DROPS Alpaca Bouclé
DROPS Alpaca Bouclé
80% Alpakka, 15% Ull, 5% Polyamide
frá 724.00 kr /50g
DROPS Vivaldi
DROPS Vivaldi
56% Mohair, 30% Polyamide, 14% Ull
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Super Sale

Sirocco

Prjónað poncho úr DROPS Alpaca Bouclé, DROPS Vivaldi og DROPS Lace, prjónað frá hlið með mynsturáferð. Stærð S - XXXL.

DROPS 147-39
DROPS Design: Mynstur nr ab-030
Garnflokkur C + C + A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS ALPACA BOCLÉ frá Garnstudio
150-150-150-150-200-200 gr litur nr 0100, natur
Og einnig:
DROPS VIVALDI frá Garnstudio
100-100-100-100-100-100 gr litur nr 06, natur
Og einnig:
DROPS LACE frá Garnstudio
100-100-100-100-100-100 gr litur nr 0100, natur

DROPS HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 6 – eða þá stærð sem þarf til að 14 l með mynsturáferð eftir mynsturteikningu A.1 verði 10 cm á breiddina.
DROPS HEKLUNÁL NR 5 – fyrir kant.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca Bouclé
DROPS Alpaca Bouclé
80% Alpakka, 15% Ull, 5% Polyamide
frá 724.00 kr /50g
DROPS Vivaldi
DROPS Vivaldi
56% Mohair, 30% Polyamide, 14% Ull
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka á hringprjóna):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikningin sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

LEIÐBEININGAR UM MÆLINGU:
Vegna lögunar á stykkinu verður að halda stykkinu uppi þegar mælt er til að ná réttu máli.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PONCHO - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Vegna fjölda lykkja er stykkið prjónað fram og til baka á hringprjóna. Stykkið er prjónað frá hlið sem eitt stykki.

PONCHO:
Fitjið laust upp 132-136-140-148-152-160 l á hringprjóna nr 6 með Alpaca Bouclé. Prjónið MYNSTUR eftir mynsturteikningu A.1 með 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í hvorri hlið þar til stykkið mælist ca 60-61-62-62-63-64 cm – endið eftir umf frá réttu. Skiptið yfir í 1 þráð Alpaca Bouclé. Í næstu umf (= frá röngu) fellið af fyrstu 66-68-70-74-76-80 l í byrjun umf br (= vinstri kantur að framan), prjónið sl út umf. Setjið 1 prjónamerki og prjónið mynstur eftir mynsturteikningu A.2 (veljið mynstur fyrir rétta stærð) með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina mælist stykkið ca 10-10-10-12-12-12 cm frá prjónamerki og ca 70-71-72-74-75-76 cm frá uppfitjunarkanti. Prjónið 1 umf slétt frá réttu með Alpaca Bouclé og fitjið laust upp 66-68-70-74-76-80 l í lok umf (= hægri kantur að framan) = 132-136-140-148-152-160 l. Prjónið nú mynsturteikningu A.1 með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið en byrjið á A.1 spegilmynd miðað við miðju að framan svo að mynstrið verði eins í hvorri hlið við miðju að framan. Þegar stykkið mælist ca 130-132-134-136-138-140 cm og prjónaðar hafa verið jafn margar rendur í mynstri í hvorri hlið við miðju að framan, fellið laust af með sl frá röngu með Alpaca Bouclé.

HEKLAÐUR KANTUR:
Heklið kant í kringum allt stykkið með heklunál nr 5 með Alpaca Bouclé. Byrjið við miðju að aftan eða í einu horni á stykki og heklið 1 fl í fyrstu l, * 2 ll, hoppið yfir ca 1 cm, 1 fl í næstu l *, endurtakið frá *-* kringum allt stykkið og endið með 2 ll og 1 kl í fyrstu fl í byrjun umf.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu með Alpaca Bouclé
symbols = slétt lykkja frá röngu með Alpaca Bouclé
symbols = slétt lykkja frá réttu með Vivaldi
symbols = slétt lykkja frá röngu með Vivaldi
symbols = brugðin lykkja frá röngu með Lace
symbols = 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn með Lace
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir með Lace
symbols = prjónstefna
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 147-39

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (52)

country flag Martin wrote:

Bonjour, je souhaite tricoter le modèle SIROCCO, mais 2 fils n'existent plus pour réaliser ce magnifique poncho, pourriez vous me donner la correspondance et la quantité qu'il me faut, pouvez vous me préciser également si je dois tricoter les 3 fils en même temps pour obtenir le même rendu que sur votre modèle ? je vous remercie pour votre réponse, bien cordialement catherine martin

05.07.2021 - 14:29

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Martin, ce modèle se tricote avec des rayures tricotées dans des laines différentes (cf diagramme et légende) - utilisez notre convertisseur pour voir les différentes alternatives aux laines épuisées, votre magasin DROPS saura vous conseiller si nécessaire, même par mail ou téléphone. Bon tricot!

