DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2970.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Heartthrob

Hekluð jakkapeysa fyrir börn með hringlaga berustykki og vasakanti úr DROPS Alpaca. Stærð 0-4 ára

DROPS Baby 25-21
DROPS Design: Mynstur nr z-091-by
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4) ára
Stærð í cm: 56/62 - 68/74 - 80/86 (92 - 98/104)

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio
100-150-150 (200-200) gr litur nr 8105, ísblár
50-50-50 (200-200) gr litur nr 100, natur

DROPS HEKLUNÁL NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 l á breiddina og 16 umf MYNSTUR (sjá skýringu að neðan) á hæðina verði 10 x 10 cm.
DROPS PERLUTALA NR 521: 5-5-6 (6-6) stk.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2970.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR:
Allar umf með fl byrja á 1 ll, allar umf með st byrja á 3 ll, þessar koma EKKI í stað fyrstu fl/st í umf.

MYNSTUR:
UMFERÐ 1 (= ranga): Heklið 1 st í hverja fl.
UMFERÐ 2 (= rétta): Heklið 1 fl í hvern st.

ÚRTAKA:
Fækkið um 1 fl/st með því að hekla 2 l saman.
Heklið 2 fl saman þannig: Stingið heklunálinni í fyrstu l, sækið þráðinn, stingið heklunálinni í næstu l, sækið þráðinn, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni.
Heklið 2 st saman þannig: Heklið 1 st í fyrstu l, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 st í næstu l, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað fram og til baka frá miðju að framan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Heklið 140-153-162 (171-185) ll með heklunál nr 3 með litnum ísblár. LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið til baka þannig (= rétta): Heklið 1 fl í 2. ll frá heklunálinni, síðan 1 fl í hverja af næstu 3-7-7 (7-3) ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 fl í hverja af næstu 8 ll *, endurtakið frá *-* út umf = 124-136-144 (152-164) fl. Haldið áfram með MYNSTUR – sjá útskýringu að ofan! ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Þegar stykkið mælist 17-18-20 (22-25) cm, geymið stykkið – endið eftir 1 umf með st (= ranga). Haldið áfram með ermar.

ERMI:
Stykkið er heklað fram og til baka og er saumað saman við miðju að neðan í lokin.
Heklið 42-42-44 (46-49) ll með heklunál nr 3 með litnum ísblár.
Heklið til baka þannig (= rétta): Heklið 1 fl í 2. ll frá heklunálinni, síðan 1 fl í hverja af næstu 5-5-7 (9-5) ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 fl í hverja af næstu 6 ll *, endurtakið frá *-* út umf = 36-36-38 (40-42) fl. Haldið áfram með MYNSTUR – sjá útskýringu að ofan! JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 4 cm, aukið út um 1 l í hvorri hlið með því að hekla 2 l í næst síðustu l. Endurtakið útaukningu í 2.-2.-2. (2.-3.) hverri umf 5-7-8 (9-10) sinnum til viðbótar (= alls 6-8-9 (10-11) útaukningar) = 48-52-56 (60-64) l. Þegar stykkið mælist 13-15-17 (21-25) cm, geymið stykkið – endið eftir 1 umf með st (= ranga).
Heklið hina ermina á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Fyrsta umf er hekluð frá réttu þannig: Heklið 1 fl í hverja af fyrstu 26-29-31 (33-36) l á hægra framstykki, hoppið yfir fyrstu 5 l í annarri erminni síðan er hekluð 1 fl í hverja af næstu 38-42-46 (50-54) l á ermi, hoppið yfir 10 l á fram- og bakstykki, heklið 1 fl í hverja af næstu 52-58-62 (66-72) l, hoppið yfir fyrstu 5 l á næstu ermi, heklið 1 fl í hverja af næstu 38-42-46 (50-54) l á ermi, hoppið yfir 10 l á fram- og bakstykki og heklið 1 fl í hverja af síðustu 26-29-31 (33-36) l = alls 180-200-216 (232-252) l. Setjið nú 12-13-14 (14-14) prjónamerki í stykkið þannig: Fyrsta prjónamerki eftir 13-10-11 (12-9) l, síðan eiga að vera 14-15-15 (16-18) l á milli prjónamerkja, eftir síðasta prjónamerki eru 13-10-10 (12-9) l. Haldið áfram með MYNSTUR eins og áður – JAFNFRAMT í næstu umf (= st) er fækkað um 1 l Á UNDAN öllum prjónamerkjum með því að hekla 2 st saman – LESIÐ ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku í 4. hverri umf 1-1-2 (2-2) sinnum til viðbótar (= alls 2-2-3 (3-3) úrtökur) – en í næsta skipti, fækkið lykkjum á EFTIR öll prjónamerki, fækkið lykkjum á undan og á eftir prjónamerkjum í annað hvert skipti upp úr. Fækkið nú lykkjum í annarri hverri umf 5-5-4 (4-5) sinnum og að lokum í hverri umf 2-3-3 (4-4) sinnum. Þegar öll úrtaka hefur verið gerð til loka eru 72-70-76 (78-84) l eftir. Heklið 1 umf til viðbótar JAFNFRAMT er fækkað um 16-11-14 (13-16) l jafnt yfir = 56-59-62 (65-68) l, klippið frá og festið enda.

