DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4576.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale
DROPS 154-7
DROPS Design: Mynstur nr w-505
Garnflokkur C eða A + A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS PARIS frá Garnstudio
650-700-800-850-950-1050 gr litur nr 19, ljós gulur

DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 l og 22 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 4,5 – fyrir stroff.
DROPS PERLUTALA, NR 522: 5 stk í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4576.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á hringprjóna/sokkaprjóna):
*1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-*.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = Prjónið aðra og þriðju l frá miðju að framan slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
STÆRÐ S: 3, 13, 23, 33 og 43 cm.
STÆRÐ M: 3, 13, 23, 33 og 43 cm.
STÆRÐ L: 4, 14, 24, 34 og 44 cm.
STÆRÐ XL: 3, 13, 23, 33 og 43 cm.
STÆRÐ XXL: 4, 14, 23, 32 og 42 cm.
STÆRÐ XXXL: 3, 12, 22, 32 og 41 cm.

ÚRTAKA 1 (færist til):
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið lykkjum í byrjun A.3 þannig: Prjónið síðustu l á undan A.3 og fyrstu l í A.3 slétt saman.
Fækkið lykkjum í lok A.3 þannig: Takið síðustu l á A.3 óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið næstu l sl,steypið óprjónuðu l yfir.

ÚTAUKNING:
Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir A.3. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið frá röngu.

ÚRTAKA 2 (á við um v-hálsmál):
Fækkið lykkjum innan við 6 kantlykkju að framan + A.3. Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið lykkjum á undan A.3 + 6 kantlykkjur að framan þannig: Prjónið 2 fyrstu l í A.3 slétt saman.
Fækkið lykkjum á eftir 6 kantlykkjum að framan + A.3: Takið næst síðustu l í A.3 óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.

LASKALÍNA:
Fækkið um 2 l í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma. Fækkið lykkjum bæði frá réttu og frá röngu.
Frá réttu:
Byrjið 2 l á undan A.2 og prjónið þannig: Prjónið 2 l slétt saman, A.2, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.
Frá röngu:
Byrjið 2 l á undan A.2 og prjónið þannig: Prjónið 2 lykkkjur snúnar brugðið saman, A.2, 2 lykkjur brugðið saman.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan.

PEYSA:
Fitjið upp 238-254-270-286-318-334 l (meðtaldar 6 kantlykkjur að framan fyrir stroff í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjóna nr 4,5 með Paris. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan næstu umf frá réttu þannig: Prjónið 2 l garðaprjón, * 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* þar til 4 l eru eftir, endið á 2 l sl og 2 l í garðaprjóni.
Haldið áfram með stroff þar til prjónaðar hafa verið 4 umf með stroffi. Munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan.
Skiptið nú yfir á hringprjóna nr 5 og prjónið síðan frá réttu – þannig:
Prjónið 2 l garðaprjón, 2 l sl, A.1 yfir næstu 16-16-16-24-24-24 l, A.2 (= 6 l), prjónið 4 fyrstu l í umf 1 í A.3. Prjónið 14 l sléttprjón JAFNFRAMT er fækkað um 1 l, prjónið síðustu 4 l í umf 1 í A.3. Prjónið sléttprjón yfir næstu 12-16-20-16-24-28 l JAFNFRAMT er fækkað um 4-4-5-4-7-6 l jafnt yfir, prjónið A.2, prjónið sléttprjón yfir næstu 12-16-20-16-24-28 l JAFNFRAMT er fækkað um 4-4-5-4-7-6 l jafnt yfir, prjónið 4 fyrstu l í umf 1 í A.3, prjónið 14 l sléttprjón JAFNFRAMT er fækkað um 1 l, prjónið síðustu 4 l í A.3, prjónið A.1 yfir næstu 32-32-32-48-48-48 l, prjónið A.2, prjónið 4 fyrstu l í A.3, prjónið 14 l sléttprjón JAFNFRAMT er fækkað um 1 l, prjónið síðustu 4 l í A.3, prjónið sléttprjón yfir næstu 12-16-20-16-24-28 l JAFNFRAMT er fækkað um 4-4-5-4-7-6 l jafnt yfir, prjónið A.2, prjónið sléttprjón yfir næstu 12-16-20-16-24-28 l JAFNFRAMT er fækkað um 4-4-5-4-7-6 l jafnt yfir, prjónið 4 fyrstu l í A.3, prjónið 14 l sléttprjón JAFNFRAMT er fækkað um 1 l, prjónið síðustu 4 l í A.3, A.1 yfir næstu 16-16-16-24-24-24 l, A.2, 2 l sl, 2 l garðaprjón = 218-234-246-266-286-306 l.

