DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2200.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS Extra 0-879
DROPS Design: Mynstur nr ee-454
Garnflokkur E
-----------------------------------------------------------

Mál: Ca 80 cm neðst, ca 70 cm neðst, ca 27 cm á hæð

GARN:
DROPS LOVES YOU #2 frá Garnstudio
200 gr litur nr 3112, púðurbleikur

Eða notið:
DROPS SNOW frá Garnstudio
200 gr litur nr 51, púðurbleikur

HEKLUNÁL:
DROPS HEKLUNÁL NR 9.

TÖLUR:
DROPS Perlutala nr 540: 3 stykki.

HEKLFESTA:
4 stjörnur með breidd uppá 10 cm.
ATH: Nálarstærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari heklunál. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni heklunál.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2200.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HÁLSSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað fram og til baka.

HÁLSSKJÓL:
Heklið 57 loftlykkjur með heklunál 9 með DROPS Loves You #2 eða DROPS Snow.
UMFERÐ 1 (rétta): Takið upp 5 lykkjur með byrjun í 2. loftlykkju frá heklunálinni = 6 lykkjur á heklunálinni, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 6 lykkjurnar, heklið 1 loftlykkju sem myndar gat yfir 6 lykkjurnar, * takið upp 1 lykkju í gatið, takið upp 1 lykkju í hlið á síðustu af 6 lykkjunum, takið upp 1 lykkju í sömu loftlykkju og síðasta af 6 lykkjunum sem teknar voru upp í, 1 loftlykkja í hvora af næstu 2 loftlykkjum = 6 lykkjur á heklunálinni, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 6 lykkjurnar, 1 loftlykkja *, endurtakið frá *-*. Heklið 1 hálfan stuðul í síðustu loftlykkju. Snúið.
UMFERÐ 2 (ranga): 2 loftlykkjur (= 1 hálfur stuðull), heklið 2 hálfa stuðla í hvert „stjörnugat“, endið umferðina með 1 hálfan stuðul í síðustu lykkju. Snúið. Það eru nú 26 stjörnur í umferð og 1 hálfan stuðul í hvorri hlið.
UMFERÐ 3: 3 loftlykkjur, takið upp 1 lykkju í 2. og 3. loftlykkju frá heklunálinni, takið upp 1 lykkju í fyrstu 3 lykkjur í umferð = 6 lykkjur á heklunálinni, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 6 lykkjur, heklið 1 loftlykkju, * takið upp 1 lykkju í gatið, takið upp 1 lykkju í hlið á síðustu af 6 lykkjunum, takið upp 1 lykkju í sömu lykkju og síðasta af 6 lykkjum sem teknar voru upp í, takið upp 1 lykkju í hvora af næstu 2 lykkjum = 6 lykkjur á heklunálinni, bregðið þræðinum 1 sinni um heklunálina og dragið í gegnum allar 6 lykkjur, 1 loftlykkja *, endurtakið frá *-*. Heklið 1 hálfan stuðul í síðasta hálfa stuðul í umferð. Snúið.
Endurtakið umferð 2 og 3.
UMFERÐ 8 (ranga) er heklað eins og áður, en það er aukið út með því að hekla 3 hálfa stuðla (í stað 2) í 7. og 8. stjörnugat talið út frá hvorri hlið.
UMFERÐ 9 (rétta): Heklið eins og áður, það verða nú 28 stjörnur.
Haldið áfram eins og áður.
UMFERÐ 12 (ranga) er aftur aukið út eins og í umferð 8 með því að hekla 3 hálfa stuðla í 8. og 9. stjörnugat talið út frá hvorri hlið.
UMFERÐ 13 (rétta): Heklið eins og áður, það verða nú 30 stjörnur.
Haldið áfram eins og áður.
UMFERÐ 16 (ranga) er aftur aukið út með því að hekla 3 hálfa stuðla í 9. og 10. stjörnugat talið út frá hvorri hlið.
UMFERÐ 17 (rétta): Heklið eins og áður, það verða nú 32 stjörnur.
Endið eftir umferð 18.

Heklið ca 24-26 fastalykkjur jafnt yfir meðfram skammhlið.
Haldið áfram fram og til baka með fastalykkju í hverja fastalykkju meðfram skammhlið í alls 5 umferðir, klippið frá og festið þráðinn.
Endurtakið meðfram hinni skammhliðinni, í 4. umferð eru hekluð 3 hnappagöt. Eitt hnappagat á að vera efst í hálsmáli og hin tvö með ca 6 cm millibili.

1 hnappagat = heklið 2 loftlykkjur og hoppið yfir 2 fastalykkjur í umferðinni að neðan.
Í 5. umferð eru heklaðar 2 fastalykkjur utan um loftlykkjubogann við hvert hnappagat.
Klippið frá og festið þráðinn. Saumið tölur í þannig að þær passi við götin.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-879

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (20)

country flag Françoise wrote:

Bonjour J'ai écris trop vite. C'est au 3ème rg que j'ai 25 étoiles et non 26, d'où ma question de quinconce

17.03.2020 - 15:34

DROPS Design answered:

Bonjour Françoise, essayez de repérer d'après la vidéo où vous avez pu oublier une étoile au 3ème rang, car vous devez toujours en avoir 26. Essayez de bien repérer vos étoiles du 1er rang et de comparer, cela peut vous aider à repérer celle qui manque. Bon crochet!

