Silver Dream Cardigan |
|||||||
|
|
||||||
Prjónuð peysa og húfa úr DROPS Karisma með norrænu mynstri, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.
DROPS 157-1 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1-A.3. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni sléttprjóni. UPPHÆKKUN: Prjónuð er upphækkun aftan í hnakka þannig: ATH! Í hvert skipti sem snúið er við mitt í stykkinu er 1. lykkjan tekin óprjónuð, herðið á þræði og prjónið áfram. Byrjið við miðju að aftan og prjónið þar til 22-25-28-29-29-31 l eru eftir, snúið við, herðið á þræði og prjónið þar til 22-25-28-29-29-31 l eru eftir í hinni hliðinni. Snúið við, herðið á þræði og prjónið þar til 37-41-46-49-49-53 l eru eftir, snúið við og herðið á þræði og prjónið þar til 37-41-46-49-49-53 l eru eftir í hinni hliðinni. Snúið við, herðið á þræði og prjónið þar til 53-58-65-70-70-76 l eru eftir í hinni hliðinni, snúið við, herðið á þræði og prjónið þar til 53-58-65-70-70-76 l eru eftir í hinni hliðinn. ÚTAUKNING (á við um laskalínu): Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á undan og á eftir 4 l sem eru staðsettar á milli merkja á fram-/bakstykki og erma. Uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umf. Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur. MYNSTURLEIÐBEININGAR: Mynsturteikning A.3 sýnir hvernig 4 lykkjur í laskalínu eru prjónaðar svo það myndist minna bil á milli lykkja. Eftir mynstur er stykkið prjónað til loka með litnum ljós perlugrár. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður. Hálsmálið og kantur að framan er prjónað síðast. PEYSA: Fitjið upp 111-111-115-119-123-123 l (meðtalin 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan) með hringprjónum nr 4 með litnum ljós perlugrár. Prjónið 1 umf br frá röngu. Haldið áfram í sléttprjóni með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið til loka – JAFNFRAMT í næstu umf er aukið út jafnt yfir 12-28-36-40-36-52 l = 123-139-151-159-159-175 l. Prjónið 1 umf br frá röngu. Prjónið síðan UPPHÆKKUN - sjá útskýringu að ofan – í hnakka. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið síðan 2 umf yfir allar l, næsta umf er frá réttu. Prjónið 1 umf og setjið jafnframt 8 merkiþræði og 5 merki í stykkið þannig: Prjónið 22-25-28-29-29-31 l, setjið 1 merkiþráð eftir þessa lykkju og setjið eitt merki í 2. lykkju frá byrjun (= miðja framan á hægra framstykki). Prjónið 4 lykkjur, setjið 1 merkiþráð, prjónið 6-7-7-8-8-10 lykkjur, setjið eitt merki í síðustu lykkju á hægri prjóni (= miðjulykkja á ermi). Prjónið 5-6-6-7-7-9 lykkjur, setjið 1 merkiþráð. Prjónið 4 lykkjur og setjið 1 merkiþráð. prjónið 21-24-27-28-28-30 lykkjur og setjið eitt merki í síðustu lykkju á hægri prjóni (= miðja á bakstykki). Prjónið 20-23-26-27-27-29 lykkjur og setjið 1 merkiþráð. Prjónið 4 lykkjur, setjið 1 merkiþráð, prjónið 6-7-7-8-8-10 lykkjur og setjið eitt merki í síðustu lykkju á hægri prjóni (= mitt á ermi). Prjónið 5-6-6-7-7-9 lykkjur, setjið 1 merkiþráð. Prjónið 4 lykkjur og setjið 1 merkiþráð. Prjónið 22-25-28-29-29-31 lykkjur, setjið eitt meri í næst síðustu lykkju (= mitt framan á vinstra framstykki). LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Prjónið nú MYNSTUR eftir mynsturteikningu A.2 – LESIÐ MYNSTURLEIÐBEININGAR! ATH: Lykkja með merki í bakstykki, framstykki og ermum á að passa við l með ör í mynstri. Talið út frá hlið (þ.e.a.s. að mynstrið kemur ekki til með að ganga jafnt upp í skiptingunum á milli fram- og bakstykki og erma). JAFNFRAMT er aukið út fyrir laskalínu í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma þannig – LESIÐ ÚTAUKNING: Á FRAM- OG BAKSTYKKI: Aukið út í hverri umf alls 0-0-0-2-10-14 sinnum, í annarri hverri umf alls 14-15-17-19-20-20 sinnum og síðan í 4. hverri umf alls 6-6-5-4-2-2 sinnum (= 81-89-97-105-119-131 l á bakstykki og 42-46-50-54-61-67 l á hverju framstykki). Á ERMI: Aukið út í annarri hverri umf alls 14-15-19-20-25-23 sinnum og síðan í 4. hverri umf alls 6-6-4-4-2-4 sinnum (= 59-63-67-71-77-81 l á ermi. Stykkið mælist nú ca 19-19-19-20-21-22 cm frá uppfitjunarkanti að framan. Eftir alla útaukningu fyrir laskalínu eru 283-307-331-355-395-427 á prjóni. Næsta umf er frá réttu þannig: Prjónið yfir fyrstu 42-46-50-54-61-67 l (= framstykki), setjið næstu 59-63-67-71-77-81 l á þráð (= ermi), fitjið upp 8-8-8-10-10-10 nýjar l, prjónið síðan yfir 81-89-97-105-119-131 l (= bakstykki), setjið næstu 59-63-67-71-77-81 l á þráð (= ermi) og fitjið upp 8-8-8-10-10-10 nýjar l, prjónið síðan yfir síðustu 42-46-50-54-61-67 l (= framstykki) = 181-197-213-233-261-285 l. Setjið 1 merkiþráð mitt á milli 8-8-8-10-10-10 nýjar l undir hvorri ermi. Prjónið síðan sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið eins og áður þar til stykkið mælist ca 36-37-38-39-40-41 cm frá uppfitjunarkanti að framan. Aukið síðan út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn hvoru megin við 2 miðjulykkjur í hvorri hlið (merkiþráðurinn er staðsettur mitt á milli þessa lykkja), uppslátturinn er prjónaður snúinn br í næstu umf (= 4 l fleiri). Endurtakið útaukningu með 4-4-4-5-5-5 cm millibili 2 sinnum til viðbótar (= alls 3 sinnum) = 193-209-225-245-273-297 l. Prjónið þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm frá uppfitjunarkanti. Í næstu umf frá réttu er aukið út um 7 l jafnt yfir í öllum stærðum = 200-216-232-252-280-304 l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 3,5. Prjónið stroff frá röngu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 2 l br, 2 l sl *, endurtakið frá *-* þar til 3 l eru eftir. Endið á 2 l br og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Prjónið þar til stroffið mælist ca 4 cm. Fellið af með sl yfir sl og br yfir br. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna í sléttprjóni. Setjið l frá öðrum þræði á hringprjóna nr 4 (= 59-63-67-71-77-81 l). Prjónið sléttprjón og fitjið upp 8-8-8-10-10-10 nýjar l í lok umf = 67-71-75-81-87-91 l. Setjið eitt merki mitt á milli þessa nýju l undir ermi. Þegar stykkið mælist ca 3 cm er fækkað um 1 l í hvorri hlið við 2 miðju l undir ermi (merkið er staðsett mitt á milli þessa 2 l). Skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf. Endurtakið úrtöku með 3½-3½-3-2½-2-2 cm millibili 8-9-10-12-15-16 sinnum til viðbótar (= alls 9-10-11-13-16-17 sinnum) = 49-51-53-55-55-57 l. Þegar stykkið mælist 41-42-43-43-42-42 cm er aukið út um 7-5-7-5-9-7 l jafnt yfir = 56-56-60-60-64-64 l. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 3,5 og prjónið síðan stroff (= 2 l sl, 2 l br) þar til stykkið mælist 45-46-47-47-46-46 cm frá þeim stað sem nýjar l voru fitjaðar upp. Fellið af með sl yfir sl og br yfir br. Prjónið hina ermina á sama hátt. VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN: Kanturinn að framan er prjónaður fram og til baka á hringprjóna nr 3,5. Prjónið upp 120-124-128-132-136-140 l, (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4) innan við 1 kantlykkju á vinstra framstykki með litnum ljós perlugrár. Prjónið stroff frá röngu þannig: 1 l garðaprjón, * 2 l br, 2 l sl *, endurtakið frá *-*, endið á 2 l br og 1 l garðaprjón. Haldið áfram með sl yfir sl og br yfir br þar til stroffið mælist 3 cm. Fellið af með sl yfir sl og br yfir br. HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN: Prjónið á sama hátt og vinstri kantur að framan, en þegar stroffið mælist ca 1,5 cm er fellt af fyrir 5-5-6-6-6-6 hnappagötum jafnt yfir (hnappagötin eru felld af í br mynstureiningunum séð frá réttu). 