DROPS Big Merino
DROPS Big Merino
100% Ull
frá 647.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7764.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale
DROPS 151-27
DROPS Design: Mynstur nr mb-007
Garnflokkur C
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS BIG MERINO frá Garnstudio
600-650-700-750-850-900 gr litur nr 10, dökk fjólublár

DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 l og 22 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 4 – fyrir kant með garðaprjóni.
DROPS PERLUTALA NR 522: 5-6-6-6-6-6 stk.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Big Merino
DROPS Big Merino
100% Ull
frá 647.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7764.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka á hringprjóna):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikningin sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. Þegar prjónaðar hafa verið 14 umf af mynstri A.1 á hægra framstykki, byrjar 1. umf í A.2 á vinstra framstykki. Þegar A.1 og A.2 hefur verið prjónað 4 sinnum á hæðina er haldið áfram með br yfir mynstur til loka.

HNAPPAGAT:
Fellt er af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið þriðju og fjórðu l frá miðju að framan slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Fellið af fyrir hnappagati þegar stykkið mælist:
STÆRÐ S: 17, 27, 37, 47 og 58 cm.
STÆRÐ M: 14, 23, 32, 41, 50 og 59 cm.
STÆRÐ L: 14, 23, 32, 41, 50 og 59 cm.
STÆRÐ XL: 11, 21, 31, 41, 51 og 61 cm.
STÆRÐ XXL: 12, 22, 32, 42, 52 og 62 cm.
STÆRÐ XXXL: 14, 24, 34, 44, 54 og 64 cm.

LASKALÍNA:
Fækkið lykkjum frá RÉTTU þannig: Prjónið þar til 3 l eru eftir á undan prjónamerki, 2 l slétt saman, 2 l sl (prjónamerki er staðsett á milli þessa 2 l), takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.
Fækkið lykkjum frá RÖNGU þannig: Prjónið þar til 3 l eru eftir á undan prjónamerki, 2 l snúnar br saman (þ.e.a.s. að prjónað er aftan í lykkjubogann í stað framan), 2 l br (prjónamerki er staðsett á milli þessa 2 l), 2 l br saman.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 160-176-188-204-224-248 l (meðtaldar 6 kantlykkjur við miðju að framan í hvorri hlið) á hringprjóna nr 4 með Big Merino. Prjónið 6 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 5 og prjónið fyrstu umf frá réttu þannig: Prjónið 6 l garðaprjón (= kantur að framan), A.1 (= 21 l), sléttprjón yfir næstu 106-122-134-150-170-194 l, 21 l br, 6 garðaprjón. MUNIÐ EFTIR HNAPPAGAT! Haldið svona áfram með mynstur þar til prjónaðar hafa verið 14 umf í mynstri A.1. Prjónið nú frá réttu þannig: Prjónið 6 l garðaprjón (= kantur að framan), haldið áfram með A.1 (= 21 l), sléttprjón yfir næstu 106-122-134-150-170-194 l, A.2 (= 21 l), 6 l garðaprjón. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 8 cm er sett 1 prjónamerki 43-47-50-54-59-65 l inn frá hvorri hlið (= 74-82-88-96-106-118 l á milli prjónamerkja á bakstykki) og fækkað er um 1 l hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið (= 4 l færri). Endurtakið úrtöku með 6 -6-6-6-6-4 cm millibili 2-2-2-2-2-3 sinnum til viðbótar (= alls 3-3-3-3-3-4 úrtökur) = alls 148-164-176-192-212-232 l á prjóni. Þegar stykkið mælist 24 cm í öllum stærðum er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið (= 4 l fleiri). Endurtakið útaukningu með 6 -6-6-6-6-5 cm millibili 2-2-2-2-2-3 sinnum til viðbótar (= 3-3-3-3-3-4 útaukningar) = 160-176-188-204-224-248 l. Þegar stykkið mælist 45-45-45-46-47-48 cm fellið af 8 l í hvorri hlið fyrir handveg (þ.e.a.s. fellið af 4 l hvoru megin við prjónamerki í hvorri hlið) = 39-43-46-50-55-61 l eftir á hvoru framstykki og 66-74-80-88-98-110 l á bakstykki. Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Ermin er prjónuð í hring á sokkaprjóna/hringprjóna. Fitjið upp 40-41-44-44-45-45 l á sokkaprjóna nr 4 með Big Merino. Prjónið 6 umf GARÐAPRJÓN. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 5 og prjónið sléttprjón. Þegar stykkið mælist 8 cm er sett 1 prjónamerki í byrjun umf = miðja undir ermi. Aukið nú út um 1 l hvoru megin við prjónamerki. Endurtakið útaukningu með 4-3½-3½-2½-2½-2 cm millibili, 9-10-10-12-13-15 sinnum til viðbótar (=alls 20-22-22-26-28-32 fleiri l) = 60-63-66-70-73-77 l á prjóni. Þegar stykkið mælist 49-49-48-48-48-48 cm fellið af 8 l við miðju undir ermi (þ.e.a.s. fellið af 4 l hvoru megin við prjónamerki) fyrir handveg = 52-55-58-62-65-69 l eftir á prjóni.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 248-270-288-312-338-370 l.
Setjið 1 prjónamerki í allar skiptingar á milli fram- og bakstykkis og erma (= 4 prjónamerki). Haldið áfram með mynstur, sléttprjón og 6 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið við miðju að framan – JAFNFRAMT í 1. umf (rétta) byrjar LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan!

