DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3960.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 147-38
DROPS Design: Mynstur nr e-207
Garnflokkur A
--------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS SAFRAN frá Garnstudio
450-500-550-600-650-700 gr litur nr 12, ferskja

DROPS HEKLUNÁL NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 23 st og 12 umf verði 10 x 10 cm. Þegar mynstur er heklað verður 1 mynstureining (= A.1 b) = ca 3,5 cm á breidd og 4 cm á hæð (= 4 umf).
DROPS TALA NR 521: 6 stk.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3960.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR:
Fyrsta st í hverri umf er skipt út fyrir 3 ll.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1.

ÚRTAKA:
Fækkið lykkjum í byrjun umf þannig: Heklið kl yfir þann fjölda st sem fækka á.
Fækkið lykkjum í lok umf þannig: Snúið við þegar eftir er sá fjöldi st sem fækka á.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Heklað er neðanfrá og upp, fram og til baka frá miðju að framan. LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR!

PEYSA:
Heklið 246-265-284-313-342-380 ll með Safran með heklunál nr 3. Haldið áfram með 1 fl í 2. ll frá heklunálinni, síðan 1 fl í hverja af næstu 4-5-6-5-4-6 ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 fl í hverja og eina af 5 næstu ll *, endurtakið frá *-* út umf = 205-221-237-261-285-317 fl. Haldið áfram með mynstur A.1 þannig: Heklið 3 ll upp frá fyrstu fl, 1 st í næstu fl, mynstur a yfir fyrstu 9 fl, mynstur b þar til 10 fl eru eftir, mynstur c yfir fyrstu 8, síðan 1 st í hverja og eina af 2 síðustu (= 25-27-29-32-35-39 mynstureiningar í umf. Endurtakið þær 4 umf í A.1 þar til stykkið mælist ca 32-32-32-36-36-36 cm – endið eftir umf 4 í mynstri. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Næsta umf er hekluð í st sem vísað er í umf 5 í mynstri, þ.e.a.s. þannig: Heklið 1 st í hvern og einn af 4 fyrstu st, * 2 st um ll-boga, 2 st um næsta ll-boga, 1 st í hvern af næstu 4 st *, endurtakið frá *-*, endið á 2 st um hvorn af síðustu 2 ll-bogum og 1 st í hvern af síðustu 4 st = 204-220-236-260-284-316 st.
Heklið nú fram- og bakstykki til loka hvert fyrir sig.

FYRRA FRAMSTYKKI:
Heklið st fram og til baka yfir fyrstu 50-53-57-62-68-75 st í umf. Jafnframt er lykkjum fækkað fyrir handveg í hverri umf: 2 st 0-0-1-2-3-5 sinnum og 1 st 1-2-2-3-5-6 sinnum – SJÁ ÚRTAKA = 49-51-53-55-57-59 st eftir. Þegar stykkið mælist 42-43-44-47-48-49 cm, byrjar úrtaka fyrir hálsmáli þannig: Fækkið um 13-13-14-14-15-15 st 1 sinni, 3 st 1 sinni, 2 st 2 sinnum og 1 st 3 sinnum = 26-28-29-31-32-34 st eftir í umf. Klippið frá þegar stykkið mælist ca 52-53-54-59-60-61 cm.

SEINNA FRAMSTYKKI:
Heklið á sama hátt og fyrra framstykki, nema spegilmynd.

BAKSTYKKI:
Heklið st fram og til baka yfir miðju 94-100-108-118-130-144 st (ekki er heklað yfir 5-7-7-9-9-11 l í hvorri hlið = handvegur). JAFNFRAMT er lykkjum fækkað fyrir handveg í hvorri hlið eins og á framstykki = 92-96-100-104-108-112 st. Þegar stykkið mælist 50-51-52-57-58-59 cm, heklið 1 umf einungis yfir síðustu 28-30-31-33-34-36 st í annarri hliðinni fyrir öxl, heklið síðan 1 umf til viðbótar jafnframt sem fækkað um 2 st við hálsmál, heklið út umf = 26-28-29-31-32-34 st á öxl, klippið frá. Stykkið mælist ca 52-53-54-59-60-61 cm.
Heklið á sama hátt á öxlinni.

BLÚNDA NEÐAN Á FRAM- OG BAKSTYKKI:
Heklið 1 fl-umf neðst niðri á fram- og bakstykki með byrjun frá röngu þannig:
UMFERÐ 1: Heklið 1 fl í fyrstu fl, * 3 ll, hoppið yfir 1 fl, 1 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* út umf.
UMFERÐ 2: Snúið við með 5 ll, 1 fl um fyrsta ll-boga, * 4 ll, 1 fl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* út umf.
UMFERÐ 3: Snúið við með 6 ll, 1 fl um fyrsta ll-boga, * 6 ll, 1 fl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* út umf.
UMFERÐ 4: Heklið í hvern ll-boga þannig: Heklið 2 fl + 1 picot (= 3 ll, 1 fl í fyrstu ll) + 2 fl. Klippið frá og festið enda.

