DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1848.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Sea dream

Prjónuð húfa og hálsklútur fyrir börn með skásettu stroffmynstri úr DROPS Merino Extra Fine. Stærð 3 – 12 ára.

DROPS Children 23-5
DROPS Design: Mynstur nr me-005-bn
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------
HÚFA:
Stærð: 3/5 - 6/9 - 10/12 ára
Höfuðmál: ca 52/53 - 54/55 - 55/56 cm
Efni:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio
100-150-150 g nr 28, norðursjór

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 lykkja x 28 umferðir í sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR (40 cm) NR 3 – fyrir stroff.

HÁLSKLÚTUR:
Mál: ca 12x100 - 14x120 - 18x140 cm
Efni:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio
100-150-150 g nr 28, norðursjór

DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 lykkja x 28 umferðir í sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3 – fyrir stroff.
---------------------------------------------------------

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1848.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

HÚFA:
Fitjið upp 88-96-104 lykkjur á hringprjón 3 með Merino Extra Fine. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) í 4 cm. Skiptið yfir á hringprjón 4 (skiptið yfir sokkaprjóna eftir þörf). Prjónið nú 1 umferð þar sem stroffið færist til um 1 lykkju til vinstri þannig: Yfir 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið verða 1 lykkja slétt, 2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið. * Prjónið 3 umferðir með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur, færið stroffið til um 1 lykkju til vinstri í næstu umferð (= 4 umferðir) *, endurtakið frá *-* þar til stykkið mælist 27-30-33 cm. Prjónið nú allar brugðnar lykkjur saman 2 og 2 = 66-72-78 lykkjur. Prjónið 2 umferðir með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur, prjónið síðan allar sléttar lykkjur saman 2 og 2 = 44-48-52 lykkjur. Prjónið 2 umferðir með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og prjónið síðan allar lykkjur slétt saman 2 og 2 = 22-24-26 lykkjur. Klippið frá og dragið bandið í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. Húfan mælist ca 30-33-36 cm á hæðina.

DÚSKUR:
Gerið einn dúsk ca 7-8 cm að þvermáli og festið á toppinn á húfunni.
----------------------------------------------------------

HÁLSKLÚTUR:
Fitjið upp 26-30-38 lykkjur á prjón 3 með Merino Extra Fine. Prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) með 2 kantlykkjum í hvorri hlið sem prjónaðar eru sléttar í hverri umferð til loka. Þegar stroffið mælist 4 cm er skipt yfir á prjón 4. Prjónið nú 1 umferð þar sem stroffið færist til um 1 lykkju til vinstri þannig: yfir 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðnar verða 1 lykkja brugðin, 2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið (kantlykkjur eru prjónaðar slétt í hverri umferð eins og áður). * Prjónið 3 umferðir með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur, færið stroffið til um 1 lykkju til vinstri í næstu umferð (= 4 umferðir) *, endurtakið frá *-* þar til hálsklúturinn mælist ca 96-116-136 cm – stillið af þannig að þú endir þegar stroffið byrjar og endar með 2 lykkjum slétt innan við kantlykkjur í hvorri hlið (séð frá réttu). Skiptið til baka yfir á prjóna 3 og prjónið 4 cm stroff (= 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið) með 2 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið. Fellið síðan af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

DÚSKUR:
Gerið 2 dúska ca 4-5 cm að þvermáli. Þræðið þráðinn upp og niður í gegnum uppfitjunarkantinn á hálsklútnum, herðið að og festið vel. Saumið annan dúskinn í endann á hálsklútnum. Gerið það sama á hinum endanum á hálsklútnum.
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 23-5

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (8)

country flag Naima Elmezouar wrote:

Bonjour J’ai allongé la bordure accidentellement, j’ai 6 cm de cotes2/2, et j’aimerai savoir comment calculer la hauteur du bonnet. et puis est ce que 30 cm n’est pas trop pour un enfant de 5-6 ans Merci pour votre aide

21.09.2021 - 18:02

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Elmezouar, la bordure du bonnet est repliée sur l'endroit (comme on le voit sur la photo), vous pourrez replier ainsi ces 6 cm entièrement ou un peu plus (ou bien redéfaites ces 2 cm en trop, au choix). Les diminutions se font sur les 3 derniers cm en hauteur, vous pouvez ainsi ajuster en fonction si vous le voulez. Bon tricot!

