DROPS Design answered:
Dear Mrs Maple, working fair isle with circular needle will be done the same way as with straight needles: at the end of each row you turn and work next row, ie you work alternately from RS and from WS, as with straigth needles. Happy knitting!
03.09.2015 - 09:29Maple wrote:
Hi,i am knitting sliver stag cardigan drops 157-24. I don't know how to knit row 6. I never working fair isle cardigan pattern.. after i done knitting row 5 =(right side). And i try to knit row 6=(wrong side ).but the yarn,the stitch..... long yarn...is show... i hope u understand me...
03.09.2015 - 01:37DROPS Design answered:
Dear Mrs Maple, when working fair isle, you will have to make sure you are working not too tight or too loose. If you are not used to work fair isle, it can be a good idea to practise a bit making a swatch with another yarn before working on the jacket. Happy knitting!
03.09.2015 - 09:27Maple wrote:
Hi,i am knitting sliver stag cardigan drops 157-24. I'm knitting large size, chart A.1 and i am not sure how to knit row 6 because if i knit row 6= wrong size, the yarn is not on the wrong size,the yarn is show in right side..i hope you understand what i mean...please help....
03.09.2015 - 01:21DROPS Design answered:
Dear Mrs Maple, you read diagram starting from the bottom corner on the right side: From RS: read from the right towards the left From WS: read from the left towards the right. This means you work row 6 as follows: 1 edge st in grey, *K3 in white, K1 in grey, K1 in white, K1 in grey, K3 in white, K1 in grey, K1 in white, K3 in grey* repeat from *-*, 1 edge st in grey. Happy knitting!
03.09.2015 - 09:23Maple wrote:
Hi,i'm knitting sliver stag cardigan drops 157-24. I'm knitting large size. Chart A.1 row 5, First,k1edge sts,yo,k1 with grey,then k1 with white, k1 with grey,k1 with white, k3 with grey, k1 with white, k1 with grey, k1 with white, k1 with grey, k1 edge sts ???? Am i do it right ??? I rep row 5, The end i end with yo, k1 with grey, k1 with white.. am i do it right ???..
02.09.2015 - 04:44DROPS Design answered:
Dear Mrs Maple, on row 5, you start with 1 edge st (with grey), then work A.1 = *YO, K2 with grey (= 2 squares after the YO), K1 with white, K1 with grey, K1 with white, K3 with grey, K1 with white, K1 with grey, K1 with white, K1 with grey* (= 13 sts), repeat from *-* and finish with 1 edge st with grey. Happy knitting!
02.09.2015 - 09:59Maple wrote:
Hi,i 'm knitting sliver stag cardigan drops 157-24.large size. YOKE: i cast on 106 sts on circular needle and work 1st row as follow (=RS): 1 edge st in GARTER ST. What is that mean...knit one row edge st in garter st and then work chart A.1 ???? Am i right ??? Please help..
01.09.2015 - 04:21DROPS Design answered:
Dear Mrs Maple, you work 1 st in garter st (edge stitch), then repeat diagram A.1 a total of 13 times over the next 104 sts, and finish with 1 st in garter st (= edge stitch) - see below how to work the edge st in garter st. Happy knitting!
01.09.2015 - 10:31Maple wrote:
Am I do it right , chart A.1 first row, k 1st, yo, k1st, k4st, then k1st, yo,k1st, Rep first row until done knitting the first row. am I do it right???? Please help.....
01.09.2015 - 00:32DROPS Design answered:
Dear Mrs Maple, yes, you will repeat diagram A.1 in width inside 1 edge st in each side. A good idea is to place a marker between each repeat of the diagram to follow more easily the pattern and each repetition. Happy knitting!
01.09.2015 - 10:28Maple wrote:
Hi I am knitting sliver stag cardigan drops 157-24. Diagram A.1chart. Tell me to 1 Yo between 2 STS .First row, I knit 1 st, yo, knit 1st, knit 4 st, then knit 1 st,yo,knit 1 st, then knit 4 st, knit 1 st, yo knit
01.09.2015 - 00:23DROPS Design answered:
Dear Mrs Maple, that's right, on row 1 in A.1 you work: K1, YO, K6, YO, K1 (= 6 sts + 2 YOs = 8 sts). Happy knitting!
01.09.2015 - 10:26