DROPS Fabel uni colour 75% Ull, 25% Polyamide |
447.00 kr /50g |
Panta | |
DROPS Fabel 75% Ull, 25% Polyamide |
477.00 kr /50g |
Panta | |
DROPS Fabel long print 75% Ull, 25% Polyamide |
508.00 kr /50g |
Panta |
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
DROPS Fabel uni colour 75% Ull, 25% Polyamide 447.00 kr /50g Panta |
|
DROPS Fabel print 75% Ull, 25% Polyamide 477.00 kr /50g Panta |
|
DROPS Fabel long print 75% Ull, 25% Polyamide 508.00 kr /50g Panta |
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
Þetta mynstur hefur verið leiðrétt. Smelltu hér til að sjá leiðréttinguna/arnar.
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Sweet in Stripes |
|
|
|
Prjónaðir sokkar í stroffprjóni úr DROPS Fabel. Stærð 15-46.
DROPS 158-46 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HÆLÚRTAKA (prjónuð í sléttprjóni): UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið þar til 6-7-7-7 (7-7-8-8) 7-7-8-10 l eru eftir, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið þar til 6-7-7-7 (7-7-8-8) 7-7-8-10 l eru eftir, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana br, 1 l br, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið þar til 5-6-6-6 (6-6-7-7) 6-6-7-9 l eru eftir, takið 1 l óprjónaða eina og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið br þar til 5-6-6-6 (6-6-7-7) 6-6-7-9 l eru eftir, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana br, 1 l br, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við. Haldið áfram á sama hátt með því það fækki um 1 l áður en 1 l er steypt yfir þar til 8-10-10-10 (10-10-12-12) 14-14-16-16 l eru eftir á prjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður að tá. SOKKUR: Fitjið upp 44-48-52-52 (56-56-64-64) 64-68-72-76 l jafnt yfir á sokkaprjóna nr 2,5 með Fabel. Prjónið stroffprjón með 2 l br, 2 l sl. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram með stroffprjón þar til stykkið mælist 6-7-8-9 (10-11-12-13) 14-15-16-17 cm. Setjið fyrstu 26-26-30-30 (34-34-38-38) 38-42-42-42 l á þráð (= miðja ofan fæti) og haldið eftir síðustu 18-22-22-22 (22-22-26-26) 26-26-30-34 l á prjóni (= hæl-l). Prjónið sléttprjón fram og til baka yfir hæl-l í 3-3½-4-4 (4½-4½-5-5) 5-5½-6-6 cm. Setjið eitt prjónamerki í stykkið. Fækkið síðan lykkjum fyrir hæl – sjá HÆLÚRTAKA! Eftir hælúrtöku eru prjónaðar upp 8-9-10-10 (11-12-12-13) 13-14-16-16 l hvoru megin við hæl og 26-26-30-30 (34-34-38-38) 38-42-42-42 l af þræði eru settar til baka á prjóninn = 50-54-60-60 (66-68-74-76) 78-84-90-90 l. Setjið 1 prjónamerki hvoru megin við 26-26-30-30 (34-34-38-38) 38-42-42-42 l ofan á fæti. Prjónið síðan stroffprjón ofan á fæti og slétt undir fæti, JAFNFRAMT er lykkjum fækkað í hvorri hlið þannig: Prjónið 2 síðustu l á undan 26-26-30-30 (34-34-38-38) 38-42-42-42 l ofan á fæti snúnar slétt saman (þ.e.a.s. prjónið í aftari lykkjubogann í stað fremri), þær 2 fyrstu l á eftir 26-26-30-30 (34-34-38-38) 38-42-42-42 l eru prjónaðar slétt saman. Fækkið lykkjum í annarri hverri umf alls 5-6-8-8 (9-10-12-13) 13-13-15-14 sinnum = 40-42-44-44 (48-48-50-50) 52-58-60-62 l. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 7-8-9-9 (11-13-14-16) 18-19-22-24 cm frá prjónamerki á hæl – nú eru eftir 3-3-3-4 (4-4-4-4) 4-5-5-6 cm að loka máli. Setjið nú 1 prjónamerki í hvora hlið, þannig að það verða 20-21-22-22 (24-24-25-25) 26-29-30-31 l á milli prjónamerkja. Prjónið síðan sléttprjón yfir allar l, JAFNFRAMT er lykkjum fækkað fyrir tá hvoru megin við bæði prjónamerkin. Fækkið lykkjum á undan prjónamerki: 2 l slétt saman. Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki: 2 l snúnar slétt saman. Fækkið lykkjum í hvorri hlið í annarri hverri umf alls 3-3-3-3 (4-4-4-5) 4-5-5-5 sinnum og síðan í hverri umf 4-5-5-5 (4-4-5-4) 5-5-6-7 sinnum = 12-10-12-12 (16-16-14-14) 16-18-16-14 l eftir á prjóni. Í næstu umf eru allar l prjónaðar saman 2 og 2. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru. Prjónið annan sokk á sama hátt. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6940 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (45)
DROPS Design NL wrote:
Hoi Amy. Er zijn helaas nog problemen met de minderingen voor de hiel. Ik wacht nu op reactie van ons Design Team over hoe de hiel gebreid moet worden. Zodra ik meer weet zal ik ook jouw vraag beantwoorden.
