DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3960.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS Baby 25-24
DROPS Design: Mynstur nr z-092-by
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4) ára
Stærð í cm: 56/62 - 68/74 - 80/86 (92 - 98/104)

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio
100-100-100 (100-150) gr litur nr 8105, ísblár
100-100-100-(100-100) gr litur nr 100, natur

DROPS HEKLUNÁL NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 26 fl á breiddi og 28 umf með fl á hæð verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3960.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR:
Allar umf með fl byrja á 1 ll, umf endar á 1 kl í ll frá byrjun umf.
Allar umf með st byrja á 3 ll, umf endar á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf.
ATH: Þessar ll koma EKKI í stað fyrstu fl/st í umf.

RANDAMYNSTUR:
UMFERÐ 1 (= frá röngu með natur): Heklið 1 st í hverja fl.
UMFERÐ 2 (= frá réttu með natur): Heklið 1 fl í hvern st.
UMFERÐ 3 (= frá röngu með natur): Heklið 1 st í hverja fl.
UMFERÐ 4 (= frá réttu með natur): Heklið 1 fl í hvern st.
UMFERÐ 5 (= frá röngu með ísblár): Heklið 1 st í hverja fl.
UMFERÐ 6 (= frá réttu með ísblár): Heklið 1 fl í hvern st.
UMFERÐ 7 (= frá röngu með ísblár): Heklið 1 st í hverja fl.
UMFERÐ 8 (= frá réttu með ísblár): Heklið 1 fl í hvern st.
Endurtakið umf 1-8.

ÚRTAKA:
Fækkið um 1 fl með því að hekla 2 l saman.
Þetta er gert þannig: Stingið heklunálinni í fyrstu l, sækið þráðinn, stingið heklunálinni í næstu l, sækið þráðinn, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 l á heklunálinni.
Fækkið um 1 st með því að hekla 2 st saman þannig: Heklið 1 st en bíðið með að bregða þræðinum í síðasta skiptið um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið næsta st, en nú er þráðurinn dreginn í gegnum allar 3 l á heklunálinni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

BUXUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í hring ofan frá og niður, en eftir hverja umferð er stykkinu snúið við og heklað er til skiptið frá réttu og röngu.

BUXUR:
Heklið 140-147-154 (161-168) ll með heklunál nr 3 með litnum ísblár og tengið saman í hring með 1 kl í fyrstu ll. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf = miðja að aftan.
Fyrsta umf er hekluð þannig: Heklið 1 ll, síðan * 1 fl í hverja af fyrstu 6 ll, hoppið yfir 1 ll *, endurtakið frá *-* umf hringinn og endið á 1 kl í fyrstu fl frá byrjun umf = 120-126-132 (138-144) fl. Haldið áfram með 1 fl í hverja fl í 2 umf til viðbótar. Heklið nú 1 umf með opi fyrir snúru þannig: Heklið 4 ll (koma í stað 1 st + 1 ll), * hoppið yfir 1 fl, 1 st í næstu fl, 1 ll *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf. Í næstu umf er hekluð 1 fl í hverja ll og í hvern st. Heklið 1 umf til viðbótar með 1 fl í hverja fl. Nú er hekluð upphækkun að aftan þannig: Heklið 10 fl framhjá prjónamerki við miðju að aftan, snúið við og heklið 1 fl í hverj af fyrstu 20 fl, snúið við, heklið 1 fl í hverja af fyrstu 30 fl, haldið svona áfram að hekla yfir 10 fl fleiri í hvert skipti sem snúið er við þar til heklað hefur verið yfir alls 80-80-100 (100-120) fl. Snúið við og heklið aftur til baka.

Haldið áfram hringinn yfir allar l með RANDAMYNSTUR – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar stykkið mælist 15-17-18 (19-20) cm við miðju að framan, setjið 1 prjónamerki við miðju að framan, það eiga að vera 60-63-66 (69-72) l á milli prjónamerkja við miðju að framan og við miðju að aftan. Í næstu umf er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki að framan og að aftan með því að hekla 2 fl/st í sömu l. Endurtakið útaukningu í hverri umf 3-3-4 (4-4) sinnum til viðbótar (= alls 4-4-5 (5-5) útaukningar) = 136-142-152 (158-164) l alls í umf. Heklið síðan skálmar hvora fyrir sig.

