DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 447.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 447.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale
DROPS 158-46
DROPS Design: Mynstur nr fa-281
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Stærð:
15/17 - 18/19 - 20/21 - 22/23 - (24/25 - 26/28 - 29/31 - 32/34) - 35/37 - 38/40 - 41/43 - 44/46
Hæð á sokk:
6-7-8-9 (10-11-12-13) 14-15-16-17 cm.
Lengd fótar:
10-11-12-13 (15-17-18-20) 22-24-27-30 cm.

Efni:
DROPS FABEL frá Garnstudio
Litur nr 677, grænn/turkos
50-50-50-50-(50-50-100-100)-100-100-100-100 gr

DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5 – eða þá stærð sem þarf til að 26 l og 34 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 447.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 447.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HÆLÚRTAKA (prjónuð í sléttprjóni):
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið þar til 6-7-7-7 (7-7-8-8) 7-7-8-10 l eru eftir, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið þar til 6-7-7-7 (7-7-8-8) 7-7-8-10 l eru eftir, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana br, 1 l br, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið þar til 5-6-6-6 (6-6-7-7) 6-6-7-9 l eru eftir, takið 1 l óprjónaða eina og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið br þar til 5-6-6-6 (6-6-7-7) 6-6-7-9 l eru eftir, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana br, 1 l br, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við.
Haldið áfram á sama hátt með því það fækki um 1 l áður en 1 l er steypt yfir þar til 8-10-10-10 (10-10-12-12) 14-14-16-16 l eru eftir á prjóni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður að tá.

SOKKUR:
Fitjið upp 44-48-52-52 (56-56-64-64) 64-68-72-76 l jafnt yfir á sokkaprjóna nr 2,5 með Fabel. Prjónið stroffprjón með 2 l br, 2 l sl.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram með stroffprjón þar til stykkið mælist 6-7-8-9 (10-11-12-13) 14-15-16-17 cm. Setjið fyrstu 26-26-30-30 (34-34-38-38) 38-42-42-42 l á þráð (= miðja ofan fæti) og haldið eftir síðustu 18-22-22-22 (22-22-26-26) 26-26-30-34 l á prjóni (= hæl-l). Prjónið sléttprjón fram og til baka yfir hæl-l í 3-3½-4-4 (4½-4½-5-5) 5-5½-6-6 cm. Setjið eitt prjónamerki í stykkið.
Fækkið síðan lykkjum fyrir hæl – sjá HÆLÚRTAKA! Eftir hælúrtöku eru prjónaðar upp 8-9-10-10 (11-12-12-13) 13-14-16-16 l hvoru megin við hæl og 26-26-30-30 (34-34-38-38) 38-42-42-42 l af þræði eru settar til baka á prjóninn = 50-54-60-60 (66-68-74-76) 78-84-90-90 l. Setjið 1 prjónamerki hvoru megin við 26-26-30-30 (34-34-38-38) 38-42-42-42 l ofan á fæti. Prjónið síðan stroffprjón ofan á fæti og slétt undir fæti, JAFNFRAMT er lykkjum fækkað í hvorri hlið þannig: Prjónið 2 síðustu l á undan 26-26-30-30 (34-34-38-38) 38-42-42-42 l ofan á fæti snúnar slétt saman (þ.e.a.s. prjónið í aftari lykkjubogann í stað fremri), þær 2 fyrstu l á eftir 26-26-30-30 (34-34-38-38) 38-42-42-42 l eru prjónaðar slétt saman. Fækkið lykkjum í annarri hverri umf alls 5-6-8-8 (9-10-12-13) 13-13-15-14 sinnum = 40-42-44-44 (48-48-50-50) 52-58-60-62 l. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 7-8-9-9 (11-13-14-16) 18-19-22-24 cm frá prjónamerki á hæl – nú eru eftir 3-3-3-4 (4-4-4-4) 4-5-5-6 cm að loka máli. Setjið nú 1 prjónamerki í hvora hlið, þannig að það verða 20-21-22-22 (24-24-25-25) 26-29-30-31 l á milli prjónamerkja. Prjónið síðan sléttprjón yfir allar l, JAFNFRAMT er lykkjum fækkað fyrir tá hvoru megin við bæði prjónamerkin. Fækkið lykkjum á undan prjónamerki: 2 l slétt saman. Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki: 2 l snúnar slétt saman. Fækkið lykkjum í hvorri hlið í annarri hverri umf alls 3-3-3-3 (4-4-4-5) 4-5-5-5 sinnum og síðan í hverri umf 4-5-5-5 (4-4-5-4) 5-5-6-7 sinnum = 12-10-12-12 (16-16-14-14) 16-18-16-14 l eftir á prjóni. Í næstu umf eru allar l prjónaðar saman 2 og 2.
Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru.

Prjónið annan sokk á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 25.11.2015
Allt mynstrið hefur verið endurskrifað

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 158-46

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (45)

country flag Evelin Saaremägi wrote:

Tere! Peale kanna kahandusi minul ei klapi enam silmuste arv. Koon suurust 38/40 ja mul jääb peale kanna kahandusi 14 s. asemel järgi 24 s. Samas leidsin ka muid matemaatilisi vigu: peale kanna kahandusi jäävatele 14 s. hiljem mõlema külje pealt üles korjatavad 14+14 s. + 26 jalapealse s. annavad kokku 68 s. Aga mustris on kirjas et 78 Eks ma katsun oma sokid miskit moodi ära lõpetada :)Tänud. Jõudu ja jaksu, muidu tore veebileht

09.01.2015 - 02:43

country flag Lena B. Nielsen wrote:

Hej, Som mange andre har jeg også problemer med hælindtagningen. Kan I ikke slette opskriften indtil den er rettet - eller skrive over det, at der er fejl i den. Jeg så først kommentarerne, da jeg selv fik problemer. Hvad gør andre. Strikker man videre med 4 masker for meget eller???

19.12.2014 - 09:51

DROPS Design answered:

Hej Lena, Så er der lagt en rettelse ud på tallene i hele stykket efter HÆLINDTAGNINGEN. God fornøjelse!

13.02.2015 - 13:49

country flag Kristina wrote:

Hei. Jeg skal prøve å strikke sokker for første gang i mitt liv, og hva skjer da? En oppskrift som ikke stemmer!!' Glad for å lese at andre sliter med samme sak som meg. Skjønner ikke hvordan antall masker skal være på hælen.. Lenge siden noen skrev om dette, så kom med en rettelse nå snart, takk.

17.12.2014 - 11:14

country flag Melli wrote:

Hallo, habe mal eine Frage : Nachdem ich das Käppchen gearbeitet habe, nehme ich auf beiden Seiten seitlich Maschen auf, um wieder in Runden zuarbeiten. Dabei nehme ich in der Aufnahmerunde die letzte masche verschränkt auf (diese arbeite ich nach links gerichtet) auf der anderen Seite arbeite ich die erste aufzunehmende Masche verschränkt nach rechts gerichtet. Ist das so ok ? Liebe Grüße Melli

16.12.2014 - 19:05

DROPS Design answered:

Liebe Mellie, wenn Sie möchten und Ihnen das so gefällt, können Sie das so machen.

17.12.2014 - 08:48

country flag Rita Olesen wrote:

Hej Drops - også jeg er løbet ind i problemet med hælindtagningen. Jeg strikker den største model, men ender med 20 masker i stedet for 16. Det samlede antal masker efter indtagningen bliver dog rigtigt nok (86 m). Ellers tak for en dejlig hjemmeside :-)

11.12.2014 - 21:18

country flag Katarina Hartmann wrote:

Jeg har ligesom de andre oplevet, at hælindtaget ikke passer. Antallet af masker passer, hvis man alene tager ind en gang, og således ikke til man har 14 masker, men 28 masker (str. 38/40). Det ville være lækkert hvis i kunne præcisere om der skal tages færre masker ind, eller samles flere masker op bagefter. Jeg ser frem til at modtage rettelserne.

06.12.2014 - 01:08

DROPS Design answered:

Hej Katarina. Vi arbejder paa at faa lagt en rettelse ud meget snart!

10.12.2014 - 14:55

country flag Kerstin Johnson wrote:

Hej! Nu har jag väntat i 6 veckor på en rättelse! (ställde min fråga 21 okt). Hur lång tid brukar det ta??

03.12.2014 - 14:59

DROPS Design answered:

Hej Kerstin. Det er vi kede af, men vi arbejder saa hurtigt vi kan. Rettelse kommer asap.

11.12.2014 - 14:58

country flag Lisa Messina wrote:

Nu er jeg igang med disse strømper...mine første :) ..strikker en str 41/43 men kan ikke få maskeantallet til at passe når jeg har lavet indtagningerne ved hælen. jeg har de 36 masker og følger indtagningerne som jeg skal (tor jeg da ) der står jeg skal have 16 masker tilbage men jeg ender med 22m. hvad mon jeg gør forkert? kan jeg få lidt hjælp ?

11.11.2014 - 14:06

DROPS Design answered:

Hej Lisa, Nu er der lagt en rettelse ud og opskriften er opdateret. Efter HÆLINDTAGNINGEN er maskeantal rettet. God fornøjelse!

13.02.2015 - 13:50

country flag Maria Grazia Vitturini wrote:

Salve, anche io ho riscontrato gli errori già segnalati nelle diminuzioni del tallone e desideravo sapere se le correzioni che dovrebbero essere apportate saranno segnalate o comunque evidenziate nel modello. Grazie

01.11.2014 - 15:23

DROPS Design answered:

Buongiorno Maria Grazia. Eventuali correzioni vengono sempre inserite direttamente nel testo. A seconda dei casi, viene aggiunto un tab Correzioni sulla striscia grigia a destra della fotografia. Grazie e buon lavoro!

01.11.2014 - 16:26

country flag Sabine Niermann wrote:

Mir geht es genauso wie Kerstin Johnson! Wurde vielleicht die Maschenzahl für die Ferse mit der Maschenzahl für den Fußrücken vertauscht?

23.10.2014 - 10:36

DROPS Design answered:

Liebe Sabine, ich werde das Problem an die Designerinnen weiterleiten, da ja nun schon einige Leute an genau dieser Stelle ein Problem haben. Die Antwort kann daher noch etwas dauern, ich bitte um etwas Geduld.

23.10.2014 - 10:41