Haldið svona áfram með mynstur – frá röngu: Prjónið 2 l garðaprjón, 2 l br, A.2, A.1 yfir næstu 16-16-16-24-24-24 l, A.3 (= 21 l), 8-12-15-12-17-22 l sléttprjón, A.2 (= á hlið), 8-12-15-12-17-22 l sléttprjón, A.3, A.2, prjónið A.1 yfir næstu 32-32-32-48-48-48 l, A.3, 8-12-15-12-17-22 l sléttprjón, A.2 (= á hlið), 8-12-15-12-17-22 l sléttprjón, A.3, A.2, A.1 yfir næstu 16-16-16-24-24-24 l, 2 l br, 2 l garðaprjón. Haldið áfram með þetta mynstur.

LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!
Þegar stykkið mælist 5 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við hvert mynstur í A.2 á hlið (= 4 l færri), fellið af með því að prjóna 2 l slétt saman frá réttu, endurtakið úrtöku með 2½ cm millibili alls 14 sinnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 8-8-8-9-9-10 cm er A.3 fært til þannig að það verða færri l í A.1/A.2 við miðju að framan og við miðju að aftan og fleiri l í sléttprjóni í hliðum.

FRAMSTYKKI:
Fellið af 1 l í byrjun á fyrstu mynstureiningunni í A.3, aukið út um 1 l eftir fyrstu mynstureiningu í A.3. – LESIÐ ÚRTAKA 1 (færist til) og ÚTAUKNING.
Aukið út um 1 l á undan fjórðu mynstureiningu á A.3, fækkið um 1 l í lok á fjórðu mynstureiningu á A.3.
Endurtakið tilfærsluna með 1½- 1½-1½-1-1-1 cm millibili alls 20-20-20-28-28-28 sinnum.

BAKSTYKKI:
Aukið út um 1 l á undan annarri mynstureiningu á A.3, fækkið um 1 l í lok á annarri mynstureiningu á A.3. Fækkið um 1 l í byrjun á þriðju mynstureiningu á A.3, aukið út um 1 l á eftir þriðju mynstureiningu á A.3.
Endurtakið tilfærsluna með 2-2-2-1½-1½-1½ cm millibili alls 16-16-16-24-24-24 sinnum. Á framstykki er A.3 nú við hliðina á 6 kantlykkjum að framan, á bakstykki eru 6 l (= A.2) á milli hverra A.3.

Haldið áfram með úrtöku í hliðum, eftir alla úrtöku eru 162-178-190-210-230-250 l eftir á prjóni. Haldið áfram með mynstur (frá réttu) þannig: Prjónið 2 l garðaprjón, 2 l sl, 2 l br, A.3, 14-18-21-26-31-36 l sléttprjón, A.2, 10-14-17-22-27-32 l sléttprjón, A.3, A.2, A.3, 10-14-17-22-27-32 l sléttprjón, A.2, 14-18-21-26-31-36 l sléttprjón, A.3, 2 l br, 2 l sl 2 l garðaprjón. Þegar stykkið mælist 44-44-45-44-43-42 cm byrjar úrtaka fyrir v-hálsmáli á framstykki, fækkið um 1 l innan við 27 l við miðju að framan í hvorri hlið – LESIÐ ÚRTAKA 2 (v-hálsmál), endurtakið úrtöku í hverjum cm alls 15-18-19-22-25-28 sinnum, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 44-45-46-47-48-49 cm fellið af fyrir handveg í hvorri hlið þannig: Fellið af í A.2 í hvorri hlið (= 6 l). Nú eru 68-76-82-92-102-112 l á bakstykki og ca 40-43-46-50-52-55 l á hvoru framstykki (fer eftir því hversu margar l hafa verið felldar af fyrir v-hálsmáli). Geymið stykkið og prjónið ermar (úrtaka fyrir v-hálsmáli heldur áfram á berustykki).

