DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2640.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 155-21
DROPS Design: Mynstur nr e-222
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S /M - L /XL – XXL/XXXL

Efni:
DROPS SAFRAN frá Garnstudio
300-350-400 gr litur nr 17, hvítur

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 l og 32 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS PERLUTALA NR 521: 7-7-8 stk.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2640.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1-A.3. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan frá réttu. 1 hnappagat = prjónið 3. og 4. l frá miðju að framan slétt saman og sláið síðan 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagati þegar stykkið mælist:
STÆRÐ S/M: 12, 19, 26, 33, 40, 47 og 49 cm.
STÆRÐ L/XL: 11, 19, 27, 35, 43, 51 og 53 cm.
STÆRÐ XXL/XXXL: 7, 15, 23, 31, 39, 47, 55 og 57 cm.

ÚRTAKA:
Fækkið um 1 l á undan 1.-3.-5. og 7. prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 l eru eftir á undan prjónamerki, takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.
Fækkið um 1 l á eftir 2.-4.- 6. og 8. prjónamerki þannig: Prjónið 2 l slétt saman.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 242-298-354 l á hringprjóna nr 3 með Safran. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN yfir allar l – sjá útskýringu að ofan, prjónið nú frá réttu – þannig: Prjónið 8 l garðaprjón (= kantur að framan), 1 l sléttprjón, A.1 (= 14 l) yfir næstu 224-280-336 l (= 16-20-24 mynstureiningar á breiddina), 1 l sléttprjón, endið á 8 l garðaprjón (= kantur að framan). Haldið áfram með þetta mynstur, kantur að framan er prjónaður í garðaprjóni til loka og sléttprjónaða l í hvorri hlið er prjónuð í sléttprjóni til loka. Þegar stykkið mælist 12-11-7 cm er fellt af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 32-31-30 cm, stillið af að næsta umf sé umf 13 eða 27 í mynstri A.1, prjónið nú frá réttu þannig: Prjónið 8 l garðaprjón (= kantur að framan), 1 l sléttprjón, A.1 yfir næstu 52-66-80 l (ATH: Prjónið sléttprjón yfir síðustu l, ekki 2 l slétt saman eins og í mynstri), fellið af næstu 8 l (= þær síðustu 4 og fyrstu 4 l í A.1), byrjið A.1 á eftir 4 l í mynstri (ATH: Ekki byrja með 2 l slétt saman og 1 uppslætti eins og í mynstri) og prjónið síðan A.1 yfir næstu 104-132-160 l (ATH: Prjónið sléttprjón yfir síðustu l, ekki 2 l slétt eins og í mynstri), fellið af næstu 8 l (= þær 4 síðustu og þær 4 fyrstu l í A.1), byrjið á A.1 á eftir 4 l í mynstri (ATH: Ekki byrja á 2 l slétt saman og 1 uppslætti yfir fyrstu 4 l eins og í mynstri) og prjónið síðan A.1 yfir næstu 52-66-80 l, 1 l sléttprjón, endið á 8 l garðaprjón (= kantur að framan). Fækkið um 8 l á hvorri hlið á stykki og það eru 226-282-338 l eftir á prjóni. Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Stykkið er prjónað fram og til baka. Fitjið upp 86-100-114 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna nr 3 með Safran. Prjónið 4 umf garðaprjón, prjónið síðan frá réttu – þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, A.1 (= 14 l) yfir næstu 84-98-112 l (= 6-7-8 mynstureiningar á breiddina) og endið á 1 kantlykkju í garðaprjóni. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru fyrstu 13 umf prjónaðar 1 sinni til viðbótar JAFNFRAMT í síðustu umf eru felldar af 5 l í hvorri hlið á stykki (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) = 76-90-104 l á prjóni. Klippið frá og festið enda.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið inn ermar á sömu hringprjóna nr 3 eins og fram- og bakstykki = 378-462-546 l. Prjónið nú þannig – byrjið á 14. umf (= frá röngu): Prjónið 8 l garðaprjón (= kantur að framan), 1 l sléttprjón, A.1 (= 14 l) yfir næstu 42-56-70 l, A.3 (= 10 l) JAFNFRAMT er sett 1. prjónamerki eftir 9 l, A.2 (= 10 l) JAFNFRAMT er sett 2. prjónamerki eftir 1 l (= 2 l á milli prjónamerkja), A.1 yfir næstu 56-70-84 l, A.3 JAFNFRAMT er sett 3. prjónamerki eftir 9 l, A.2 JAFNFRAMT er sett 4. prjónamerki eftir 1 l (= 2 l á milli prjónamerkja), A.1 yfir næstu 84-112-140 l, A.3 JAFNFRAMT er sett 5. prjónamerki eftir 9 l, A.2 JAFNFRAMT er sett 6. prjónamerki eftir 1 l (= 2 l á milli prjónamerkja), A.1 yfir næstu 56-70-84 l A.3 JAFNFRAMT er 7. prjónamerki sett eftir 9 l, A.2 JAFNFRAMT er 8. prjónamerki sett eftir 1 l (= 2 l á milli prjónamerkja), A.1 yfir næstu 42-56-70 l og endið á 1 l sléttprjón og 8 l garðaprjón (= kantur að framan). Haldið áfram með þetta mynstur JAFNFRAMT byrjar laskaúrtaka – sjá ÚRTAKA – þannig: Fellið af 1 l á undan 1.-3.-5. og 7. prjónamerki og 1 l á eftir 2.-4.-6. og 8. prjónamerki í hverri umf frá réttu (= 8 l færri) alls 28-37-44 sinnum = 154-166-194 l eftir á prjóni. Prjónið 4 umf garðaprjón yfir allar l, JAFNFRAMT í 3. umf með garðaprjóni er fækkað um 22-26-44 l jafnt yfir þannig að það verða 132-140-150 l á prjóni. Fellið af.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í vinstra framstykki.

