DROPS Andes
DROPS Andes
65% Ull, 35% Alpakka
frá 1408.00 kr /100g
DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 447.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9789.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale
DROPS 151-30
DROPS Design: Mynstur nr an-017
Garnflokkur E+A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS ANDES frá Garnstudio
600-700-700-800-900-900 gr litur nr 9020, ljós grár
Og einnig:
DROPS FABEL frá Garnstudio
150-200-200-200-200-250 gr litur nr 911, lautarferð

DROPS HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 15 – eða þá stærð sem þarf til að 7 l og 11 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm með 1 þræði af hvorri tegund.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Andes
DROPS Andes
65% Ull, 35% Alpakka
frá 1408.00 kr /100g
DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 447.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9789.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

PERLUPRJÓN:
UMFERÐ 1: * Prjónið 1 l sl, 1 l br *, endurtakið frá *-* út umf.
UMFERÐ 2: Prjónið sl yfir br og br yfir sl.
Endurtakið umf 2.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Til þess að fá pláss fyrir allar l er stykkið prjónað fram og til baka á hringprjóna með einum þræði af hvorri tegund.

HÆGRA FRAMSTYKKI + ERMI:
Fitjið upp 33-34-36-37-39-41 l á hringprjóna nr 15 með 1 þræði Andes og 1 þræði Fabel. Prjónið 2 umf slétt. Prjónið nú PERLUPRJÓN yfir allar l – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 48-49-50-51-52-53 cm eru fitjaðar upp 10-10-9-8-7-6 nýjar l í lok næstu umf frá réttu = 43-44-45-46-47 l. Setjið 1 prjónamerki - HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Þegar stykkið mælist ca 22-23-24-25-26-27 cm frá prjónamerki (passið uppá að næsta umf er prjónuð frá réttu), prjónið 22 fyrstu l eins og áður, síðan eru þær settar á þráð = 21-22-23-23-24-25 l eftir á prjóni, prjónið út umf. Setjið 1 nýtt prjónamerki (= miðja ofan á öxl) – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið 1 umf yfir l á prjóni. Setjið l á 1 þráð og geymið stykkið.

VINSTRA FRAMSTYKKI + ERMI:
Prjónið á sama hátt og hægra framstykki+ermi, nema spegilmynd, haldið nú áfram með bakstykki án þess að setja l á þráð.

BAKSTYKKI:
Haldið áfram með perluprjón í næstu umf frá réttu þannig: Prjónið l frá vinstra framstykki + ermi. Fitjið upp 9-9-9-11-11-11 nýjar l (aftan við hnakka) og prjónið inn l frá hægra framstykki + ermi á hringprjóna = 51-53-55-57-59-61 l. Haldið áfram fram og til baka þar til stykkið mælist 22-23-24-25-26-27 cm frá prjónamerki við miðju ofan á öxl. Í næstu umf eru felldar af fyrstu og síðustu 10-10-9-8-7-6 l, klippið frá. Prjónið yfir þær 31-33-37-41-45-49 l sem eftir eru. Þegar stykkið mælist ca 67-69-71-73-75-77 cm prjónið 2 umf slétt yfir allar l, fellið síðan laust af.

KRAGI:
Setjið til baka þær 22 l af þræði frá hægra framstykki. Fitjið upp 1 nýja l við öxl = 23 l. Prjónið sl yfir allar l með stuttum umferðum þannig:
UMFERÐ 1 og 2: Byrjið við miðju að framan- prjónið 10 l sl, snúið við og prjónið sl til baka.
UMFERÐ 3 og 4: Prjónið sl yfir allar l, snúið við og prjónið sl til baka.
Endurtakið þessar 4 umf þar til kraginn mælist ca 7-7-7-8-8-8 cm innst við hlið við öxl, fellið af. Prjónið alveg eins yfir l af þræði frá vinstra framstykki. Saumið saman kragastykkin kant í kant við miðju að aftan og saumið niður kragann við hálsmálið að aftan í kantlykkju.

VASI:
Fitjið upp 13 l á hringprjóna nr 15 með 1 þræði Andes og 1 þræði Fabel. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 1 l GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – í hvorri hlið þar til stykkið mælist ca 18 cm, fellið laust af frá réttu.
Prjónið annan vasa á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið hliðar- og ermasauma í eitt, saumið kant í kant yst í lykkjubogann í ystu l þannig að saumurinn verði ekki of þykkur. Saumið vasana ca 5 cm frá neðri brún og 18 cm inn frá miðju að framan, saumið í ystu lykkjubogana á lykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið.

Mynstur

diagram measurements
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 151-30

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (80)

country flag S.Elsmore wrote:

Hallo, ich habe Schwierigkeiten mit dem Kragen. So wie auf der Zeichnung wird er ja nicht gestrickt, eher etwas fächerförmig. Lt. Anleitung sollen "die beiden Kragenteile an der hinteren Mitte Kante an Kante zusammengenäht werden". Verstehe ich das richtig, dass nur die linke und rechte obere Ecke (wie ein Zipfel zusammengenäht werden? Und die Kante oder besser gesagt dann der Rand dann an den hinteren Kragenrand? S.Elsmore

01.11.2014 - 19:57

DROPS Design answered:

Aneinandergenäht werden jeweils die beiden Abkettkanten, sie bilden die hintere Kragenmitte. Damit ist der untere Rand dann vorgegeben, den Sie an die Jacke nähen. Die kürzere Seite jedes Kragenteils (also die Seite in Richtung Schulter) sollte jeweils bis zur hinteren Kragenmitte reichen.

