DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1232.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 151-22
DROPS Design: Mynstur nr u-717
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Stærð: S/M – L/XL

Efni:
DROPS KARISMA frá Garnstudio
100-100 gr litur nr 66, ljós púðurbleikur

DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 22 lykkjur og 30 umferðir með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3 – fyrir stroff.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1232.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Mynstur er prjónað þannig:
UMFERÐ 1 og 2: Prjóni sléttar lykkjur yfir allar lykkjur.
UMFERÐ 3: * Prjónið 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn.
UMFERÐ 4: Prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur.
UMFERÐ 5 og 6: Prjónið sléttar lykkjur yfir allar lykkjur.
UMFERÐ 7: * Prjónið 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn.
UMFERÐ 8: Prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur.
Endurtakið síðan umferð 1-8.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

FINGRAVETTLINGAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.

HÆGRI FINGRAVETTLINGUR:
Fitjið upp 45-50 lykkjur með Karisma á sokkaprjóna nr 3 og prjónið 4 umferðir stroffprjón = 2 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið. Í næstu umferð er haldið áfram í stroffprjóni JAFNFRAMT í fyrstu umferð í hverri brugðinni mynstureiningu er lykkjum fækkað með því að prjóna 2 lykkjur brugðið saman = 36-40 lykkjur á prjóni. Haldið áfram þar til stroffprjónið mælist 5 cm. Í næstu umferð er skipt yfir á prjóna nr 3,5 og prjónað sléttprjón JAFNFRAMT er lykkjum fækkað um 4-0 lykkjur jafnt yfir = 32-40 lykkjur á prjóni.
Prjónið nú MYNSTUR – sjá útskýringu að ofan yfir allar 32-40 lykkjurnar.
Í UMFERÐ 3 í mynstri er sett 1 prjónamerki í byrjun umferð (á milli einnar brugðinnar lykkju og einnar sléttrar lykkju). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 10 cm byrjar útaukning fyrir opi fyrir þumal með því að slá 1 sinni uppá prjóninn hvoru megin við lykkju á eftir prjónamerki (= 2 lykkjur fleiri). Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt til að koma í veg fyrir göt (allar lykkjur fyrir opi fyrir þumal eru prjónaðar í sléttprjóni). Endurtakið útaukningu fyrir opi fyrir þumal í annarri hverri umferð 4-5 sinnum til viðbótar (aukið er út hvoru megin við allar útauknar lykkjur fyrir þumallykkjur, þ.e.a.s. að það verða 2 lykkjur fleiri á milli uppsláttar fyrir hverja útaukningu) = 11-13 lykkjur fyrir opi fyrir þumal og 42-52 lykkjur alls. Þegar stykkið mælist 14 cm eru settar 11-13 lykkjur fyrir opi fyrir þumal á þráð og fitjuð er upp 1 ný lykkja yfir lykkjur á þræði = 32-40 lykkjur á prjóni. Haldið áfram með mynstur hringinn þar til stykkið mælist 17-18 cm.
Prjónið nú þannig: Prjónið fyrstu 12-15 lykkjur áður en þær eru settar á þráð (= lófi), haldið eftir næstu 8-10 lykkjum á prjóni og setjið síðustu 12-15 lykkjur á þráð (= handarbak).

LITLIFINGUR:
= 8-10 lykkjur, fitjið að auki upp 2 nýjar lykkjur í vikinu á milli fingra = 10-12 l. Prjónið slétt hringinn þar til fingurinn mælist ca 5½-6½ cm. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið.

LÓFI:
Setjið til baka lykkjur af þræði á prjón, prjónið að auki upp 3 lykkjur í vikinu við litla fingur = 27-33 lykkjur. Prjónið 2 umferð slétt. Geymið 3 lykkjur sem prjónaðar voru upp í vikinu við litla fingur + 4-5 lykkjur frá handarbaki og 4-5 lykkjur frá lófa á prjóni. Setjið til baka þær 16-20 lykkjur af þræði (= 8-10 lykkjur á hvorum þræði). Prjónið baugfingur.

BAUGFINGUR:
= 11-13 lykkjur, fitjið upp 1 nýja lykkju í vikinu við lykkjur á þræði = 12-14 l. Prjónið slétt hringinn þar til fingurinn mælist ca 7-8 cm. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið.

LANGATÖNG:
Setjið til baka 4-5 lykkjur af þræði frá handarbaki og 4-5 lykkjur frá þræði frá lófa á prjóna, prjónið að auki upp 3 lykkjur í vikinu við baugfingur og fitjið upp 1 nýja lykkju í vikinu við lykkjur frá þræði = 12-14 lykkjur. Prjónið slétt hringinn þar til fingurinn mælist ca 7½-8½ cm. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið.