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = 2 l slétt saman
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l
symbols = takið 1 l óprjónaða, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 155-21

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (19)

country flag Helene wrote:

Je m'excuse de revenir encore sur ce point mais a2 et a a3 le rang 14 a un patron et le a1 est tout a l'envers je ne comprends pas comment faire je fais le patron de a2 et a3 sur l'envers ???? Merci

05.05.2018 - 00:18

DROPS Design answered:

Bonjour Hélène, tout à fait, le rang 14 de A.1 est celui que l'on tricote au 1er rang de l'empiècement, et en même temps, on tricote le 1er rang de A.2 et A.3 (= A.2 et A.3 commencent sur l'envers = à l'envers sur l'envers). Bon tricot!

07.05.2018 - 08:38

country flag Helene wrote:

Bonjour encore moi, est-ce normal que le a1 soit décaller du a2 et a3 dans les derniers cas ils ont des rangs endroit au lieu de dentelle , si oui pouvez vous m'expliquer le pourquoi je ne comprends pas tres bien merci

03.05.2018 - 21:36

DROPS Design answered:

Bonjour Hélène, le dernier rang de A.1 sur le dos et les devants doit être le 13ème ou le 14ème rang de A.1 (= sur l'endroit). Quand on commence l'empiècement, on tricote sur l'envers, le 1er rang de A.2 et A.3 se font donc sur l'envers (= à l'envers sur l'envers) et continuez A.1 comme avant (= rang 14 ou 28 = sur l'envers aussi). Bon tricot!

04.05.2018 - 08:45

country flag Helene wrote:

J\'essaie de placer les marqueurs et ca ne fonctionne pas. les 2 premiers marqueurs arrivent au début de la manche mais les 2 suivants sont dans la manche car j\'ai 76 mailles. et pour les marqueurs 5-6 vous dites 84 mailles moi j\'en ai 104 donc je me retrouve avec les marqueurs dans le dos , qu\'est que je n\'ai pas compris \r\nMerci

02.05.2018 - 19:09

DROPS Design answered:

Bonjour Hélène, le 1er marqueur est sur le devant, 1 m avant la fin de A.3 (= 42 m de A.1 + 9 m de A.3, marqueur, 1 m de A.3), le 2ème marqueur est après la 1ère m de A.2 et le 3ème marqueur après la 9ème de A.3 (manche= 1 m A.3, marqueur, 9 m A.3, A.1 sur 56 m, 9 m A.3, marqueur, 1 m A.2), pour le dos, 4ème marqueur est après la 1ère m de A.2 et le 5ème marqueur après la 9ème de A.3 (= 1 m A.2, marqueur, 9 m A.2, A.1 sur 84 m, 9 m de A.3, marqueur, 1 m de A.3 = 84 m), placez le 6ème marqueur après la 1ère m de A.2 (devant= 1 m A.2, marqueur, 9 m A.2, A.1 sur 56 m, 1 m end, 8 m) . Bon tricot!

