DROPS Polaris
DROPS Polaris
100% Ull
frá 1188.00 kr /100g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11880.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale
DROPS 151-31
DROPS Design: Mynstur nr po-065
Garnflokkur F
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS POLARIS frá Garnstudio
1000-1100-1300-1400-1500-1700 gr litur nr 05, móbrúnn

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 15 – eða þá stærð sem þarf til að 7 l og 8 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Polaris
DROPS Polaris
100% Ull
frá 1188.00 kr /100g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11880.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka á hringprjóna):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Mynsturteikningin sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

BYRJUN Á NÝJUM ÞRÆÐI:
Þegar skipt er um dokku af Polaris þér er endanum skipt í tvo hluta á þræðinum sem er að ljúka ca 15 cm. Klippið af annan endann og það sama er gert við nýja þráðinn. Leggið endana saman yfir hvorn annan, þannig að þykktin verði sú saman og áður, prjónið síðan áfram – með þessu er komið í veg fyrir að samskeytin sjáist.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 l frá réttu með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn br (þ.e.a.s. að prjónað er aftan í lykkjubogann í stað framan) til þess að koma í veg fyrir göt.

ÚRTAKA:
Fækkið lykkjum innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið lykkjum á undan 1 kantlykkju þannig: Prjónið 2 l slétt saman.
Fækkið lykkjum á eftir 1 kantlykkju þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 sl, steypið óprjónuðu l yfir.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Til þess að fá pláss fyrir allar l er stykkið prjónað fram og til baka á hringprjóna með 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN - sjá skýringu að ofan! LESIÐ BYRJUN Á NÝJUM ÞRÆÐI!

HÆGRA FRAMSTYKI + ERMI:
Fitjið upp 21-22-24-25-27-29 l á hringprjóna nr 15 með Polaris. Í fyrstu umf frá réttu er prjónað þannig: MYNSTUR eftir mynsturteikningu A.3 yfir fyrstu 12 l (= kantur að framan), 8-9-11-12-14-16 l sléttprjón, aukið út um 1 l innan við 1 kantlykkju – LESIÐ ÚTAUKNING og endið á 1 kantlykkju í garðaprjóni = 22-23-25-26-28-30 l.
Haldið áfram í sléttprjóni og A.3 yfir kant að framan, JAFNFRAMT í annarri hverri umf (þ.e.a.s. í umf frá réttu) er aukið út um 1 l innan við 1 kantlykkju þar til aukið hefur verið út alls 6 sinnum = 27-28-30-31-33-35 l. Haldið áfram með A.3 og sléttprjón þar til stykkið mælist 27-28-30-32-33-35 cm.
Í næstu umf frá réttu er prjónað þannig:
A.3 (= 12 l), sléttprjón þar til stykkið mælist 27-28-30-32-33-35 cm.
Næsta umf frá réttu er prjónuð þannig: A.3 (= 12 l), sléttprjón yfir næstu 9-10-12-13-15-17 l, A.4 (= 4 l), 1 l sl, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Prjónið eina umf til baka með sama mynstri.
Næsta umf frá réttu er prjónuð þannig: A.3 yfir kant að framan, sléttprjón yfir næstu 8-9-11-12-14-16 l, A.1 (= 6 l), 1 l sl, JAFNFRAMT eru fitjaðar upp 4 nýjar l í lok umf fyrir ermi = 31-32-34-35-37-39 l í umf (stykkið mælist nú ca 31-32-34-36-37-39 cm frá uppfitjunarkanti). Nýjar l eru prjónaðar í sléttprjóni með 2 kantlykkjum í garðaprjóni lengst út við ermi.
Haldið svona áfram með mynstur JAFNFRAMT sem í mynstri A.1 er haldið áfram að færa um 1 l við miðju að framan í hvert skipti sem prjónað er (þ.e.a.s. að í hverri umf frá réttu er prjónuð 1 l færri í sléttprjóni áður en A.1 er prjónað), þannig að það verður jöfn lína á hornréttu línunni við öxl. Þegar A.1 mætir A.3 við miðju að framan er prjónað sléttprjón yfir l í A.1. Síðan þegar stykkið mælist 61-63-65-67-69-71 cm er sett prjónamerki í stykkið (= miðja ofan á öxl), HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Í næstu umf frá röngu er prjónað (frá ermi og inn) þannig: Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni, sléttprjón yfir næstu 17-18-20-21-23-25 l, setjið þessar 19-20-22-23-25-27 l á þráð, prjónið A.3 eins og áður yfir síðustu 12 l á prjón og setjið þessar 12 l á þráð fyrir kraga.

VINSTRA FRAMSTYKKI + ERMI:
Prjónið á sama hátt og hægra framstykki + ermi, nema spegilmynd. Prjónið mynstur eftir mynsturteikningu A.2 í stað A.1 og A.5 í stað A.4. Efst við öxl eru prjónaðar 12 l í A.3 frá röngu áður en þær eru settar á þráð. Prjónið út umf, haldið áfram með bakstykki án þess að setja l á þráð.

BAKSTYKKI:
Prjónið 1. umf frá réttu þannig: Prjónið 19-20-22-23-25-27 l frá vinstra framstykki, fitjið upp 9-9-9-11-11-11 nýjar l (= aftan við hnakka) og prjónið inn þær 19-20-22-23-25-27 l frá hægra framstykki á hringprjóna = 47-49-53-57-61-65 l. Haldið áfram fram og til baka í sléttprjóni með 2 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið. Haldið áfram þar til ca 4-5-5-5-6-6 cm eru eftir í sléttprjóni frá prjónamerki á öxl
Næsta umf frá réttu er prjónuð þannig: Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni, 14 l sléttprjón, A.1 (= 6 l), 3-5-9-13-17-21 l sléttprjón, A.2 (= 6 l), 14 l sléttprjón, 2 kantlykkjur í garðaprjóni.
Prjónið 1 umf til baka eins og áður með br frá röngu og 2 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið. Í næstu umf frá réttu er prjónað þannig: Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni, 13 l sléttprjón, A.1 (= 6 l), 5-7-11-15-19-23 l sléttprjón, A.2 (= 6 l), 13 l sléttprjón, 2 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur – ATH: Gatamynstur í mynstri A.1 og A.2 heldur áfram að flytjast til um 1 l í hliðum í hvert sinn sem prjónað er, þannig að mynstrið fái jafna línu á ofan á öxl og niður meðfram hlið (þ.e.a.s. að í hverri umf frá réttu er prjónuð 1 l í sléttprjón minna en á undan A.1 og á eftir A.2 í hlið og prjónaðar eru 2 l sléttprjón fleiri á eftir A.1 og á undan A.2 við miðju).
Haldið áfram í sléttprjóni og eftir mynsturteikningu A.1 og A.2 þar til 2 kantlykkjur í garðaprjóni og 3 l í sléttprjóni eru eftir í hvorri hlið eftir að A.1 og A.2 hafa verið prjónaðar til loka (ermin mælist nú alls 60-62-62-62-64-64 cm frá útauknu l). Í næstu umf frá réttu er prjónað þannig: Fellið af 4 l, 1 kantlykkja í garðaprjóni, 2 l sl, A.4 (= 4 l), prjónið 25-27-31-35-49-43 l sléttprjón, A.5 (= 4 l), 5 l sl, 2 kantlykkjur í garðaprjóni = 43-45-49-53-57-61 l. Snúið við og fellið af 4 l frá röngu = 39-41-45-49-53-57 l á prjóni meðtalin 1 kantlykkja í garðaprjóni í hvorri hlið. Stykkið mælist nú 34-35-35-35-36-36 cm frá prjónamerki á öxl.
Haldið áfram í sléttprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 46-48-50-52-54-56 cm. Í næstu umf frá réttu er fækkað um 1 l í hvorri hlið á stykkinu frá réttu – LESIÐ ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku í hvorri hlið í annarri hverri umf (þ.e.a.s. í hverri umf frá réttu) 5 sinnum til viðbótar (= alls 6 úrtökur í hvorri hlið). Þegar stykkið mælist 61-63-65-67-69-71 cm frá prjónamerki á öxl og 27-29-33-37-41-45 l eru í umf eru allar lykkjur felldar af.

