DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS SS24

Augusta

Prjónuð peysa með stuttum ermum og norænru mynstri úr BabyAlpaca Silk eða Flora. Stærð S - XXXL

DROPS 142-18
DROPS Design: Mynstur nr bs-022
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS BABY ALPACA SILK frá Garnstudio
200-200-250-250-300-300 gr litur nr 6347, bláfjólublár
50-50-50-50-50-50 g litur nr 0100, natur
50-50-50-50-50-50 g litur nr 4314, gráfjólublár
50-50-50-50-50-50 g litur nr 8903, svartur

Eða notið:
DROPS FLORA fra Garnstudio
150-150-200-200-250-250 g litur nr 13, gallabuxnablár
50-50-50-50-50-50 g litur nr 01, natur
50-50-50-50-50-50 g litur nr 09, ametyst
50-50-50-50-50-50 g litur nr 06, svartur

DROPS HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 2,5 – eða þá stærð sem þarf til að 26 l og 34 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 2 – fyrir stroff.
DROPS SILFURTALA, NR 534: 6-6-6-7-7-7 stk.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni.

LEIÐBEININGAR-1:
Þegar A.2 er prjónað er 1 l í lok umf sem ekki gengur upp í mynstri. Þessi l er prjónuð inn í mynstrið sem fyrsta l í næstu mynstureiningu svo að mynstrið byrjar og endar eins í hvorri hlið við miðju að framan. ATH. Ekki er fellt af í þessa l.

LEIÐBEININGAR-2:
Til að koma í veg fyrir að stykkið missi teygjanleika þegar mynsturprjón er prjónað, er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir í eitt númer grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist aðeins saman.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 252-280-312-344-384-428 l hringprjóna nr 2 með litnum bláfjólublár/gallabuxnablár DROPS Baby Alpaca Silk.
Prjónið 1 umf br frá röngu, næsta umf er prjónuð þannig: Prjónið 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 l sl, 1 l br *, endurtakið frá *-* þar til 3 l eru eftir og endið með 2 l sl og 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN. Haldið svona áfram með stroff í 4 cm – passið uppá að næsta umf er prjónuð frá réttu. Skiptið yfir á hringprjóna nr 2,5 og prjónið 1 umf slétt frá réttu JAFNFRAMT er fækkað um 49-53-61-69-77-81 l jafnt yfir = 203-227-251-275-307-347 l. Næsta umf er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið A.1 þar til 2 l eru eftir, endið á 1. l í A.1 (svo að mynstrið byrji og endi eins í hvorri hlið við miðju að framan) og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað sléttprjón með bláfjólublár. Setjið 2 prjónamerki í stykkið, 51-57-63-69-77-87 l í hvorri hlið (=101-113-125-137-153-173 l á milli prjónamerkja á bakstykki). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 8 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin (= 4 l fleiri). Endurtakið útaukningu með 6-6-6-7-7-7 cm millibili, 3 sinnum til viðbótar = 219-243-267-291-323-363 l. Þegar stykkið mælist 30-31-32-33-34-35 cm eru feldar af 8 l í hvorri hlið fyrir handveg (þ.e.a.s. 4 l hvoru megin við bæði prjónamerkin) = 51-57-63-69-77-87 l á hvoru framstykki og 101-113-125-137-153-173 l á bakstykki. Geymið stykkið og prjónið kant á ermum.

KANTUR Á ERMI:
Stykkið er prjðónað í hring á hringprjóna.
Fitjið upp 84-88-96-100-104-112 l á sokkaprjóna nr 2 með litnum bláfjólublár/gallabuxnablár DROPS Baby Alpaca Silk.
Prjónið 1 umf slétt, prjónið stroff (= 2 l sl, 2 l br) í 4 cm. Næsta umf er prjónuð þannig: Fellið af 4 l í byrjun umf, prjónið sl þar til 4 l eru eftir og fellið af þessar 4 l = 76-80-88-92-96-104 l. Geymið stykkið og prjónið annan kant á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 355-387-427-459-555 l. Prjónið 2-2-4-4-4-6 umf sléttprjón með litnum bláfjólublár/gallabuxnablár (1. umf = rétta), JAFNFRAMT er fækkað um 29-27-33-31-37-42 l jafnt yfir í síðustu umf (= frá röngu) = 326-360-394-428-462-513 l. LESIÐ LEIÐBEININGAR-1 og 2 og prjónið þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið mynstur eftir A.2 (veljið mynstur fyrir rétta stærð) þar til 2 l eru eftir, endið með 1. l í A.2 og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið áfram með mynstur og úrtöku þar til A.2 hefur verið prjónað til loka á hæðina (prjónið að ör í réttri stærð) = 155-171-187-178-192-213 m.

VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Prjónið upp frá réttu ca 120 til 150 l meðfram vinstra framstykki á hringprjóna nr 2 með litnum bláfjólublár/gallabuxnablár. Prjónið 1 umf br frá röngu JAFNFRAMT er aukið út jafnt yfir til 149-157-161-169-173-181 l. Prjónið nú stroff (séð frá réttu) þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * 1 l sl, 1 l br*, endurtakið frá *-* þar til 4 l eru eftir, endið með 2 l sl og 2 kantlykkjum í garðaprjóni neðst á fram- og bakstykki. Þegar stroffið mælist 3 cm er fellt laust af með sl yfir sl og br yfir br.

HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Prjónið á sama hátt og vinstri kantur að framan, en þegar kanturinn að framan mælist ca 1 cm er fellt af fyrir 5-5-5-6-6-6 hnappagötum jafnt yfir. Efsta og neðsta hnappagatið á að vera ca 4 cm frá kanti. 1 hnappagat = prjónið 2 l saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn (fallegast er að fella af 2 l br frá réttu).

HÁLSMÁL:
Setjið l af berustykkinu á hringprjóna nr 2 og prjónið að auki upp 8 nýjar l yfir báða kantana að framan (prjónið upp frá réttu innan við 1 kantlykkju) = 171-187-203-194-208-229 l. Prjónið 1 umf br frá röngu JAFNFRAMT er fækkað um 23-31-43-26-32-49 l jafnt yfir = 148-156-160-168-176-180 l. Prjónið nú stroff frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* þar til 3 l eru eftir, endið með 2 l sl og 1 kantlykkju í garðaprjóni. JAFNFRAMT eftir 2 umf með stroffi er prjónuð upphækkun (með stroffi) aftan á hnakka þannig: Prjónið þar til 17-19-21-23-25-27 l eru eftir á prjóni, snúið við, herðið á þræði og prjónið þar til 17-19-21-23-25-27 l eru eftir hinum megin, snúið við, herðið á þræði og prjónið þar til 35-39-41-45-49-53 l eru eftir, snúið við, herðið á þræði og prjónið þar til 35-39-41-45-49-53 l eru eftir í hinni hliðinni, snúið við, herðið á þræði og prjónið þar til 53-59-61-67-73-79 l eru eftir, snúið við, herðið á þræði og prjónið þar til 53-59-61-67-73-79 l eru eftir hinum megin, snúið við. Haldið áfram með stroff eins og áður yfir allar l. JAFNFRAMT þegar hálsmálið mælist ca 1½ cm að framan, fellið af fyrir 1 hnappagati fyrir ofan hitt í hægri kanti að framan. Þegar hálsmálið mælist 4 cm að framan, fellið laust af með sl yfir sl og br yfir br.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir höndum. Saumið tölur í.

Mynstur

symbols = litur natur/natur
symbols = litur gráfjólublár/gallabuxnablár
symbols = litur bláfjólublár/ametyst
symbols = litur svartur/svartur
symbols = 2 lykkjur slétt saman með þeim lit sem prjónað er með (passið uppá að mynstrið gangi upp)
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 142-18

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (28)

country flag Ostrowsky Waltraud wrote:

Hallo können Sie mir bitte mitteilen wie oft und wieviel Maschen in der Endphase abgenommen werden da ich die Weste nur in einer Farbe stricke und somit keinen musterhaft mit den Abnahmen Vielen Dank

21.07.2022 - 09:14

DROPS Design answered:

Liebe Ostrowsky, Die Abnahmen sind in den Diagrammen mit einem schwarzen Halbdreieck gekennzeichnet. Unabhängig davon, ob Sie in einer oder vielen Farben arbeiten, werden die Abnahmen auf die gleiche Weise gestrickt.

