DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2772.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale
DROPS Extra 0-861
DROPS Design: Mynstur nr bm-013
Garnflokkur A
---------------------------------------------------------

Stærð:
Hæð: ca 36 cm

Efni:
DROPS BABY MERINO frá Garnstudio
50 gr litur nr 16, rauður
50 gr litur nr 22, ljós grár
50 gr litur nr 20, dökk grár
Afgangur litur nr 02, natur
Afgangur litur nr 21, svartur

DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5 – eða þá stærð sem þarf til að 26 l og 34 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
Fylgihlutur: Vatt til fyllingar.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2772.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka á sokkaprjóna):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum stærðum.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á sokkaprjóna):
*1 umf slétt, 1 umf brugðið *, endurtakið frá *-*.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 l með því að prjóna 2 l í næstu l þannig: Prjónið framan í og aftan í sömu l.

ÚRTAKA:
Fækkið um 1 l með því að prjóna 2 l slétt saman.

RENDUR:
Prjónið * 4 umf með litnum ljós grár, 4 umf með litnum rauður *, endurtakið frá *-*.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

JÓLASVEINN - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Allt stykkið er prjónað á sokkaprjóna. Búkur, hendur og höfuð er prjónað saman og leggir og fætur er prjónað saman.

BÚKUR:
Stykkið er prjónað í hring í sléttprjóni á sokkaprjóna. Prjónað er neðanfrá og upp að topp á húfunni. Fitjið upp 40 l með litnum rauður á 4 sokkaprjóna nr 2,5.
UMFERÐ 1: * Prjónið 4 l, aukið út um 1 l í næstu l – Lesið ÚTAUKNING að ofan *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 48 l (8 l fleiri).
UMFERÐ 2: * Prjónið 5 l, aukið út um 1 l í næstu l *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 56 l.
UMFERÐ 3: * Prjónið 6 l, aukið út um 1 l í næstu l *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 64 l.
Í næstu umf er skipt yfir í litinn ljós grár og prjónað er áfram með RENDUR – sjá útskýringu að ofan. Þegar prjónaðar hafa verið 5 rendur með litnum ljós grár er lykkjum fækkað þannig:
UMFERÐ 1: Skiptið yfir í litinn rauður, * prjónið 6 l, fækkið um 1 l – Lesið ÚRTAKA að ofan *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 56 l (8 l færri).
UMFERÐ 2 – 4: Prjónið slétt.
UMFERÐ 5: Skiptið yfir í litinn ljós grár, * prjónið 5 l, fækkið um 1 l *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 48 l.
UMFERÐ 6-8: Prjónið slétt.
UMFERÐ 9: Skiptið yfir í litinn rauður, * prjónið 4 l, fækkið um 1 l *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 40 l.
UMFERÐ 10 – 12: Prjónið slétt.
UMFERÐ 13: Skiptið yfir í litinn ljós grár, * prjónið 3 l, fækkið um 1 l *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 32 l.
UMFERÐ 14 – 16: Prjónið slétt.
UMFERÐ 17: Skiptið yfir í litinn rauður, * prjónið 2 l, fækkið um 1 l *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 24 l.
UMFERÐ 18 – 20: Prjónið slétt.
UMFERÐ 21: Skiptið yfir í litinn ljós grár, * prjónið 1 l, fækkið um 1 l *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 16 l.
UMFERÐ 22 – 23: Prjónið slétt.
UMFERÐ 24: Fellið af fyrstu 2 l (= handvegur), prjónið 5 l, fellið af næstu 2 l (= handvegur), prjónið þær 5 l sem eftir eru = 12 l eftir. Setjið allar lykkjur á þráð, geymið stykkið.

HANDLEGGUR OG HÖND:
Handleggurinn er prjónaður sem eitt stykki. Höndin er fyrst prjónuð fram og til baka á sokkaprjóna og síðan í hring á sokkaprjóna.
Fitjið upp 4 l með litnum rauður á 1 sokkaprjóna. Í næstu umf er aukið út um 1 l í hverja l = 8 l.
Prjónið nú í hring með 4 sokkaprjónum þannig: Aukið út um 1 l í hverja l = 16 l. Prjónið nú sl í alls 9 umf. Í næstu umf er lykkjum fækkað þannig: * Prjónið 2 l, fækkið um 1 l *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 12 l. Prjónið sl í 2 umf. Í næstu umf er skipt yfir í litinn ljós grár og prjónað er áfram með RENDUR.
Haldið áfram með rendur þar til prjónaðar hafa verið 6 rendur í litnum ljós grár – ATH: Prjónið síðustu umf (= umf 4) með litnum ljós grár þannig: Fellið af fyrstu 2 l (= handvegur), prjónið þær l sem eftir eru í umf = 10 l eftir. Setjið allar l á þráð. Þræðið uppfitjunarþráðinn í gegnum 4 l sem fitjaðar voru upp fremst á hönd, herðið að. Fyllið höndina með vatti og fyllið handlegginn með smá vatti (fram ca 1 cm frá síðustu umf, svo að hægt sé að beygja handlegginn), geymið stykkið.
Prjónið annan handlegg á sama hátt.

