DROPS Lima
DROPS Lima
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11968.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 143-1
DROPS Design: Mynstur nr li-016
Garnflokkur B
--------------------------------------------------------

Stærð: S/M - L/XL - XXL/XXXL

Efni:
DROPS LIMA frá Garnstudio
750-850-1000 gr litur nr 5610, brúnn

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l og 28 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS PERLUTALA NR 521: 6 stk.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Lima
DROPS Lima
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11968.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A-1, mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. Fyrsta umf = rétta.

HNAPPAGAT:
Fellt er af fyrir hnappagati í hægra framstykki. 1 hnappagat = prjónið 3. og 4. l frá miðju slétt saman og sláið uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagati þegar stykkið mælist:
STÆRÐ S/M: 7, 14, 21, 28, 35 og 42 cm.
STÆRÐ L/XL: 8, 15, 22, 29, 36 og 43 cm.
STÆRÐ XXL/XXXL: 9, 16, 23, 30, 37 og 44 cm.

ÚTAUKNING (á við um kraga):
Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn innan við síðustu l – í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt til að koma í veg fyrir göt.

ÚRTAKA (á við um hálsmál):
Fækkið lykkjum fyrir hálsmáli innan við allar l í garðaprjóni (þ.e.a.s. kantur að framan + þær l sem auknar eru út fyrir kraga). Öll úrtaka er gerð frá réttu þannig:
Fækkið lykkjum Á EFTIR 1 lykkju brugðið: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.
Fækkið lykkjum Á UNDAN 1 lykkju brugðið: Prjónið 2 l sl saman.
Í öllum umf á röngu er prjónuð l á eftir/á undan l í garðaprjóni brugðið, eins lengi sem lykkjum er fækkað.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 254-309-360 l (meðtaldar eru 6 kantlykkjur í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjóna nr 4 með Lima.
Prjónið 5 umf slétt (1. umf = ranga). Prjónið nú (séð frá réttu) þannig: prjónið 6 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, [* 2 l br, prjónið 2 l sl í hvora af næstu 2 l (= 4 l sl), 2 l br * endurtakið frá *-* 2 sinnum til viðbótar, 14-13-12 l br], endurtakið frá [-] alls 6-8-10 sinnum til viðbótar, síðan frá *-* 3 sinnum til viðbótar og 6 kantlykkjur að framan í garðaprjóni = 302-369-432 l. Prjónið sl yfir sl og br yfir br til baka og kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið áfram séð frá réttu) þannig: Prjónið 6 l garðaprjón,[mynstur A-1 (= 24 l), 14-13-12 br], endurtakið frá [-] 6-8-10 sinnum til viðbótar, A-1 og 6 l garðaprjón. Setjið 1 prjónamerki eftir 75-92-108 l inn frá hvorri hlið (= 152-185-216 l milli prjónamerkja á bakstykki). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist ca 5-7-9 cm (passið upp á að næsta umf sé prjónuð frá réttu), er fækkað um 1 l í öllum brugðnu einingunum með því að prjóna fyrstu 2 l br saman (þ.e.a.s. að það fækkar um 7-9-11 l í umf). Endurtakið úrtöku í 6. hverri umf 11-10-9 sinnum til viðbótar – ATH: Fækkið lykkjum í annað hvert skipti í lokin og í annað hvert skipti í byrjun á hverri brugðnu einingu. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 7-8-9 cm, byrjar úrtaka fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan! Þegar úrtöku er lokið í brugðnu einingunum eru 218-270-322 l eftir á prjóni og einungis 2 l br á milli allra A.1 (stykkið mælist nú ca 29 cm). Prjónið áfram þar til stykkið mælist ca 33-35-36 cm (passið uppá að næsta umf sé prjónuð frá réttu), nú er aukið út um 1 l í öllum brugðnu einingunum, það er gert með því að slá 1 sinni uppá prjóninn eftir síðustu br l í hverri brugðnu einingu, í næstu umf (frá röngu) er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt til þess að koma í veg fyrir göt. Endurtakið útaukningu í 6. hverri umf 3-2-2 sinnum til viðbótar – ATH: Aukið út í annað hvert skipti á undan og í annað hvert skipti á eftir allar br l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Þegar útaukningu er lokið eru 6-5-5 l br í öllum brugðnu einingunum og alls 246-297-355 l á prjóni.
LESIÐ FRAM AÐ VINSTRA FRAMSTYKKI ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!

KRAGI:
Þegar stykkið mælist 41-42-43 cm, er aukið út um 1 l í hvorri hlið VIÐ miðju að framan fyrir kraga – SJÁ ÚTAUKNING! Endurtakið útaukningu í annarri hverri umf 11 sinnum til viðbótar síðan í 4. hverri umf 6 sinnum = 18 l útauknar fyrir kraga og alls 24 l í garðaprjóni.