1 hnappagat = prjónið 2 l br saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn – efsta hnappagatið á að vera ca 6 cm ofan frá (það á einnig að vera 1 hnappagat í hálsmáli), hin hnappagötin eiga að vera staðsett með ca 8 cm millibili. Það er lengra á milli eftir síðasta hnappagatið að neðan við kant. HÁLSMÁL: Byrjið lengst út á hægri kanti að framan að ofan. Notið hringprjóna nr 3,5 og litinn ljós perlugrár, prjónið upp 128-128-132-136-140-140 l (lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 4) í kringum allt hálsmál og yfir vinstri kant að framan. Prjónið stroff þannig (= 1. umf = ranga): 1 l garðaprjón, * 2 l br, 2 l sl *, endurtakið frá *-*, endið á 2 l br og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið áfram með sl yfir sl og br yfir br með 1 l garðaprjón í hvorri hlið á stykki. Þegar kantur í hálsmáli mælist 1 cm, fellið af fyrir 1 hnappagati fyrir ofan hin hnappagötin í hægri kant að framan. Haldið áfram með stroff þar til kantur í hálsmáli mælist ca 2 cm. Fellið af með sl yfir sl og br yfir br. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum og festið enda. ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, skiptið yfir á sokkaprjón eftir þörf. HÚFA: Fitjið upp 116 l með litnum ljós perlugrár á hringprjóna nr 3,5. Prjónið stroff (= 2 l sl, 2 l br) þar til stykkið mælist ca 4 cm. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4. Prjónið 1 umf slétt með perlugrár JAFNFRAMT er fækkað um 8 l jafnt yfir = 108 l. Prjónið síðan mynstur eftir mynsturteikningu A.1 (= 9 mynstureiningar hringinn). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað áfram með litnum ljós perlugrár og sléttprjóni. Prjónið 1 umf JAFNFRAMT eru sett 9 merki í stykkið með 12 l á milli merkja. Í næstu umf er fækkað um 1 l á eftir hverju merki með því að prjóna 2 l slétt saman (= 9 l færri). Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf alls 10 sinnum = 18 l. Í næstu umf eru allar l prjónaðar slétt saman 2 og 2 = 9 l. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel. Húfan mælist ca 25 cm á hæðina. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (39)
Christiane wrote:
Hei, wie soll ich diese Anweisung verstehen: 'Am RUMPFTEIL: In jeder R insgesamt 0-0-0-2-10-14 x, danach in jeder 2. R 14-15-17-19-20-20 x' Wie viele solcher Reihen soll man jeweils stricken? Was bedeutet das x am Ende? Herzlichen Dank und viele Gruesse, Christiane
09.03.2018 - 10:28DROPS Design answered:
Liebe Christiane, je nach der Größe werden Sie unterschiedlich stricken, z.B. in der 1. Größe wird es für Raglan in jeder 2. Reihe 14 Mal (= x) zugenommen, in die letzte Größe wird es in jeder Reihe 14 Mal dann in jeder 2. Reihe 20 Mal zugenommen. Viel Spaß beim stricken!
09.03.2018 - 11:31Christiane Martin wrote:
Hei, wie soll ich diese Anweisung verstehen: 'Am RUMPFTEIL: In jeder R insgesamt 0-0-0-2-10-14 x, danach in jeder 2. R 14-15-17-19-20-20 x' Wie viele solcher Reihen soll man jeweils stricken? Was bedeutet das x am Ende? Herzlichen Dank und viele Gruesse, Christiane
09.03.2018 - 10:27Torunn Mari Rørvik wrote:
Hei, jeg skal strikke denne i str M. Forstår ikke helt hvor jeg skal plassere merketrådene og merkene. kan du prøve å forklare på en enklere måte? er det korrekt å merke etter følgende masker: 25-2-4-7-6-4-24-23-4-7-6-4-25-og nest siste maske?