FRÁGANGUR:
Heklið 6 umf fl með litnum natur neðst niðri í kringum hvora ermi – byrjið frá röngu. Saumið síðan ermasauma kant í kant svo að saumurinn verði ekki of þykkur.

HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Heklið 3 umf með fl meðfram hægri kanti að framan með litnum natur – byrjið frá réttu. Í 2. umf (= ranga) heklið 5-5-6 (6-6) hnappagöt jafnt yfir. 1 hnappagatið = 2 ll, hoppið yfir 2 fl. Efsta hnappagatið á að vera eftir 1 fl frá toppi, síðan eiga að vera ca 5-5-5 (6-6) cm á milli hnappagata. Í 3. umf eru heklaðar 2 fl yfir hvora af þeim 2 ll fyrir hnappagötum. Heklið 2 umf til viðbótar með fl, klippið frá og festið enda.

VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Heklið 6 umf fl með litnum natur eins og í hægri kanti að framan en án hnappagata.

HÁLSMÁL:
Heklið 3 umf fl með litnum natur – byrjið frá röngu!
Saumið tölur í.

VASAKANTUR:
Heklið 13-14-15 (16-17) lausar ll með litnum natur og heklunál nr 3.
Snúið við og heklið 1 fl í 2. ll frá heklunálinni, síðan 1 fl í hverja ll út umf = 12-13-14 (15-16) fl alls. Heklið nú 3-3-3 (4-4) umferðir til viðbótar með fl, þannig að það verða alls 4-4-4 (5-5) umf, klippið frá. Heklið annan vasakant á sama hátt. Saumið 1 vasakant í hvort framstykki – ca 6-7-8 (9-10) cm frá neðri kanti og ca 4-4-5 (5-6) cm frá miðju að framan – saumið fallega neðrikantinn og í hvorri hlið (það á að vera op efst).

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 21.12.2017
Nýtt efnismagn: Efni: DROPS ALPACA frá Garnstudi, 100-150-150 (200-200) gr litur nr 8105, ísblár

Mynstur

diagram measurements
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Heartthrob

Kaderus, Czech Republic

Heartthrob

Kaderus, Czech Republic

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 25-21

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (37)

country flag Leire Perret wrote:

Bonjour, Je n'arrive pas a placer les marqueurs. Je fais le modele en 12/18 mois. J'ai bien 216 mailles, mais bizarrement je n'arrive à placer que 13 marqueurs, et après le dernier marqueur je me retrouve avec 12 mailles... Lorsque vous dites "on doit avoir ensuite 14-15-15 (16-18) m entre chaque marqueur" faut il placer le marqueur à la 15eme maille ou a la 16eme? Merci de votre aide

17.02.2023 - 17:43

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Perret, il faut placer les marqueurs entre les mailles, pas dans une maille, placez-les ainsi: comptez 11 m, placez un marqueur après cette 11ème m, *comptez 15 m, placez un marqueur après cette 15ème m*, répétez de *-* jusqu'à la fin du rang, il reste 10 mailles après le dernier marqueur. Bon crochet!

20.02.2023 - 08:56

country flag Karolina wrote:

Robię teraz karczek. I nie do końca rozumiem zmniejszanie. Czy po wykonaniu zmniejszenia po 13,14 oczku pierwszego zmniejszenia, następne zmniejszanie też mam zrobić po/przed 13,14 oczku?

26.10.2022 - 21:54

DROPS Design answered:

Witaj Karolino, w następnym rzędzie z zamykaniem/zmniejszaniem oczek w robótce, wykonujesz to w miejscu markerów (przed lub za markerem - czyli w jednym okrążeniu zawsze zamykasz oczko przed każdym markerem, a w kolejnym zawsze za markerem, itd.). Pozdrawiamy!

27.10.2022 - 08:44

country flag Nathalie wrote:

Bonsoir, Je vois rune éponse mais elle n’est pas en français pourriez-vous la traduire . Merci

10.06.2022 - 23:51

DROPS Design answered:

Bonjour Nathalie, vous trouverez - en français - la réponse à votre question, si vous souhaitez traduire les questions & réponses précédentes, vous pouvez utiliser un traducteur en ligne, ils ne sont pas toujours très justes mais permettent souvent de saisir le sens. Bon crochet!

13.06.2022 - 08:39

country flag Nathalie wrote:

Bonjour, C’est la première fois que je fais un empiècement , alors je ne comprends pas ,je dois crocheter les manches à la suite ou les m ensemble ?

10.06.2022 - 23:04

DROPS Design answered:

Bonjour Nathalie, vous crochetez d'abord le bas du gilet (devant droit, dos, devant gauche, vu sur l'endroit) jusqu'aux emmanchures, puis vous crochetez les manches jusqu'aux emmanchures également, et ensuite, vous crochèterez tout ensemble: le devant droit, la manche droite, le dos, la manche gauche et le devant gauche, en même temps, vous diminuerez pour les raglans aux marqueurs placés après le 1er tour. Bon crochet!

