DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
DROPS Super Sale
DROPS 141-26
DROPS Design: Mynstur nr bs-026
Garnflokkur A + A
--------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS BABYALPACA SILK frá Garnstudio
350-350-400-450-500-550 gr litur nr 8465m, milligrár
Og einnig:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio
150-150-175-200-225-225 gr litur nr 10, grár

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 l og 22 umf með sléttprjóni með 1 þræði af hvorri tegund verði på 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A-1. Báðar umf í mynstri sýna mynstur séð frá réttu.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka í 2 stykkjum sem saumuð eru saman að lokum. Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Vinstra bakstykki og framstykki eru prjónuð í eitt frá miðju að aftan á baki.

VINSTRA STYKKI:
Fitjið upp 108-108-119-119-130-130 l á hringprjóna nr 5 með 1 þræði af hvorri tegund. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan! Næsta umf er prjónuð (= frá réttu) þannig: Prjónið 3 kantlykkjur í garðaprjóni, 2 l sl (prjónaðar í sléttprjóni til loka), mynstur A.1 alls 9-9-10-10-11-11 sinnum, endið með 4 kantlykkjum í garðaprjóni. Haldið áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 13-14-15-16-17-18 cm er felld af síðasta kantlykkjan í umf (séð frá réttu) = 107-107-118-118-129-129 l. Haldið áfram með mynstur. Þegar stykkið mælist 83-84-85-86-87-88 cm er fitjuð upp ein ný kantlykkja í lok umf (séð frá réttu) = 108-108-119-119-130-130 l. Prjónið þar til stykkið mælist 96-98-100-102-104-106 cm. Haldið áfram með mynstur, JAFNFRAMT er prjónuð stuttar umferðir (1. umf = frá réttu) þannig: Prjónið þar til 10 l eru eftir á prjóni, snúið við og prjónið til baka. Prjónið þar til 16 l eru eftir á prjóni, snúið við og prjónið til baka. Prjónið þar til 21 l er eftir á prjóni, snúið við og prjónið til baka. Haldið áfram með stuttar umferðir, fyrir hvert skipti sem prjónað er frá réttu er prjónað yfir í annað hvert skipti 5 og í annað hvert skipti 6 l færri en í fyrri umferð með stuttum umferðum. Haldið áfram með stuttar umferðir þar til prjónaðar hafa verið stuttar umferðir yfir allar l (síðasta stutta umferðin er prjónuð yfir 11 l), prjónið 4 umf garðaprjón yfir allar l, fellið af.

HÆGRA STYKKI:
Prjónið á sama hátt og vinstra stykki, nema spegilmynd, 1. umf með mynstri er prjónuð – frá réttu þannig: Prjónið 4 kantlykkjur í garðaprjóni, 2 l sl (prjónaðar í sléttprjóni til loka), A.1 alls 9-9-10-10-11-11 sinnum, endið með 3 kantlykkjum í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 13-14-15-16-17-18 cm er felld af fyrsta kantlykkjan í umf (séð frá réttu). Þegar stykkið mælist 83-84-85-86-87-88 cm er fitjuð upp ein ný kantlykkja í byrjun umf (séð frá réttu). Þegar prjónaðar hafa verið stuttar umferðir er prjónað með byrjun frá röngu.

FRÁGANGUR:
Sjá mynsturteikningu: Saumið A við A og B við B. Saumið D við D. Saumið C við C, en endið þegar 25 cm eru eftir (= klauf).

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni, 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjurnar
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 141-26

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (29)

country flag Lelletta wrote:

Ora tutto è chiaro! Ho compreso cosa intendevate con l'alternanza delle 5 -6 maglie Vi ringrazio!!!

07.09.2015 - 18:13

country flag Lelletta wrote:

Buonasera! Sto lavorando questo capo ma non mi è molto chiara la spiegazione dei ferri accorciati. Il ferro di ritorno va lavorato fino alla fine? E lavorare 5 e 6 maglie in meno cosa vuol dire? Insomma non ho capito quasi nulla, aiutatemi per favore!!Non potete aggiungere nelle spiegazioni o mettere qui uno schema da seguire come avete fatto per esempio nel cappellino 115/32 con cui non ho avuto alcun problema? Grazie!

07.09.2015 - 00:21

DROPS Design answered:

Buongiorno Lelletta, i ferri accorciati vanno lavorati sul diritto del lavoro, i ferri di ritorno fino si lavorano su tutte le maglie. Si parte lavorando fino a quando mancano 10 m alla fine del f, girare e lavorare il ferro di ritorno. Sul f successivo sul diritto del lavoro, lavorare fino a quando rimangono 16 m alla fine del f, girare e lavorare il ferro di ritorno. Sul f accorciato successivo lavorerà fino a quando rimangono 21 m, su quello successivo ancora fino a quando rimangono 27 m e così via, fino a quando arriverà a lavorare un f solo su 11 m. Ci riscriva se non è chiaro. Buon lavoro!

