Martha |
|||||||||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Karisma með berustykki, mynstri og bótum á ermum. Stærð S-XXXL
DROPS 143-11 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka á hringprjóna): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A-1 og A-2. Mynstrið er prjónað í sléttprjóni og sýnir 1 mynstureiningu af mynstri. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 192-208-232-260-284-312 l á hringprjóna nr 3 með litnum dökk bleikvínrauður DROPS Karisma. Prjónið 1 umf stroff (1. umf = réttan) þannig: Prjónið 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan,* 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* þar til 3 l eru eftir, prjónið 2 l sl og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Þegar prjónuð hefur verið 1 umf með litnum dökk bleikvínrauður, er skipt yfir í litinn beige/brúnn. Haldið áfram að prjóna stroff þar til það mælist 4 cm. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4 og prjónið 1 umf slétt jafnframt er fækkað um 22-26-26-30-30-34 l jafnt yfir = 170-182-206-230-254-278 l. Setjið 1 prjónamerki eftir 43-46-52-58-64-70 l inn frá hvorri hlið (= 84-90-102-114-126-138 l milli prjónamerkja á bakstykki). Haldið áfram í sléttprjóni með litnum beige/brúnn. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist ca 10 cm, er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerki í hliðum. Endurtakið úrtöku með 4 cm millibili 2 sinnum til viðbótar = 158-170-194-218-242-266 m. Þegar stykkið mælist 22-23-24-25-26-27 cm, er aukið út um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin. Endurtakið útaukningu með 5 cm millibili 2 sinnum til viðbótar = 170-182-206-230-254-278 l. Þegar stykkið mælist 38-39-40-41-42-43 cm, fellið af 10 l í hvorri hlið fyrir handveg í næstu umf frá réttu (þ.e.a.s. 5 l hvoru megin við prjónamerki í hliðum)= 150-162-186-210-234-258 l. Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 52-56-56-60-64-64 l með litnum dökk bleikvínrauður á sokkaprjóna nr 3. Prjónið 1 umf stroff = 2 l sl, 2 l br. Skiptið yfir í litinn beige/brúnn, haldið áfram með stroff þar til stykkið mælist 6 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 4, prjónið 1 umf sléttprjón jafnframt er fækkað um 4-8-8-0-4-4 l jafnt yfir = 48-48-48-60-60-60 l. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf = miðja undir ermi. Haldið áfram með mynstur A-2, síðan er haldið áfram að prjóna ermi með litnum beige/brúnn. Þegar stykkið mælist 10-10-12-10-10-12 cm, er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki við miðju undir ermi. Endurtakið útaukningu með 3-2½-2-3-2½-2 cm millibili 11-13-15-11-13-15 sinnum til viðbótar = 72-76-80-84-88-92 l. Þegar stykkið mælist 47 cm í öllum stærðum, fellið af 10 l undir við miðju, þ.e.a.s. 5 l hvoru megin við prjónamerki =62-66-70-74-78-82 l. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið inn ermar á sama hringprjón nr 4 eins og fram- og bakstykki = 274-294-326-358-390-422 l (ekki prjóna l þegar þær eru settar á prjóninn). Prjónið 1 umf brugðið frá röngu með litnum beige/brúnn jafnframt er fækkað um 8-4-12-8-4-12 l jafnt yfir = 266-290-314-350-386-410 l. Prjónið 0-2-4-2-4-8 umf til viðbótar í sléttprjóni með litnum beige/brúnn, áður en haldið er áfram með mynstur A-1 (1. umf = rétta) með 1 kantlykkju í hvorri hlið – sjá mynstur í þinni stærð! Eftir úrtöku eru 90-98-106-118-130-138 l á prjóni og stykkið mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm upp að öxl. Prjónið nú upphækkun að aftan með litnum beige/brúnn þannig: Prjónið 52-56-60-66-72-76 l sl, snúið við, prjónið 14 l br til baka, snúið við, prjónið 21 l sl, snúið við, prjónið 28 l br. Haldið áfram að prjóna yfir 7 l fleiri í