03.05.2018 - 09:24

country flag Helene wrote:

Bonjour, lorsque c\'est écrits ne pas tricoter les 2 der. mailles ens. comme sur le diagramme est-ce seulement a la fin des 52 mailles ou a chaque fois que le recommence le diagramme\r\nMerci

12.04.2018 - 19:47

DROPS Design answered:

Bonjour Hélène, c'est juste sur ce rang, quand on tricote les 52 m du devant et les 104 m du dos, lorsque l'on rabat les mailles des emmanchures, juste avant de mettre les mailles en attente et de tricoter les manches. Bon tricot!

13.04.2018 - 08:28

country flag Taisy wrote:

Bonjour, Je voudrais tricoter ce modèle pour le porter aussi bien boutonné sur le devant que sur le dos. Pourriez-vous m'aider pour adapter les explications? Merci

29.03.2017 - 16:51

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Taisy, nous ne sommes malheureusement pas en mesure de pouvoir adapter chacun de nos modèles à chaque demande individuelle. Il n'y a, pour ce modèle, pas de de diminutions pour l'encolure devant ni de ré-hausse pour l'encolure dos dans ce modèle, vous devriez probablement pouvoir le porter boutonné dans le dos. Pour toute assistance complémentaire, votre magasin DROPS saura vous aider. Bon tricot!

30.03.2017 - 08:34

country flag Kirsti Porko wrote:

Suomenkielisessä ohjeessa on virhe raglankavennuksissa. "Kavenna jokaisella oikean puolen krs:lla ennen 1.-3.-5. ja 7. merkkilankaa 1 s ja kavenna joka 2. krs 2.-4.-6. ja 8. merkkilangan jälkeen 1 s (työstä kapenee jokaisella kavennuskerroksella 8 s)." Jokaisella oikean puolen kierroksella kavennetaan ennen 1., 3. ja 5. merkkilankaa ja 2.,4. ja 6. merkkilangan jälkeen. Tuo ohjeen ylimääräinen "joka 2. krs" vie ihan väärään lopputulokseen.

13.03.2016 - 10:48

country flag Helene wrote:

Bonjour, je voudrais savoir: lorsque vous dites 114 m (y compris 1 m lis de chaque côté) elles sont incluses dans les 114 ou on doit en monter 116 je suis toujours melange Merci

13.11.2015 - 02:05

DROPS Design answered:

Bonjour Hélène, les mailles lis sont déjà montées et font partie des 114 m à monter. Bon tricot!

13.11.2015 - 09:20

country flag Michelle wrote:

Bonjour, désolée d'insister. Au rang 14 vous dites "placer le 1er,2ème...8eme marqueur". Au rang suivant dimin ou augment avt le 2ème, 4ème etc... Le 1er qui se présente est le 8eme marqueur du rang précédent.

05.06.2015 - 17:57

DROPS Design answered:

Bonjour Michelle, c'est exact, comme on place les marqueurs sur l'envers, le 1er marqueur sur l'endroit est le dernier marqueur placé sur l'envers. Bon tricot!

06.06.2015 - 15:04

country flag Michelle wrote:

Bonjour le tricot est trop tendu dans l'espace des 8 mailles pour insérer les manches et il est impossible de tricoter avez vous un conseil? le numéro des marqueurs au rang 14 est-il le même qu'au rang suivant ou bien est-ce comme ils se présentent? comment se repérer dans les diagrammes avec les diminutions?

02.06.2015 - 15:25

DROPS Design answered:

Bonjour Michelle, si les premiers rangs sont un peu difficile, vous pouvez vous aider d'une 2ème aiguille circulaire au début. Les marqueurs placés au 14ème rang de l'empiècement restent en place, on diminue ensuite au niveau des marqueurs - cf "DIMINUTIONS". Placez des marqueurs entre chaque motif pour bien vous repérer. Bon tricot!

02.06.2015 - 16:56

country flag Michelle wrote:

Doit-on placer les marqueurs en partant de l'envers ou de l'endroit? Empiecement: reprendre les manches au dessus des mailles rabattues? Doit-insérer les manches, soit 76 mailles, dans l'espace de 8 mailles? Peut on voir un dessin d'illustration

16.05.2015 - 10:50

DROPS Design answered:

Bonjour Michelle, les marqueurs se posent en tricotant le 14ème rang = sur l'envers. La vidéo ci-dessous montre comment ajouter les manches au-dessus des mailles rabattues pour les emmanchures. Bon tricot!

16.05.2015 - 11:12