DROPS Verdi
DROPS Verdi
48% Polyakryl, 20% Ull, 17% Polyester, 15% Mohair
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Super Sale
DROPS 145-10
DROPS Design: Mynstur nr ve-034
Garnflokkur D
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS VERDI frá Garnstudio
350-350-350-350-350-350 gr litur nr 09, turkos
(Peysan er ca 160-180-190-210-230-260 gr)

Eða notið:
DROPS MELODY frá Garnstudio
200-200-200-250-250-300 gr litur nr 08, grænblár

DROPS HRINGPRJÓNAR (60 og 80 cm) NR 8 – eða þá stærð sem þarf til að 12 l og 14 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm og 10 l með gatamynstri verði 10 cm á breidd.
DROPS HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 7 – fyrir kant með garðaprjóni.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Verdi
DROPS Verdi
48% Polyakryl, 20% Ull, 17% Polyester, 15% Mohair
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikningin sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.
ATH: Í umf 3 og 11 í mynstri (umf með löngum lykkjum) er slegið 2 sinnum uppá prjóninn eftir kantlykkju þannig að það er byrjað og endað með því að slá 2 sinnum uppá prjóninn innan við kantlykkju í hvorri hlið (allir uppslættirnir eru látnir falla niður í næstu umf).
Á bakstykki byrjar mynstur í umf merktri með ör í mynsturteikningu.

ÚRTAKA (á við um hálsmál):
Fækkið lykkjum innan við 4 l í garðaprjóni. Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið lykkjum á eftir 4 l í garðaprjóni þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.
Fækkið lykkjum á undan 4 l í garðaprjóni þannig: Prjónið 2 l slétt saman.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Vegna fjölda lykkja er stykkið prjónað fram og til baka á hringprjóna.

BAKSTYKKI:
Fitjið LAUST upp 62-66-70-76-80-86 l á hringprjóna nr 7 með Verdi eða Melody og prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan (1. umf = rétta). Skiptið yfir á hringprjóna nr 8 og prjónið næstu umf frá réttu þannig: Prjónið 3 kantlykkjur í garðaprjóni, MYNSTUR eftir mynsturteikningu A.1 (- sjá útskýringu að ofan, á bakstykki byrjar mynstrið í umf merktri með ör í mynsturteikningu) þar til 3 l eru eftir og endið með 3 kantlykkjum í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 12-12-13-13-14-14 cm er sett 1 prjónamerki í hvora hlið (merkir hæð á opi/klauf). Haldið áfram með mynstur með 1 kantlykkju í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 50-51-52-53-54-55 cm er prjónað sléttprjón til loka, EN í 1. umf frá réttu er aukið út um 14-14-16-16-18-18 l jafnt yfir = 76-80-86-92-98-104 l. Þegar stykkið mælist 62-63-64-65-66-67 cm er fækkað um 1 l í hvorri hlið fyrir handveg = 74-78-84-90-96-102 l. Þegar stykkið mælist 74-76-78-80-82-84 cm eru prjónaðar 4 umf í garðaprjóni yfir miðju 18-18-20-20-22-22 l (aðrar l eru prjónaðar eins og áður). Í næstu umf á eftir 4 umf í garðaprjóni eru felldar af miðju 10-10-12-12-14-14 l fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fækkið nú um 1 l í næstu umf frá hálsi – LESIÐ ÚRTAKA = 31-33-35-38-40-43 l eftir á öxl. Prjónið nú áfram í sléttprjóni með 4 l með garðaprjóni við hálsmál þar til stykkið mælist 78-80-82-84-86-88 cm og fellið laust af.
Endurtakið á sama hátt á hinni öxlinni.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið á sama hátt og bakstykki, en byrjið með A.1 í 1. umf í mynstri (ekki í umf merktri með ör í mynsturteikningu). Þegar stykkið mælist ca 6-6-7-7-8-8 cm er sett 1 prjónamerki í hvora hlið – passið uppá að prjónamerkin eru sett í sömu umf í mynstri eins og á bakstykki (prjónamerkin merkja hæð á op/klauf, framstykkið er styttra en bakstykkið). Haldið áfram með mynstur með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist ca 44-45-46-47-48-49 cm – passið á að enda í sömu umf í mynstri eins og á bakstykki, prjónið sléttprjón til loka, EN i 1. umf frá réttu er aukið út um 14-14-16-16-18-18 l jafnt yfir = 76-80-86-92-98-104 l. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 49-51-51-53-53-55 cm. Í næstu umf frá réttu er prjónað garðaprjón yfir miðju 8 l (aðrar l eru prjónaðar eins og áður). Endurtakið þetta í 3 næstu umf (= alls 4 sinnum), stykkið mælist ca 52-54-54-56-56-58 cm. Nú skiptist stykkið við V-hálsmál með því að setja fyrstu 38-40-43-46-49-51 l á þráð.