hvert skipti áður en snúið er við þar til prjónað hefur verið yfir alls 70-70-84-84-98-98 l, snúið við og prjónið út umf. Nú er prjónuð 1 umf brugðið frá röngu yfir allar l jafnframt þar sem fellt er af 6-10-14-22-30-34 l jafnt yfir = 84-88-92-96-100-104 l. Setjið l á þráð, hálsmálið er prjónað eftir að kantur að framan hefur verið prjónaður. VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN: Listi að framan er prjónaður fram og til baka á hringprjóna nr 3. Prjónið upp ca 144 til 168 l (deilanlegt með 4) innan við 1 kantlykkju meðfram vinstri kanti að framan með litnum beige/brúnn. Prjónið stroff frá röngu þannig: Prjónið 1 l garðaprjón, * 2 l br, 1 l sl *, endurtakið frá *-*, endið með 2 l br og 1 l garðaprjóni. Frá réttu byrjar og endar stroffið með 2 l sl og 1 l garðaprjóni. Haldið áfram með sl yfir sl og br yfir br þar til stroffið mælist 3 cm, fellið af með sl yfir sl og br yfir br. HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN: Prjónið á sama hátt og vinstri kantur að framan, en eftir 1 cm er fellt af fyrir 7 hnappagötum jafnt yfir (hnappagötin eru felld af í brugðnu einingunum séð frá réttu). 1 HNAPPAGAT = prjónið 2 l br saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn – efsta hnappagatið á að vera ca 6-7 cm ofanfrá (það á að vera 1 hnappagat í kanti við hálsmál) og neðsta ca 5-6 cm frá neðri kanti. HÁLSMÁL: Hálsmálið er prjónað fram og til baka með litnum beige/brúnn á hringprjóna nr 3 þannig: Prjónið upp 6 l af hægri kanti að framan (innan við 1 kantlykkju), prjónið inn þær 84-88-92-96-100-104 l af þræði í kringum hálsmálið og prjónið upp 6 l af vinstri kanti að framan = 96-100-104-108-112-116 l. Prjónið stroff (1. umf = ranga) þannig: Prjónið 1 l garðaprjón, * 2 l br, 2 l sl *, endurtakið frá *-*, endið með 2 l br og 1 l garðaprjón. Haldið áfram með sl yfir sl og br yfir br með 1 l garðaprjón í hvorri hlið. Þegar hálsmálið mælist 1 cm, fellið af fyrir 1 hnappagati fyrir ofan hin hnappagötin í hægri kanti að framan. Haldið áfram með stoff þar til hálsmálið mælist alls 3 cm, fellið af með sl yfir sl og br yfir br. BÓT Á ERMI: Bótin er prjónuð í garðaprjóni fram og til baka með litnum dökk bleikvínrauður á 2 sokkaprjóna nr 3. Fitjið upp 10 l. Prjónið 1 umf slétt, í næstu umf er aukið út með 1 l hvoru megin með því að slá 1 sinni uppá prjóninn innan við síðustu l, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt til þess að sleppa við göt. Endurtakið útaukningu í annarri hverri umf 3 sinnum til viðbótar og síðan í 4. hverri umf 2 sinnum = 22 l. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 12 cm, nú er fækkað um 1 l í hvorri hlið með því að prjóna 2 síðustu l sl saman. Endurtakið úrtöku í 4. hverri umf 1 sinni til viðbótar og síðan í annarri hverri umf 4 sinnum = 10 l eftir. Fellið af, bótin mælist nú ca 15 cm á hæðina og 10 cm á breiddina. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum og saumið tölur í. Saumið bæturnar fastar á ermarnar með litnum beige/brúnn og stingsaum innan við ystu l. Bæturnar eru saumaðar á ca 21 cm frá neðri hluta ermar og ca 2-3 cm frá prjónamerki við miðju undir og á móti aftari hluta ermar. Festið gjarna bótina á með nálum fyrst og prufið peysuna til þess að sjá hvort bótin sitji á réttum stað áður en hún er saumuð á. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (76)
Ine wrote:
Ik vind het vest en de kleurencombinatie prachtig!
31.05.2012 - 22:41Riet wrote:
Mooie kleuren en praktisch model.
31.05.2012 - 21:54Gabriele wrote:
Toll!
31.05.2012 - 21:46Liliane wrote:
Kleurencombinatie is zeer mooi!
31.05.2012 - 19:30Francis wrote:
Erg mooi model en de kleuren zijn fantastisch !
31.05.2012 - 16:54Gabriela wrote:
Just lovely!
31.05.2012 - 15:19