DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS SS24

Sweet Rose

Prjónuð peysa úr DROPS Kid-Silk og DROPS BabyAlpaca Silk í garðaprjóni. Stærð S - XXXL.

DROPS 155-34
DROPS Design: Mynstur nr ks-086
Garnflokkur A + A eða C
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio
100-100-125-125-150-150 gr litur nr 03, ljós bleikur
og einnig
DROPS BABYALPAKA SILK frá Garnstudio
100-100-150-150-150-150 gr litur nr 1306, púðurbleikur

DROPS HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 6 – eða þá stærð sem þarf til að 15 l og 32 umf með garðaprjóni með 1 þræði af hvorri tegund verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á hringprjóna):
* 1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-*

MYNSTUR:
Prjónið nú mynstur með byrjun frá réttu þannig:
UMFERÐ 1-4 = 4 umf garðaprjón: sl með 1 þræði af BabyAlpaca Silk og 1 þræði af Kid-Sil (= 2 þræðir).
UMFERÐ 5-8 = 4 umf garðaprjón: sl með 1 þræði af Kid-Silk.
UMFERÐ 9-10: = 2 umf garðaprjón: sl með 1 þræði af BabyAlpaca Silk og 1 þræði af Kid-Silk (= 2 þræðir).
UMFERÐ 11-14: = 4 umf garðaprjón: sl með 1 þræði af Kid-Silk.
Endurtakið umf 1-14.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 l með því að prjóna 2 l í 1 l.
Þegar aukið er út um 2 l í hvorri hlið er aukið út með því að prjóna 2 l í hvora af fyrstu 2 og síðustu lykkjum í umferð.

ÚRTAKA:
Fækkið um 1 l innan við 1 kantlykkju með því að prjóna 2 l slétt saman.
Fækkið um 2 l innan við 1 kantlykkju með því að prjóna 3 l slétt saman.

MÆLING:
Öll mæling er gerð þegar stykkið liggur flatt, mikilvægt er að teygja ekki á stykkinu þegar mál er tekið.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka frá hlið.

VINSTRI ERMI + FRAM- OG BAKSTYKKI:
Byrjið neðst niðri á ermi, fitjið upp nýjar l fyrir framstykki og bakstykki og prjónið fram að hálsmáli, áður en haldið er áfram á framstykki.
Fitjið laust upp 48-52-54-58-60-64 l á hringprjóna nr 6 með 1 þræði af BabyAlpaca Silk og 1 þræði af Kid-Silk = 2 þræðir. Prjónið 2 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan! Í næstu umf (= rétta) er prjónað MYNSTUR – sjá útskýringu að ofan! ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 3-2-4-3-3-2 cm er aukið út um 1 l hvoru megin á stykki frá réttu – LESIÐ ÚTAUKNING! Haldið áfram með útaukningu í hvorri hlið á stykki með ca 1½-1½-1-1-1-1 cm millibili 5 sinnum til viðbótar (= alls 6 sinnum) = 60-64-66-70-72-76 l á prjóni og stykkið mælist nú 11-10-9-8-8-7 cm. Haldið síðan áfram eins og áður, en nú er aukið út um 1 l hvoru megin á stykki í hverri umf frá réttu 7-7-7-7-5-5 sinnum og síðan 2 l í hvorri hlið á stykki 1-1-1-1-2-2 sinnum = alls 15-15-15-15-15-15 l útauknar í hvorri hlið frá byrjun og 78-82-84-88-90-94 l á prjóni. Stykkið mælist nú 16-15-14-13-12-11 cm. Í 2 næstu umf eru fitjaðar laust upp 56-57-59-60-62-63 nýjar l í lok hverrar umf = 190-196-202-208-214-220 l. ATH! Stillið mynstrið af þannig að nýjar l eru fitjaðar upp í 2. umf í mynstri með 2 þráðum! Haldið síðan áfram fram og til baka með mynstur eins og áður þar til stykkið mælist alls 31-32-33-33-34-35 cm. Í næstu umf frá réttu eru fyrstu 92-95-98-99-102-105 l prjónaðar áður en þær eru settar á þráðfyrir bakstykki. Fellið nú af næstu 3-3-3-5-5-5 l fyrir hálsmáli, setjið prjónamerki mitt á milli síðustu l sem felld var af og næstu l (= miðja ofan á öxl), fellið af næstu 5-6-6-6-8-8 l = 90-92-95-98-99-102 l eftir fyrir framstykki. Haldið síðan áfram með mynstur eins og áður, JAFNFRAMT er fellt af fyrir hálsmáli í hverri umf frá réttu þannig: 2 l 1 sinni og 1 l 3 sinnum = 85-87-90-93-94-97 l eftir. Haldið síðan áfram með mynstur í 7½-7½-7½-8½-9-9 cm áður en fitjaðar eru upp nýjar l fyrir hálsmál í lok hverrar umf frá röngu þannig: 1 l 3 sinnum, 2 l 1 sinni og 5-6-6-6-8-8 l 1 sinni = 95-98-101-104-107-110 l.
Geymið stykkið og prjónið bakstykki.