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 44-44-48-48-52-52 l á sokkaprjóna nr 4,5 með Paris. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Í næstu umf er prjónað stroff (= 2 l sl, 2 l br). Þegar prjónaðar hafa verið 4 umf með stroffi er lykkjum fækkað í næstu umf 4-2-4-2-4-2 l jafnt yfir í stroffi = 40-42-44-46-48-50 l. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 5 og prjónið sléttprjón. Þegar stykkið mælist 8 cm er aukið út um 2 l við miðju undir ermi. Endurtakið útaukningu með 4½-4½-4-3½-3-2½ cm millibili alls 10-10-11-12-13-14 sinnum = 60-62-66-70-74-78 l. Þegar stykkið mælist 52-51-51-50-50-49 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna víðari ermakúpu og breiðari axla) fellið af miðju 6 l undir ermi = 54-56-60-64-68-72 l eftir á prjóni. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = ca 256-274-294-320-342-366 l. Setjið 1 prjónamerki í allar skiptingar á milli fram- og bakstykki og ermar (= 4 prjónamerki. Prjónið mynstur eins og áður, að auki er A.2 prjónað í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (byrjið 3 l á undan prjónamerki). JAFNFRAMT í næstu umf frá réttu byrjar LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan (= 8 l fleiri). Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf (þ.e.a.s. í hverri umf frá réttu), 15-16-17-17-17-17 sinnum og síðan í hverri umf (þ.e.a.s. bæði frá réttu og frá röngu), alls 4-4-5-7-9-11 sinnum. ATH! Þær l sem ekki ganga upp í A.3 þegar lykkjum er fækkað eru prjónaðar í sléttprjóni. Eftir alla úrtöku fyrir laskalínu og v-hálsmáli eru ca 68-74-76-82-88-94 l eftir á prjóni. Prjónið 1 umf sléttprjón frá réttu JAFNFRAMT er lykkjum fækkað jafnt yfir til 22-24-26-28-30-32 l á milli 2 prjónamerkja á bakstykki (þ.e.a.s. fellið af ca 6-10-10-14-18-22 l á milli 2 prjónamerkja á bakstykki). Prjónið fyrstu 6 l áður en þær eru settar á þráð, fækkið lykkjum þar til 6 l eru eftir í lok umf. Prjónið 6 l eins og áður.

KANTUR AÐ FRAMAN/HÁLSMÁL:
Haldið áfram með 2 l garðaprjón, 2 l sl, 2 l br yfir hægri kant að framan, að auki er fitjuð upp 1 ný l í lok umf inn við stykkið (= kantlykkja til að sauma í). Prjónið síðan þar til kantur í hálsmáli mælist ca 15-17-19-21-23-25 cm frá þeim stað þar sem l voru settar til baka á prjóninn (leggið kantinn á hálsmáli við stykkið við miðju að aftan, strekkið aðeins á svo að það passi í gatið), fellið síðan af. Endurtakið alveg eins í vinstri kanti að framan. Saumið sauminn við miðju að aftan innan við affellingarkantinn (saumurinn á að snúa inn við rönguna á stykkinu), saumið kant á hálsmáli saman við hálsmálið innan við 1 kantlykkju.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í vinstri kant að framan.

