DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 493.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1972.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS Extra 0-992
DROPS Design: Mynstur nr ne-133
Garnflokkur C
-------------------------------------------------------

Stærð: 35/37 - 38/40 - 41/43
Lengd fótar: 22 - 24 - 27 cm
Hæð á sokk: 24 - 25 - 26 cm

Efni:
DROPS NEPAL frá Garnstudio
150-200-200 gr litur nr 0500, ljós grár
Og einnig:
50-50 gr litur nr 0100, natur

DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 19 l og 25 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5 – fyrir stroff

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 493.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1972.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1.

ÚRTAKA:
Fækkið um 1 l þegar 2 l eru eftir að prjónamerki þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir 1 l sl.
Fækkið um 1 l á eftir prjónamerki: Prjónið 2 l slétt saman.

HÆLÚRTAKA:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sl þar til 5-6-6 l eru eftir, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið br þar til 5-6-6 l eru eftir, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana br, 1 l br, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sl þar til 4-5-5 l eru eftir, takið 1 l óprjónaða eina og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið br þar til 4-5-5 l eru eftir, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana br, 1 l br, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við.
Haldið áfram á sama hátt með því það fækki um 1 l áður en 1 l er steypt yfir þar til 10-10-12 l eru eftir á prjóni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður að tá.

SOKKUR:
Fitjið upp 56-56-64 l á sokkaprjóna nr 3,5 með Nepal.
Prjónið 1 umf slétt, setjið 1 prjónamerki í 1. l frá byrjun umf = miðja að aftan, prjónið stroff = 2 l br, 2 l sl. Þegar stroffið mælist 4-5-5 cm, skiptið yfir á sokkaprjóna nr 4 og prjónið næstu umf þannig: Prjónið 20-20-24 l sléttprjón JAFNFRAMT er fækkað um 4-1-2 l jafnt yfir. Prjónið 2 l br, 4 l sl, 2 l br saman, 4 l sl, 2 l br, 22-22-26 l sléttprjón JAFNFRAMT er fækkað um 6-3-4 l jafnt yfir = 45-51-57 l á prjóni. Prjónið næstu umf þannig: * Prjónið 2 l slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* út umf, endið á 1 l sl.
Næsta umf er prjónuð þannig (uppslátturinn er prjónaður slétt): Prjónið 16-19-22 l sléttprjón, A.1 (= 13 l) – sjá MYNSTUR að ofan og 16-19-22 l sléttprjón. Haldið svona áfram með mynstur, JAFNFRAMT er lykkjum fækkað í mismunandi stærðum þannig:
STÆRÐ 35/37: Prjónið áfram án þess að fækka lykkjum.
STÆRÐ 38/40: Þegar stykkið mælist 9 og 16 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerki – SJÁ ÚRTAKA.
STÆRÐ 41/43: Þegar stykkið mælist 8, 13 og 18 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerki – SJÁ ÚRTAKA = 45-47-51 l.
ALLAR STÆRÐIR: Prjónið þar til stykkið mælist 24-25-26 cm. Haldið nú eftir fyrstu 9-10-11 l á prjóni, setjið næstu 27-27-29 l á þráð (= ofan á fæti) og haldið eftir síðustu 9-10-11 l á prjóni = 18-20-22 fyrir hæl. Prjónið sléttprjón yfir hællykkjur í 5-5½-6 cm. Setjið 1 prjónamerki, stykkið mælist nú héðan.
Fækkið nú lykkjum fyrir hæl – sjá HÆLÚRTAKA að ofan. Eftir hælúrtöku eru prjónaðar upp 10-11-11 l hvoru megin við hæl og þær 27-27-29 l af þræði eru settar aftur á prjóninn = 57-59-63 l. Setjið prjónamerki hvoru megin við 27-27-29 l af þræði. Prjónið nú í hring í sléttprjóni og mynstur A.1 eins og áður JAFNFRAMT er lykkjum fækkað í hvorri hlið í annarri hverri umf alls 8-8-8 sinnum þannig: Prjónið 2 síðustu l á undan fyrra prjónamerki ofan á fæti snúnar sl saman (þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan) og 2 fyrstu l á eftir seinna prjónamerki ofan á fæti sl saman = 41-43-47 l.
Prjónið þar til stykkið mælist 18-20-22 cm frá prjónamerki (= 4-4-5 cm að loka máli). Nú er sett 1 prjónamerki í hvora hlið þannig að það verða 19-21-23 l ofan á fæti og 22-22-24 undir fæti. Haldið áfram með mynstur A.1 og sléttprjón. Fækkið nú lykkjum fyrir tá hvoru megin við bæði prjónamerkin. Fækkið lykkjum við hvort prjónamerki (byrjið 3 l á undan prjónamerki) þannig: Prjónið 2 l slétt saman, 2 l sl (prjónamerki er staðsett á milli þessa 2 l), takið 1 l eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. Fækkið lykkjum í hvorri hlið í annarri hverri umf alls 5-5-6 sinnum og síðan í hverri umf 3-3-3 sinnum = 9-11-11 l eftir á prjóni.
Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel.

Prjónið annan sokk á sama hátt.

