DROPS Vienna
DROPS Vienna
91% Mohair, 9% Polyester
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Super Sale

Sheer Bliss

Prjónuð peysa úr DROPS Vienna eða DROPS Melody með brómberjamynstri og sjalkraga. Stærð S - XXXL

DROPS 150-41
DROPS Design: Mynstur nr o-317
Garnflokkur D
-----------------------------------------------------------

Stærð: S/M – L/XL – XXL/XXXL

Efni:
DROPS VIENNA frá Garnstudio
350-350-400 gr litur nr 43, ljós brúnn

Eða notið:
DROPS MELODY frá Garnstudio
250-250-300 gr litur nr 15, beige

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 12 – eða þá stærð sem þarf til að 9 l og 9 umf með brómberjamynstri verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Vienna
DROPS Vienna
91% Mohair, 9% Polyester
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

BRÓMBERJAMYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 – Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. 1 mynstureining = 4 l.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka á hringprjóna):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

STUTTAR UMFERÐIR (á við um kant að framan):
Til þess að koma í veg fyrir að kantur að framan í garðaprjóni dragist saman við miðju að framan eru prjónaðar stuttar umferðir yfir kant að framan þannig:
* Byrjið fyrir miðju að framan, prjónið 19 l garðaprjón, snúið við, herðið á þræði og prjónið 19 l garðaprjón til baka. * Prjónið nú fram og til baka yfir allar l eins og áður. Endurtakið frá *-* ca í 10. hverri umf þar til lykkjur eru fellda af á öxl.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Til að fá pláss fyrir allar l er stykkið prjóna fram og til baka á hringprjóna.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 50-58-66 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna nr 12 með Vienna eða Melody. Prjónið BRÓMBERJAMYNSTUR – sjá útskýringu að ofan, með 1 kantlykkju í hvorri hlið í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan! (1. umf = ranga). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 42-44-46 cm eru fitjaðar upp 24-24-24 nýjar l í hvorri hlið fyrir ermar (þ.e.a.s. fitjið upp í lok á 2 næstu umf) = 98-106-114 l. Haldið áfram með brómberjamynstur yfir allar l og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið á hvorri ermi. Þegar stykkið mælist 70-74-78 cm eru felldar laust af miðju 14 l fyrir hálsmáli = 42-46-50 l eftir á hvorri öxl. Haldið áfram með brómberjamynstur með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Fellið af með sl frá réttu þegar stykkið mælist ca 72-76-80 cm.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna.
Fitjið upp 36-40-44 l (meðtalin 1 kantlykkja í hlið og 19 kantlykkjur að framan í garðaprjóni við miðju að framan með hringprjóna nr 12 með Vienna eða Melody. Prjónið brómberjamynstur með 19 kantlykkjum við miðju að framan í garðaprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hlið (1. umf = ranga) – JAFNFRAMT þegar stykkið mælist ca 7 cm er byrjað að prjóna STUTTAR UMFERÐIR yfir kant að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 42-44-46 cm eru fitjaðar upp 24-24-24 nýjar l í lok næstu umf frá röngu fyrir ermi = 60-64-68 l. Haldið áfram að prjóna 1 l garðaprjón lengst út á ermi, brómberjamynstur yfir 40-44-48 l og 19 l garðaprjón við miðju að framan. Þegar stykkið mælist ca 72-76-80 cm (passið uppá að eftir 1 umf frá röngu) fellið af fyrstu 42-46-50 l með sl frá réttu. Prjónið slétt yfir 18 kantlykkjur sem eftir eru og setjið þær síðan á þráð fyrir kraga.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Prjónið á sama hátt og vinstra framstykki nema spegilmynd, þ.e.a.s. þegar fitjaðar eru upp nýjar l fyrir ermi þá er það gert í lok umf frá réttu og þegar stykkið mælist ca 72-76-80 cm (passið uppá að 1 umf er frá röngu) prjónið næstu umf frá réttu þannig: Prjónið 18 l garðaprjón og setjið þær síðan á þráð fyrir kraga, fellið af 42-46-50 l sem eftir eru með sl frá réttu, klippið frá.

FRÁGANGUR:
Saumið axla/yfirermasauma kant í kant.
Saumið hliðar- og sauma undir ermum í eitt innan við 1 kantlykkju.

KRAGI:
Setjið til baka 18 l af þræði frá vinstri kanti að framan á hringprjóna nr 12. Prjónið nú með byrjun frá miðju að framan þannig:
* Prjónið 2 umf garðaprjón fram og til baka yfir allar l, prjónið 2 umf garðaprjón fram og til baka yfir síðustu 12 l við miðju að framan *, endurtakið frá *-* þar til kraginn mælist ca 9-10 cm (mælt lengst inn þar sem stykkið er minnst), fellið laust af. Prjónið alveg eins í hægri kanti að framan, en prjónið 1 umf sl frá röngu yfir allar l áður en endurtekið er frá *-*. Saumið saman kraga við miðju að aftan og saumið hann við hálsmál aftan í hnakka kant í kant.