ERMI:
Stykkið er heklað fram og til baka og saumað saman í lokin.
Heklið 68-68-78-78-78-87 ll með Safran með heklunál nr 3. Snúið við og heklið 1 fl í 2. ll frá heklunálinni, síðan er hekluð 1 fl í hverja af næstu 6-6-4-4-4-7 ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 fl í hverja og eina af 5 næstu ll *, endurtakið frá *-* út umf = 57-57-65-65-65-73 fl.
Heklið nú mynstur A.1 þannig: Mynstur a yfir fyrstu 9 fl, mynstur b þar til 8 fl eru eftir, síðan mynstur c (= 7-7-8-8-8-9 mynstureiningar í umf). Haldið svona áfram þar til 4 umf í mynstri A.1 hafa verið heklaðar alls 3 sinnum á hæðina. Stykkið mælist ca 12 cm. Næsta umf er hekluð í st eins og útskýrt er í umf 5 í mynstri, þ.e.a.s. þannig: Heklið 1 st í hvorn af fyrstu 2 st, * 2 st um ll-boga, 2 st um næsta ll-boga, 1 st í hvern af næstu 4 st *, endurtakið frá *-* , endið á 2 st um hvorn af síðustu 2 ll-bogum og 1 st í hvorn af síðustu 2 st = 56-56-64-64-64-72 st. Haldið áfram með 1 st í hvern st – JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 16 cm, aukið út um 1 st í hvorri hlið með því að hekla 2 st í næst síðasta st í hvorri hlið. Endurtakið útaukningu 9-12-11-13-16-15 sinnum til viðbótar í STÆRÐ S: Í 4. hverri umf, STÆRÐ M + L: Í 3. hverri umf, STÆRÐ XL: Til skiptis í annarri og 3. hverri umf, STÆRÐ XXL + XXXL: Í annarri hverri umf = 76-82-88-92-98-104 st.
Þegar stykkið mælist 49-48-47-46-45-44 cm (styttri mál í stærri stærðum vegna víðari handvegs og breiðari axla), fækkið lykkjum fyrir ermakúpu í hverri umf í hvorri hlið þannig: Fækkið um 3 st 1 sinni, 2 st 5-6-8-9-10-11 sinnum og 3 st 1 sinni. Stykkið mælist nú ca 55 cm í öllum stærðum, klippið frá.

BLÚNDA NEÐAN Á ERMI:
Heklið 1 fl-umf neðst niðri á ermi með byrjun frá röngu þannig:
UMFERÐ 1: Heklið 1 fl í fyrstu fl, * 5 ll, hoppið yfir 2 fl, 1 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* út umf – ATH: Til þess að lykkjufjöldinn gangi upp, verður í stærð S og M að hoppa aðeins yfir 1 fl í síðasta skipti. Í stærð L og XL verður að hoppa yfir 3 fl í síðasta skipti.
Snúið við.
UMFERÐ 2: Heklið um hvern ll-boga þannig: Heklið 2 fl + 1 picot (= 3 ll, 1 fl í fyrstu ll) + 2 fl. Klippið frá og festið enda.

FRÁGANGUR:
Saumið axlarsauma og ermasauma kant í kant svo að saumurinn verði ekki of þykkur og saumið ermar í fram- og bakstykki.
Heklið upp meðfram kanti að framan, í kringum hálsmál og niður meðfram vinstri kanti að framan þannig: Heklið 1 fl í fyrstu l, * 3 ll, hoppið yfir ca 1 cm, 1 fl í næstu l *, endurtakið frá *-*.
Saumið tölur í vinstri kant að framan – efsta talan ca 1 cm frá toppi, skiptið hinum jafnt yfir niður á vinstri kant. Hneppið í ll-boga í hægri kant að framan.

Mynstur

symbols = 1 loftlykkja
symbols = 1 fastalykkja
symbols = 1 stuðull
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 147-38

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (45)

country flag Anthonis wrote:

Waar kam ik een haak boek kopen

29.04.2024 - 09:09

country flag Rita GERUM wrote:

Bonjour, concernant le modèle 147-38, pourriez vous me dire comment assembler les manches dos devant, je n'y arrive pas

11.03.2024 - 16:38

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Gerum, cette vidéo montre comment assembler 2 pièces crochetées, elle pourra fort probablement vous aider. Bon assemblage!

12.03.2024 - 07:15

country flag Rsoleil wrote:

Bonjour, je viens de terminer le modèle DROPS 147-38 veste, j\'ai adoré faire ce modèle, juste un gros problème pour l\'assemblage des manches dos devant, je ne sais pas comment faire, j\'ai essayé toutes sortes d astuces mais n\'y suis pas arrivée, pourriez vous me dire comment ? Merci

11.03.2024 - 16:35

country flag Kia wrote:

Jeg hækler I str medium. Og forstår ikke hvordan jeg skal læse denne del af opskriften. FØRSTE FORSTK: Hækl st frem og tilbage over de første 50-53-57-62-68-75 st på rækken. Samtidig lukkes der af mod ærmegabet på hver RÆKKE: 2 st 0-0-1-2-3-5 gange og 1 st 1-2-2-3-5-6 gange – SE LUKKETIPS = 49-51-53-55-57-59 st tilbage. Kan I uddybe hvordan jeg skal lukke af?