31.07.2022 - 23:29

country flag Katarina Johansson wrote:

Rad 14 i mönster A 2 återkommer en vit ruta varannan gång i det mörka partiet. Det verkar inte stämma mot bilden på koftan?

29.01.2022 - 19:30

DROPS Design answered:

Hej Katarina, det stemmer, der mangler en hvid prik i diagrammet. Tak for info :)

03.02.2022 - 14:31

country flag Ilovedogs wrote:

Non trovo lo schema jacquard per il fondo del corpo prima del bordo a coste: devo ripetere lo schema A1 ? Come mai per lo sprone non sono indicati con le frecce i ferri in cui fare glia aumenti? Mi rendo conto che lo schema è stato inserito parecchio tempo fa', ma sarebbe molto utile se venisse corretto...

05.01.2022 - 09:26

DROPS Design answered:

Buongiorno Ilovedogs, il motivo da seguire all'inizio dopo il bordo a coste è il motivo A.1. Per quanto riguarda lo sprone, gli aumenti sono lavorati all'interno di A.2. Buon lavoro!

05.01.2022 - 10:45

country flag Christel Felgendreher wrote:

Ich würde das Model Augusta 142-18 gerne von oben nach unten stricken. gibt es dafür eine ANLEITUNG ??

09.03.2020 - 21:31

DROPS Design answered:

Liebe Frau Felgendreher, siehe Antwort unten :)

10.03.2020 - 10:26

country flag Christel wrote:

Ich würde das Drops Model Augusta 142-18 gerne von oben nach unten stricken. Gibt es dafür auch eine Anleitung??

09.03.2020 - 21:25

DROPS Design answered:

Liebe Christel, leider können wir nicht jede Anleitung nach jedem Wunsch umrechnen, aber hier finden Sie Jacken, die von oben nach unten gestrickt werden, davon können Sie sich sicher inspierieren. Viel Spaß beim stricken!

10.03.2020 - 10:17

country flag Pam wrote:

Hi. Thank you for your very quick response. I have done as you suggested and measured it against an existing cardigan. It is slightly smaller but it will be fine. Thanks for help. I love Drops yarn and use it for all my projects, especially colour work.

07.03.2019 - 14:44

country flag Pam Edmiston wrote:

I love knitting with Baby Alpaca Silk, probably my favourite yarn ever. I also love Augusta, very pretty little cardigan.....but the size seems wrong. My tension is fine but it just looks so small. I started knitting size 14/16. Looked and measured too small. Switched to 18/20 and it still looks and measured too small. Does the knitted fabric have lots of stretch of us it meant to be a very close fit?

07.03.2019 - 13:23

DROPS Design answered:

Dear Mrs Edmiston, measure a similar garment you have and like the shape and compare these measurements to the ones given in the chart, this is the best way to get the finished measurements as long as our tension is right. read more about sizing here. Happy knitting!

07.03.2019 - 14:04

country flag Mamieflo wrote:

J'ai tricoté ce pull il y a 4 ans, me suis lancée dans du jacquard, malheureusement il m'était un peu juste au niveau du jacquard car cela resserre un peu , je l'ai offert à ma première petite fille, un peu à regret car il me plaisait beaucoup

20.05.2017 - 18:28

country flag Susanne Riisgaard Rasmussen wrote:

Opskr. 142-18. Forstår ikke: strikketips: "når A2 strikkes vil der være 1 maske i slutningen..... denne maske strikkes ind i mønsteret som første maske i næste rapport - er det første maske i næste pind eller er det første maske på samme pind?????? kan ikke få det til at passe. ender med 4 m plus kantmaske i en ende og 5 m plus kantmaske i anden ende ): ): hjælp - hjælp.....

11.11.2015 - 13:38

DROPS Design answered:

Hej Susanne, jo, når du har strikket A2 har du 1 m tilbage og den strikker du ifølge 1.m i A2 så mønsteret bliver ens i begge sider mod midt foran. God fornøjelse!

26.11.2015 - 09:18

country flag Ingunn Flaaterud wrote:

Nydelig jakke! Finnes denne som vest, dvs. uten knapper/stolper?

31.08.2014 - 07:54