DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 447.00 kr /50g
DROPS Vienna
DROPS Vienna
91% Mohair, 9% Polyester
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Super Sale

Frost Flower

Prjónuð peysa úr DROPS Fabel og DROPS Vienna eða DROPS Fabel og DROPS Melody með sjalkraga. Stærð S - XXXL

DROPS 150-33
DROPS Design: Mynstur nr o-316
Garnflokkur A + D
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS FABEL frá Garnstudio
200-200-200-250-250-300 gr litur nr 905, svartur/natur
Og einnig:
DROPS VIENNA frá Garnstudio
350-400-400-450-500-550 gr litur nr 21, natur

Eða notið:
DROPS FABEL frá Garnstudio
200-200-200-250-250-300 gr litur nr 905, svartur/natur
Og notið:
DROPS MELODY frá Garnstudio
250-300-300-350-350-400 gr litur nr 01, natur

DROPS HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 9 – eða þá stærð sem þarf til að 10 l og 12 umf með sléttprjóni með 1 þræði af hvorri tegund verði 10 x 10 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN (60 cm) NR 8 – fyrir kant með garðaprjóni.
DROPS HORNATALA DÖKK NR 536: 3 stk í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 447.00 kr /50g
DROPS Vienna
DROPS Vienna
91% Mohair, 9% Polyester
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

HNAPPAGAT:
Fellt er af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið þriðju og fjórðu l frá kanti saman slétt og sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Fellið af fyrir hnappagati þegar stykkið mælist:
STÆRÐ S: 34, 40 og 46 cm
STÆRÐ M: 34, 40 og 46 cm
STÆRÐ L: 36, 42 og 48 cm
STÆRÐ XL: 36, 42 og 48 cm
STÆRÐ XXL: 38, 44 og 50 cm
STÆRÐ XXXL: 38, 44 og 50 cm

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 54-58-62-68-76-80 l með 1 þræði af hvorri tegund á hringprjóna nr 8.
Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 9 og prjónið síðan sléttprjón. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 5 cm er fækkað um 1 l í hvorri hlið, endurtakið úrtöku með 10-10-10,5-10,5-9,5-9,5 cm millibili 4-4-4-4-5-5 sinnum til viðbótar (= alls 5-5-5-5-6-6 sinnum) = 44-48-52-58-64-68 l. Þegar stykkið mælist 59-61-63-65-67-68 cm eru fitjaðar upp 3-2-2-1-1-1 nýjar l í lok á næstu 2 umf = 50-52-56-60-66-70 l. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 74-77-80-83-86-88 cm, fellið nú af miðju 8-8-10-10-12-12 l af fyrir hálsmáli og hvor öxl er nú prjónuð til loka fyrir sig. Fækkið nú um 1 l í næstu umf frá hálsmáli 1 sinni = 20-21-22-24-26-28 l eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 76-79-82-85-88-90 cm.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka.
Fitjið upp 32-34-37-40-45-47 l (meðtaldar eru 4 kantlykkjur að framan) með 1 þræði af hvorri tegund á hringprjóna nr 8. Prjónið 4 umf garðaprjón. Skiptið yfir á hringprjóna nr 9 og prjónið síðan sléttprjón með 4 kantlykkjum í garðaprjóni í vinstri hlið séð frá réttu (= kantur að framan). ATH! Kantlykkjur að framan eru prjónaðar í garðaprjóni til loka. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 5 cm er fækkað um 1 l í hægri hlið séð frá réttu, endurtakið úrtöku með 10-10-10,5-10,5-9,5-9,5 cm millibili alls 4-4-4-4-5-5 sinnum til viðbótar (= alls 5-5-5-5-6-6 sinnum) = 27-29-32-35-39-41 l. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 51-53-55-57-59-60 cm er prjónuð inn 1 l fleiri í garðaprjóni (= vinstri hlið) með 4-4-3-3-2,5-2,5 cm millibili alls 6-6-8-8-10-10 sinnum. ATH: Ekki er aukið út um l, nú er einungis sléttar l sem eru prjónaðar inn í garðaprjón = 10-10-12-12-14-14 l garðaprjón til loka JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 59-61-63-65-67-68 cm eru fitjaðar upp 3-2-2-1-1-1 nýjar l í hlið í lok næstu umf frá röngu = 30-31-34-36-40-42 l. Þegar stykkið mælist 76-79-82-85-88-90 cm eru felldar af 20-21-22-24-26-28 axlar-l frá réttu og prjónað út umf. Haldið áfram að prjóna garðaprjón yfir þær 10-10-12-12-14-14 l sem eftir eru þannig: * Prjónið 2 umf garðaprjón yfir allar l, 2 umf garðaprjón einungis yfir síðustu 7-7-9-9-11-11 l *, endurtakið frá *-* þar til kraginn mælist 6-6-8-8-9-9 cm frá stysta hlutanum frá öxl. Setjið l á þráð.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Prjónið á sama hátt og vinstra framstykki, nema spegilmynd. Að auki er fellt af fyrir HNAPPAGAT í kanti að framan – sjá útskýringu að ofan.