KRAGI:
Setjið til baka þær 12 kraga-l af þræði frá hægra framstykki á prjóninn. Haldið nú áfram í perluprjóni eins og áður JAFNFRAMT eru prjónaðar stuttar umferðir í perluprjóni yfir kraga með byrjun frá réttu = við miðju að framan: * 2 umf yfir allar l, 2 umf fram og til baka yfir síðustu 6 l *. Endurtakið frá *-* þar til kraginn mælist ca 7-7-7-8-8-8 cm þar sem hann er minnstur. Fellið laust af.
Vinstri helmingur á kraga er prjónaður á sama hátt en prjónuð er 1 umf yfir allar l áður en haldið er áfram með stuttar umferðir.
Saumið kragann saman kant í kant við miðju að aftan og festið hann niður við hálsmal aftan í hnakka.

FRÁGANGUR:
Saumið hliðar- og ermasauma í eitt, saumið kant í kant yst í lykkjubogann þannig að saumurinn verði ekki of þykkur.

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = br frá réttu, sl frá röngu
symbols = 2 l slétt saman, sláið uppá prjóninn
symbols = sláið uppá prjóninn, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = prjónastefna
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 151-31

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (34)

country flag María Angeles wrote:

Quiero hacer un jersey de caballero empezado por abajo si se puede si me contesta muchísimas gracias

11.05.2024 - 15:51

country flag Abigail wrote:

Hola nesecito ayuda a como empezar a tejer chaqueta no entiendo el patrón

22.04.2024 - 04:16

DROPS Design answered:

Hola Abigail, ¿puedes concretar que talla estás trabajando? Primero trabajas los delanteros, junto con sus mangas y después la espalda y el cuello para terminar. Comienza montando : 21-22-24-25-27-29 pts según la talla que estés trabajando. Puedes también leer la siguiente lección sobre nuestros patrones: https://www.garnstudio.com/lesson.php?id=79&cid=23

28.04.2024 - 22:35

country flag Mandy Maahs wrote:

Hallo soll beim Kragen 21 M rechts und links stricken. was ist aber mit dem Nacken? Der Kragen geht ja dann nicht komplett durch?

30.03.2022 - 07:27

DROPS Design answered:

Liebe Frau Maahs, der Kragen wird in 2 Teilen gestrickt, dh zuerst die 12 stillgelegten Maschen am Ende von dem 1. Vorderteil - und wird mit verkürzten Reihen bis ca die Hälfte von der Breite des Halsausschnittes am Rückenteil; der Kragen bei dem 2. Vorderteil genauso stricken; dann nähen Sie beide Kragen zusammen und endlich am Halsausschnitt vom Rückenteil. Kann das Ihnen helfen?

30.03.2022 - 07:43

country flag Gourmelen wrote:

Bonjour je suis au dos (20m du devant gauche 9mailles encolure dos et 20 mailles du devant droit je tricote en aller retour 1 rang endroit le retour en envers ou en rond tout les rangs à l endroit merci

03.10.2021 - 18:47

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Gourmelen, vous tricotez maintenant les mailles du dos en rangs, autrement dit alternativement 1 rang sur l'endroit et 1 rang sur l'envers, en jersey avec 2 mailles point mousse de chaque côté. Bon tricot!

