April |
|||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Paris með laskalínu, gatamynstri og v-hálsmáli. Stærð S - XXXL
DROPS 154-7 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á hringprjóna/sokkaprjóna): *1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-*. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = Prjónið aðra og þriðju l frá miðju að framan slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: STÆRÐ S: 3, 13, 23, 33 og 43 cm. STÆRÐ M: 3, 13, 23, 33 og 43 cm. STÆRÐ L: 4, 14, 24, 34 og 44 cm. STÆRÐ XL: 3, 13, 23, 33 og 43 cm. STÆRÐ XXL: 4, 14, 23, 32 og 42 cm. STÆRÐ XXXL: 3, 12, 22, 32 og 41 cm. ÚRTAKA 1 (færist til): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum í byrjun A.3 þannig: Prjónið síðustu l á undan A.3 og fyrstu l í A.3 slétt saman. Fækkið lykkjum í lok A.3 þannig: Takið síðustu l á A.3 óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, prjónið næstu l sl,steypið óprjónuðu l yfir. ÚTAUKNING: Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir A.3. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið frá röngu. ÚRTAKA 2 (á við um v-hálsmál): Fækkið lykkjum innan við 6 kantlykkju að framan + A.3. Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum á undan A.3 + 6 kantlykkjur að framan þannig: Prjónið 2 fyrstu l í A.3 slétt saman. Fækkið lykkjum á eftir 6 kantlykkjum að framan + A.3: Takið næst síðustu l í A.3 óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. LASKALÍNA: Fækkið um 2 l í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma. Fækkið lykkjum bæði frá réttu og frá röngu. Frá réttu: Byrjið 2 l á undan A.2 og prjónið þannig: Prjónið 2 l slétt saman, A.2, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. Frá röngu: Byrjið 2 l á undan A.2 og prjónið þannig: Prjónið 2 lykkkjur snúnar brugðið saman, A.2, 2 lykkjur brugðið saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan. PEYSA: Fitjið upp 238-254-270-286-318-334 l (meðtaldar 6 kantlykkjur að framan fyrir stroff í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjóna nr 4,5 með Paris. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan næstu umf frá réttu þannig: Prjónið 2 l garðaprjón, * 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* þar til 4 l eru eftir, endið á 2 l sl og 2 l í garðaprjóni. Haldið áfram með stroff þar til prjónaðar hafa verið 4 umf með stroffi. Munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Skiptið nú yfir á hringprjóna nr 5 og prjónið síðan frá réttu – þannig: Prjónið 2 l garðaprjón, 2 l sl, A.1 yfir næstu 16-16-16-24-24-24 l, A.2 (= 6 l), prjónið 4 fyrstu l í umf 1 í A.3. Prjónið 14 l sléttprjón JAFNFRAMT er fækkað um 1 l, prjónið síðustu 4 l í umf 1 í A.3. Prjónið sléttprjón yfir næstu 12-16-20-16-24-28 l JAFNFRAMT er fækkað um 4-4-5-4-7-6 l jafnt yfir, prjónið A.2, prjónið sléttprjón yfir næstu 12-16-20-16-24-28 l JAFNFRAMT er fækkað um 4-4-5-4-7-6 l jafnt yfir, prjónið 4 fyrstu l í umf 1 í A.3, prjónið 14 l sléttprjón JAFNFRAMT er fækkað um 1 l, prjónið síðustu 4 l í A.3, prjónið A.1 yfir næstu 32-32-32-48-48-48 l, prjónið A.2, prjónið 