DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 447.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1788.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 149-22
DROPS Design: Mynstur nr fa-254
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Stærð: 35/37 - 38/40 - 41/43
Lengd fótar: ca 22 - 24 - 27 cm

Efni:
DROPS FABEL frá Garnstudio
50-50-50 gr litur nr 912, súkkulaði
50-50-50 gr litur nr 677, grænn/turkos
50-50-50 gr litur nr 911, lautarferð
50-50-50 gr litur nr 674, bleikvínrauður

DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5 – eða þá stærð sem þarf til að 24 l og 32 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 447.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1788.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

SNÚNINGUR:
Allar umf eru prjónaðar með 4 mismunandi litum sem færast til og snúast eins og spírall utan um sokkinn. Til þess að sleppa við að þurfa að klippa frá í hverri umf er önnur hver umf prjónuð frá röngu.
UMFERÐ 1 (= rétta):
Prjónið allar l frá sokkaprjóni 1 slétt með lit nr 912, prjónið allar lykkjur frá sokkaprjóni 2 með lit nr 674, prjónið allar l frá sokkaprjóni 3 slétt með lit nr 911, prjónið allar l frá sokkaprjóni 4 slétt með lit nr 677. Snúið við.
UMFERÐ 2 (= ranga):
Prjónið br yfir allar l frá sokkaprjóni 4 með lit nr 677, tvinnið þráðinn með næsta lit, prjónið br yfir allar l frá sokkaprjóni 3 með lit nr 911, tvinnið þráðinn með næsta lit, prjónið br yfir allar l frá sokkaprjóni 2 með lit nr 674, tvinnið þráðinn með næsta lit, prjónið br yfir allar l frá sokkaprjóni 1 með lit nr 912, prjónið upp 1 l í síðustu l frá sokkaprjóni 4 frá fyrri umf, setjið hana á sokkaprjón 1. Snúið við.
UMFERÐ 3 (= rétta):
Prjónið 2 fyrstu l slétt saman, prjónið þær l sem eftir eru frá sokkaprjóni 1 + fyrstu l frá sokkaprjóni 2 slétt með lit nr 912, prjónið allar l frá sokkaprjóni 2 + fyrstu l frá sokkaprjóni 3 slétt með lit nr 674, prjónið allar l frá sokkaprjóni 3 + fyrstu l frá sokkaprjóni 4 slétt með lit nr 911, prjónið allar l frá sokkaprjóni 4 + fyrstu l frá sokkaprjóni 1 slétt með lit nr 677. Snúið við.
UMFERÐ 4 (= ranga):
Prjónið br yfir allar l frá sokkaprjóni 4 með lit nr 677, tvinnið þráðinn með næsta lit, prjónið br yfir allar l frá sokkaprjóni 3 með lit nr 911, tvinnið þráðinn með næsta lit, prjónið br yfir allar l frá sokkaprjóni 2 með lit nr 674, tvinnið þráðinn með næsta lit, prjónið br yfir allar l frá sokkaprjóni 1 með lit nr 912, prjónið upp 1 l í síðustu l frá sokkaprjóni 4 frá fyrri umf, setjið hana á sokkaprjón 1. Snúið við.
UMFERÐ 5 (= rétta):
Prjónið 2 fyrstu l slétt saman, prjónið þær l sem eftir eru frá prjónið 1 slétt með lit nr 912, prjónið allar l frá sokkaprjóni 2 slétt með lit nr 674, prjónið allar l frá sokkaprjóni 3 slétt með lit nr 911, prjónið allar l frá sokkaprjóni 4 slétt með lit nr 677. Snúið við.
Endurtakið umf 2-5. Litarendurnar færast til um 1 l til vinstri í fjórðu hverri umf.

ÚRTAKA (á við um hæl):
Prjónið fram þar til 2 l eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 l slétt saman, prjónamerki, takið 1 l óprjónaða, prjónið 1 l, steypið óprjónuðu l yfir.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring, ofan frá og niður að tá.