HÁLSMÁL:
Jafnframt, 2 cm eftir að byrjað var á útaukningu fyrir kraga, er fækkað um 1 l hvoru megin fyrir hálsmáli – SJÁ ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf 5 sinnum til viðbótar síðan í 4. hverri umf 6 sinnum (þ.e.a.s. að helmingur af mynstri A-1 í hvorri hlið fer í burtu, haldið áfram með 2 l sl í miðju mynstri þar sem áður var kaðall yfir 4 l).

HANDVEGUR:
Jafnframt þegar stykkið mælist ca 51-52-53 cm (passið uppá að næsta umf sé prjónuð frá réttu), er fellt af fyrir handveg þannig: Stærð S/M og L/XL: Fellið af 6 l í hlið (þ.e.a.s. 3 l hvoru megin við prjónamerki í hliðum). Stærð XXL/XXXL: Fellið af 7 l í hlið, þ.e.a.s þær 5 l br þar sem prjónamerki er + 1 l hvoru megin við þær. Hvort stykki er nú prjónað fyrir sig.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Nú er fellt af fyrir handveg í byrjun hverrar umf frá hlið: Fellið af 3 l 0-1-3 sinnum, 2 l 3-3-4 sinnum og 1 l 5-4-6 sinnum. Eftir úrtöku fyrir handveg og hálsmáli og útaukningu fyrir kraga eru 55-66-70 l eftir á öxl. Í öllum stærðum eru nú ½ mynstureining eftir af A-1 við háls fyrir kraga, í minnstu stærðum er einnig ½ mynstureining fyrir handveg. Haldið áfram með mynstur eins og áður með 1 kantlykkju í garðaprjóni við handveg. Þegar stykkið mælist ca 70-73-76 cm, stillið af eftir eina heila eða hálfa mynstureiningu af A-1 á hæðina, fellið af 3 l jafnt yfir þær hálfu mynstureiningarnar og 6 l jafnt yfir þær heilu (þ.e.a.s. það fækkar alls um 6-9-9 l) = 49-57-61 l.
Í næstu umf frá réttu eru felldar af fyrstu 25-33-37 l fyrir öxl, prjónið nú síðustu 24 l í garðaprjóni. Prjónið garðaprjón fram og til baka yfir l fyrir kraga þannig: * Prjónið 2 umf yfir allar l, 2 umf yfir einungis 18 síðustu l (við miðju að framan)*, endurtakið frá *-* þar til kraginn mælist ca 5½ cm lengst inn þar sem þar sem hann er minnstur, fellið af.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Prjónið á sama hátt og vinstra framstykki, nema spegilmynd. Eftir að l fyrir öxl hafa verið felldar af (frá réttu svo að það eru prjónaðar jafn margar umf á báðum framstykkjum), verður að klippa þráðinn áður en kraginn er prjónaður áfram.

BAKSTYKKI:
= 114-139-167 l. Fellið af fyrir handveg í byrjun hverrar umf í hvorri hlið á sama hátt og á framstykki = 92-113-121 l. Haldið áfram með mynstur með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist ca 68-71-74 cm (stillið af þannig að síðasta umf sem prjónuð var 1 umf brugðin merkt með 1 ör í mynstri). Í næstu umf (= frá réttu) eru felldar af miðju 24-23-23 l fyrir hálsmáli, prjónið út umf, hvor öxl er prjónuð fyrir sig í mynstri.

VINSTRI ÖXL:
Prjónið 1 umf til baka frá röngu, fellið af 2 l í byrjun á næstu umf (= við hálsmál) = 32-43-47 l. Prjónið 1 umf frá röngu. Í næstu umf (= rétta) er fækkað um af 3 l jafnt yfir yfir hálfa mynstureiningu af A-1 og 6 l jafnt yfir heila mynstureiningu af A-1 (þ.e.a.s. að það fækkar um 6-9-9 l alls) = 26-34-38 l. Fellið af í næstu umf (= ranga).
Það er 1 l fleiri á öxl á bakstykki en á framstykki, þar sem kraginn verður saumaður innan við 1 l á bakstykki.

HÆGRI ÖXL:
Byrjið frá miðju að aftan, þ.e.a.s. frá röngu, fellið af 2 l í byrjun umf (= 32-43-47 l eftir á öxl). Prjónið 1 umf frá réttu og 1 umf frá röngu. Í næstu umf (= frá réttu) er fækkað um 3 l jafnt yfir yfir hálfa mynstureiningu af A-1 og 6 l jafnt yfir heila mynstureiningu af A-1 ( þ.e.a.s. að það fækkar um 6-9-9 l alls) = 26-34-38 l. Fellið af í næstu umf (= ranga).