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = br frá réttu, sl frá röngu
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l
symbols = prjónið 3 l sl, takið fyrstu l sem prjónuð var yfir hinar 2 þannig að sú lykkja liggi utan um 2 síðustu l á hægri prjóni (= 1 l færri)
symbols = 4 l slétt saman
symbols = 4 l snúnar slétt saman
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 154-7

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (74)

country flag Ulrike L Aksoy wrote:

Guten Tag, ich bin nun an der Stelle wo die Maschen der Ärmel auf die Nadel genommen werden. Muss ich nun für den Raglanarm in der Hinreihe oder in Hin-Rückreihe vor und nach dem Muster 1 M angenehmen?

02.09.2018 - 20:48

DROPS Design answered:

Liebe Frau Aksoy, A.2 wird an jedem Übergant zwischen Ärmel und Rumpfteil gestrickt, dann wird 1 Masche vor und 1 Masche nach A.2 abgenommen zuerst in jeder 2. Reihe (= jede Hinreihe), dann jeder Reihe (= Hin- sowie Rückreihe). Viel Spaß beim stricken!

03.09.2018 - 15:50

country flag Ulrike Aksoy wrote:

Für Gr. L werden 270 Maschen angegeben. Muss ich je 6 Maschen für die Blende zusätzlich aufnehmen? Muss ich das Diagramm in der Rückreihe von links nach rechts lesen? Ich habe schon einige Strickanleitungen gelesen aber diese verwirrt mich total

18.03.2018 - 14:59

DROPS Design answered:

Liebe Frau Aksoy, die Blendemaschen sind in den 270 M mit gezählt, dh Sie brauchen keine zusätzliche M anzuschlagen. Diagramme lesen Sie von der unteren Ecke rechts nach links von der Vorderseite und links nach rechts von der Rückseite. Viel Spaß beim stricken!

19.03.2018 - 10:51

country flag Beate wrote:

Bei mir war das aber schon nach 5 oder 6 cm der Fall. Ich habe Größe s gestrickt, die 1. Abnahme für den V-Ausschnitt noch vor der Passe gemacht und musste also noch 14 Abnahmen für den Ausschnitt in der Passe machen. Und das kam dann nicht hin. Ich bin schon ganz früh auf die Raglanlinie gekommen. Habe dann improvisiert und vorne bei A3 weiter abgenommen und auch ein anderes Bündchen am Hals gemacht

07.08.2016 - 18:52

DROPS Design answered:

Liebe Beate, die Abnahmen für den V-Ausschnitt werden ja wie angegeben nach je 1 cm gemacht. Wenn Sie also noch 14 Abnahmen haben sind das 14 cm (und nicht 5 cm).

08.08.2016 - 08:53

country flag Beate wrote:

Bei mir war das aber schon nach 5 oder 6 cm der Fall. Ich habe Größe s gestrickt, die 1. Abnahme für den V-Ausschnitt noch vor der Passe gemacht und musste also noch 14 Abnahmen für den Ausschnitt in der Passe machen. Und das kam dann nicht hin. Ich bin schon ganz früh auf die Raglanlinie gekommen. Habe dann improvisiert und vorne bei A3 weiter abgenommen und auch ein anderes Bündchen am Hals gemacht

06.08.2016 - 14:23

DROPS Design answered:

Antwort siehe oben.

08.08.2016 - 08:55

country flag Beate wrote:

Hallo! Ich komme nicht mehr weiter, bin bei der Passe. Bei mir treffen sich die V-Ausschnitt Abnahmen nach A3 mit den Abnahmen für die Raglanschrägung an der Seite von A2, die daneben ist. Das kommt nicht hin mit der Anleitung.

28.07.2016 - 16:38

DROPS Design answered:

Liebe Beate, ich bin nicht sicher, ob ich Ihre Frage richtig verstanden habe: auf der Schnittzeichnung sehen Sie, dass der V-Ausschnitt nach den Abnahmen auf die Raglanlinie trifft.