22.09.2021 - 07:18

country flag Vanessa wrote:

Ik begrijp dit niet helemaal "Brei nu alle av st 2 aan 2 av samen " Kan ik een toelichting krijgen?

24.01.2021 - 12:13

DROPS Design answered:

Dag Vanessa,

Er wordt mee bedoelt dat je alle averechte steken samenbreit, dus als er 2 averechte steken naast elkaar zitten, brei je die averecht samen.

24.01.2021 - 15:33

country flag Olga Costa wrote:

Bonjour. Est-ce que ce bonnet se tricote sur l'envers? Faut-il le retourner à la fin? J'ai presque fini et je vois que le dessin est orienté dans l'autre sens. Merci

08.11.2020 - 11:04

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Costa, le bonnet se tricote sur l'endroit; en décalant le motif comme indiqué, vous le décalez sur la gauche, et devez donc avoir le même sens que sur la photo, ceci dit, vous pouvez également le retourner sur l'envers ou bien la conserver avec le décalage vers la droite. Bon tricot!

09.11.2020 - 10:57

country flag Janet Becker wrote:

I need help with the pattern for the scarf. Can you please send written instructions over an 8 row sequence. I'm having trouble keeping the shift to the left. Thank Janet Becker

28.10.2020 - 06:38

DROPS Design answered:

Dear Mrs Becker, work first (seen from RS): *K2, P2* - after 4 cm displace cable and work (seen from RS): *P1, K2, P1*, repeat from *-* for 4 rows - from WS work K over K and P over P - work then for 4 rows (seen from RS, remember to K over K and P over P from WS): *P2, K2*, repeat from *-*, then work for 4 rows: *K1,P2,K1*, and then work for 4 rows *K2,P2*. Repeat these 16 rows. Happy knitting!

28.10.2020 - 08:07

country flag Päivi Aspegren wrote:

Hei,ohjeessa on matemaattinen virhe kavennusvaiheessa. Esim. keskikoossa: Aluksi on 96 silmukkaa. Ensimm. kavennuksessa silmukoista jää jäljelle kolme neljäsosaa eli 72 silmukkaa. Tämä on oikein. Mutta sitten toisessa kavennuksessa tästä 72 jää jäljelle 3/4 eli 54 silmukkaa, ei 48 kuten ohjeessa lukee. Yst.terv. Päivi Aspegren

03.10.2020 - 13:58

country flag Gudrun wrote:

Jag lyckas inte förstå beskrivningen för hur man syr ihop halsdukens ändar. ”Drag en tråd upp och ned genom uppläggningskanten” är inte tillräckligt som vägledning för mig, tyvärr. Jag tittar på bilden och på min färdigstickade halsduk men skulle önska antingen en video, eller åtminstone en tydligare förklaring. Tack på förhand!

05.01.2020 - 19:51

country flag Rous wrote:

Bonjour auriez vous un tutoriel pour attaché un ponpon à l'écharpe avec la superficie large de l'écharpe comme le modèle 23/5 que je suis en train de réalisé en vous remerciant de votre aide

21.11.2019 - 15:34

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Rous, quand l'écharpe est terminée, passez un fil dans les mailles du montage (puis dans les mailles rabattues, autrement dit à chaque extrémité) et serrez, vous pourrez ensuite coudre le pompon comme dans la vidéo pour le bonnet. Bon tricot!

21.11.2019 - 15:50

Sandra Vincent wrote:

A receita do gorro está incompleta (falta o final). Obrigada.

08.07.2013 - 17:40

DROPS Design answered:

Efectivamente, faltava o fim da receita do gorro. Está já completa. Obrigada por seu comentário. Bom tricô!

12.07.2013 - 17:10