SNÚRA:
Klippið 2 þræði ca 3 m með litnum natur. Tvinnið þræðina saman þar til það tekur í, leggið snúruna saman tvöfalda og þá kemur hún til með að tvinnast aftur saman. Hnýtið hnút í hvorn enda. Þræðið snúruna upp og niður í gataumferðina á sokknum.
Gerið 2 dúska ca 2 cm að þvermáli með litnum natur. Festið dúskana á hvorn endann á snúrunni.
Endurtakið þetta á sama hátt á hinum sokknum.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 23.01.2019
Leiðrétting:..Nú er sett 1 prjónamerki í hvora hlið þannig að það verða 19-21-23 l ofan á rist og 22-22-24 undir il

Mynstur

symbols = sl
symbols = br
symbols = setjið 2 l á hjálparprjón fyrir aftan stykkið, prjónið 2 l sl, 2 l sl af hjálparprjóni
symbols = setjið 2 l á hjálparprjón fyrir framan stykkið, prjónið 2 l sl, 2 l sl af hjálparprjóni
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-992

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (10)

country flag Silje wrote:

Hei Garnstudio! Jeg vil bare sende dere en oppfordring til å være mer bevisst når det tas bilder til mønstrene. Jeg er på jakt etter ulike typer hæler på sokkene, men det er vanskelig å fange opp ut fra bildene på en rekke oppskrifter. Vil anbefale at dere har ulike strikketeknikker og -muligheter i minne når dere tar bilder.

29.11.2021 - 15:24

country flag Herta Emilie wrote:

I finished this lovely socks today. Me and my friend Ritha are very happy about this nice patter. Thank you for all.

04.03.2019 - 01:14

country flag Sinne Kold wrote:

Jeg tror der er en lille fejl i opskriften. Der står at efter indtagninger i hver side (efter hæl) tager man ind til man har 41 masker i str 35/37, men når man så kommer til tå skal der være 21 masker og 22 masker- hvilket giver 43 masker.

14.01.2019 - 20:09

DROPS Design answered:

Hei Sinne. Det har du helt rett i, her var det en feil. Denne er nå rettet og du skal ha 19 masker oppå foten og 22 masker under foten i størrelse 35/37. God fornøyelse.

23.01.2019 - 13:19

country flag Naomi wrote:

Volgens mij is er iets misgegaan bij de vertaling in het telpatroon ("zet 2 st op het voorpand van brei")

17.11.2016 - 22:50

DROPS Design answered:

Hoi Naomi. Je hebt gelijk. Ik zal het meteen aanpassen. Bedankt!

21.11.2016 - 14:59

country flag Carmen wrote:

¿Aguja de doble punta es lo mismo que aguja circular?

20.01.2016 - 21:37

DROPS Design answered:

Hola Carmen. Aguja de doble punta (o también se llaman ag para hacer calcetines) no es lo mismo que ag circular. Se usan para hacer trabajos en redondo con pocos puntos (donde no se puede usar la ag circular corta).

24.01.2016 - 10:12

country flag Alexia wrote:

Bonjour, Lorsque vous indiquez "diminuer tous les 2 tours"'il faut tricoter 2 tours et diminuer au tour suivant ou tricoter 1 tour et diminuer au second ? Pour les diminutions du talon que signifie "tourner l'ouvrage ?". Arrivée à "tourner l'ouvrage", je tourne mon tricot et me retrouve donc avec des mailles du rang précédent qui ne sont pas tricotées puisque je repars dans l'autre sens...ça me fait une série de trous sous le talon ! Pouvez-vous m'éclairer ?

20.12.2015 - 18:53

DROPS Design answered:

Bonjour Alexia, quand on diminue tous les 2 tours on tricote (1 tour avec dim, 1 tour sans dim) et on répète de (à). Le talon se tricote en allers et retours - voir vidéo, on doit tourner à la fin de chaque rang pour tricoter alternativement sur l'endroit et sur l'envers. Bon tricot!

21.12.2015 - 11:15

country flag Simone wrote:

På hælfellingen, det er vel meningen at det på vrangen skal strikkes 2 vr sm før man snur arbeidet? Blir hull i hælen om man skal felle likt på begge sider.

15.11.2015 - 13:14

Helen wrote:

I would like to knit these lovely socks for my 11 year old daughter. I wonder is there instructions of these socks for a child. If not, how many sts I should decrease to narrow them to fit a child. Her foot size is 35/37 but I think these might be to loose for her. Thank you.

14.10.2015 - 13:36

DROPS Design answered:

Dear Helen, these socks are given in size 35/37 (1st size) - see also at the right side of picture foot length (22 cm in first Size). Happy knitting!

14.10.2015 - 16:22

country flag Sacha Glasgow-Smith wrote:

Hello I am stuck on the first decrease once I have switched onto 4mm needles - I don't understand how I do the 20 stocking stitches at the same time as decreasing. Please can you help? Thank you

10.12.2014 - 20:38

DROPS Design answered:

Dear Mrs Glasgow-Smith, on 1st round on needles 4 mm, you work first 20 st in stocking st at the same time dec evenly 4-1 sts (see size), ie you will now get 16-19 st st over these 20 sts, then work P2, K4, P2 tog, K4, P2, and then above the next 22 sts, work in st st dec evenly 6-3 sts (= 16-19 sts remain over the 22 sts) = you should get 45-51 sts. Happy knitting!

11.12.2014 - 09:54

country flag Marij wrote:

Bij maat 35/37 staat bij het breien van het been dat er doorgegaan moet worden met 'breien en minderen'. Dit klopt niet, want er moet juist niet langer geminderd worden bij deze maat.

08.12.2013 - 14:41

DROPS Design answered:

Hoi Marij. Ik heb het originele patroon bekeken en je hebt helemaal gelijk! Het is aangepast. Bedankt voor het melden.

11.12.2013 - 15:04