ÖXL OG HÖFUÐ:
Setjið til baka lykkjur af þræði frá búk og handleggjum á prjóninn (með úrtöku á móti hvor annarri). Prjónið nú handleggina og búkinn saman að öxl með litnum rauður þannig: Prjónið 10 l af öðrum handleggnum, 6 l frá búk, 10 l frá hinum handleggnum, 6 l frá búk = 32 l í umf. Prjónið 1 umf slétt. Í næstu umf er lykkjum fækkað þannig: * Prjónið 2 l, fækkið um 1 l *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 24 l (8 l færri). Prjónið að auki 1 umf slétt.
Í næstu umf er skipt yfir í litinn natur (fyrir höfuð) og fækkið lykkjum þannig: * Prjónið 1 l, fækkið um 1 l *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 16 l. Prjónið nú 1 umf slétt. Aukið út þannig: * Prjónið 1 l, aukið út um 1 l í næstu l *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 24 l. Haldið áfram að prjóna sl í aðrar 11 umf.
Fækkið lykkjum þannig: * Prjónið 1 l, fækkið um 1 l *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 16 l. Prjónið sl í aðrar 3 umf. Fækkið lykkjum þannig: * Prjónið 2 l, fækkið um 1 l *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 12 l. Prjónið nú 1 umf slétt. Fækkið lykkjum þannig: * Prjónið 1 l, fækkið um 1 l *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 8 l. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel.

HÚFA:
Húfan er prjónuð í hring í sléttprjóni. Fitjið upp 28 l með litnum rauður á sokkaprjóna nr 2,5. Prjónið sl í 6 umf. Fækkið lykkjum þannig:
UMFERÐ 1: * Prjónið 5 l fækkið um 1 l *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 24 l (4 l færri).
UMFERÐ 2-6: Prjónið slétt.
UMFERÐ 7: * Prjónið 4 l fækkið um 1 l *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 20 l
UMFERÐ 8 – 12: Prjónið slétt.
UMFERÐ 13: * Prjónið 3 l fækkið um 1 l *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 16 l
UMFERÐ 14 – 18: Prjónið slétt.
UMFERÐ 19: * Prjónið 2 l fellið af 1 l *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 12 l
UMFERÐ 20 – 24: Prjónið slétt.
UMFERÐ 25: * Prjónið 1 l fækkið um 1 l *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 8 l
UMFERÐ 26 – 28: Prjónið slétt.
UMFERÐ 29: * Prjónið allar l 2 og 2 saman = 4 l. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru og festið.

FÓTUR OG LEGGUR:
Prjónað er neðan frá og upp (frá sóla) og upp. Sólinn er prjónaður fyrst fram og til baka í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, síðan er fóturinn prjónaður í hring í garðaprjóni og að lokum leggurinn í sléttprjóni.
Fitjið upp 4 l með litnum rauður. Næsta umf er prjónuð þannig: Prjónið 1 l sl, aukið út um 1 l í hvora af næstu 2 l, 1 l sl = 6 l (2 l fleiri). * Prjónið 1 umf slétt, í næstu umf er aukið út um 1 l í 2. l og í næst síðustu l á prjóni * = 8 l. Endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar = 10 l. Haldið áfram í garðaprjóni fram og til baka þar til stykkið mælist ca 3½ cm. Í næstu umf er lykkjum fækkað þannig: Fækkið um 1 l í hvorri hlið = 8 l. Prjónið 1 umf slétt, í næstu umf er fækkað um 1 l í hvorri hlið = 6 l. Prjónið 1 umf slétt, í næstu umf er fækkað um 1 l í hvorri hlið – JAFNFRAMT sem fellt er af, klippið frá.
Prjónið upp nýjar l þannig: Byrjið við miðju við affellingarkantinn (= aftari hluti fótar), prjónið upp 40 l kringum sólann. Prjónið nú hringinn þannig:
UMFERÐ 1: (og síðan allar odda umf): Prjónið br yfir allar l.
UMFERÐ 2: Prjónið 16 l sl, fækkið um 1 l, 4 l sl, fækkið um 1 l, 16 l sl = 38 l.
UMFERÐ 4: Prjónið 15 l sl, fækkið um 1 l, 4 l sl, fækkið um 1 l, 15 l sl = 36 l.
UMFERÐ 6: Prjónið 14 l sl, fækkið um 1 l, 4 l sl, fækkið um 1 l, 14 l sl = 34 l.
UMFERÐ 8: Prjónið 13 l sl, fækkið um 1 l, 4 l sl, fækkið um 1 l, 13 l sl = 32 l.
UMFERÐ 10: Prjónið 12 l sl, fækkið um 4 l (þ.e.a.s. prjónið næstu 8 l 2 og 2 saman), 12 l sl = 28 l.
UMFERÐ 12: Prjónið 10 l sl, fækkið um 4 l, 10 l sl = 24 l.
UMFERÐ 14: Prjónið 4 l sl, fækkið um 8 l, 4 l sl = 16 l.
Í næstu umf er skipt yfir í litinn dökk grár og prjónað sl yfir allar l. Prjónið nú sl þar til fóturinn og leggurinn mælist ca 13 cm á hæðina. Fyllið stykkið með vatti (fram að ca 1 cm frá affellingarkanti, svo að hægt sé að beygja legginn). Prjónið annan fót og legg til viðbótar á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Gerið 1 dúsk ca 1½ cm að þvermáli með 1 þræði með litnum ljós grár, saumið hann fastan á húfuna, saumið húfuna fasta efst á höfuðið. Saumið út augu á höfuðið með litnum svartur. Fyllið búkinn með vatti. Saumið saman uppfitjunarkantinn á búknum. Leggið affellingarkantinn á leggnum saman og saumið hann fastan neðst niðri á búkinn.