02.11.2014 - 10:02

country flag Else Marie Rauff Jacobsen wrote:

Der er noget som ikke stemmer kan i ikke skrive hvad der er forkert jeg kan ikke få rykken til at passe og der er jo ikke garn nok lidt trist jeg har købt til 2 men ikke i samme farve håber i kan hjælpe

08.10.2014 - 22:40

DROPS Design answered:

Hej Else. Vi vil gerne hjaelpe dig, men kan du saa ikke skrive hvor du mener du har fundet en fejl og hvilken störrelse du strikker? Tak.

09.10.2014 - 10:28

country flag Tacitas wrote:

Ich möchte die Jacke gerne stricken, bin aber sehr empfindlich, was Wolle angeht. Wie weich ist "Andes"? Könnte man es auch für Kinder verwenden? Wenn nicht, welche kratzfreien Alternativen gibt es in dieser Stärke?

22.09.2014 - 07:45

DROPS Design answered:

Andes ist ein sehr weich gesponnenes Garn und kratzt in der Regel durch den Alpaka-Anteil nicht, bei sehr empfindlichen Menschen kann man aber natürlich nicht garantieren, dass tierische Naturfasern nicht kratzen, hier bleibt immer ein gewisses "Restrisiko". Cloud (mit einem Anteil Kunstfaser) ist ebenfalls ein weiches, i.d.R nicht kratzendes Garn. Das zweite Garn, Fabel, wird sogar für Babykleidung empfohlen.

22.09.2014 - 09:29

country flag Leonora wrote:

I am so confused about the collar! I have picked up the 22 stitches back on the needle, and I have started the short rows so that there are more rows towards the outside of the collar (i.e. started from shoulder side towards neck). Do I only knit 2.75 inches this way? Won't the collar be too small?

19.09.2014 - 20:28

DROPS Design answered:

Dear Leonora, you work short rows over the 22 sts for collar for 2.75 inch measured on the shorter side. This should fit the mid neckline on back piece. Work then the same way over the 22 sts for collar on the other front piece and sew the 22 sts from each collar piece tog on mid back, then sew the collar along neckline on back piece. Happy knitting!

20.09.2014 - 09:46

country flag Eva wrote:

Die Jacke ist kuschlig warm und sieht aus wie auf der Abbildung :-). Aber: Das Material ist zu knapp bemessen! Ich habe sie in Größe M gestrickt und mich exakt an die Anleitung gehalten; die Andes hat gerade so eben für die Jacke selbst gereicht. Taschen konnte ich nicht mehr stricken, dafür hätte es einen Knäuel Andes mehr gebraucht. Für Größe M braucht man demnach 800g Andes (und für L dann mindestens auch, aber eher mehr).

17.08.2014 - 19:50

DROPS Design answered:

Liebe Eva, entspricht die Jacke in der Länge wirklich genau den Maßen? Hier macht es sich ja im Garnverbrauch schnell bemerkbar, wenn man ein kleines bisschen länger strickt. Aber ich leite Ihren Hinweis gerne weiter. Auch ohne Taschen viel Spaß beim Tragen!

18.08.2014 - 10:48

country flag Ingeborg wrote:

Jeg skjønner ikke kragen. Økes det på utsiden eller innsiden? Synes det er logisk at det er utsiden, så den bøyer seg mot nakken og der man skal sy sammen.

17.08.2014 - 13:58

DROPS Design answered:

Hej, Du lægger kun 1 ny m op på kragen mot skulderen. Men du strikker vendinger (2 ekstra pinde) over de 10 yderste m mod midt foran ifølge forklaringen under KRAGE.

18.08.2014 - 15:27

country flag Sol wrote:

Hei. Nå er jeg ferdig med begge forstykker og har satt disse på pinne med 9 lagt opp i mellom. Strikker altså str M. Jeg ser nå at jeg skal strikke de 53 -midterste- maskene videre. Samt at kragen skal strikkes fra de 22 maskene som er satt av på ermet. Dette kan umulig være riktig? Og hvor blir det av "bakstykket" på ermene? På forhånd, takk.

15.08.2014 - 13:13

DROPS Design answered:

De 22 m du sætter på tråden er mod midt foran, de skal strikkes videre til sjalskrave til sidst. Se også video under!

21.08.2014 - 13:55

country flag Marthe Forodden wrote:

Jeg bestilte garn til denne jakken når dere hadde salg, og bestilte det som sto i oppskriften. Men, oppskriften er feil, det er glemt å regne med ene siden når man strikker ryggen. Dette gjør at jeg ikke har mere garn, ikke vet jeg hvor mye jeg trenger og ingen har det i Trondheim for øyeblikket. Dette er veldig kjedelig, da jeg hadde gledet meg til å ha den ferdig til jeg reiser på ferie om en uke.

03.08.2014 - 21:00

country flag Pina Schiano wrote:

Come si fa? c'è una spiegazione? in italiano grazie

17.04.2014 - 18:33

DROPS Design answered:

Buonasera Pina, le spiegazioni del modello sono già presenti in italiano, le può trovare qui: DROPS 151-30. Buon lavoro!!

17.04.2014 - 21:19

country flag DROPS Design wrote:

Dzięki rzędom skróconym kołnierz nie będzie ściągał robótki na górze. Proszę zobaczyć video pt. Rzędy skrócone – metoda podstawowa (rozwinie się po kliknięciu na zakładkę video na górze wzoru)

12.02.2014 - 09:29