VÍSIFINGUR:
Setjið til baka þær 8-10 lykkjur sem eftir eru af þræði á prjóninn, prjónið að auki upp 3 lykkjur í vikinu við löngutöng = 11-13 lykkjur. Prjónið slétt hringinn þar til fingurinn mælist ca 6½-7½ cm. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið.

ÞUMALL:
Setjið til baka lykkjur frá þræði frá opi fyrir þumal á prjóninn og prjónið að auki upp 3 lykkjur í kanti á bakhlið við þessar lykkjur = 14-16 lykkjur. Prjónið slétt hringinn þar til þumallinn mælist ca 5½-6 cm. Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar slétt saman 2 og 2. Klippið þráðinn og þræðið í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið.

VINSTRI FINGRAVETTLINGUR:
Prjónið eins og sá hægri, nema spegilmynd.
Þegar stykkið mælist 10 cm byrjar útaukning fyrir opi fyrir þumal með því að slá 1 sinni uppá prjóninn hvoru megin við lykkju á undan prjónamerki. Þegar stykkið mælist 17-18 cm er litlifingur prjónaður þannig:
Prjónið fyrstu 12-15 lykkjur (= handarbak) áður en þær eru settar á þráð, haldið eftir næstu 8-10 lykkjum á prjóni og setjið síðustu 12-15 lykkjur á þráð (= lófi).

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 20.09.2016
HÆGRI FINGRAVETTLINGUR:Fitjið upp 45-50 l með Karisma á sokkaprjóna nr 3 og prjónið 4 umf stroff = 2 l sl, 3 l br. Í næstu umf er haldið áfram með stroff JAFNFRAMT í fyrstu umf í hverri br mynstureiningu er l fækkað með því að prjóna 2 l br saman = 36-40 l á prjóni. Haldið áfram þar til stroffið mælist 5 cm. Í næstu umf er skipt yfir á prjóna nr 3,5 og prjónað sléttprjón JAFNFRAMT er l fækkað um 4-0 l jafnt yfir = 32-40 l á prjóni.

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 151-22

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (7)

country flag Debby wrote:

Als ik uitga van het L,XL patroon en tot 40 steken heb geminderd ,en vervolgens 5x ga meerderen voor de duimspie dan kom ik op 50 steken uit en niet zoals er staat op 52 steken. Of zie ik het verkeerd.?

23.10.2022 - 01:00

country flag Gudrun Thorsteinsdottir wrote:

Der mangler tommelfinger i den islandske udgave af denne opskrift.

22.02.2022 - 20:49

DROPS Design answered:

Blessuð Guðrún. Takk fyrir ábendinguna. Það er búið að laga þetta.

23.02.2022 - 13:22

country flag Nury Zapata wrote:

Este es el segundo par de guantes que tejo, pero en este modelo me han quedados huecos entre los dedos, que he cerrado con aguja. Como puedo evitar esto, para el próximo par que voy a tejer

13.05.2020 - 19:05

DROPS Design answered:

Hola Nury. Es normal que queden unos pequeños agujeros entre los dedos, que después se cosen. Puedes intentar tensar el hilo entre los puntos, pero no siempre es la solución.

15.05.2020 - 10:48

country flag Ann wrote:

Pattern calls for 3mm/2.5 US for rib, however, the wording in the pattern states to cast on with 3.5mm/US 4 for rib and it does not indicate when to switch needle size.

29.10.2015 - 16:01

DROPS Design answered:

Dear Ann, that's correct, rib should be worked with needle size 3 mm, then change to size 3,5 mm when working in stocking st. Pattern will be edited as soon as possible. Thank you. Happy knitting!

29.10.2015 - 16:27

country flag Ann wrote:

PATTERN CALLS FOR 3MM/2.5 US FOR RIB, HOWEVER, THE WORDING IN THE PATTERN STATES TO CAST ON WITH 3.5MM/US 4 FOR RIB AND IT DOES NOT INDICATE WHEN TO SWITCH NEEDLE SIZE.

25.10.2015 - 18:09

country flag Elly wrote:

Hele mooie handschoenen.Daar zijn weinig patronen van om handschoenen te breien

06.06.2013 - 15:14

I Parsons wrote:

Nice to see a pattern for real gloves!I like the textures. Would knit them in a stronger colour

30.05.2013 - 18:04