Mynstur

symbols = Frá röngu: Prjónið 3 l br, steypið fyrstu l sem prjónuð var yfir þær 2 seinni l, steypið síðan annarri l sem prjónuð var yfir síðustu l = 1 eftir
symbols = Frá röngu: Prjónið 3 l í 1 l þannig: Prjónið 1 l, 1 l br, 1 l sl
symbols = Frá réttu: Prjónið br
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 150-41

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (50)

country flag Santos wrote:

Hola, he terminado la chaqueta, pero el cuello cuando se unen por detrás la costura de la solapa se ve al doblar el cuello, es así o yo me equivoqué, gracias

19.11.2021 - 20:29

DROPS Design answered:

Hola Santos, hay que coser el cuello para que la costura quede por el lado revés al doblar. Por lo tanto, una parte se cose por un lado y la otra por el otro.

21.11.2021 - 19:38

country flag Jolanda wrote:

Buongiorno, non riesco a capire il grafico del punto traforato perché è sfalsato. La prima maglia come va lavorata?

23.08.2021 - 10:19

DROPS Design answered:

Buongiorno Jolanda, il diagramma è sfalsato perchè ci sono degli aumenti. Nella 1° maglia del 1° ferro si lavorano 3 maglie in 1 maglia. Buon lavoro!

23.08.2021 - 11:50

country flag Irena Musielska wrote:

Jak moge i gdzie zamowic gazete drops num150 /41

26.12.2019 - 00:07

DROPS Design answered:

Witaj Ireno! Sądzę, że katalog 150 w formie papierowej już nie jest nigdzie dostępny. Wzór 150-41 możesz wydrukować bezpośrednio z naszej strony, jest dostępny za darmo, w języku polskim, nie musisz się nawet logować czy rejestrować. Miłej pracy!

30.12.2019 - 00:31

country flag Carina wrote:

Hej det här ser ut att vara en kofta i mitt slag men jag är varm av mig. Kan garnet bytas ut mot exempelvis ett bomullsgarn? och i så fall, har du något exempel?

10.08.2019 - 10:50

DROPS Design answered:

Hej Carina, den här koftan är lätt och luftig, väljer du bomull vill den bli tyngre... Gör ett stickprov i DROPS Paris och se om du tycker om det. Se till at hålla stickfastheten som står i mönstret. Lycka till :)

06.09.2019 - 11:02

country flag Francesca wrote:

Non riesco a capire come si fa il punto costa a legaccio, nn è spiegato bene. Grazie

19.04.2019 - 14:33

DROPS Design answered:

Buongiorno Francesca. Lavorare una costa a legaccio vuol dire lavorare 2 ferri a diritto. Buon lavoro!

19.04.2019 - 16:14

country flag Isabelle wrote:

I am making this with melody. A very lovely yarn! But incredibly hard to knit with especially when using the 12 mm needles! Since the yarn is too thin (while super fluffy) for these thick needles. Stitches keep slipping and knitting is super slow. Result is beautiful though.

22.11.2015 - 16:51

country flag Karined wrote:

Bonjour ce modèle me plait ! je souhaite la faire en mélody Es ce qu'il faut tricoter à deux fils ? ou seulement un fil ? Merci d'avance et merci pour vos modèles toujours aussi beau et gratuit

11.10.2015 - 13:21

DROPS Design answered:

Bonjour Karined et merci. Ce modèle se tricote avec 1 seul fil Vienna ou 1 seul fil Melody, sur la base d'un échantillon de 9 m x 9 rangs au point d'astrakan = 10 x 10 cm. Bon tricot!

12.10.2015 - 09:52

country flag Francesca wrote:

Potreste spiegarmi come faccio ad avviare su entrambi i lati le maglie per le maniche? Ho visto il video e mostra soltanto come farlo per un lato, alla fine del ferro. Come si fa all'inizio del ferro?

25.01.2014 - 00:41

DROPS Design answered:

Buonasera Francesca, le istruzioni dicono "Quando il lavoro misura 42-44-46 cm, avviare 24-24-24 m da ciascun lato per le maniche (avviare quindi le m alla fine dei 2 ferri successivi)", per cui può seguire il video e avviare le m alla fine dei 2 f successivi. Ci riscriva se ha altri dubbi. Buon lavoro!!!

25.01.2014 - 17:16

country flag Patrizia wrote:

Buongiorno, cosa intende per ferri accorciati - non riesco a capire la spiegazioni relativa alle 19 m del davanti puo' essere più chiara? grazie

30.12.2013 - 12:01

DROPS Design answered:

Buongiorno Patrizia, i ferri accorciati sono ferri in cui non si lavora su tutti i punti, ma solo su una parte, in questo caso 19 m, poi si gira il lavoro e si torna indietro. Provi a vedere se questo video può esserle d'aiuto: Ci riscriva se ha ancora dubbi. Buon lavoro!!

30.12.2013 - 12:24

country flag Beatrice Schmelzer wrote:

Traumhaft, so müssen jacken aussehen.

27.12.2013 - 00:04