ERMI:
Stykkið er prjónað fram og til baka. Fitjið upp 24-24-26-26-26-28 l með 1 þræði af hvorri tegund á hringprjóna nr 8. Prjónið 4 umf garðaprjón. Skiptið yfir í hringprjóna nr 9 og prjónið síðan sléttprjón. Þegar stykkið mælist 4 cm er aukið út um 1 l í hvorri hlið, endurtakið útaukningu með 10-8-8-6-5-5 cm millibili 4-5-5-6-7-7 sinnum til viðbótar (= alls 5-6-6-7-8-8 sinnum) = 34-36-38-40-42-44 l. Fellið af þegar stykkið mælist 49-49-48-47-45-44 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla).
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlarsauma. Saumið saman kraga við miðju að aftan með ósýnilegu spori. Saumið kraga við hálsmál aftan í hnakka – saumið kant í kant svo að saumurinn verði ekki of þykkur. Saumið ermar í, saumið erma- og hliðarsauma yst í lykkjubogann. Saumið tölur í.

Mynstur

diagram measurements
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 150-33

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (71)

country flag Valborg wrote:

Hej. Ska det bara vara 200gram Fabel och 300 gram melody i stL M Så jag inte köper för lite garn

21.09.2020 - 22:29

DROPS Design answered:

Hej Valborg. Ja det stämmer. Se bara till att få den stickfasthet som uppges i mönstret så ska det vara tillräckligt. Mvh DROPS Design

22.09.2020 - 07:44

country flag Ilse Ter Haar wrote:

Ik heb het vest gebreid met Fabel en Melody. Heerlijk om te dragen, licht en zacht. Maar het pluist ontzettend! Ook nadat ik het vest een keer gewassen heb. Dit is niet echt draagbaar zo. Wat kan ik doen om van dat pluizen af te komen?

24.03.2020 - 15:49

DROPS Design answered:

Dag Ilse,

Via deze link vind je tips over hoe je het pluizen zoveel mogelijk tegen kunt gaan. Hopelijk heb je hier wat aan.

24.03.2020 - 18:30

country flag Belinda wrote:

Als ik lichtgrijs wil nemen is het de bedoeling dat je altijd naturel bij neemt en met 2 draden breit? Ik ben een absolute beginner

16.03.2019 - 09:42

DROPS Design answered:

Dag Belinda,

Dit patroon wordt met 2 draden gebreid, namelijk met 1 draad Fabel en 1 draad Vienna (of als alternatief voor Vienna kun je ook Melody gebruiken). Natuurlijk kun je zelf kijken welke kleurencombinatie je het leukst vindt. Als je een proeflapje maakt, kun je gelijk kijken wat het kleureffect is.