ERMI:
Fyrst er prjónaður kantur/mynstur á ermar þversum, fram og til baka á hringprjóna.

KANTUR Á ERMUM:
Fitjið upp 22 l á hringprjóna nr 4 með Lima.
Prjónið 1 umf slétt frá röngu. Næsta umf er prjónuð þannig: Prjónið 1 l GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 l br, prjónið 2 l sl í hvora af næstu 2 l (= 4 l sl), 2 l br *, endurtakið frá *-* 2 sinnum til viðbótar, endið með 3 l garðaprjón = 28 l. Prjónið 1 umf til baka frá röngu með sl yfir sl og br yfir br og 1 l garðaprjón í annarri hliðinni og 3 l garðaprjón í hinni hliðinni. Haldið áfram með mynstur A-1 þar til prjónaðar hafa verið 4-4-5 mynstureiningar á hæðina, prjónið síðan 2 fyrstu umf í A-1 einu sinni til viðbótar (stykkið mælist ca 24-24-30 cm). Næsta umf er prjónuð (= frá réttu) þannig: Prjónið 1 l garðaprjón, * 2 l br, 2 l sl saman, 2 l sl saman, 2 l br *, endurtakið frá *-* 2 sinnum til viðbótar og endið með 3 l garðaprjón = 22 l. Prjónið 1 umf slétt frá röngu yfir allar l, fellið síðan af. Kanturinn er ca 10 m breiður, haldið áfram með ermi.

ERMI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna nr 4.
Prjónið upp l meðfram þeirri hlið þar sem einungis er 1 l garðaprjón – prjónið upp 1 l í annarri hverri umf sem er í garðaprjóni. Prjónið 1 umf slétt til baka frá röngu jafnframt sem lykkjufjöldinn er jafnaður að 52-54-62 l. Prjónið nú 1 umf slétt frá réttu, haldið áfram í sléttprjóni með röngu út. Þegar stykkið mælist alls 15 cm, er aukið út um 1 l í hvorri hlið. Endurtakið útaukningu með 3-2-2 cm millibili 10-13-13 sinnum til viðbótar = 74-82-90 l. Þegar stykkið mælist 48-45-43 cm (styttri mæling í stærri stærðum vegna víðari handvegs og breiðari axla), fellið af fyrir ermakúpu í byrjun hverrar umf í hvorri hlið: 4 l 1 sinni, 2 l 3 sinnum og 1 l 6-7-9 sinnum, fellið nú af 2 l á hvorri hlið þar til stykkið mælist 57-55-54 cm, fellið nú af 3 l 1 sinni hvoru megin. Fellið af þær l sem eftir eru, stykkið mælist ca 58-56-55 cm.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlarsauma.
Saumið saman kraga á miðju að aftan og saumið hann fastan við hálsmálið innan við 1 kantlykkju. Saumið ermasauma – kantur á ermum er saumaður kant í kant (uppfitjunarkantur á móti affellingarkanti) svo saumurinn verði ekki of þykkur, afgangur af ermi er saumaður innan við 1 kantlykkju. Saumið ermarnar í fram- og bakstykki og saumið tölur í.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = setjið 1 lykkju á hjálparprjón aftan við stykkið, 2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið af hjálparprjóni
symbols = setjið 2 lykkjur á hjálparprjón framan við stykkið, 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt af hjálparprjóni
symbols = setjið 2 lykkjur á hjálparprjón aftan við stykkið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt af hjálparprjóni
symbols = setjið 2 lykkjur á hjálparprjón framan við stykkið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt af hjálparprjóni
symbols = setjið 2 lykkjur á hjálparprjón aftan við stykkið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið af hjálparprjóni
symbols = setjið 2 lykkjur á hjálparprjón framan við stykkið, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt af hjálparprjóni
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Celtica

Rebecca McDonough, United States

Celtica

Inga Sõelsepp, Estonia

Celtica

Lineke, Netherlands

Nightingowl's Celtica

Ronja, Germany

Celtica

Lilly Smuul‎, Ireland

Skrifaðu athugasemd um DROPS 143-1

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (468)

country flag Barbara Michel wrote:

Sehr schönes Modell, gute Anleitung. Ich bin nur an einer Stelle ins Stolpern gersten: für das Ärmelband sollen für Größe S 4 Mustersätze gestrickt werden. Das ergibt bei mir eine Länge von 48 cm, statt 24 cm. Ich habe auf 2 Mustersätze verkürzt. Ist die Angabe in der Anleitung korrekt?