05.07.2021 - 16:08

country flag Anke wrote:

Was mache ich beim Garnwechsel? Ich will nicht jedes mal die abgeschnittenen Fäden vernähen, aber um das Garn am Rand weiterzuführen ist es immer zu hoch.

06.03.2021 - 10:34

DROPS Design answered:

Liebe Anke, Sie können z.B. die erste Masche bei der Seite mit Garnwechsel mit allen Fäden zusammenstricken (wie in diesem Video - oder dann nach 1-2 Maschen wie in diesem Video oder ganz einfach führen lassen wie in diesem Video gezeigt. Viel spaß beim stricken!

08.03.2021 - 07:42

country flag CHRISTINE SALMON wrote:

Bonjour, est-il possible de le faire sur 2 aiguilles et pas aiguille circulaire ? et que cela change t'il dans le modèle s'il vous plaît ?

15.03.2020 - 11:13

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Salmon, ce modèle se tricote en allers et retours sur aiguille circulaire juste pour avoir suffisamment de place pour y loger toutes les mailles, vous pouvez donc utiliser des aiguilles droites mais pense à bien conserver la bonne tension pour que votre ouvrage ait les bonnes dimensions - plus d'infos ici. Bon tricot!

16.03.2020 - 10:01

country flag Lena wrote:

Kann ich es auch mit einer wolle stricken? Oder müssen es 3 sein?

07.07.2019 - 20:48

DROPS Design answered:

Liebe Lena, diese 3 Wollen haben je eine unterschiedliche Textur und damit wird das Muster spielen, um das Ergebnis zu bekommen, am besten diese 3 Wollen stricken (Vivaldi können Sie durch Brushed Alpaca Silk ersetzen - siehe unseren Garnumrechner). Viel Spaß beim stricken!

08.07.2019 - 10:28

country flag Tatiana wrote:

Dobrý deň, ak by som chcela urobiť model Sirocco z priadze Big Delight aká by bola, prosím Vás, spotreba? Ďakujem.

25.07.2018 - 08:17

DROPS Design answered:

Milá Tatiano, na plochu odpovídající tomuto modelu byste potřebovala cca 5-6 klubek příze Big Delight. Nicméně, pokud se vám líbí právě tento model, doporučuji volbu materiálu ještě zvážit - kouzlo a lehkost tohoto ponča je v kombinaci 3 různých typů slabších přízí. Použitím jednolité, silné a navíc pruhující vlny vznikne model zcela jiného charakteru i vzhledu - je tedy potřeba s takovou změnou počítat. Příjemné tvoření! Hana

25.07.2018 - 13:49

country flag Andrea wrote:

Ik heb mt L genomen (ik heb maat 38). Het afgekante gedeelte dat over de voorkant loopt is 52 cm lang en dat klopt met de beschrijving maar hij komt maar halverwege mijn buik...op het plaatje komt ie op de heupen. Had ik dan een XXXL moeten gaan breien terwijl ik maat 38 heb? Kan niet meer opnieuw beginnen want die wol is niet uit te halen. Ik baal hiervan.

23.06.2018 - 13:35

country flag Rebekka wrote:

Hallo, wie wird die Rück-Loch-Reihe abgestrickt? Linke Maschen? Lg

11.07.2017 - 14:01

DROPS Design answered:

Liebe Rebekka, die Rückreihe nach der mit den Löchern (2 re zs, 1 Umschlag) wird links von der Rückseite gestrikt. Viel Spaß beim stricken!

11.07.2017 - 15:54

country flag Ruth Jose wrote:

Switch to 1 strand of alpaca boucle? Where does it state to work with 2 strands?

03.05.2016 - 21:16

DROPS Design answered:

Dear Ruth Jose, you are working pattern with 1 strand Alpacé Bouclé but when piece measures 60-61-62-62-63-64 cm you continue with Alpaca Bouclé ( 1 strand) and not continue with Vivaldi/Lace. Happy knitting!

04.05.2016 - 08:52

country flag José Coumans-Ruijl wrote:

Vraag:ik ga de stola 147-39 breien en doe dat op naalden 6, nu vraag ik mij af of ik het Lace garen met dubbele draad moet breien omdat dit erg dun is.

12.09.2014 - 12:22

DROPS Design answered:

Hoi Jose. Nee, het motief in dit model is heel los. Houd de vermelde stekenverhouding aan en het komt goed. Veel breiplezier.

15.09.2014 - 14:50

country flag Lara wrote:

Per favore non riesco a capire quanta lana devo ordinare perchè c'è Vivaldi ma dove al uso?

16.05.2013 - 12:03

DROPS Design answered:

Buongiorno, in questo modello i filati Vivaldi e Lace vengono usati nel diagramma, trova la legenda in fondo; il filato di base è l'alpaca bouclè. Buon lavoro!

16.05.2013 - 14:24