DROPS Extra 0-881 |
|
|
|
Prjónaðir vettlingar úr DROPS Delight með dominoferningum.
DROPS Extra 0-881 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- DOMINOFERNINGUR: Allir ferningarnir eru prjónaðir fram og til baka á 2 sokkaprjóna, allar umferðir eru prjónaðar slétt (= garðaprjón). Setjið 1 merki í miðjulykkju, látið merkið fylgja með í stykkinu. UMFERÐ 1 (= frá röngu): Prjónið slétt. UMFERÐ 2 (= frá réttu): Prjónið sléttar lykkjur þar til 1 lykkja er eftir á undan lykkju með merki, lyftið 1 lykkju af prjóni, 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir, prjónið slétt út umferðina. Endurtakið umferð 1 og 2, þ.e.a.s. það fækkar um 2 lykkjur í miðju á ferningi í annarri hverri umferð þar til 1 lykkja er eftir á prjóni (= lykkja með merki). GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VETTLINGAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fyrst er stroffið prjónað neðst niðri, síðan eru prjónaðar 3 raðir með dominoferningum áður en endað er í garðaprjóni efst við fingurtoppa. Í lokum er vettlingurinn saumaður saman í hlið, nema við stroff sem er prjónað í hring. STROFF: Fitjið upp 58 lykkjur með DROPS Delight á sokkaprjóna 2,5 og prjónið stroff = 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið í 10 cm. Prjónið síðan 1 umferð slétt jafnframt því sem fækkað er um 10 lykkjur jafnt yfir = 48 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið, 1 umferð slétt og 1 umferð brugðið. Haldið áfram með DOMINOFERNINGUR: DOMINOFERNINGUR: Allir ferningarnir eru prjónaðir fram og til baka á 2 sokkaprjóna nr 3 með DROPS Delight. UMFERÐ 1: 1. FERNINGUR: Fitjið upp 13 lykkjur á 1 sokkaprjón nr 3 og prjónið síðan fyrstu 12 lykkjur frá sokkaprjóni yfir stroff = 25 lykkjur. Setjið 1 merki í miðjulykkju, prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Prjónið síðan op fyrir þumal þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt, snúið og prjónið slétt til baka, prjónið 4 lykkjur slétt, snúið og prjónið slétt til baka, prjónið 6 lykkjur slétt, snúið og prjónið slétt til baka, prjónið 8 lykkjur slétt, snúið og prjónið slétt til baka, prjónið 10 lykkjur slétt, snúið og prjónið slétt til baka, prjónið 8 lykkjur slétt, snúið og prjónið slétt til baka, prjónið 6 lykkjur slétt, snúið og prjónið slétt til baka, prjónið 4 lykkjur slétt, snúið og prjónið slétt til baka, prjónið 2 lykkjur slétt, snúið og prjónið slétt til baka (= 18 lykkjur garðaprjón í umferð efst fyrir op fyrir þumal). Haldið áfram með DOMINOFERNINGUR – lesið útskýringu að ofan – ATH: Byrjið í umferð 2 þar sem umferð 1 var prjónuð fyrir op fyrir þumal. 2. FERNINGUR: Þegar 1 lykkja er eftir á prjóni frá 1. ferningi, haldið áfram þannig: Haldið eftir þessari lykkju og prjónið 12 lykkjur frá réttu niður yfir vinstri hlið á 1. ferningi (þ.e.a.s. prjónið upp 1 lykkju í hverja rönd í garðaprjóni), prjónið síðan næstu 12 lykkjur yfir stroff inn á prjóninn = alls 25 lykkjur, setjið 1 merki í miðjulykkju og prjónið annan dominoferning til viðbótar á sama hátt. Prjónið eins og 2. ferningur þar til 4 dominoferningar eru í umferð, klippið þráðinn. UMFERÐ 2: 1. FERNINGUR: Fitjið upp 13 lykkjur, prjónið síðan upp 12 lykkjur meðfram toppi á 1. ferningi í umferð 1 (þ.e.a.s. 1 lykkja í hverja rönd í garðaprjóni – ATH: Lykkjur eru ekki prjónaðar upp í 18 umferðum í garðaprjóni yfir opi fyrir þumal) = 25 lykkjur. Prjónið DOMINOFERNINGUR. 2. FERNINGUR: Haldið eftir lykkju frá 1. ferningi á prjóni, prjónið upp 12 lykkjur niður yfir vinstri hlið á 1. ferningi og prjónið síðan upp 12 lykkjur meðfram 2. ferningi í umferð 1. Prjónið DOMINOFERNINGUR. Prjónið á sama hátt og 2. Ferningur þar til 4 dominoferningar eru í umferð, klippið þráðinn. UMFERÐ 3: 1. FERNINGUR: Fitjið upp 11 lykkjur (setjið 1 merki í síðustu af 11 lykkjum = miðjulykkja), prjónið síðan upp 12 lykkjur meðfram toppi á 1. ferningi í umferð 2 (þ.e.a.s. 1 lykkja í hverja rönd í garðaprjóni) = 23 lykkjur. Prjónið DOMINOFERNINGUR – en jafnframt í 1. umferð er fækkað um 2 lykkjur jafnt yfir á undan merki = 21 lykkja. 2. FERNINGUR: Haldið eftir lykkju frá 1. ferningi á prjóni, prjónið upp 10 lykkjur niður yfir vinstri hlið á 1. ferningi (setjið 1 merki í síðustu af 10 lykkjum = miðjulykkja) og prjónið síðan upp 12 lykkjur efst meðfram 2. ferningi í umferð 2. Prjónið DOMINOFERNINGUR – en í 1. umferð er fækkað um 2 lykkjur jafnt yfir á undan merki = 21 lykkja. Prjónið eins og 2. ferningur þar til 4 dominoferningar eru í umferð, klippið þráðinn. Stykkið mælist nú ca 25 cm á hæð. Prjónið síðan upp (frá réttu) 40 lykkjur á sokkaprjóna 3 efst meðfram síðustu röð með dominoferningum sem voru prjónaðir (þ.e.a.s. 10 lykkjur yfir hvern ferning). Setjið 1 merki í byrjun umferðar og síðan 1 merki á milli allra ferninga (= 4 merki). Prjónið sléttar lykkjur í öllum umferðum (= garðaprjón). JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju á eftir öllum merkjum með því að prjóna 2 lykkjur slétt saman. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umferð 6 sinnum til viðbótar = 12 lykkjur eftir á prjóni. Klippið þráðinn, þræðið í gegnum þær lykkjur sem eftir eru og herðið að. FRÁGANGUR: Saumið vettlinginn saman í hlið í ystu lykkjubogana, þannig að saumurinn verði ekki þykkur – op fyrir þumal er saumað við 4. ferning í umferð 1. ÞUMAL: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna 3. Prjónið upp 11 lykkjur jafnt yfir opi fyrir þumal + 3 lykkjur í kanti á bakhlið = 14 lykkjur. Haldið áfram í GARÐAPRJÓN prjónað í hring – lesið útskýringu að ofan. Þegar þumallinn mælist 5,5 (stillið af eftir 1. umferð brugðið) prjónið allar lykkjur slétt saman 2 og 2 = 7 lykkjur. Kippið þráðinn, þræðið í gegnum þær lykkjur sem eftir eru og herðið að. Allur vettlingurinn mælist ca 28 cm á hæðina. Prjónið annan vettling á sama hátt. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |