DROPS Cotton Light
DROPS Cotton Light
50% Bómull, 50% Polyester
frá 374.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2992.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale
DROPS 153-29
DROPS Design: Mynstur nr cl-031
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Stærð: S/M - L/XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS COTTON LIGHT frá Garnstudio
400-450-450-500 gr litur nr 02, hvítur

DROPS HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l og 28 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Cotton Light
DROPS Cotton Light
50% Bómull, 50% Polyester
frá 374.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2992.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á hringprjóna):
* 1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1-A.3. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA:
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.
Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Prjónið 2 l slétt saman.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PONCHO - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka þannig að það myndast klauf í hvorri hlið. Síðan er prjónað í hring til loka.

PONCHO:
Fitjið laust upp 234-253-272-291 l (meðtaldar 3 kantlykkjur í hvorri hlið) með Cotton Light á hringprjóna nr 4.
Prjónið 2 umf GARÐAPRJÓN fram og til baka – sjá útskýringu að ofan. Prjónið nú þannig: Prjónið 3 kantlykkjur í garðaprjóni, MYNSTUR eftir mynsturteikningu A.1 (= 19 l í 1. umf) 12-13-14-15 sinnum á breiddina og endið á 3 kantlykkjum í garðaprjóni. ATH! Eftir að 1. umf í mynstri A.1 er lokið hefur fækkað um 2 l í hverri mynstureiningu (alls 24-26-28-30 l færri í umf) = 210-227-244-261 l. Haldið síðan áfram fram og til baka þar til A.2 hefur verið prjónað til loka 1 sinni á hæðina. Haldið nú áfram alveg eins með mynstur eins og áður, en nú er A.3 prjónað í stað A.2. Haldið síðan áfram með A.3 3 sinnum á hæðina, JAFNFRAMT í síðustu umf frá réttu (þ.e.a.s. í síðustu mynstureiningu á A.3 á hæðina) fækkið um 61 l jafnt yfir = 149-166-183-200 l.
Setjið lykkjur á þráð og prjónið annað stykki á sama hátt.

Þegar hitt stykkið hefur verið prjónað, prjónið sléttprjón yfir allar l frá réttu. Setjið til baka l af þræði á prjóninn og haldið áfram í sléttprjóni yfir þessar l = 298-332-366-400 l. Prjónið síðan stykkið í hring. Í næstu umf eru sett 6 prjónamerki í stykkið þannig: Fyrsta prjónamerki er sett beint yfir klauf í annarri hliðinni, 38-42-45-49 l sléttprjón, setjið eitt prjónamerki hér, 73-82-93-102 l sléttprjón, setjið eitt prjónamerki hér, 38-42-45-49 l sléttprjón, setjið eitt prjónamerki hér, 38-42-45-49 l sléttprjón, setjið eitt prjónamerki hér, 73-82-93-102 l sléttprjón, setjið eitt prjónamerki hér, 38-42-45-49 l sléttprjón. Haldið nú áfram í sléttprjón, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 21-22-22-20 cm er l fækkað þannig: Prjónið sléttprjón þar til 2 l eru eftir á undan fyrsta prjónamerki, fækkið nú um 1 l hvoru megin við prjónamerki – LESIÐ ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku hvoru megin við þau prjónamerki sem eftir eru á stykki = 12 l færri í umf. Endurtakið þessa úrtöku með 4½-3½-2½-2½ cm millibili 1-2-4-5 sinnum til viðbótar (= alls 2-3-5-6 sinnum) = 274-296-306-328 l. Fellið nú eins af, en nú er það gert með 1 cm millibili alls 8-9-9-10 sinnum = 178-188-198-208 l eftir. Haldið síðan áfram með 10 umf garðaprjón, JAFNFRAMT er fækkað um 23-24-22-23 l jafnt yfir í fyrstu umf í garðaprjóni = 155-164-176-185 l eftir. Fellið laust af, klippið frá og festið enda.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 17.08.2015
Leiðrétting: Ný skýringarmynd A.1

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = br frá réttu, sl frá röngu
symbols = takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = 2 l slétt saman
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 153-29

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (47)

country flag Hanne Bach Holm wrote:

Når borten er strikket og alle masker samlet skal der strikkes 22 cm, hvorfra tages målet ?

30.04.2024 - 17:15

country flag MIchele Bailey wrote:

Hello I cannot see the corrected diagram for A.1. Where do i find it please?

12.05.2023 - 18:24

DROPS Design answered:

Dear Michele, the correct diagram is the one you see in the webpage; we already removed the incorrect one. A.1 is the full chart, while A.2 and A.3 are parts of A.1. Happy knitting!