SKÁLM:
Nú er heklað þannig til að skipta upp stykkinu fyrir skálmar:
Heklið kl yfir fyrstu 5 fl í umf (klof), heklið síðan fl yfir næstu 58-61-66 (69-72) l og endið með 5 kl yfir síðustu 5 fl í umf (klof). Klippið þráðinn. Setjið 58-61-66 (69-72) lykkjur saman og haldið áfram að hekla randamynstur hringinn yfir þessar lykkjur, hoppið yfir 10 kl (klof).
Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf = innri hlið á skálm. Þegar skálmin mælist 2-2-2 (3-3) cm, fellið af 1 fl hvoru megin við prjónamerki – LESIÐ ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku með 2-2½-3 (3½-4½) cm millibili, 6-6-6 (5-5) sinnum til viðbótar (= alls 7-7-7 (6-6) úrtökur) = 44-47-52 (57-60) fl. Heklið síðan áfram þar til skálmin mælist 16-20-22 (27-32) cm (endið eftir rönd með litnum natur). Heklið síðan 8 umf fl með litnum ísblár. Klippið frá og festið enda.
Heklið aðra skálm á sama hátt, 10 l við miðju að framan og við miðju að aftan = op.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op í klofi kant í kant svo að saumurinn verði ekki of þykkur.

SNÚRA:
Heklið með litnum natur með heklunál nr 3 þannig: * Heklið 2 ll, 1 fl í fyrstu ll *, endurtakið frá *-* þar til snúran mælist ca 80-85-90 (95-100) cm, klippið frá og festið enda. Þræðið snúruna í gataumferðina efst uppi á buxunum – byrjið og endið við miðju að framan.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 11.01.2017
SKÁLM: Heklið kl yfir fyrstu 5 fl í umf, heklið síðan fl yfir næstu 58-61-66 (69-72) l og endið með 5 kl yfir síðustu 5 fl í umf.
Yfirfarið á vefsvæði: 05.05.2022
SKÁLM:Nú er heklað þannig til að skipta upp stykkinu fyrir skálmar: Heklið kl yfir fyrstu 5 fl í umf (klof), heklið síðan fl yfir næstu 58-61-66 (69-72) l og endið með 5 kl yfir síðustu 5 fl í umf (klof). Klippið þráðinn. Setjið 58-61-66 (69-72) lykkjur saman og haldið áfram að hekla randamynstur hringinn yfir þessar lykkjur, hoppið yfir 10 kl (klof).

Mynstur

diagram measurements
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 25-24

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (42)

country flag Corinne wrote:

Bonjour. au moment de commencer la réhausse est ce que je la commence dans le même sens qu'à la fin de mon tour ou dois-je tourner mon ouvrage et faire 3 mailles en l'air avant de continuer et ensuite, à chaque fois que je tourne mon ouvrage, dois je à nouveau faire 3 mailles en l'air? . une fois la réhausse terminée, je dois obtenir le même nombre de maille qu'au début de mon ouvrage ? (pour moi 140 mailles) ...d'avance merci de m'éclairer ) ce sujet. Cordialement.

20.10.2022 - 08:24

DROPS Design answered:

Bonjour Corinne, tout à fait, votre nombre de mailles doit être le même après la réhausse, les rangs raccourcis permettent juste d'avoir plus de longueur dans le dos, mais par la suite, continuez comme avant - mais attention, vous devez avoir, en fonction de la taille choisie: 120-126-132 (138-144) ms - dans la 1ère taille, vous montez bien 140 ml, mais vous devez ensuite sauter des mailles en l'air pour qu'il ne reste que 120 ms à la fin du 1er tour (ainsi le début du pantalon n'est pas trop serré).. Bon crochet!

20.10.2022 - 10:11

country flag Julie Nemec wrote:

Hello, I’m confused about the top of the backside when you have us crochet 20 one way, then 30 the other, and so forth, this creates holes where the stitches have to jump a tow. Can you help me understand this or can I see the back of the pattern to see if I am doing this wrong?

12.10.2022 - 17:46

DROPS Design answered:

Dear Mrs Nemec, if the holes are too large, you can work the first stitch after the previous turn crocheting a single crochet in the last stitch worked on previous short row but do not make last yarn over and pull through, crochet 1 single crochet in the next stitch and pull all loops on hook (just as for a decrease), that way you shouldn't have any holes anymore. Happy crocheting!