28.02.2018 - 20:29DROPS Design answered:
Hei Torunn. Husk det er forskjell mellom merketrådene og merkene. Du setter 8 merketråder og 5 merker, merketrådene setter du etter 25.-29.-42.-46.-93.-97.-110. og etter 114. maske. De 5 merkene setter du i 2.-36.-70.-104. og i 138. maske. God Fornøyelse!
07.03.2018 - 08:12Sophia wrote:
Unfortunately at the beginning.i knit size s 111st.ihave 22st in each front side and back side 21st strand 20st .in the front side I have a strand in the 2ndst .pattern say to fit arrow st in stand st , but I have 22 st and patten 12. 12+12= 24st. And the back piece had total41 st with strand in the middle. How to adjust the st with arrow in the middle of st? Sorry , it's the first pattern that I don't understand .thank you for your patience
23.01.2018 - 08:52DROPS Design answered:
Dear Sophia, you can read here how to center a diagram on a piece. Happy knitting!
23.01.2018 - 13:31Sophia wrote:
I would like to ask if i am doing something wrong because patterns sts doesn't fit to my st and the inc sts too.it is my first time that I knit top down.i knit size small. I would appreciate your help. Thank you.
22.01.2018 - 19:26DROPS Design answered:
Dear Sophia, could you please give us more information about the size and until where you are working and you are stuck. Thank you.
23.01.2018 - 08:19Sophia wrote:
What do you mean in "jacket explanation"insert 8 markers and 5strands in the piece? How I will do this? Any video?
19.01.2018 - 21:09DROPS Design answered:
Dear Sophia, it means you put stitchmarkers on the knitting needles between the stitches (or if it is particilarly mentioned in some cases into a stitch. Strands are pieces of yarns we also use to mark certain places in the knitting, and/or between stitches. Use a piece of leftover yarn as directed. Happy Knitting!
20.01.2018 - 01:02Dolly Singh wrote:
Hei, hvordan strikker jeg videre mønster etter diag A.2? Hvor og når skal jeg øke masker? Hvor mange av gangen? Får ikke dette til å stemme.
14.08.2017 - 10:40DROPS Design answered:
Hei Dolly. Hei Les etter avsnittet: «LES HELE NESTE AVSNITT FØR DET STRIKKES!» og «Etter alle økninger til raglan er det totalt ...». På neste pinne fra retten legges det opp nye masker for erme og settes merketråder. Deretter strikkes det GLATTSTRIKK med 1 kant-m rille i hver side som før til arb måler ca 36-37-38-39-40-41 cm fra oppleggskanten foran. Deretter økes det med 1 m ved å lage et kast på hver siden av de 2 midterste m i hver side (merketråden sitter midt mellom disse m). LES videre i oppskriften for tydeligere informasjon. God Fornøyelse!
14.08.2017 - 14:06Kirsten wrote:
Jeg kan ikke få antallet af masker på ærmet str. L til at passe, man starter med 13 masker, udtager 2 x 19 og 2x 4 svare til 59 masker, men der står at man slutter med 67 masker, skal de 8 raglan masker regnes med, eller hvad gør jeg forkert?
25.06.2017 - 17:05DROPS Design answered:
Hei Kirsten. Ja, du skal telle de 8 raglan maskene med. 57 + 8 = 67 masker. God Fornøyelse!
26.06.2017 - 14:22Marie wrote:
Hallo. Ich stricke den Pullover und bin fast am Ende von A.2, habe aber noch nicht alle Raglanzunahmen gemacht. Das Muster hat 44 Runden, ich stricke Grösse L. Wenn ich bei den Ärmeln 19 x jede 2. R. und dann 4 x jede 4. R- aufnehme, komme ich auf 54 R-. Somit müsste ich 10 R. ohne Muster stricken, um die verlangten 331 Maschen zu erreichen. Habe ich bei den Zunahmen etwas falsch gemacht oder ist das korrekt so?
30.10.2016 - 11:19DROPS Design answered:
Liebe Marie, wenn A.2 ist gestrickt, stricken Sie noch weiter ohne Muster aber mit den Raglanzunhamen wie beschrieben bis Sie die 331 M. haben.
31.10.2016 - 10:50Bodø wrote:
Hei har dere en lignende kofte som strikkes nedenfra og opp forstår ikke hvordan jeg kan strikke ovenfra og ned
20.09.2016 - 17:53