HÆGRI HLIÐ:
= 38-40-43-46-49-52 l.
Haldið áfram í sléttprjóni, en síðustu 4 l við miðju að framan + kantlykkja í hlið eru prjónaðar í garðaprjóni. JAFNFRAMT í næstu umf frá réttu byrjar úrtaka fyrir v-hálsmáli og fækkið lykkjum þannig – LESIÐ ÚRTAKA: Fækkið um 1 l í 4. hverri umf (þ.e.a.s. í annarri hverri umf frá réttu) alls 6-6-7-7-8-8 sinnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 56-57-58-59-60-61 cm er fækkað um 1 l í hlið fyrir handveg. Eftir úrtöku fyrir handveg og hálsmáli eru 31-33-35-38-40-43 l eftir á prjóni fyrir öxl. Haldið áfram í sléttprjóni og 4 l í garðaprjóni við hálsmál þar til stykkið mælist 72-74-76-78-80-82 cm og fellið laust af.

VINSTRI HLIÐ:
Setjið til baka l af þræði á hringprjóna nr 8 og prjónið á sama hátt og hægri hlið, nema spegilmynd.

ERMI:
Fitjið upp 38-40-44-46-48-50 l á hringprjóna nr 8 með Verdi eða Melody og prjónið garðaprjón fram og til baka þar til stykkið mælist 21-20-19-18-17-16 cm (styttri mál í stærri stærðum vegna breiðari axla), fellið laust af.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlarsauma. Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju. Saumið hliðarsauma og sauma undir ermum í eitt yst í lykkjubogann svo að saumurinn liggi flatur niður að prjónamerki við op/klauf.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = slétt lykkja frá röngu
symbols = sláið 2 sinnum uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn látinn falla niður (= löng lykkja)
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 145-10

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (78)

country flag Aissela Laudo wrote:

Finito il lavoro in Melody. Lavoro molto allungato e "lasso già appena finito, forse avrò lavorato morbido. Capo deformato in breve tempo, ottimo x stare in casa...

02.04.2019 - 21:12

country flag Aissela Laudo wrote:

Scusate, indendevo da quando si è intrecciare 1 m. a ogni lato per lo scalfo . Grazir

02.11.2018 - 16:33

country flag Aissela Laudo wrote:

Il numero delle maglie della manica ( nella taglia S 38:2 perché mezze x davanti e mezze dietro=19maglie ) deve essere lo stesso delle righe del davanti dietro da quando si è intrecciata una maglia x scollo fino a compresa l ultima? Perché forse ho sbagliato. Qui ho 21 maglie.....

02.11.2018 - 16:00

DROPS Design answered:

Buonasera Aissela. Se la tensione del suo lavoro è corretta, seguendo le indicazioni del testo ottiene le misure giuste per la manica. Buon lavoro!

02.11.2018 - 19:20

country flag Aissela Laudo wrote:

Vi chiedo di indicarmi il metodo migliore (o quello utilizzato da chi ha fatto il modello) per effettuare gli aumenti di 14 maglie sul dietro . Secondo me il gettato crea un buco troppo grande. Ho bisogno di indicazioni precise grazieee

24.05.2018 - 22:36

DROPS Design answered:

Buongiorno Aissela, può aumentare lavorando 2 maglie nella stessa maglia. Buon lavoro!

25.05.2018 - 07:32

country flag Manja wrote:

Hallo, für die Größe 38/40 reichen da 4 Knäule MELODY aus? Danke

21.05.2017 - 19:29

DROPS Design answered:

Liebe Manja, In die Größe S, M und L braucht man je 200 g Melody, dh 4 Knäuel. Viel Spaß beim stricken!

22.05.2017 - 09:08

country flag Gabi Berndsen wrote:

Super. Fertig. Habe aber noch viel Wolle über

05.07.2015 - 18:55

country flag Lene Maigaard wrote:

Drops Verdi turkis kan ikke købes mere, hvilken garntype kan der bruges i stedet?

28.01.2015 - 22:02

DROPS Design answered:

Hej Lene. Vi har paa nuvaerende tidspunkt ikke noget lignende garn som alternativ til Verdi. Du kan altid pröve dobbelt traad Brushed Alpaca Silk, men saa faar du ikke farveovergangene. Du kan ogsaa kontakte din DROPS butik og faa hjaelp til at finde et alternativ

29.01.2015 - 14:32

country flag Trudy Koster wrote:

Wil graag trui breien,maar kan niet met rond brei nl overweg .kunt u mij een richt lijn geven voor breien op 2 nld Dank Trudy

05.01.2015 - 17:21

DROPS Design answered:

Hoi Trudy. Dit model wordt heen en weer gebreid op de nld, u kunt dan ook rechte naalden gebruiken, zonder het patroon aan te passen. Maar let op dat je ruimte hebt voor alle steken.

06.01.2015 - 16:43

Nashwaahmed wrote:

What does "vent" mean ?

10.04.2014 - 21:36

DROPS Design answered:

Dear Mrs Nashwaahmed, Vents are the side slits, i.e. the parts both side where front & back piece won't be sewn. Happy knitting!

11.04.2014 - 08:48

country flag Fred wrote:

Modèle vraiment très très large, qui ne tombe pas bien si on a de la poitrine. Déçue par le rendu......par contre, joli coloris !!!!

06.03.2013 - 16:42