HÁLSKLÚTUR:
Prjónið hálsklút fram og til baka þannig: Fitjið upp 6 l með litnum rauður, prjónið garðaprjón þar til hálsklúturinn mælist ca 26 cm (eða óskaða lengd), fellið af. Hnýtið hálsklútinn kringum hálsinn.
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-861

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (12)

country flag Toril Thoresen wrote:

Kroppen får ved økning 50, 60 og 70 masker. Det er vel feil at det blir 48, 56 og 64?

10.12.2016 - 20:58

DROPS Design answered:

Hej Toril. Nej, du har f.eks. 48 m og skal strikke: 5 m, øk 1 m i neste m. Dvs, du strikker 6 m og öker til 7 i hver. 48/6 er 8 gange og 8 gange 7 m er 56 m. Det samme gaelder for naeste omg osv.

12.12.2016 - 15:09

country flag Ingrid Rörig wrote:

Hallo, ist es richtig, dass der erste rote Streifen incl. Anschlag für der Körper nur 3 Reihen umfasst? Das Grundmuster für Streifen umfasst doch 4 Reihen. MfG I. Rörig

25.10.2016 - 18:14

DROPS Design answered:

Liebe Frau Rörig, also für den Körper beginnen Sie die Streifen mit der 4. Runde, dh Anschlagskante + die 3 erste Runde sind mit Rot gestrickt.

26.10.2016 - 08:50

country flag Katri Ahonen wrote:

Julius tontun ohjeessa on käden kohdalla virhe. Ohjeessa kehotetaan :" Katkaise lanka, vedä se loppujen silmukoiden läpi, kiristä aukko umpeen ja päättele langanpää." Näin ei voi tehdä .

16.12.2015 - 22:45

country flag Mari wrote:

Hei Holder på å strikke denne, men kroppen blir bare halvparten av lengda i forhold til illustrasjonsbildet! Har lest igjennom flere ganger, men ender opp med bare 4 grå striper i genseren. Han blir søt alikevell, men den gode magen var noe av det jeg likte med nissen. Tenkte jeg skulle si ifra (og ønske dere god jul i samme slengen :) )

23.12.2013 - 22:35

country flag Roberta wrote:

Salve ho realizzato il modello ma credo ci sia un errore nel passaggio per la testa non è scritto che bisogna rovesciare il corpo e quindi lavorare tutti i ferri a rovescio. Io sono riuscita a farlo solo così.

22.12.2013 - 17:49

DROPS Design answered:

Buongiorno Roberta, le istruzioni del modello sono corrette, il corpo non va rovesciato, ma vanno semplicemente riprese le maglie: probabilmente c'è stato qualche problema durante questo passaggio. Buon lavoro!

27.12.2013 - 11:07

country flag Wagner, Johanna wrote:

Der Kleine gefällt mir sehr gut. Leider kann ich die Anleitung nicht ausdrucken. Was mache ich falsch?

29.11.2013 - 13:39

DROPS Design answered:

Liebe Johanna, gehen Sie auf den Button "DRUCKEN: ANLEITUNG" und dann in der rechten oberen Ecke nochmals auf "Anleitung drucken".

01.12.2013 - 09:48

country flag Lucie wrote:

Pro Janu Nemcakovou: *-* znamená, že se postup mezi hvězdičkami, který byl obvykle popsán v předchozí větě, opakuje (např. * 2hladce, 2 obrace*, *-* opakujeme 3krát znamená, že budete plést 2hl,2obr,2hl,2obr,2hl,2obr)

26.09.2013 - 14:58

country flag Jana Nemcakova wrote:

Dobry den. Mohli by jste mi vyscetlit ci znamema tohleto : *-*? Jsem zacatecnice a vubec tomu nerozumim. Dekuji Vam za odpoved. S pozdravem Jana

26.09.2013 - 10:46

Vera wrote:

Thank you for your reply! I mean that the pattern says to join in the round for the "yoke", bind off facing bind off. But then you'll end up with holes in the armpit :) Did I miss something? I've just sewn the holes closed now. Love the pattern!

14.12.2012 - 19:47

Vera wrote:

In the english version, the instructions for finishing the armpit are missing

14.12.2012 - 13:19

DROPS Design answered:

Dear Vera, the arms will be joined with the rest of the body under shoulders and head. Happy knitting !

14.12.2012 - 14:11