DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8008.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Angel Falls

Prjónaður kjóll í garðaprjóni, laskalínu og stroffprjóni, prjónaður ofan frá og niður úr DROPS Karisma. Stærð S - XXXL.

DROPS 156-3
DROPS Design: Mynstur nr u-742
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS KARISMA frá Garnstudio
650-700-800-850-950-1050 gr litur nr 50, grænn

DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (60 og 80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l og 28 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS STOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (60 cm) NR 3,5 – fyrir stroff og garðaprjón.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8008.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á sokkaprjóna/hringprjóna):
* 1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-*.

LASKALÍNA:
Aukið út hvoru megin við prjónamerki þannig:
Prjónið fram að 2 l á undan 1. prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 5 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, haldið áfram þar til 3 l eru eftir á undan 2. prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 5 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, haldið áfram þar til 2 l eru eftir á undan 3. prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 5 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, haldið áfram þar til 3 l eru eftir á undan 4. prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 5 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið út umf (= 8 l fleiri í umf).
Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt (þ.e.a.s. prjónað er aftan í lykkjubogann í stað framan), svo ekki myndist gat.

ÚRTAKA:
Fækkið lykkjum hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 l eru eftir að prjónamerki, 2 l slétt saman, 2 l sl (prjónamerki er staðsett á milli þessa l), takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

KJÓLL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað ofan frá og niður, í hring á hringprjóna.

BERUSTYKKI:
Fitjið upp 126-126-132-132-136-136 l á hringprjóna nr 3,5 með Karisma.
Prjónið 6 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, JAFNFRAMT í síðustu umf í garðaprjóni er aukið út um 24-24-24-26-26-26 l jafnt yfir í umf = 150-150-156-158-162-162 l. Prjónið nú upphækkun aftan í hnakka í garðaprjóni þannig: Prjónið 10-10-12-12-14-14 l, snúið við, prjónið 20-20-24-24-28-28 l, snúið við, prjónið 25-25-29-29-33-33 l, snúið við, prjónið 30-30-34-34-38-38 l, snúið við. Haldið áfram með því að prjóna 5 l fleiri í hvert skipti þegar snúið er við þar til prjónað hefur verið yfir 70-70-74-74-78-78 l. Snúið við og prjónið til baka í byrjun umf. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4 og prjónið frá miðju að aftan þannig: 21-21-22-23-24-24 l sléttprjón, setjið 1. prjónamerki, 34 l sléttprjón, setjið 2. prjónamerki, 41-41-44-45-47-47 l sléttprjón, setjið 3. prjónamerki, 34 l sléttprjón, setjið 4. prjónamerki, 20-20-22-22-23-23 l sléttprjón. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram í sléttprjóni, JAFNFRAMT í næstu umf byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan!
Endurtakið útaukningu í hverri umf 7-12-15-21-27-37 sinnum til viðbótar, í annarri hverri umf 5-4-4-4-4-3 sinnum og í 3. hverri umf 5-5-5-4-3-1 sinnum = 294-326-356-398-442-498 l. Þegar útaukningu er lokið og stykkið mælist 21-22-23-24-25-26 cm frá öxl er prjónað þannig: Prjónið 39-43-47-53-59-66 l (= hálft bakstykki), setjið næstu 70-78-84-94-104-118 l á þráð (= ermi), fitjið upp 8 l fyrir handveg, setjið prjónamerki mitt á milli þessa 8 l, prjónið 77-85-94-105-117-131 l (= framstykki), setjið næstu 70-78-84-94-104-118 l á þráð (= ermi), fitjið upp 8 l fyrir handveg, setjið prjónamerki á milli þessa 8 l, prjónið næstu 38-42-47-52-58-65 l (= hálft bakstykki).