18.03.2019 - 14:14

country flag Annette wrote:

Jeg kan ikke se sjalskraven på foto på model o-316 Så hvordan strikkes den uden sjalskrave ? Venligstehilsner Annette

15.09.2018 - 11:21

DROPS Design answered:

Hej Annette, Jo men du får en sjalskrave som på billedet, hvis du strikker stykket som står sidst under Venstre forstykke: Fortsæt at strikke retstrik over de resterende 10-10-12-12-14-14 m således: * 2 p retstrik over alle m, 2 p retstrik over kun de yderste 7-7-9-9-11-11 m *, gentag fra *-* til kraven måler 6-6-8-8-9-9 cm på det korteste fra skulderen. Sæt m på 1 tråd. God fornøjelse!

17.09.2018 - 12:08

country flag Pia wrote:

Hej Kan det virkelig passe at 200g altså 4 nøgler af fx Fabel + 250g/5 nøgler af Melody er nok til hele denne cardigan når man strikker med en tråd af hver slags?

12.06.2018 - 21:05

DROPS Design answered:

Hej Pia, ja det stemmer, bare du sørger for at overholde strikkefastheden. God fornøjelse!

13.06.2018 - 14:58

country flag Mieke Kouters wrote:

Bedankt voor de info, weer wat bij geleerd :-) Ik heb nog een vraag. Om tot een proeflapje van 10x10 cm te komen moet ik naalden van 10mm gebruiken. Maakt dit wat uit? Heb ik dan meer garen nodig?

15.12.2017 - 09:13

DROPS Design answered:

Hallo Mieke, Nee, de dikte van de naalden maakt daarbij niet uit hoor. Als de stekenverhouding maar klopt, dan heb je evenveel garen nodig.

15.12.2017 - 10:34

country flag Mieke Kouters wrote:

Hallo, dit vest wil ik in eskimo,print gaam breien maar dan wel 15 cm korter. Kan ik de minderingen toch zo aamhouden? Voor maat xl is dit om de 10,5 cm. De laatste maak ik dan bij 47 cm, bij 50 cm moet er dan 1 steek bij opgezet worden. Of is het beter om de 10 cm of misschien nog minder. Graag advies. Groet Mieke

14.12.2017 - 14:12

DROPS Design answered:

Hoi Mieke, Als je hem 15 cm korter maakt zou ik de eerste 2 minderingen overslaan en pas vanaf ongeveer 10 cm beginnen met minderen. Omdat je de eerste 2 keer overslaat moet je dus ook 4 steken minder opzetten. Op deze manier blijft de belijning in tact, doordat je a.h.w. alleen stukje van de onderkant afgehaald hebt. Bij biede voorpanden doe je het zelfde, maar zet je 2 steken per voorpand minder op, omdat je daar alleen aan één kant mindert.

14.12.2017 - 14:53

country flag Mira Ekstrand wrote:

Hej kan jag byta melody mot brushed alpacka silk? tillsammans med fabel till detta mönster? Mira

28.11.2017 - 18:32

DROPS Design answered:

Hei Mira. DROPS Melody og DROPS Brushed Alpaca Silk tilhører 2 forskjellige garngrupper, slik at du da vil få problemer med å overholde strikkefastheten som er oppgitt i denne oppskriften. Melody er litt tykkere enn Brushed Alpaca Silk. mvh DROPS design

29.11.2017 - 13:31

country flag Margit wrote:

Liebes Drops-Team, ich würde gerne die Jacke mit Brushed Alpaca Silk (doppelfädig) stricken. Soll ich Fabel wegen der Formstabilität dazunehmen? Besteht die Chance, dass ich auf die Maschenprobe komme? Liebe Grüße

23.11.2017 - 19:06

DROPS Design answered:

Liebe Margit, am besten stricken Sie eine Maschenprobe, so wissen Sie, ob die Nadelgröße, Textur etc.. Ihnen anpasst. Viel Spaß beim stricken!

24.11.2017 - 08:32

country flag Ruth wrote:

Har stikket flere jakker med garn Melody og Fabel, skikkelig kosejakke. Armene blir trange hvis en følger oppskrifta. Jeg plukket opp masker til arm på siste jakke, 50 masker i str S. Ble veldig fornøyd.

17.11.2017 - 11:45