BAKSTYKKI OG HÆGRI ERMI:
Lykkjurnar af bandi eru settar til baka á prjóninn og bakstykkið er prjónað áður en l frá framstykki eru settar á sama prjón. Prjónið síðan afganginn af fram- og bakstykki og hægri ermi.
Setjið til baka 92-95-98-99-102-105 l af þræði á prjóninn og haldið áfram með mynstur frá röngu, JAFNFRAMT er fækkað um 1 l í byrjun á umf fyrir hálsmáli – LESIÐ ÚRTAKA! = 91-94-97-98-101-104 l eftir á prjóni. Haldið síðan áfram með mynstur þar til stykkið mælist 13-13-13-14-15-15 cm frá prjónamerki við miðju ofan á öxl. ATH! Peysan kemur til með að teygjast þegar hún er notuð og það er því mjög mikilvægt að ekki sé prjónað of langt aftan í hnakka! Í lok næstu umf frá réttu er aukið út um 1 l fyrir hálsmáli með því að prjóna 2 l í 1 l = 92-95-98-99-102-105 l á prjóni. ATH! Hér verður að stilla af mynstur á framstykki, þannig að næsta umf frá réttu geti byrjað í sömu umf í mynstri bæði á framstykki og á bakstykki.
Í næstu umf frá réttu er prjónað yfir allar l á prjóni áður en fitjað er upp 3-3-3-5-5-5 l fyrir hálsmáli. Prjónið síðan allar l af þræði (= framstykki)= 190-196-202-208-214-220 l.
Haldið síðan áfram yfir allar l þar til stykkið mælist alls 44-48-52-56-60-64 cm neðst niðri á fram- og bakstykki – stillið af mynstur þannig að næsta umf er umf í mynstri með 2 þráðum!
Í byrjun á 2 næstu umf er fellt laust af 56-57-59-60-62-63 l = 78-82-84-88-90-94 l eftir. Áfram í stykkinu er fækkað um l fyrir ermi alveg eins og aukið var út fyrir vinstri ermi þannig:
Fækkið um l í hvorri hlið á stykki í byrjun á eftirfarandi umferðum – LESIÐ ÚRTAKA!
Fækkið um 2 l í hvorri hlið á stykki 1-1-1-1-2-2 sinnum og 1 l 7-7-7-7-5-5 sinnum. Haldið síðan áfram, en nú er fækkað um 1 l hvoru megin á stykki með ca 1½-1½-1-1-1-1 cm millibili alls 6 sinnum = 48-52-54-58-60-64 l eftir. Haldið síðan áfram með mynstur og stillið af eftir lengd á vinstri ermi. Prjónið 2 umf garðaprjón. Prjónið 1 umf til baka og fellið síðan laust af.

HÁLSMÁL:
Takið upp 54-65 l með 1 þræði af hvorri tegund (= 2 þræðir) með stuttum hringprjónum nr 6 í kringum hálsmál. Prjónið 6 umf GARÐAPRJÓN prjónað í hring á hringprjóna – sjá útskýringu að ofan. Fellið laust af.

FRÁGANGUR:
Brjótið niður efst á öxl, saumið hliðarsauma og sauma undir ermum í eitt, yst í lykkjubogann. Klippið frá og festið enda.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 03.04.2014
Nýtt efnismagn: DROPS KID-SILK frá Garnstudio 100-100-125-125-150-150 gr litur nr 03, ljós bleikur og notið DROPS BABYALPACA SILK frá Garnstudio 100-100-150-150-150-150 gr litur nr 1306 púðurbleikur

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 155-34

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (21)

country flag Christine wrote:

Planlægger at strikke denne i størrelse L. 150 g BabyAlpaca = 1002 meter og 125 g Kid-Silk = 1050 meter, dvs cirka lige meget af hver. Af de 14 pinde i mønstret strikkes 6 pinde med to tråde (BabyAlpaca + Kid-Silk) og 8 pinde med Kid-Silk alene. Dvs. 100% af pindene (14 p) strikkes med Kid-Silk og kun 43% af pindene (p 1-4 og p 9-10 = 6 p) strikkes med BabyAlpaca - burde der så ikke skulle bruges meget mere Kid-Silk end BabyAlpaca?

18.01.2022 - 15:37

DROPS Design answered:

Hej Christine, 150 g DROPS BabyAlpaca Silk = 501 m - God fornøjelse!