13.05.2023 - 19:26

country flag Lucia wrote:

Sto realizzando il modello nella misura più piccola: prima diminuzione a 21 cm, seconda diminuzione dopo 4,5 cm = 25,5 cm. Poi ogni cm. 8 volte = 33,5 cm. Poi con cinque coste a legaccio bisognerebbe arrivare a 43 cm., ma 10 ferri a legaccio non possono corrispondere a 9,5 cm

03.04.2022 - 14:17

DROPS Design answered:

Buonasera Lucia, le spiegazioni sono corrette. Buon lavoro!

05.04.2022 - 22:19

country flag Gladys wrote:

No entiendo que significa una vuelta entre dos puntos

13.11.2021 - 18:07

DROPS Design answered:

Hola Gladys, no encuentro este término en el patrón. El único término similar es 1 HEB o hebra entre dos puntos, que es lo mismo que hacer una lazada entre dos puntos.

14.11.2021 - 19:06

country flag Ellen wrote:

Hi, on the first row of A1 I seem to keep on ending up with 17 stitches on the needle, not 19? Any help would be greatly appreciated!

01.08.2021 - 00:36

DROPS Design answered:

Dear Ellen, correct, first row in A.1 is worked over 19 sts but you then decrease 2 sts in each A.1 = 17 sts remain in each A.1 - and a total of 24-26-28-30 stitches has been decreased. Happy knitting!

02.08.2021 - 08:13

country flag Alexine Fleck wrote:

I don't understand this: "Continue with A.3 3 times vertically AT THE SAME TIME on last row from RS (i.e. last repetition of A.3 vertically), dec 61 sts evenly = 149-166-183-200 sts. Slip sts on a stitch holder and knit another part the same way." Does it mean: A3 4 times; put 61 stitches on holder? What is the decrease? Can you explain this more step by step?

20.04.2020 - 18:00

DROPS Design answered:

Dear Mrs Fleck, you repeat the 10 rows of A.3 a total of 3 times in height (= 30 rows), and on the last row (= 3Oth row = from WS) you will knit all stitches as shown in diagram and at the same time decrease 61 sts (= work K2 tog a total of 61 times evenly spaced - read here how to do so that 149-166-183-200 sts remain on needle. Happy knitting!

21.04.2020 - 09:24

country flag Lotta wrote:

Hej, står att diagrammet är uppdaterat men ser inte A1 på bilden, endast A2 o A3?

16.11.2019 - 17:59

DROPS Design answered:

Hej Lotta, hela A.1 består av A.2 och A.3. Lycka till :)

21.11.2019 - 09:05

country flag Gail Jaffrey wrote:

I really like your poncho pattern 153-29; however the photo of the completed poncho is very unclear. Do you have a clear photo that would help me to see the bottom section so I know whether or not I am doing the lace part of he pattern correctly? Thank you.

06.08.2019 - 03:54

DROPS Design answered:

Dear Mrs Jaffrey, we do not have further pictures from the pattern but you will find here how to read diagrams: work pattern decreasing 2 sts in each repeat on first row. Then work A.2-section a total of 1 time in height, and repeat A.3-section a total of 3 times in height decreasing sts evenly on last row last repeat. Happy knitting!

07.08.2019 - 11:48

country flag Gudrun wrote:

Leider kann ich in der Anleitung das Diagramm A.1 nicht finden.

29.06.2019 - 11:44

DROPS Design answered:

Liebe Gudrun, A.1 ist das ganze Diagram, Sie häkeln zuerst A.2 (= 2 Abnahme bei der 1. Runde) einmal in der Höhe, dann wiederholen Sie A.3 insgesamt 3 Mal in der Höhe. Viel Spaß beim stricken!

01.07.2019 - 06:50

country flag Labat wrote:

Bonjour, je voudrai réaliser ce modèle mais je ne parviens pas à comprendre ni obtenir le diagramme A1, et je ne parviens pas non plus à voir les modifications apportées... Comment faire ? Merci d'avance ! Stèf.

13.05.2018 - 18:32

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Labat, si vous avez imprimé le modèle avant la date des corrections, il vaudra mieux le réimprimer, sinon, il est juste ainsi. Commencez à lire le diagramme en commençant en bas à droite et de droite à gauche tous les tours. Ainsi, au 1er rang de A.1 (= encadré A.2 à droite), vous diminuez 2 m dans chaque motif puis continuez jusqu'à la fin du diagramme sur les 17 m restantes. Quand le diagramme a été tricoté 1 fois en hauteur, répétez la partie A.3 encore 2 fois (= il aura été tricoté 3 fois au total en hauteur). Bon tricot!

14.05.2018 - 11:01