04.10.2021 - 08:33

country flag Gourmelen wrote:

Bonjour pourriez vous me dire quand je tricote A"3au dessus de bordure devant jersey au dessus des 9 mailles suiv;;;;;;;;; A 1 6 mailles = 1endroit 2m ensembles 1 jeté 2 m ensembles1 jeté 1 endroit;;;;;;;;;;; si je fais 1 endroit encore apres le shéma A1 merci

05.09.2021 - 10:07

country flag Gourmelen wrote:

Bonjour pourriez vous me dire quand je tricote A"3au dessus de bordure devant jersey au dessus des 9 mailles suiv;;;;;;;;; A 1 6 mailles = 1endroit 2m ensembles 1 jeté 2 m ensembles1 jeté 1 endroit;;;;;;;;;;; si je fais 1 endroit encore apres le shéma A1 merci

05.09.2021 - 10:04

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Gourmelen, je suis désolée, je ne suis pas sûre de comprendre à quel niveau vous en êtes; A.1 se tricote effectivement: *1 m end, 2 m ens à l'end, 1 jeté, 2 m ens à l'end, 1 jeté, 1 m end* (=6 m), au rang suivant sur l'endroit, commencez1 maille avant la maille endroit du rang précédent sur l'endroit (tricotez 1 maille jersey en moins avant A.1 pour commencer A.1 1 maille plus tôt). Bon tricot!

06.09.2021 - 07:47

country flag Gourmelen wrote:

Bonjour 1 m en jersey en moins avant de tricoter A1 je fais 1 surjet simple ou 2 mailles ensembles;;;;;;;;;;; je fais combien de diminutions en tout et j ai combien de mailles quand A1 rejoint A3 en taille M merci

27.08.2021 - 08:08

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Gourmelen, le nombre de mailles ne va pas changer car on ne diminue pas de mailles (chaque diminution est compensée par 1 jeté). Au tout 1er rang de A.1 vous tricotez 8-9-11-12-14-16 m jersey avant A.1, au 3ème rang de A.1, vous tricoterez 1 m en moins = 7-8-10-11-13-15 m jersey avant A.1, au 5ème rang, 6-7-9-10-12-14 m jersey avant A.1 etc. Quand A.1 rejoint la bordure devant, tricotez toutes les mailles en jersey (= la ligne diagonale ajourée est terminée). Bon tricot!

27.08.2021 - 08:15

country flag Gourmelen wrote:

Bonjour je suis au dessin A4 je ne comprends pas trop je fais2 mailles ensemble et 1 jeté ou que 2 mailles ensemble et le rang envers sur le dessin A4 il ny a pas de diminution je pense merci encore pour votre réponse

24.08.2021 - 07:46

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Gourmelen, effectivement, on ne diminue pas dans A.4 car on fait 1 jeté qui va compenser la diminution, vous avez ainsi toujours 4 mailles dans A.4 au rang suivant sur l'envers. Bon tricot!

24.08.2021 - 08:15

country flag Gourmelen wrote:

Pour commencer après avoir monter les 21 mailles de base je dois faire 2 rangs tout a l endroit ou je fais directement le point fantaisie merci

22.08.2021 - 16:06

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Gourmelen, vous passez directement au point fantaisie. Bon tricot!

22.08.2021 - 20:20

country flag Nadège wrote:

Bonsoir ! Je suis perdue aux rangs raccourcis pour le col... J'ai beau regarder les tutoriels, je comprends pas. Comment faire ? Merci de votre aide !

30.11.2018 - 20:21

DROPS Design answered:

Bonjour Nadège, pour que le col retombe bien, on va tricoter des rangs raccourcis en commençant par le côté extérieur (pas côté épaule): tricotez au point de riz ainsi: *2 rangs sur toutes les mailles du col, 2 rangs sur les 6 premières mailles seulement*, répétez ces 4 rangs jusqu'à la hauteur indiquée pour votre taille (= 7-8 cm depuis les mailles rabattues pour l'épaule). Pour le col du devant droit, vous commencez les rangs raccourcis sur l'endroit, pour le col du devant gauche, vous les commencez sur l'envers. Bon tricot!

03.12.2018 - 08:00