DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 447.00 kr /50g
DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
DROPS Symphony
DROPS Symphony
65% Ull, 35% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Super Sale

Warm Banjo

Prjónað hundavesti / vesti / peysa fyrir hund úr DROPS Fabel og DROPS BabyMerino með köntum í DROPS Symphony. Stærð XS – L.

DROPS Extra 0-835
DROPS Design: Mynstur nr fa-188
Garnflokkur A + A
-----------------------------------------------------------

Stærð:
XS - S – M – L

Mál:
Yfirvídd: ca 28/32-40/44-50/54-60/66 cm
Lengd á bakstykki: ca 24/26-32/34-40/42-48/52 cm

Dæmi um hundategundir:
XS = Chihuahua, S = Bichon Frisé, M = Cocker Spaniel, L = Irsk Setter

GARN:
DROPS FABEL frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
50-100-100-150 g litur 161, bleikur draumur
Og einnig:
DROPS BABY MERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
50-100-100-150 g litur 05, ljós bleikur
Og einnig:
DROPS SYMPHONY frá Garnstudio
50-50-50-50 g litur 01, natur

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4.5: lengd 40 cm og 60 cm).
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4,5.
HEKLUNÁL NR 4.

TÖLUR:
DROPS TALA: 4 st ca ca 2½ cm að þvermáli.

PRJÓNFESTA:
18 lykkjur á breidd og 23 umferðir á hæð með sléttprjóni með 1 þræði Fabel + 1 þræði Baby Merino = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 447.00 kr /50g
DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
DROPS Symphony
DROPS Symphony
65% Ull, 35% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

ÚTAUKNING:
Aukið er út innan við 2 lykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið. Aukið er út með því að taka upp lykkju frá fyrri umferð og prjónað hana jafnóðum inn í stroffprjón.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

VESTI / PEYSA FYRIR HUND - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna í stærð XS og á hringprjóna í öðrum stærðum, prjónað er frá hálsmáli og niður.

VESTI / PEYSA FYRIR HUND:
Fitjið upp 40-55-70-85 lykkjur á sokkaprjóna / hringprjóna 4,5 með DROPS Symphony.
Prjónið stroffprjón 3 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið í 5-8-11-14 cm (= hálsmál). Skiptið yfir í 1 þráð Fabel + 1 þráð Baby Merino – HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT! Haldið áfram í stroffprjóni í 2-4-6-8 cm. Í næstu umferð eru allar 3 lykkjur slétt auknar út til 4 lykkjur slétt = 48-66-84-102 lykkjur. Þegar stykkið mælist 6-9-12-15 cm, skiptist stykkið fyrir op fyrir framfætur þannig: Setjið fyrstu 10-16-22-28 lykkjur á þráð – það eiga að vera 4 lykkjur slétt í byrjun og í lokin á þræði = 38-50-62-74 lykkjur á prjóni. Haldið áfram með bakstykki.

BAKSTYKKI:
Prjónið stroffprjón áfram fram og til baka með 2 lykkjur GARÐAPRJÓN í hvorri hlið – lesið útskýringu að ofan! JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu, aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið – lesið ÚTAUKNING! Endurtakið útaukningu í hverri umferð frá réttu 5-11-11-17 sinnum til viðbótar = 50-74-86-110 lykkjur. Stykkið mælist nú ca 12-19-22-31 cm. Í næstu umferð frá réttu er fellt af fyrir 1 hnappagati í hvorri hlið þannig: Fellið af 2 miðju sléttu lykkjur í ystu einingu með sléttum lykkjum í hvorri hlið og fitjið upp 2 nýjar lykkjur yfir lykkjur sem felldar voru af í næstu umferð. Endurtakið affellingu fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist 16-24-28-37 cm. Þegar stykkið mælist 19-26-32-38 cm fellið af í byrjun á hverri umferð: 2 lykkjur 7-9-11-14 sinnum í hvorri hlið = 22-38-42-54 lykkjur. Fellið síðan af þær lykkjur sem eftir eru. Stykkið mælist nú ca 30-42-53-64 cm ásamt hálsmáli.

MAGASTYKKI:
Setjið lykkjur af þræði til baka á prjón 4,5, prjónið að auki upp 2 lykkjur í hvorri hlið á bakhlið á 2 lykkjum garðaprjóni sem eru prjónaðar á bakstykki = 14-20-26-32 lykkjur. Prjónið stroffprjón með 1 þræði Fabel + 1 þræði Baby Merino fram og til baka með 2 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið.
Fellið af þegar magastykkið mælist 13-17-20-23 cm.

HEKLAÐUR KANTUR:
Heklið með heklunál 4 með Symphony í kringum allt bakstykkið og magastykkið þannig: 1 fastalykkja, * 3 loftlykkjur, hoppið yfir ca 1 cm, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-*, endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju.

FRÁGANGUR:
Saumið 4 tölur í magastykkið, 2 í hvorri hlið, þannig að þær passi við hnappagötin á bakstykki.

LEIÐBEININGAR:
Mátið vestið / peysuna á hundinn, ef stykkið er of vítt er hægt að sauma 2 tölur í miðju á magastykki og í báðum hliðum á bakstykki og tölum er hneppt í sömu hnappagötin.

Brettið hálsmálið niður tvöfalt.