03.08.2016 - 15:55

country flag Mari wrote:

Hej! Jag har stickat sen jag var 6 år, dvs i 21 år. Hsr stickat mycket mönster, och oftast drops mönster på senare år. Jag får bara inte ihop detta mönster i stl L. Har ritat upp diagrammen på papper, gjort dem fram och tillbaka hur många ggr som helst. Det är fler m i första mönstervarvet än de 270 man har lagt upp, så det är ju inte konstigt att det inte stämmer, det måste vara lite fel... Mvh

17.07.2016 - 09:24

DROPS Design answered:

L: 2m rätst, 2rm, A.1 över 16, A.2(=6 m), 4 m i A.3. 14m slätst SAMTIDIGT som det minskas 1m, sista 4m i A.3 (47), 20 m slätst SAMTIDIGT som det minskas 5m, A.2, 20m slätst SAMTIDIGT som det minskas 5m (83), 4 första m i A.3, 14m slätst SAMTIDIGT som det minskas 1 m (100), sticka de sista 4m i A.3, A.1 över 32m, sticka A.2, 4 första m i A.3, 14m slätst SAMTIDIGT som det minskas 1m (159), 4 m i A.3, 20m slätst SAMTIDIGT som det minskas 5m jämnt fördelat (178), sticka A.2, 20m slätst SAMTIDIGT som det minskas 5m jämnt fördelat (199), sticka de 4 första m i A.3, 14m slätst SAMTIDIGT som det minskas 1m (216), sista 4m i A.3, A.1 över de nästa 16m, A.2, 2rm, 2m rätst = 246m.

29.03.2017 - 14:43

country flag Rose Chidester wrote:

I have been knitting for almost 50 years, but never a Drops Design pattern before. I have completed the rib rows and two pattern rows in 154-7. How do I continue, is there only two printed pattern rows? I apologize if I am not experienced enough to use your pattern, but I have knitted many lace patterns before without any problems. Regards, Rose Chidester

18.06.2016 - 04:10

DROPS Design answered:

Dear Mrs Chidester, after you have cast on the sts for your size, you first work 2 ridges in garter st (= 4 rows), work 4 rows with rib K2/P2 with 2 sts in garter st, then work in pattern following the diagrams - read more here about diagrams. Happy knitting!

20.06.2016 - 09:18

country flag LindaB wrote:

I got it - thank you! The videos here and on youtube help tremendously.

28.02.2016 - 02:04

country flag LindaB wrote:

Novice knitter here. I'm just starting this pattern and have done the 2 ridges and first RS row. My question is for the next row I, garter2, then do I change the pattern from *K2 P2"...to "P2 K2" because I'm on the wrong side?

26.02.2016 - 21:46

DROPS Design answered:

Dear LindaB, from WS you will K over K and P over P to keep the ribbing K2/P2 seen from RS. Happy knitting!

27.02.2016 - 15:54

country flag Karin Kohr wrote:

Hallo liebes DROPS-Team, Die 1 Reihe nach dem Nadelwechsel beginnt (in xxl) mit 2 M kraus re, 2 M re, A1 über 24 M, A2 .......endet aber ....A1 über 24 M, A2, 2 M re, 2 M kraus re...... Damit sehen die Vorderteile doch später unterschiedlich aus, wenn mit A1 begonnen aber mit A2 geendet wird, oder lese ich da was falsch ? Vielen Dank Karin

12.04.2015 - 16:24

DROPS Design answered:

Liebe Karin, es passt, wie es dort steht, denn A.1 und A.2 sind in der Musterung identisch und unterscheiden sich nur in den Rechtsmaschen. Ihrer Befürchtung, die Vorderteile könnten unterschiedlich werden, ist genau damit Rechnung getragen - wenn Sie die Aufteilung stricken wie beschrieben, werden die beiden Vorderteile symmetrisch. Ab den vorderen Rändern liegen dort dann jeweils 2 M kraus re, 2 M re, 6 M Muster.

13.04.2015 - 08:59