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Nú eru 170-186-204-226-250-278 l fyrir fram- og bakstykki. Prjónið nú 1 umf sléttprjón, JAFNFRAMT er fækkað um 30-32-36-40-44-50 l jafnt yfir = 140-154-168-186-206-228 l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 3,5. Prjónið nú garðaprjón, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 4 cm frá nýju l við handveg er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerkin í hvorri hlið á stykki – LESIÐ ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku með 2-2½-2½-2½-3-3½ cm millibili 3 sinnum til viðbótar = 124-138-152-170-190-212 l í umf. Þegar stykkið mælist 13-14-15-16-17-18 cm frá nýju l undir ermum er prjónað sléttprjón JAFNFRAMT er aukið út um 26-32-38-40-40-48 l jafnt yfir = 150-170-190-210-230-260 l. Prjónið nú stroff þannig: 1 l sl, 3 l br, * 2 l sl, 3 l br *, endurtakið frá *-* út umf þar til 1 l er eftir, 1 l sl. Þegar prjónað hefur verið 7 cm stroff er aukið út um 1 l í annarri hverri mynstureiningu með br (=15-17-19-21-23-26 l fleiri) = 165-187-209-231-253-286 l. Þegar prjónað hefur verið 14 cm stroff er aukið út alveg eins í hverri mynstureiningu með 4 l br (= 15-17-19-21-23-26 l fleiri) = 180-204-228-252-276-312 l. Haldið svona áfram þar til prjónaðir hafa verið 24-25-26-27-28-29 cm með stroffi. Í næstu umf er skipt yfir á hringprjóna nr 4 og prjónað sléttprjón, JAFNFRAMT er aukið út um 30-26-12-8-4-4 l = 210-230-240-260-280-316 l.
Haldið áfram í sléttprjóni í 19 cm. Skiptið yfir á hringprjóna nr 3,5 og prjónið 6 umf garðaprjón. Fellið laust af.

ERMI:
Prjónið í hring á sokkaprjóna.
Setjið til baka 70-78-84-94-104-118 l á sokkaprjóna nr 4. Prjónið sléttprjón yfir allar l og fitjið upp 8 l undir ermi = 78-86-92-102-112-126 l. Setjið prjónamerki mitt á milli nýrra l. Í fyrstu umf er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerki – Munið eftir ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf 7 sinnum = 48-50-52-54-54-56 l. Þegar ermin mælist 45-45-44-44-44-44 cm frá prjónamerki mitt undir ermi, skiptið yfir á prjóna nr 3,5 og prjónið garðaprjón í 8 cm. Fellið af.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 156-3

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (104)

country flag Barbara Mack wrote:

I have a question about the YO inc. The video mentions that the YO leaves a hole but the picture looks like the dress does not have holes in it. Does the YO stitch used in the pattern use a technique that does not leave a hole?

16.09.2017 - 02:12

DROPS Design answered:

Hi Barbara, In the text of the pattern it says knit the yarn overs twisted to avoid holes. Happy knitting!

17.09.2017 - 12:47

country flag Cynthia Caloz wrote:

Bonjour ! La ré-hausse me pose pas le problème du passage du point mousse tricoté en rond (un tour endroit, un tour envers) au point mousse tricoté en plan (tout à l'endroit) : comment ne pas avoir d'irrégularités à l'endroit du changement de tour, comme lorsqu'on tricote directement tout à l'endroit ?? J'espère que vous comprenez ma question et que vous pouvez m'aider dans ce qui m'est personnellement un casse-tête chinois !!

01.05.2017 - 13:55

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Caloz, commencez la réhausse par 1 rang en mailles endroit (= sur l'endroit) et terminez par 1 rang en mailles endroit (sur l'envers), ainsi, vous aurez des côtes mousse bien régulières. Bon tricot!

02.05.2017 - 11:34

country flag Anette Skov wrote:

Det er første gang, jeg forsøger med en raglan og jeg forstår måske ikke rigtigt, hvordan man kan både kan tage ud på hver omg, og hver 2. og 3. omg.? Skal det forstås sådan, at jeg skal tage ud på hver omg. de første 12 (M) omg. og derefter hver 2. i 4 og slutte af med hver 3. i 5 omg.?