08.02.2022 - 19:33

DROPS Design answered:

FØRSTE FORSTK: Hækl st frem og tilbage over de første 53 st på rækken. Samtidig lukkes der af mod ærmegabet på hver RÆKKE: 2 st 0 gange og 1 st 2 gange – SE LUKKETIPS =51 st tilbage. Det vil sige at du hækler 1 km over først m på rækken (mod ærmegabet) hækler pinden ud, vender og hækler til du har 1 maske tilbage, vend arbejdet (nu har du lukket 2 masker af) God fornøjelse!

09.02.2022 - 12:22

country flag Kristina McKinney wrote:

I can’t figure out how to attach the sleeves and attach the front and back. Do you have a video or pictorial of attaching everything together?

17.02.2021 - 22:55

DROPS Design answered:

Dear Mrs McKinney, you can first pin the sleeve around the armhole, then sew the outermost loop/the front loop of the stitches on last row together with the outermost loop of stitches along armhole. Happy assembly!

18.02.2021 - 09:25

country flag Kristina McKinney wrote:

I’m working on the front piece. I’m starting the neck decrease and I’ve done the 15 decrease 1 time but I don’t know what to do next. 3dc 1 time, 2dc 2 times ect.

16.09.2020 - 03:12

DROPS Design answered:

Dear Mrs McKinney, this video shows how to decrease stitches at the beginning of a row/at the end of the row. At the end of a row you will turn when 3 dc / 2 dc remains, at the beg of a row you will work slip stitches over the first 3 dc/2 dc (depending on which front piece you are now working on). These decreases should be worked on every row, either at the end or at the beg of the row. Happy crocheting!

16.09.2020 - 08:59

country flag Kristina McKinney wrote:

I am starting the 1st front piece. I don’t understand when the decrease starts . And why 2 dc 3 times and 1 dc 5 times.

10.09.2020 - 00:48

DROPS Design answered:

Dear McKinney, this video shows how to decrease at the beginning or at the end of a row, you have here to decrease for armhole at the beg of a RS row + at the end of a WS row (= left front piece) or at the end of a WS row + at the beg of a RS row (= right front piece). Happy crocheting!

10.09.2020 - 09:47

country flag Audrey wrote:

Bonjour, si je comprends bien, après le 1er rang de ms l'ouvrage devrait mesurer 86CM (2x43) pour une taille S, est-ce exact? Mon échantillon mesure bien 10X10 pour le nmbre de B et de rang indiqué pourtant après mon rang de ms il est bcp plus long, il mesure 170cm au lieu des 134 prévus pour la plus grande taille, comment cela se fait-il? il n'ai quand me pas possible que ma tension soit aussi relachée entre l'échantillon et l'ouvrage !?

02.05.2019 - 16:14

DROPS Design answered:

Bonjour Audrey, avez-vous bien vos 317 ms? (on monte davantage de mailles en l'air que de mailles serrées pour éviter que le 1er rang ne soit trop serré), si l'échantillon est juste avec 317 ms vous devez avoir environ 138 cm (y compris les bordures des devants non comprises dans les 134 cm) - et 39 fois A.1 (=3.5 cm) = 136.5 + les mailles des bords. Bon crochet!

03.05.2019 - 08:34

Asma wrote:

Hi ... i am not speaking english well but i will try to write to you what i want . i cant find the suitable words , i want the pattron for this chaket like a picture not writing if that is possible . iam so greatful for you . thanks .

01.06.2016 - 11:55

DROPS Design answered:

Dear Asma, this pattern is only available with a written pattern, for any further personnal assistance, you can contact your DROPS Store (choose your country in the list). Happy crocheting!

01.06.2016 - 12:12

country flag Anneke Nijhof wrote:

Kunnen jullie aangeven hoe groot/klein x, xl, xxl of xxxl is? Ik kan wel met een bepaalde maat beginnen, maar dan zul je zien dat die net niet goed is. Voorts vind ik het jammer dat de breipatronen meestal met een rondbreinaald moet worden gebreid. Ik kan daar absoluut niet mee over weg. Is het niet mogelijk ook de mogelijkheid te bieden om voor- achter- en/of mouwen gewoon met twee naalden te breien? Met vriendelijke groet, Anneke

16.01.2016 - 19:26

DROPS Design answered:

Hoi Anneke. Kijk onderaan het patroon, hier vind je alle afmetingen in cm. Kijk hier voor meer informatie over het aanpassen van een breipatroon van rondbreinaalden naar rechte naalden

19.01.2016 - 15:12