ATH: Lykkjum er fækkað mismunandi á ermum og á fram- og bakstykki.

ERMI:
Fækkið lykkjum í 3. hverri umf alls 4-4-5-4-4-6 sinnum, síðan í annarri hverri umf alls 11-12-10-10-12-10 sinnum og að lokum í hverri umf alls 3-3-6-9-8-10 sinnum (= alls 18-19-21-23-24-26 úrtökur).

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fækkið lykkjum í 3. hverri umf alls 3-0-0-0-0-0 sinnum, síðan í annarri hverri umf alls 14-18-18-16-15-11 sinnum og að lokum í hverri umf alls 0-3-4-10-15-25 sinnum (= alls 17-21-22-26-30-36 l færri).
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 59-60-60-62-63-65 cm (A.2 á nú að hafa verið prjónað alls 4 sinnum á hæðina), setjið síðustu 12-12-13-13-14-14 l í hvorri hlið við miðju að framan á þráð fyrir hálsmáli (lykkjurnar eru prjónaðar áður en þær eru settar á þráðinn svo ekki þarf að klippa þráðinn frá). Fækkið nú lykkjum í hverri umf frá hálsmáli þannig: Fækkið um 2 l 2 sinnum og 1 l 3 sinnum. Eftir laskalínu og úrtöku fyrir hálsmáli eru 70-72-76-76-80-80 l eftir á prjóni. Prjónið 1 umf sléttprjón JAFNFRAMT er fækkað um 9-11-11-11-13-13 l jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað yfir kanta að framan) = 61-61-65-65-67-67 l eftir á prjóni.

HÁLSMÁL:
Prjónað er á hringprjóna nr 4 og frá réttu er byrjað að prjóna l frá hægri þræði, takið upp ca 5-7 l meðfram kanti, prjónið l frá berustykki, takið upp 5-7 l meðfram kanti, prjónið l frá seinni þræði.
Prjónið 6 umf garðaprjón. Fellið af með sl frá röngu.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í vinstra framstykki.

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = br frá réttu, sl frá röngu
symbols = setjið 1 l á hjálparprjón fyrir aftan stykkið, 1 l sl, 1 l sl af hjálparprjóni
symbols = setjið 1 l á hjálparprjón fyrir framan stykkið, 1 l sl, 1 l sl af hjálparpjóni
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l
symbols = setjið 1 l á hjálparprjón fyrir framan stykkið, 2 l sl, 1 l sl af hjálpaprjóni
symbols = 3 l slétt saman
symbols = takið 1 l óprjónaða, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = 2 l slétt saman
symbols = takið 1 l óprjónaða, prjónið 1 l, steypið óprjónuðu l yfir
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 151-27

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (20)

country flag Marib wrote:

No entiendo las disminuciones de mangas y cuerpo como es un vuelta de disminución?