04.02.2024 - 12:01

DROPS Design answered:

Liebe Frau Michel, stimmt Ihre Maschenprobe? Beachen Sie, daß alle Reihen im Diagram gezeichnet sind. Beachen Sie, daß alle Reihen im Diagram gezeichnet sind. 2 Reihen am Anfang + 4 x 16 Reihen M.1 + 2 Reihen = 68 Reihen mit 28 Reihen = 10 cm soll die Arbeit ca 24 cm messen. Viel Spaß beim stricken!

05.02.2024 - 09:21

country flag Lilian Lingwood wrote:

To the right of the chart there are two arrows. What do those arrows mean? Beautiful pattern.

04.08.2023 - 21:54

DROPS Design answered:

Dear Lilian, these arrows specify the position of the pattern - see pattern text. Happy knitting!

05.08.2023 - 15:42

country flag Petra wrote:

Am Ende der Vorderteile soll der Kragen weitergestrickt werden mit je * 2 R 24 M und je 2 R 18 M * . *-* Was mache ich mit den 6 M, wenn ich nur 18 stricke?

12.05.2023 - 22:08

DROPS Design answered:

Liebe Petra, für den Kragen strickt man verkürzten Reihen, so daß die innen Seite (die am Halsausschnitt (Rückenteil) genäht wird) kürzer als die außen Seite wird. So strickt man 2 Reihen über alle Maschen und 2 Reihen über nur 18 Maschen (die 6 übrigen Maschen werden nicht gestrickt). Viel Spaß beim stricken!

15.05.2023 - 07:57

country flag Nansku wrote:

Tuleeko vasemman etukappaleen kavennukset aloittaa samaan aikaan kun kauhuksen lisäykset?

14.12.2022 - 11:54

DROPS Design answered:

Hei, vasemman etukappaleen kavennukset aloitetaan vasta, kun työ on jaettu kädenteitä varten.

09.01.2023 - 14:10

country flag Anna wrote:

Hello. Do you have the pattern in German?

26.08.2022 - 05:50

DROPS Design answered:

Dear Anna, sure, all our patterns are available in German - click on the scroll down menu below the photo to edit language. Happy knitting!

26.08.2022 - 09:48

country flag Silvia wrote:

Grazie x la risposta, caspita,devo rifare tutta la giacca , perché se sono 16 ferri andata e ritorno ho sbagliato completamente la treccia

22.06.2022 - 10:17

country flag Silvia wrote:

Buongiorno sono sempre Silvia, si,so che i polsini sono lavorati a parte, non capisco le 4 ripetizioni....il diagramma è formato da 16 ferri di andata,che con il ritorno fanno 32 ferri, giusto?... Ma se lavoro 32 ferri x 4 volte viene un polsino lunghissimo e di conseguenza troppo largo .. non capisco cosa non mi quadra... grazie ancora x la risposta

21.06.2022 - 13:00

DROPS Design answered:

Buongiorno Silvia, i diagrammi DROPS mostrano tutti i ferri/giri del motivo, sia di andatache ritorno. Buon lavoro!

22.06.2022 - 08:56

country flag Silvia wrote:

Gentilissimi buonasera,lamia prima domanda sul modello è stata più di un anno fa, risposta chiarissima,solo che la giacca l'ho iniziata 15 gg fa....sono agli Scalfi,penso di aver capito,la mia domanda riguarda i polsini....4 ripetizioni del diagramma , non sono troppe,?verrebbe un polsino larghissimo.,... Come si contano queste ripetizioni? Grazie per la risposta

19.06.2022 - 17:29

DROPS Design answered:

Buonasera Silvia, i polsini sono lavorati a parte e sono formati da una striscia con delle ripetizioni del diagramma A.1, poi vengono riprese le maglie e si lavorano le maniche. Nel suo caso deve lavorare 4 ripetizioni del diagramma. Buon lavoro!

19.06.2022 - 23:13

country flag Stephanie wrote:

I am totally baffled by this instruction for the Left Front Piece: When piece measures approx. 70-73-76 cm / 27½"-28 3/4"-30", stop after one whole or half repetition of A-1 vertically, dec 3 sts evenly over the half repetitions and 6 sts evenly over the whole ones (i.e. dec 6-9-9 sts in total) = 49-57-61 sts. How can dec 3 sts then dec 6 sts = 6sts in total?

03.04.2022 - 20:56

DROPS Design answered:

Dear Stephanie, you decrease 3 stitches over the half repeat of A.1 and decrease 6 sts over the whole repeats; ie in in first size you decrease only 6 sts. Happy knitting!

04.04.2022 - 10:41

country flag Marielle JACQUEMIN wrote:

Le bas de la veste me paraît large?

14.03.2022 - 11:01