SOKKUR:
Fitjið upp 72-76-80 l á sokkaprjóna nr 2,5 með lit nr 912. Prjónið 2 umf slétt í hring. Prjónið nú stroff þannig: * Prjónið 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-*. Þegar stroffið mælist 4 cm er prjónuð 1 umf slétt jafnframt er fækkað um 8 l jafnt yfir = 64-68-72 l. Skiptið lykkjum á 4 sokkaprjóna = 16-17-18 l á hverjum prjóni. Prjónið nú sléttprjón og SNÚNINGUR - lesið útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 10 cm er fækkað um 1 l í hverri rönd frá réttu – fækkið með því að prjóna 2 síðustu l á hverjum sokkaprjóni sléttar saman (= 4 l færri í 1 umf). Passið uppá að úrtaka sé gerð í umf 3 eða 5 í mynstri. Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 15 og 20 cm = 52-56-60 l (= 13-14-15 l á hverjum sokkaprjóni). Þegar stykkið mælist 23-24-25 cm er prjónaður inn laus þráður yfir fyrstu 26-28-30 l, l hvoru megin við þennan þráð eru notaðar síðar þegar hællinn er prjónaður. Í næstu umf er haldið áfram með mynstur eins og áður (klippið frá á 2 fyrstu sokkaprjónunum). Haldið áfram með snúning þar til stykkið mælist 12-13-15½ cm frá lausa þræðinum (= ca 5 cm eftir). Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið þannig að það verða 26-28-30 l ofan á fæti og 26-28-30 l undir fæti – passið uppá að táin passi við þráðinn við hæl. Prjónið nú sléttprjón yfir allar l og í kringum prjón með lit nr 912, JAFNFRAMT er lykkjum fækkað fyrir tá hvoru megin við bæði prjónamerki. Fækkið lykkjum á undan 1 l sl og prjónamerki þannig: Prjónið 2 l slétt saman. Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki og 1 l sl þannig: Prjónið 2 l snúnar slétt saman. Fækkið lykkjum svona í hvorri hlið í annarri hverri umf alls 7 sinnum og síðan í hverri umf 3 sinnum = 12-16-20 l eftir á prjóni. Í næstu umf eru allar l prjónaðar 2 og 2 saman.
Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel.

HÆLL:
Dragið út lausa þráðinn og skiptið lykkjum hvoru megin við þráðinn á sokkaprjóna nr 2,5 = 52-56-60 l. Byrjið í hlið og prjónið með lit nr 912 (súkkulaði): Prjónið yfir 26-28-30 l undir hæl, prjónið upp 2 nýjar l í hlið, prjónið yfir 26-28-30 l aftan við hæl og prjónið upp 2 nýjar l í hlið = 56-60-64 l. Setjið 1 prjónamerki á milli 2 nýrra lykkja í hvorri hlið. Prjónið sléttprjón, JAFNFRAMT er lykkjum fækkað í hvorri hlið – Lesið ÚRTAKA! – í annarri hverri umf alls 9-10-11 sinnum = 20 l eftir á prjóni. Prjónið 1 umf yfir allar l. Fellið af. Saumið saman hælinn með lykkjuspori, l á móti l við affellingarkantinn. Hællinn mælist 5-6-6½ cm í hvorri hlið.

Prjónið annan sokk á sama hátt.
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 149-22

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (57)

country flag Tina Skjødt wrote:

Når man sætter maskerne på en tråd, til hæl, skal der så ikke slås nye masker op, for at fortsætte foden? Det er ikke beskrevet i opskriften. Det er det eneste der giver logisk mening for mig Venlig hilsen Tina

29.10.2023 - 13:55

DROPS Design answered:

Hei Tine. Du skal ikke sette masker på 1 tråd til hæl i denne oppskriften, men strikke inn en løs tråd. Når du har strikket "hele" sokken og felt av til tå, skal du trekke ut den løse tråden og deretter strikke hæl. Ta en titt på hjelpevideoen: Hvordan strikke hælfelling med en tråd. Se tidspunkt ca 02:40 og 08:10, så får du en visuell opptattning hvordan denne hælen skal strikkes (men følg det som står i oppskriften når du skal strikke hælen). mvh DROPS Design

30.10.2023 - 11:54

country flag Ulrike wrote:

Ich komme überhaupt nicht mit den Vier Fäden in Verbindung mit dem Wenden zurecht. Gibt es dafür Tipps und Tricks?

07.04.2023 - 13:26

DROPS Design answered:

Liebe Ulrike, womit genau kommen Sie nicht zurecht, mit dem Verkreuzen der Fäden? Sie legen, wenn Sie die Farbe wechseln, die Fäden einmal übereinander, damit kein Loch entsteht. Die Fäden bleiben dann im weiteren Verlauf immer an den Stellen hängen, an denen Sie sie gewechselt haben. Gutes Gelingen!

13.04.2023 - 10:32

country flag Paule L'Espérance wrote:

Bonjour, je sais que la couleur # 674 n'est plus disponible mais pouvez vous m'indiquer quelle couleur s'en rapproche le plus. Je ne vois pas bien sur le modèle , même avec votre précision du 27.01.2022. Merci

07.04.2022 - 16:09

DROPS Design answered:

Bonjour Mme L'Espérance, vous retrouvez cette couleur dans ces moufles ou bien ces chaussettes - votre magasin saura vous conseiller la meilleure couleur adaptée à vos envies. N'hésitez pas à les contacter, même par mail ou téléphone. Bon tricot!