13.06.2022 - 08:34

country flag Natalie wrote:

Hej. Jeg forstår ikke delen med montering, skal hækle 6 rækker med natur garn nederst rundt om hvert ærme, men hvordan får jeg så den blå kant som er på billedet? For det står der intet om??

19.02.2022 - 11:36

DROPS Design answered:

Hei Natalie. På bildet er ermene brettet oppover. Så den "blå kanten" er starten når du begynte å hekle ermet. Om du ser på bildet og da høyre arm på babyen ser du tydelig at den er brettet (de hvite maskene på ermet matcher ikke resten av ermet oppover). mvh DROPS Design

21.02.2022 - 11:48

country flag Anna wrote:

På oket står det Upprepa minskn på vart 4:e v 1-1-2 (2-2) ggr till (= totalt 2-2-3 (3-3) minskn) - men nästa gång, minskas det EFTER alla markörerna, FRÅGA! Ska det minskas vart 4:e v då också?

27.01.2022 - 23:08

DROPS Design answered:

Hei Anna. Første gang du feller, skal du felle FØR merketrådene, så hekler du 3 rader, så skal du felle ETTER merketrådene. Hekler du de minste str er du ferdig å felle etter hver 4.rad, hekler du en av de største str. hekler du 3 rader før det felles igjen (FØR merkene). Deretter skal det felles på hver 2. rad (5-5-4 (4-5) ganger) og tilslutt på hver rad 2-3-3 (4-4) ganger. mvh DROPS Design

31.01.2022 - 13:03

country flag Maria wrote:

Jag förstår inte första raden på oket. Ska ärmarna virkas ihop med stycket på något sätt? Sys fast? De här 29 maskorna som ska virkas på ärmen, virkas de tillsammans ihop med fram och bakstycket?

15.11.2020 - 10:57

DROPS Design answered:

Hei Maria. Ja, ermene hekles sammen med oket på 1. omgang på oket. Str. 6/9 mnd = 136 m på bolen og 52 m på hvert erme. Du starter oket med å hekle 29 masker på høyre forstykket, deretter hekle 1. erme fast til oket. Hopp over de 5 første maskene på ermet og hekle deretter de neste 42 m, hopp over 5 m (du har nå heklet 42 masker på ermet og hoppet over 10 m = 52 m og heklet ermet fast i oket). Nå hekler du bakstykket = 58 m, så skal du hekle 2. erme på samme måte som 1. erme og deretter venstre forstykket. God Fornøyelse!

24.11.2020 - 09:06

country flag Sophie wrote:

Bonjour, j'aime beaucoup ce modèle que je fais en 12-18 mois, mais j'ai un soucis avec les manches. Avec le patron, 1 manche mesure 4cm + 9 rang de points fantaisies avec 1 augmentation 1 rang sur 2, soit au total 5,8 cm environ. Or il est indiqué de mettre en attente à 17 cm de hauteur. Faut continuer en point fantaisie jusqu'à 17cm? Et comment connaître la largeur à obtenir après les augmentations ? Merci beaucoup.

21.08.2020 - 22:46

DROPS Design answered:

Bonjour Sophie, vous augmentez tous les 2 rangs, donc vous avez bien 18 rangs d'augmentations qui doivent vous donner environ 11 cm (cf échantillon: 16 rangs point fantaisie = 10 cm) + 4 cm de bordure de manche = 15 cm- Continuez jusqu'à ce que la manche mesure 17 cm - en arrêtant bien après un rang de brides (en fonction de votre tension, crochetez 1 rang supplémentaire ou en moins si besoin pour que ce rang soit bien un rang de brides). Bon crochet!

24.08.2020 - 08:05

country flag Karolína wrote:

Dobrý den, návod je asi napsaný srozumitelně, budu podle vás hackovat poprvé, tak jsem sama zvědavá, jestli to zvládnu. Každopádně mi není jasný jeden důležitý detail a to, jestli se to hackuje krátkými sloupky nebo dlouhými. V popisu se opakuje KS a třeba u trupu i rukávů je na konci píše, že se má končit DS rubovou stranou. Poradíte mi prosím?

29.12.2019 - 08:18

DROPS Design answered:

Dobrý den, Karolíno, určitě zvládnete :-)! Kabátek je háčkovaný vzorkem, kde se střídají řady krátkých a dlouhých sloupků (viz odstavec VZOR na začátku návodu), proto díly končí řadou DS. Hodně zdaru! Hana

29.12.2019 - 12:15

country flag Kristina Åbrodd wrote:

Avmaskning på oket stämmer inte alls. Avståndet mellan markörerna får man planera själv. Själva beskrivningen av avmaskningen mycket rörig, svårt att förstå vad ni menar med. ” men nästa gång ” Ärmarnas fäste vid koftan nämns inte alls.

09.12.2019 - 19:02