25.01.2017 - 17:07

DROPS Design answered:

Hola Marib. Las disminuciones se trabajan en las mangas y el cuerpo según está explicado en la parte de arriba del patrón pero las repeticiones de las disminuciones no son las mismas para el cuerpo y las mangas. Hay varias filas(ver el patrón) donde trabajamos las disminuciones solo en las mangas o solo en el cuerpo. Si tienes alguna otra dificultad, concreta por favor tu pregunta.

29.01.2017 - 13:56

country flag Sarah Witzke wrote:

Jeg har aldrig strikket raglan ærmer før, så jeg kan ikke helt forstå det med at tage ind på hver 2. eller 3. pind - hvis det er på hver anden pind, er det så f.eks. altid på ret pind, hvorimod en indtegning på hver tredje pind bliver på skiftevis ret eller vrang? Og hvordan tager man ind, når man på for- og rygstykke tager ind på hver anden pind, mens det er på hver tredje pind på ærmet? Mvh. Sarah

24.11.2015 - 11:05

DROPS Design answered:

Således tager du ind på hver 2.og3.pind! Se også vores video hvordan man strikker raglan! God fornøjelse!

25.11.2015 - 12:10

country flag Sarah Witzke wrote:

Jeg har aldrig strikket raglan ærmer før, så jeg kan ikke helt forstå det med at tage ind på hver 2. eller 3. pind - hvis det er på hver anden pind, er det så f.eks. altid på ret pind, hvorimod en indtegning på hver tredje pind bliver på skiftevis ret eller vrang? Og hvordan tager man ind, når man på for- og rygstykke tager ind på hver anden pind, mens det er på hver tredje pind på ærmet? Mvh. Sarah

11.11.2015 - 22:55

DROPS Design answered:

Hej. Ja det blir så som du beskriver när det är intagning på var 2/3 pind. Det tages ind forskellig på ärm och ryg- och forstykke och det innebär att ibland tages det kun in på den sidan av raglan mot ärm och ibland kun mot den sidan av raglan mot ryg/forstykke. Följ bara det som står i oppskriften så blir det riktigt. Lycka till!

13.11.2015 - 08:39

country flag Ines Brouw wrote:

Ik stoor me altijd aan de uitleg van het patroon met gebruik van rondbreinaalden. Ik werk met re.chte naalden en we.et vaak niet hoe ik .e.e.à. Moet gaan herleiden. Misschien kunt u me een tip geven?

18.08.2013 - 22:42

DROPS Design answered:

Het breien met de rondbreinld is heel uitgebreid buiten Nederland (en vooral in Scandinavië waar deze patronen zijn gemaakt). Dit vest wordt heen en weer gebreid op de nld, dus hier zou je vaak rechte naalden gebruiken. Voor de mouwen, kan je ook heen en weer breien. Zet dan 1 st op extra aan beide kanten (= kantst) en meerder/kant af aan de zijkanten. Succes.

19.08.2013 - 12:07

country flag Diebold Huguette wrote:

Modele super il manque de joli pull avec des motifs comme les gilets en aiguilles 3.5 et 4

23.06.2013 - 08:27

country flag Rita wrote:

Opdat de boord niet scheef zou trekken brei je de boordsteek af en toe in verkorte toeren,dan heb je dat probleem niet

20.06.2013 - 16:41

country flag DURIEUX wrote:

Vivement les explications

18.06.2013 - 15:02

country flag Marion wrote:

Das Blattmuster würde ich auch symmetrisch stricken (oder aber die Abstände zwischen den Blättern vergrößern). Wäre perfekt, um das aufgeribbelte Garn meiner braunen Jacke neu zu verwenden.

16.06.2013 - 12:26

country flag Britta Uusi-Salava wrote:

Takaappale ilmeisesti sileää oikeinneuletta. Siis tarpeeksi nopeatekoinen ja kuitenkin kaunis etuosan kuvioneuleen ansiosta.

15.06.2013 - 12:37

country flag Karin wrote:

Das Blattmuster sieht interessant aus, aber wieso fällt es an unten an der Knopfleiste so zipfelig?

08.06.2013 - 20:27