21.01.2017 - 13:46

DROPS Design answered:

Hej Anette. Du starter med först at tage ud paa hver omgang x antal gange (det tal som er for din str). Bagefter tager du ud x gange i hver 2. pind og til sidst x gange i hver 3. p. Dvs, du gör det efter hinanden - ikke paa én gang.

26.01.2017 - 12:09

country flag Eva Spedtsberg wrote:

Fantastisk kjole! Men jeg synes ikke jeg kan se nogle mål på størrelserne. Hvor gør jeg det?

04.01.2017 - 19:28

country flag Elleke wrote:

Bedankt voor de reactie. Dus het klopt dat ik begin te breien aan de zijkant van de bolling (het stuk waar meer gebreid is)?

27.10.2016 - 16:23

DROPS Design answered:

Hoi Elleke. Je begint de nld middenachter - dat is niet de zijkant. (Ga verder met rondbreinld 4 mm en brei als volgt vanaf middenachter:...)

28.10.2016 - 18:07

country flag Elleke wrote:

Ik ben begonnen met het breien van de jurk, maar loop vast in het patroon. In het eerste gedeelte (bij PAS) staat *Ga verder met rondbreinld 4 mm en brei als volgt vanaf middenachter...*. Maar als ik de teruggaande nld na 74 st gebreid heb tot het begin van de naald, zit ik toch niet middenachter? Dan zit ik weer aan het begin/einde van de ronding van het achterpand.

26.10.2016 - 17:44

DROPS Design answered:

Hoi Elleke. Het begin van de nld is middenachter.

27.10.2016 - 10:08

country flag Anja Sandvik wrote:

Hei Har no strikka denne kjolen nesten ferdig, men ermene er alt for vide! Eg har slett ikkje tynne armar, tvert om, dei er tjukke, men dei er så vide i armgrop og overarm at det ser ut som sånne flaggermusarmer. Økning og masketall stemmer. Kjedelig etter alt det arbeidet

20.10.2016 - 09:26

country flag Josefine wrote:

Hej, så jag har nu gjort alla raglanökningar och i mönstret står det nu: "När alla ökningar är färdiga och arb mäter 21-22-23-24-25-26 cm från axeln stickas det så här:" - innebär det att jag OM jag har rätt stickfasthet ska ha ett 22 cm långt arbete i stlk M när ökningarna är klara? Det var inte helt lätt att mäta med arbetet på stickorna inte, så lite hjälp på traven uppskattas :)

20.05.2016 - 17:49

DROPS Design answered:

Hej Josefine. Ja, det er laengden paa dit arbejde, du maaler lige ned fra din start p.

23.11.2016 - 16:38

country flag Ursula Biella wrote:

Am Ende des Rumpfteils habe ich, wie beschrieben, 3 Krausrippen gestrickt. Diese biegen sich nun nach außen. Was kann ich tun?

22.03.2016 - 12:28

DROPS Design answered:

Liebe Ursula, versuchen Sie doch einmal, auf verschiedene Arten abzuketten. Vielleicht nützt es etwas, wenn Sie etwas fester abketten. Oder Sie ketten mit 1 re, 1 li ab, dann sollte es sich auch nicht umbiegen. Viel ERfolg!

23.03.2016 - 13:58

country flag Christine Wroldsen wrote:

Hei :-) Har lest gjennom oppskriften flere ganger, men har likevel et spørsmål. Jeg har strikket ferdig raglanøkningene, men må strikke ca 9 cm glattstrikk i tillegg for å få 21 cm fra skulderen.. Men da blir det ikke en jevn økning som vist på arbeidstegningen.. Har jeg gjort feil da? Er det meningen at raglanøkningene skal være ferdige etter ca 12 cm?

01.03.2016 - 21:25