19.01.2022 - 07:51

country flag Christine wrote:

Planlægger at strikke denne i str. L.\r\n150 g. BabyAlpaca = 1002 meter og 125 g. Kid-Silk = 1050 meter, dvs. cirka lige dele af hver.\r\nAf de 14 pinde i mønstret strikkes 6 pinde med to tråde (BabyAlpaca + Kid-Silk) og 8 pinde kun med Kid-Silk. Dvs. 100% af pindene (14 p) strikkes med Kid-Silk og kun 43% af pindene (p 1-4 og p 9-10 = 6 p) strikkes med BabyAlpaca - burde der så ikke skulle bruges meget mere Kid-Silk end BabyAlpaca?

17.01.2022 - 08:27

country flag Anette Clausen wrote:

Har 5 ngl. Malva no 31 kidsilk liggende. Er der en farve fra DROPS Baby Alpaca Silk der passer til Malva, så jeg kan strikke modellen 155-34. På forhånd tak Mvh Anette

15.02.2021 - 12:15

DROPS Design answered:

Hei Anette. Fargevalg er ganske personlig, anbefaler deg til å ta en titt på fargekartet til Baby AlpacaSilk. F.eks lys grålilla nr. 1760 være noe, men kan bli litt melert. Evnt. så kan jo farge 9024 i DROPS Alpaca mørk blush være noe? mvh DROPS design

15.02.2021 - 12:56

country flag Pauline Wheeler wrote:

I want to work with 2mm/2.5mm needles and 2 strands Kid-Silk on this pattern so it a close knitted garment. please can you give me amended details. I realise it is an unusual request. I love knitting with 2mm needles and with this pattern in particular. your help would be greatly appreciated.

01.09.2020 - 16:58

DROPS Design answered:

Dear Mrs Wheeler, we are unfortunately not able to adjust every pattern to every individual request, please contact your DROPS store for any individual assistance, thanks for your comprehension. Happy knitting!

02.09.2020 - 08:15

country flag Janine wrote:

Why does it say in garter stitch. that the first ridge is fine on knit. them the second garter it says 1 row knit and 1 row purl. just which is garter ridges and which is just stocking stitch? very unclear

28.06.2020 - 04:29

DROPS Design answered:

Dear Janine, when you knit garter stitch in rows, you will knit all rows (see video) but when you work garter stitch in the round you will work alternately 1 round knit and 1 round purl (see video). Happy knitting!

29.06.2020 - 08:19

country flag Federica wrote:

Buongiorno, sono arrivata allo scollo davanti e volevo gentilmente sapere se i 7,5 cm. indicati da proseguire con il motivo si intendono da quel punto esatto oppure dall'inizio degli intrecci del collo. Grazie e cordiali saluti. Federica

25.08.2017 - 16:29

DROPS Design answered:

Buongiorno Federica. I 7,5 cm vanno misurati dalla fine delle diminuzioni per lo scollo. Buon lavoro!

25.08.2017 - 17:24

country flag Donatella wrote:

Buongiorno ho lasciato il lavoro in sospeso per iniziare la metà dietro e manica destra. Non ho chiaro cosa devo riportare nel ferro. Tutto il lavoro lasciato in sospeso più le 95 maglie messe prima nel fermamaglie? Perché io nel fermamaglie ho messo solo 95 m (sto facendo una M)

25.08.2017 - 12:00

DROPS Design answered:

Buongiorno Donatella, per la prima parte del dietro deve lavorare solo sulle 95 maglie che aveva messo in sospeso, poi quando le viene indicato, lavora su tutte le maglie sul ferro, comprese quelle per il davanti. Buon lavoro!

25.08.2017 - 12:48

country flag Lenie Bron wrote:

Hoe moet ik de juiste maat vinden. Waarvoor staat BV s, m, l, xl en xxl

29.09.2014 - 22:55

DROPS Design answered:

Hoi Lenie. Onderaan het patroon staan de afmetingen voor elke maat in cm. Vergelijk deze met je eigen afmetingen en kies jouw maat.

30.09.2014 - 16:29

country flag GALLIOT wrote:

Bonjour, Question : où augmenter pour obtenir ces 220 m ? Merci de votre réponse. Cordialement

08.04.2014 - 11:24

GALLIOT answered:

Bonjour, Je réalise un modèle en pancho pour la première fois. J'ai téléphoné à LUCE qui m'a gentiment aidé à comprendre les explications. Si cela peut servir à quelqu'un autre. Il faut augmenter de 63 m après chacun des 2 rangs

08.04.2014 - 11:40

country flag GALLIOT wrote:

Bonjour, Je réalise ce pull en XXXL et les explications dans la partie MANCHE + 1/2 DOS & DEVANT ne sont pas justes dans le nombre de mailles. Lorsque que l'on augmente après la manche, il est dit 63 mailles. On en a déjà 94 et on doit avoir un total de 220 m après augmentations. 63 + 94 : 167 m et non 220 m.

08.04.2014 - 11:23