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-835

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (21)

country flag Dorine Anselme wrote:

Bonjour, je bloque au niveau de: mesurer à partir d'ici, je doit tricoter en Côte 8 cm et au tour suivant augmenter 1 m end et ds toutes les sections 3 m end pour un total de 102m Je ne comprends pas, dois-je augmenter des deux côtés de 1 ou 3 mailles Merci.

23.01.2022 - 00:40

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Anselme, vous devez maintenant augmenter le nombre de mailles dans les sections 3 mailles endroit des côtes pour tricoter désormais en côtes 4 mailles endroit, 2 mailles envers. Vous pouvez augmenter au début de chaque section en mailles endroit par exemple en faisant 1 jeté -tricotez ce jeté torse à l'endroit au tour suivant; vous allez ainsi augmenter 17 mailles et continuer en côtes 4 mailles endroit, 2 mailles envers sur les 102 mailles obtenues. Bon tricot!

24.01.2022 - 10:39

country flag Lisen Hillestad wrote:

Hei! Jeg begynner nå fellingen på ryggstykket. 2 m "på hver pinne" - vil det si at man også skal felle på vrangen?

10.02.2021 - 11:27

DROPS Design answered:

Hei Lisen, Ja, du feller både på retten og vrangen. God fornøyelse!

11.02.2021 - 07:23

country flag Sine wrote:

Guten Tag, leider ist keine Skizze dabei. Ich weiß nicht wie der Pullover von unten aussieht, und habe daher keine Ahnung , wie ich die Unterseite vernähen soll. Ich habe einiges ausprobiert, dass aber nicht funktionierte. Ich habe keine Vorstellung wie die Teile zusammengehören, so das es passt. Danke für ihre Hilfe.

06.01.2021 - 18:02

DROPS Design answered:

Liebe Sine, wir haben dafür auch keine Skizze. Das untere Teil wird als Einzelteil gestrickt: die stillgelegten Maschen + 2 Maschen beidseitig hinter die Maschen vom Rückenteil aufgefassen dann wie zuvor Bündchen mit 2 Maschen kraus rechts beidseitig stricken und dann nach 13-23 cm (siehe Größe) abketten. Die Knöpfe werden dann auf beiden Seiten genäht (passend zu den Knopflöchern vom Rückenteil). Hoffentlich kann es Ihnen weiterhelfen. Viel Spaß beim stricken!

07.01.2021 - 09:39

country flag Esti Tomson wrote:

Am l reading correctly in saying your yarns are not available in Canada? What a crime! Esti

06.04.2019 - 08:22

DROPS Design answered:

Dear Mrs Tomson, please find here our DROPS retailer in/for Canada. Happy knitting!

08.04.2019 - 10:34

country flag Angela wrote:

I loved this pattern. So happy it had buttons as it is much easier to put on. The small size fit my Brussels Griffon perfectly, no sizing adjustments needed. Thank you.

27.01.2019 - 00:12

country flag Anne wrote:

Hallo, ich habe ein Problem die Anleitung zu lesen. Ich habe das Unterteil auf den Hilfsfaden und will nun das Rückenteil stricken. Ich habe 38 M auf der Nadel und soll 5 mal Maschen auf beide Seiten aufnehmen. Das ergibt bei mir nur 48 M. Wie komme ich auf die 50M? Lieben Dank für die Hilfe. Anne

27.09.2018 - 22:20

DROPS Design answered:

Liebe Anne, Sie sollen insgesamt 6 Mal zunehmen = 12 Maschen werden insgesamt zugenommen - Deutsche Anleitung wird bald korrigiert. Viel Spaß beim stricken!

28.09.2018 - 08:33

country flag Anne wrote:

Hello, my sister is knitting this pattern. She is at the point to bind off the first time. She slipped the stitches to a stitch holder. Her working yarn is on the stitch holder! What did she do wrong? Please help. I’m reading the pattern and cannot figure it out. Thank you, Anne (and Annette) in Canada

18.12.2017 - 19:30

DROPS Design answered:

Dear Anne and Anette, when dividing piece for front (stomach) and back piece, she can work the first sts before slipping them on a stitch holder, so that she doesn't have to cut the yarn. Happy knitting!

19.12.2017 - 08:17

country flag Susan wrote:

Don't know what the following means? " Knit in addition up 2 sts in each side at the back of the 2 sts in garter st worked on back piece = 14-20-26-32 sts. " Am I adding two additional stitches to each side in garter stitch? Am I Attaching to the back piece? For how many rows? Is finished piece measured with neck folded? Would greatly appreciate your help.. Thank you.

16.09.2017 - 01:01

DROPS Design answered:

Dear Susan, knit up sitches means you should be picking up stitches into the back loop of the garter stitch you knitted earlier on the back. I hope this helps. Happy Knitting!

18.09.2017 - 00:27

country flag Bonnie wrote:

Is the chest dimension supposed to be the circumference or diameter of the dogs chest? Thank you.

22.12.2016 - 17:35

DROPS Design answered:

Dear Bonnie, the chest dimension is the circumference of the dog around chest. Happy knitting!

22.12.2016 - 18:21

June wrote:

Where is the stitches for the second leg I only see where u take off for 1 leg

20.12.2016 - 01:59

DROPS Design answered:

Dear Mrs June, you don't cast off sts for legs, only slip the first 10-16-22-28 sts on a st holder for front piece (stomach) and then work each piece separately . When you will work below piece you will pick up 2 sts on each side (in sts on back piece). Happy knitting!

20.12.2016 - 09:18