07.04.2022 - 16:35

country flag Paule L'Espérance wrote:

Patrons bien amusant qye j'aimerai faire mais je ne trouve pas la laine #674 heather... A quoi ressemble-t-elle?

26.01.2022 - 17:49

DROPS Design answered:

Bonjour Paule, cette couleur n'est effectivement plus disponible désormais - c'est la couleur que l'on voit sous la rayure bleu/verte au pied droit (porté, autrement dit, celui sur la pointe du pied); retrouvez toutes les couleurs DROPS Fabel ici, votre magasin DROPS saura vous conseiller les couleurs assorties à votre goût si besoin, bon tricot!

27.01.2022 - 08:18

country flag Tamara wrote:

Sorry voor mijn ongetwijfeld beginnervraag. Ik snap iets niet bij verschuivingen. Bij naald 3 brei je de eerste steek van de breinld zonder knop in de kleur van de voorgaande breinld zonder knop. Behoudt je deze anders gekleurde steek in naald 4 of brei je deze steek met de originele kleur?

25.09.2020 - 10:58

DROPS Design answered:

Dag Tamara,

Deze ander kleur wordt inderdaad behouden, het idee is dat de kleuren steeds 1 steek doorschuiven bij elke wisseling van naald.

19.11.2020 - 11:57

country flag Ktodd5 wrote:

Yesterday I asked: QUESTION: How do I "pick up 1 st in last st from double pointed needle 4 from previous row?" Do I purl into the stitch BELOW that stich to pick up 1 stitch? You answered: "...you can increase from the loop under or from the thread between sts (= make 1), as you prefer." Those increase methods are worked (knit) on the right side of the piece. ROW 2 is worked on the WRONG SIDE (purl) of the piece. How is the increase worked as the pattern instructed on the WS?

11.08.2020 - 15:18

DROPS Design answered:

Dear Ktodd5, see previous answer - the increase will be worked either from the stitch below or by picking up the sts between 2 sts - see both videos linked in previous answer, just use the method you rather like to - but right, the increased stitches from WS should be purled. Happy knitting!

11.08.2020 - 15:41

country flag Ktodd5 wrote:

ROW 2 (= WS): ..., P over all sts on double pointed needle 1 with color no 912, pick up 1 st in last st from double pointed needle 4 from previous row, slip it on double pointed needle 1. Turn. QUESTION: How do I "pick up 1 st in last st from double pointed needle 4 from previous row?" Do I purl into the stitch BELOW that stich to pick up 1 stitch? Is there a video that demonstrates that instruction? Sorry I don't get it.

10.08.2020 - 21:08

DROPS Design answered:

Dear Ktodd5, you can increase from the loop under or from the thread between sts (= make 1), as you prefer. Happy knitting!

11.08.2020 - 08:47

country flag Gisèle St-Pierre wrote:

Est-ce que je pourrais faire un talon double régulier à la place du vôtre (est-ce un talon appelé Afterthought) car je ne pense pas réussir à le faire, j'ai bien lu les explications et regardé vidéo et ne m'y retrouve pas, c'est dommage j'aurais appris nouvelle technique. Merci

05.08.2019 - 00:11

DROPS Design answered:

Bonjour Mme St-Pierre, je pense que pour ce type de modèle, le talon tricoté à la fin reste la meilleure alternative pour ne pas "déformer" le modèle. Quand vous arrivez au talon, tricotez les mailles du talon avec un fil d'une autre couleur et continuez comme avant. Quand la chaussette est terminée, retirez délicatement le fil, relevez les mailles de chaque côté (le rang précédent + le rang suivant) et tricotez le talon en rond en diminuant comme indiqué. Bon tricot!

07.08.2019 - 10:37

country flag Gisèle St-Pierre wrote:

Auriez-vous une autre vidéo pour faire talon sur fil perdu avec fils couleurs unies peut-être plus facile à comprendre je fais le patron ci-haut 149/22 et ça ne m'aide pas vu le patron utilisé dans vidéo et couleurs? Merci

04.08.2019 - 23:54

DROPS Design answered:

Bonjour Gisele! Regardez le video suivant: ICI. Bon tricot!

05.08.2019 - 08:16

country flag Madame Gisèle St-Pierre wrote:

Peut-on faire ce modèle sur aiguille circulaire?

27.07.2019 - 15:34

DROPS Design answered:

Bonjour Gisele! Sur les courtes peut-etre. Mais je vous conseille les aiguilles double pointes parce qu'on a pas beaucoup de mailles. Bon tricot!

27.07.2019 - 15:52