17.03.2020 - 16:28

country flag Françoise wrote:

Bonjour Au 1er rg j'ai 26 étoiles au 2ème rg je n'ai que 25 étoiles seraient-elles en quinconce ? Je crochète avec le n°10 et ai 4 pelotes sera ce suffisant? Puis je faire mes augmentations au rg 6 au lieu du rg8? Merci de votre aide. Cordialement

17.03.2020 - 14:53

DROPS Design answered:

Bonjour Françoise, vous devriez avoir le même nombre d'étoiles, sur le 1er rang on forme la première moitié des étoiles (celles du bas) et sur le 2ème rang, on "ferme" les étoiles (sauf si on doit augmenter/diminuer) Cette vidéo pourra peut-être vous aider. Si votre échantillon est juste, alors la quantité DROPS Eskimo indiquée devrait suffire - plus d'infos sur l'échantillon ici. Bon crochet!

17.03.2020 - 15:02

country flag Rebecka Norrman wrote:

Hej! Jättefin sjal! Men jag har lyckats fastna redan på varv 2... Det står att man då ska fått ihop 26 stjärnor när 2a varvet är klart, men jag lyckas endast få till 18... Stämmer det att det ska vara 57 lm som grund? Eller gör jag något annat fel tror ni? Tycker mig göra precis som ni i instruktionsvideon för stjärnmönstret. Hälsningar Rebecka

04.12.2018 - 00:47

DROPS Design answered:

Hei Rebecka. Du har 57 lm. Den første stjernen hekles over 7 lm (hopp over 1, hekle over de neste 6). Videre hekles de 4 første m av den neste stjerne over masker fra den forrige stjernen slik: 1 lm allerede på nålen, 1 m i hullet i midten av stjernen, 1 m i den siste m på stjernen og 1 m i samme lm som siste maske. Du har nå 4 masker på nålen. De siste 2 m hekles over 2 nye lm. Dvs: hver stjerne hekles over 2 ny lm (av de originale lm). Etter første stjerne har du 50 lm igjen, 50/2 = 25 stjerner (Totalt 26, inkludert den første). Videoen du sikter til viser fremgangsmåte. God fornøyelse

06.12.2018 - 12:03

country flag Kirstin wrote:

Liebes Drops Team! Vielen Dank für die wunderbare Anleitung. Leicht verständlich und auch schnell gehäkelt. Aber die angegebene Wollmenge von 200 g ist zu wenig. Ich habe zwar mit Häkelnadel 10 gearbeitet, aber nur weil ich sonst sehr fest häkle. Ich muss noch mal nachbestellen 😩

30.12.2017 - 20:24

country flag Lorraine wrote:

Bonjour, pouvez-vous m'expliquer le rang 8 pour les augmentations. Est-ce que je dois augmenter en faisant 3 db dans la maille 7 et 3 db dans la maille 8 au début du rang et refaire la même chose à la fin du rang dans la maille 8 et la maille 7, ce qui veut dire que j'aurai fait 6 db de plus au rang 8 ? Merci de bien vouloir m'aider.

16.02.2016 - 03:12

DROPS Design answered:

Bonjour Lorraine, on procède bien ainsi, mais on augmente juste 4 m car on crochète 2 dB dans le trou de chaque étoile + 3 dB dans les mailles 7 et 8 au début et à la fin du rang (= 4 augm). Bon crochet!

16.02.2016 - 13:01

country flag Jessica wrote:

Hi! I'm confused about the increase on row 8. When you say the 7th and 8th hole on each side what exactly do you mean? Am I increasing three times on this row? Thank you! 😃

11.11.2015 - 18:12

DROPS Design answered:

Dear Jessica, row 8 is worked as row 2 (= hdc row): work as row 2 but work 3 hdc instead of 2 hdc in the 7th + in the 8th hole from the beg of row + 3 hdc instead of 2 hdc in the 7th + in the 8th hole from the end of row (= 2 hdc inc at the beg of row + 2 hdc inc at the end of row= 4 hdc inc). Happy crocheting!

12.11.2015 - 09:57

country flag Genevieve Pelletier wrote:

Bonjour, J'essaie de faire le modèle et j'ai suivi les indications du vidéo. Par contre, je ne comprends pas une phrase dans les explications. La voici:"piquer le crochet autour du côté des 6 dernières mailles et ramener une boule" Pourriez-vous me donner des explications. MERCI :) Je commence à désespérer et me dire que je vais changer de modèle!

19.12.2014 - 14:22

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Pelletier, il faut en fait piquer sur le côté de la dernière des 6 m (le texte a été modifié), comme on le voit bien dans la vidéo (time code 1:12). Bon crochet!

19.12.2014 - 17:14

country flag Rannveig Løvstad wrote:

Veldig fin! Og med video ble det veldig enkelt! Tusen takk for gode forklaringer, videoer og masse inspirasjon. Blir til å lage mange av denne!

23.01.2014 - 21:57

Gpe Hdz Hdz wrote:

Preciosa bufanda me sirvio de inspiracion para regalo de navidad.

12.01.2014 - 03:35

country flag Geoffroy Noëlle wrote:

Bonjour,tout d'abord merci à toute votre équipe pour tous ces modèles que vous nous offrez! Je suis d'accord avec Magalie: un bonnet ou un béret coordonné avec le tour de cou serait vraiment super! j'ai hâte de le voir...Cordialement, Noëlle

19.10.2013 - 22:56