04.06.2015 - 13:53Ruth Vik wrote:
Nå har jeg brukt mange timer på denne hælfellingen før jeg leste de andre kommentarene at det faktisk er feil i oppskriften som skulle ha vært rettet. Det er ganske kjedelig, da stikker jeg til det er 11 masker igjen og feller til det er 14 masker igjen. Eller er det rett og slett for mange masker til hæl? Den ser ganske bred ut. Men dette garnet var veldig godt og morsomt å strikke med, ikke prøvd det før.
10.05.2015 - 21:49DROPS Design answered:
Hei Ruth. Opskriften her online er korrekt. Den blev rettet 13.02.2015
11.05.2015 - 11:22Nanett Brodam wrote:
Der er fejl ved hælindtagningen str. 38/40: 36 masker på pinden strikke til der er 7 masker tilbage, så tage løs af, 1 ret og løfte en løse over osv. Det kan man gøre indtil der er 2 masker tilbage. Dvs. man kan reducere med 12 masker i alt: 36-12= 24. I skriver der er 14 masker tilbage - Så derfor passer opskriften ikke. Skal man "bare" starte med at strikke til der er 12 masker tilbage? For så vil man kunne ende med at have 14 masker tilbage på pinden!
09.05.2015 - 18:26DROPS Design answered:
Hej Nanett, det kan jeg godt se, vi skal lade design se på den og så kommer vi tilbage. Du kan naturligvis gerne prøve at strikke til der er 12 m tilbage, spørgsmålet er bare om hælen da bliver for lang... Men hvis du har mod på det så prøv og giv gerne besked!
13.05.2015 - 09:29Susanne wrote:
Mønstret er ikke ret til vedr. hælen. Maskeantal efter de første indtagninger stemmer endnu ikke. Venligst angiv rettelserne.
08.05.2015 - 22:17DROPS Design answered:
Hej Susanne, Vi ved det godt og design vil se på det. Tak for info!
13.05.2015 - 11:26Melli wrote:
Hallo, ich stricke die ersten beiden und letzten beiden Maschen der Fersenwand kraus rechts. welches ist die häufigste Methode zur Maschenaufnahme an beiden Seiten der Fersenwand ? Direkt aus den Knötchen herausstricken oder aus 1 oder 2 Fäden zwischen den Knötchen ? Hoffe sie können mir einen Tipp geben. In den Strickvideos wird meist aus 2 Fäden herausgestrickt, das ergibt aber einen Wulst Liebe Grüße Melli
02.05.2015 - 09:44DROPS Design answered:
Sie können die M auch direkt aus dem Knötchen auffassen, den Tipp hatte ich Ihnen ja schon einmal bei einer anderen Anleitung geben, er gilt auch hier und ist allgemeingültig.
03.05.2015 - 10:20Marion wrote:
Die Maschenzahl nach der Fersenabnahme ist meines Erachtens immer noch falsch. Bei Größe 38/40 bleiben von den 36 Maschen nach der Abnahme 24 Restmaschen und nicht 14.
10.04.2015 - 12:04DROPS Design answered:
Ja, das wird noch einmal überprüft, da scheint wirklich noch immer etwas nicht zu stimmen. Wir bitten noch um etwas Geduld.
11.04.2015 - 08:06Danielle wrote:
Bonjour, je tricotte la taille 44/46. Après les 6 cm sur les 38 mailles du talon, j'ai fait les diminutions comme indiqué et je me retouve avec 20 mailles restantes au lieu de 16. Si je relève 16 mailles de chaque côté + les 34 mailles du dessus, je me retrouve avec 86 mailles et non 82. Pouvez vous me dire si il y a une erreur quelque part. D'avance je vous remercie.
03.04.2015 - 09:37DROPS Design answered:
Bonjour Danielle, la question a été transmise à nos stylistes. Merci d'avance pour votre patience.
03.04.2015 - 17:41Christina wrote:
Hallo, ich stricke das Modell gerade in Größe 38/40 nach. Bei der Fersenabnahme habe ich vor Beginn der Abnahmen 36 Maschen für die Ferse. Wenn ich die Abnahmen durchführe, wie in der Anleitung beschrieben, komme ich dann auf 24 Maschen. In der Anleitung sehe ich aber, dass 14 Maschen übrig sein sollten. Können Sie mir einen Tipp geben, wo der Fehler liegt? Vielen Dank für Ihre Hilfe!
19.03.2015 - 07:08DROPS Design answered:
Die M-Zahl wird aktuell noch einmal überprüft, bitte haben Sie noch etwas Geduld.
11.04.2015 - 08:55Bente Flinker wrote:
Hej! Jeg læser mig frem til, at der burde være lavet rettelser i februar 2015, men her i marts 2015 er der stadigvæk maskeantal der ikke passer efter hælindtagning. Det vil være rigtig dejligt, hvis I vil rette. Venlig hilsen Bente
17.03.2015 - 21:36DROPS Design answered:
Hej Bente. Det ville vaere dejligt hvis du kan angive hvor du mener der er fejl, saa kan vi tjekke igen. Tak :-)
19.03.2015 - 13:47Agnieszka wrote:
Hallo, ich stricke in 41/43 und komme ebenfalls mit den Maschdnangaben bei der Ferse nicht hin. Nachdem ich nun wieder frustriert die Fersenabnahmen aufgeribbelt habe, weiß ich nicht weiter. Weiß man den endlich, was richtig ist? Mir kam die Ferse auch so unnatürlich breit vor. Vielen Dank
08.03.2015 - 00:00DROPS Design answered:
Die Anleitung wurde am 13.02. korrigiert. Die M-Zahlen sollten nun stimmen.
08.03.2015 - 09:46