07.09.2015 - 12:00

country flag Paugam Giorgia wrote:

Sur la deuxième photo (la jeune femme nous tourne le dos) on dirait que le gilet a été enfilé à l'envers car le point ne semble pas être celui indiqué par le diagramme. Ai-je raison ou bien j'interprète mal les instructions? Merci de votre aide.

20.08.2015 - 16:41

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Giorgia, sur la 2ème photo, on voit bien le motif tel que dans A.1 soit : 3 m env, le motif ajouré sur 3 m, 3 m env, 2 m end (vu sur l'endroit). Bon tricot!

20.08.2015 - 18:22

country flag Cheryl Coplevitch wrote:

I am having difficulty reading the pattern. Can someone please clarify after the 4 rows garter stitch. Is it 3 edge stitch, then k2 then stocking stitch, then 2 rows pattern. Please help

06.08.2015 - 01:26

DROPS Design answered:

Dear Mrs Coplevitch, on left front piece after the 4 rows in garter st you work in pattern like this starting from RS: 3 edge sts in garter st (= K every row), then K 2 (= 2 sts in stocking st), then repeat A.1 a total of 9-10-11 times (see your size) starting at the bottom corner on the right side, read from the right towards the left from RS (= from the left towards the right from RS), and 4 sts in garter st (= K every row). Happy knitting!

06.08.2015 - 09:32

country flag Dilianne wrote:

Dus als ik het goed begrijp moet ik de 1e nld. tot 10 steken voor het eind breien, keren en terug breien en dan in de 3e nld. die 10 steken van de 1e nld. + 6 steken uit de 3e nld. niet breien en de 4e nld. wederom gewoon terug breien etc.?

11.09.2014 - 10:56

DROPS Design answered:

Hoi Diliane. Ja, dat klopt. Je krijgt steeds minder steken voor het keren.

11.09.2014 - 17:23

country flag Dilianne wrote:

Vraagje: bij dit vest moet ik verkorte toeren breien (basis). Klopt het dat ik in de 1e nld. bijv. de laatste 10 stkn. niet brei, de teruggaande nld. brei om dan vervolgens in de 3e en 4e nld. wederom alle steken te breien?

10.09.2014 - 10:44

DROPS Design answered:

Hoi Diliane. Ja, je breit in de eerste nld tot er 10 st over zijn, keer en brei terug (je breit dus deze 10 st niet). Dan tot er 16 st over zijn, dan 21, 27, 32 en zo voort (dwz, afwisselend met 5 en 6 st minder) tot verkorte toeren zijn gebreid over alle st (laatste verkorte toer wordt over 11 st gebreid). Pas dan brei je 4 nld ribbelst over ALLE st.

10.09.2014 - 15:09

country flag Dilianne wrote:

Kan het zijn dat er bij dit patroon iets niet klopt? Dat in patroon A1 alleen de heengaande nld. staan aangegeven? Op de foto is het resultaat heel anders dan wat ik op dit moment heb (de foto geeft meer rechte naalden aan, zonder patroon en dan een keer een patroon naald). Graag zo spoedig mogelijk een reactie omdat ik graag verder wil. Alvast hartelijk dank.

28.07.2014 - 08:31

DROPS Design answered:

Alle naalden staan weergeven, dus u herhaalt steeds deze twee naalden. Dat komt overeen met het patroon op de foto.

28.07.2014 - 09:47

country flag Antonella wrote:

Bisogna proprio usare i ferri circolari?

13.02.2014 - 18:25

DROPS Design answered:

Buongiorno Antonella. Non è indispensabile lavorare sui ferri circolari: la lavorazione è avanti indietro, quindi può usare i ferri dritti se preferisce. Vengono consigliati i circolari per avere maggiore spazio per tutte le m. Buon lavoro!

14.02.2014 - 12:42

country flag Vera Van Mechelen wrote:

Hallo, ben bezig dit patroon te breien met mooi resultaat.Vindt dropspatronen fantastisch mvg Vera

05.04.2013 - 13:22

country flag Christine wrote:

Hallo, ich möchte gerne diese schöne Jacke stricken. Ich kann die Anleitung noch so oft lesen aber komme damit nicht klar....wenn ich die linke rückseite und die linke Vorderseite stricke dann weiß ich nicht wie ich dieses große Armloch stricken soll. Würde mich freuen wenn sie mir das erklären könnten. Mfg Christine

23.01.2013 - 14:27

DROPS Design answered:

Liebe Christine, dürfen wir Sie bitten, sich für individuelle Strickhilfe und Erklärung der Anleitung an den Laden zu wenden, in dem Sie die Wolle gekauft haben?

24.01.2013 - 11:30