13.10.2022 - 09:08

country flag Iris wrote:

Ik snap de extra ronding op het achterpand niet, ik neem aan dat dit voor betere pasvorm voor de luierkont is? Ik heb de ronding gehaakt, ik denk dat je steeds naar een toer lager moet als je elke toer 10 steken extra moet haken? Ik heb na 80 steken de draad afgeknipt, en het midden opgezocht om vanaf dat punt de broek te gaan haken. Dat leek me logischer dan 40 steken naar het midden haken en vanaf daar verder te gaan met de broek, je blijft dan altijd die halve toer van 40 steken zien.

09.09.2022 - 23:22

country flag Monika wrote:

Hallo, danke für die schöne Anleitung. Ich habe mühsam mit dem Google-Übersetzer einige Fragen angeschaut wegen den 2 x 5 Kettmaschen beim Beinanfang. Die Antworten sind leider genauso unverständlich wie die Anleitung! Bitte verbessern sie diese! Man versteht nicht, ob man über die 5 Kettmaschen arbeiten soll oder nicht. Die Anleitung enthält zwar eine "Korrektur", aber in der steht genau das Gleiche wie in der Anleitung. Ich mache es jetzt irgendwie, aber schade... Danke!

04.04.2022 - 11:16

country flag Maj wrote:

Hej, hur fortsätter man med benen efter de 5 smygmaskorna i början o slutet på första varvet. Ska man sluta ihop varvet o virka benet runt o hur gör man med de 5 sm? Ska de ingå i benets maskor? Tacksam för en förklaring.

14.10.2021 - 11:28

DROPS Design answered:

Hei Maj. I f.eks str. 1/3 mnd har du 136 masker og det skal nå hekles 2 bein. Da hekler du først 5 kjedemasker (smygmasker) + 58 fastmasker + 5 kjedemasker = 1 bein. Nå skal det hekles rundt og rundt til 1 bein over disse 58 fastmaskene, følg oppskriften til stripemønster og fellingene. Når 1. bein er ferdig hekles 2. bein på samme måte. Du får da en åpning midt under buksen, som sys sammen kant i kant. mvh DROPS Design

18.10.2021 - 09:46

country flag Alexandra wrote:

Skall varvet avslutas efter sm? 5sm-58fm-5sm skall det på sista sm vändas eller avslutas och sedan börja nästa V på första fm?

05.05.2021 - 13:27

DROPS Design answered:

Hei Alexandra. Når du hekler det første benet, hekler du 5 sm, deretter 58 fm og så 5 sm. Nå hekles det rundt og med STRIPEMØNSTER og husk å lese HEKLETIPS hvordan du starter neste omgang. mvh DROPS design

10.05.2021 - 09:27

country flag Keriman Koçer wrote:

Hi, I couldn't figure out how to make each leg. Should I make the last 5 slip stitches, then make the first round of leg? Thanks a lot.

11.04.2021 - 15:27

DROPS Design answered:

Dear Keriman Koçer, for the legs the first and last 5 stitches on the round for the legs (round starts at the inner mid-line of the legs) should be done with sl stitches, So start the round at the middle of the inner side of the leg, 5 slip stitch, do the rest of the leg until the last 5 stitch, and 5 slip stitch again. Happy Crafting!

11.04.2021 - 19:03

country flag Karin wrote:

Om benen: jag ska sätta en markör på ”insidan av benet” och minska 1 fm på varje sida av markören - men varje sida av det virkade blir ju till insida på benet? Så ska minskningarna göras på en (1) sida av benet eller på båda? Om de ska göras på endast en sida, ska det då minskas på benets sida bak eller fram?

22.05.2020 - 09:08

DROPS Design answered:

Hej Karin, du minskar bara på insidan av benet, på varje sida av markören (= 2 minskningar på ett varv). Lycka till

29.05.2020 - 10:06

country flag Eli wrote:

Hola! Cuando ponéis en la parte del hilo que se necesita en este caso para el azul : 100-100-100(100-150)g a que os referís? Muchas gracias

07.05.2020 - 09:31

DROPS Design answered:

Hola Eli. Los patrones de DROPS están preparados para varias tallas. Cuando hay solo un número es igual para todas las tallas. Cuando hay varios números significa: (en tu caso): 100 g para la talla 1/3 meses, 100 g - 6/9 meses... etc

15.05.2020 - 11:55

country flag Ania wrote:

Dzień dobry, Mam pytanie do nogawek: czy przy pierwszym okrążeniu powinnam zamknąć okrążenie oczkiem zamykającym?

26.02.2020 - 20:00

DROPS Design answered:

Witaj Aniu, tak zamknij okrążenie przerabiając 1 oczko zamykające. Pozdrawiamy!

27.02.2020 - 07:08