4 fyrstu l í A.3, prjónið 14 l sléttprjón JAFNFRAMT er fækkað um 1 l, prjónið síðustu 4 l í A.3, prjónið sléttprjón yfir næstu 12-16-20-16-24-28 l JAFNFRAMT er fækkað um 4-4-5-4-7-6 l jafnt yfir, prjónið A.2, prjónið sléttprjón yfir næstu 12-16-20-16-24-28 l JAFNFRAMT er fækkað um 4-4-5-4-7-6 l jafnt yfir, prjónið 4 fyrstu l í A.3, prjónið 14 l sléttprjón JAFNFRAMT er fækkað um 1 l, prjónið síðustu 4 l í A.3, A.1 yfir næstu 16-16-16-24-24-24 l, A.2, 2 l sl, 2 l garðaprjón = 218-234-246-266-286-306 l. Haldið svona áfram með mynstur – frá röngu: Prjónið 2 l garðaprjón, 2 l br, A.2, A.1 yfir næstu 16-16-16-24-24-24 l, A.3 (= 21 l), 8-12-15-12-17-22 l sléttprjón, A.2 (= á hlið), 8-12-15-12-17-22 l sléttprjón, A.3, A.2, prjónið A.1 yfir næstu 32-32-32-48-48-48 l, A.3, 8-12-15-12-17-22 l sléttprjón, A.2 (= á hlið), 8-12-15-12-17-22 l sléttprjón, A.3, A.2, A.1 yfir næstu 16-16-16-24-24-24 l, 2 l br, 2 l garðaprjón. Haldið áfram með þetta mynstur. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Þegar stykkið mælist 5 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við hvert mynstur í A.2 á hlið (= 4 l færri), fellið af með því að prjóna 2 l slétt saman frá réttu, endurtakið úrtöku með 2½ cm millibili alls 14 sinnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 8-8-8-9-9-10 cm er A.3 fært til þannig að það verða færri l í A.1/A.2 við miðju að framan og við miðju að aftan og fleiri l í sléttprjóni í hliðum. FRAMSTYKKI: Fellið af 1 l í byrjun á fyrstu mynstureiningunni í A.3, aukið út um 1 l eftir fyrstu mynstureiningu í A.3. – LESIÐ ÚRTAKA 1 (færist til) og ÚTAUKNING. Aukið út um 1 l á undan fjórðu mynstureiningu á A.3, fækkið um 1 l í lok á fjórðu mynstureiningu á A.3. Endurtakið tilfærsluna með 1½- 1½-1½-1-1-1 cm millibili alls 20-20-20-28-28-28 sinnum. BAKSTYKKI: Aukið út um 1 l á undan annarri mynstureiningu á A.3, fækkið um 1 l í lok á annarri mynstureiningu á A.3. Fækkið um 1 l í byrjun á þriðju mynstureiningu á A.3, aukið út um 1 l á eftir þriðju mynstureiningu á A.3. Endurtakið tilfærsluna með 2-2-2-1½-1½-1½ cm millibili alls 16-16-16-24-24-24 sinnum. Á framstykki er A.3 nú við hliðina á 6 kantlykkjum að framan, á bakstykki eru 6 l (= A.2) á milli hverra A.3. Haldið áfram með úrtöku í hliðum, eftir alla úrtöku eru 162-178-190-210-230-250 l eftir á prjóni. Haldið áfram með mynstur (frá réttu) þannig: Prjónið 2 l garðaprjón, 2 l sl, 2 l br, A.3, 14-18-21-26-31-36 l sléttprjón, A.2, 10-14-17-22-27-32 l sléttprjón, A.3, A.2, A.3, 10-14-17-22-27-32 l sléttprjón, A.2, 14-18-21-26-31-36 l sléttprjón, A.3, 2 l br, 2 l sl 2 l garðaprjón. Þegar stykkið mælist 44-44-45-44-43-42 cm byrjar úrtaka fyrir v-hálsmáli á framstykki, fækkið um 1 l innan við 27 l við miðju að framan í hvorri hlið – LESIÐ ÚRTAKA 2 (v-hálsmál), endurtakið úrtöku í hverjum cm alls 15-18-19-22-25-28 sinnum, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 44-45-46-47-48-49 cm fellið af fyrir handveg í hvorri hlið þannig: Fellið af í A.2 í hvorri hlið (= 6 l). Nú eru 68-76-82-92-102-112 l á bakstykki og ca 40-43-46-50-52-55 l á hvoru framstykki (fer eftir því hversu margar l hafa verið felldar af fyrir v-hálsmáli). Geymið stykkið og prjónið ermar (úrtaka fyrir v-hálsmáli heldur áfram á berustykki). ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 44-44-48-48-52-52 l á sokkaprjóna nr 4,5 með Paris. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Í næstu umf er prjónað stroff (= 2 l sl, 2 l br). Þegar prjónaðar hafa verið 4 umf með stroffi er lykkjum fækkað í næstu umf 4-2-4-2-4-2 l jafnt yfir í stroffi = 40-42-44-46-48-50 l. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 5 og prjónið sléttprjón. Þegar stykkið mælist 8 cm er aukið út um 2 l við miðju undir ermi. Endurtakið útaukningu með 4½-4½-4-3½-3-2½ cm millibili alls 10-10-11-12-13-14 sinnum = 60-62-66-70-74-78 l. Þegar stykkið mælist 52-51-51-50-50-49 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna víðari ermakúpu og breiðari axla) fellið af miðju 6 l undir ermi = 54-56-60-64-68-72 l eftir á prjóni. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = ca 256-274-294-320-342-366 l. Setjið 1 prjónamerki í allar skiptingar á milli fram- og bakstykki og ermar (= 4 prjónamerki. Prjónið mynstur eins og áður, að auki er A.2 prjónað í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (byrjið 3 l á undan prjónamerki). JAFNFRAMT í næstu umf frá réttu byrjar LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan (= 8 l fleiri). Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf (þ.e.a.s. í hverri umf frá réttu), 15-16-17-17-17-17 sinnum og síðan í hverri umf (þ.e.a.s. bæði frá réttu og frá röngu), alls 4-4-5-7-9-11 sinnum. ATH! Þær l sem ekki ganga upp í A.3 þegar lykkjum er fækkað eru prjónaðar í sléttprjóni. Eftir alla úrtöku fyrir laskalínu og v-hálsmáli eru ca 68-74-76-82-88-94 l eftir á prjóni. Prjónið 1 umf sléttprjón frá réttu JAFNFRAMT er lykkjum fækkað jafnt yfir til 22-24-26-28-30-32 l á milli 2 prjónamerkja á bakstykki (þ.e.a.s. fellið af ca 6-10-10-14-18-22 l á milli 2 prjónamerkja á bakstykki). Prjónið fyrstu 6 l áður en þær eru settar á þráð, fækkið lykkjum þar til 6 l eru eftir í lok umf. Prjónið 6 l eins og áður. KANTUR AÐ FRAMAN/HÁLSMÁL: Haldið áfram með 2 l garðaprjón, 2 l sl, 2 l br yfir hægri kant að framan, að auki er fitjuð upp 1 ný l í lok umf inn við stykkið (= kantlykkja til að sauma í). Prjónið síðan þar til kantur í hálsmáli mælist ca 15-17-19-21-23-25 cm frá þeim stað þar sem l voru settar til baka á prjóninn (leggið kantinn á hálsmáli við stykkið við miðju að aftan, strekkið aðeins á svo að það passi í gatið), fellið síðan af. Endurtakið alveg eins í vinstri kanti að framan. Saumið sauminn við miðju að aftan innan við affellingarkantinn (saumurinn á að snúa inn við rönguna á stykkinu), saumið kant á hálsmáli saman við hálsmálið innan við 1 kantlykkju. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (74)
Ilona wrote:
Sehr schön die A-Form mit dem strahlenförmig auslaufenden Muster unten
10.12.2013 - 22:55Brigitte wrote:
Très chic
10.12.2013 - 21:10Barbara Schmidt wrote:
Sehr chic!!
10.12.2013 - 18:53Ilse Zörkler wrote:
Sehrgut
10.12.2013 - 17:07