DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1232.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale
DROPS Extra 0-834
DROPS Design: Mynstur U-655
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Stærð: XS - S - M

Mál:
Yfirvídd: ca 28/32 – 40/44 – 48/52 cm
Lengd á bakstykki: ca 24 – 32 - 40 cm
Fyrir hundategundir: XS = Chihuahua,
S = Bichon Frisé, M = Cocker Spaniel

Efni:
DROPS Karisma frá Garnstudio
50-100-150 gr litur nr 05, svartur
50-50-100 gr litur nr 21, milligrár

DROPS HRINGPRJÓNN NR 3,5 (40 cm) (sokkaprjónar fyrir minnstu stærðina) – eða þá stærð sem þarf til að 22 l og 30 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 cm) NR 3 fyrir stroff.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1232.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu M.1 til M.5. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni.

STROFF:
* 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-*.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA FYRIR HUND - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna/hringprjón frá hálsmáli og niður að opi fyrir framfætur. Stykkið skiptist síðan upp við op fyrir framfætur og stykkin eru prjónuð fram og til baka hvort fyrir sig. Síðan eru stykkin sett saman og prjónuð í hring. Í lokin er prjónað fram og til baka niður að skotti. Kantur í kringum op fyrir framfætur er prjónaður í hring á sokkaprjóna.

PEYSA FYRIR HUND:
Fitjið upp 52-72-92 lykkjur á sokkaprjóna nr 3 með litnum svartur. Prjónið STROFF – sjá útskýringu að ofan – í 6-8-10 cm (= hálsmál). Skiptið yfir á stutta hringprjóna nr 3,5 (sokkaprjónar fyrir minnstu stærðina), prjónið 1 umferð sléttprjón jafnframt er aukið út um 8-12-16 lykkjur jafnt yfir = 60-84-108 lykkjur.

Prjónið síðan mynstur þannig:
Stærð XS: M.1, M.2 og M.3
Stærð S: M.1, M.2, M.3 og M.4
Stærð M: M.1, M.2, M.3, M.4 og M.5.

JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 10-14-18 cm (frá uppfitjunarkanti) skiptist stykkið við op fyrir framfætur þannig: Fellið af 1 lykkju, setjið 11-11-23 lykkjur á þráð (= magastykki), fellið af 1 lykkju, síðan er haldið áfram með mynstur fram og til baka yfir þær 47-71-83 lykkjur sem eftir eru (= bakstykki).
Þegar stykkið mælist alls 16-22-28 cm (op mælist ca 6-8-10 cm) setjið lykkjur á þráð. Setjið til baka lykkjur af þræði frá magastykki aftur á prjóninn og prjónið mynstur jafnt langt og á bakstykki yfir þessar lykkjur. Setjið allar lykkjur aftur á sama prjón og fitjið upp 1 nýja lykkju í hvorri hlið á milli maga- og bakstykkis = 60-84-108 lykkjur. Prjónið mynstur til loka, haldið síðan áfram með litnum milligrár til loka. Þegar stykkið mælist 19-27-35 cm eru felldar af 9-13-17 lykkjur mitt undir maga. Prjónið síðan stykkið til loka fram og til baka – jafnframt er fellt af í hvorri hlið í annarri hverri umferð: 2 l 1-2-3 sinnum, 1 lykkja 8-9-10 sinnum, 2 lykkjur 1-2-3 sinnum og 3 lykkjur 1 sinni = 21-31-41 lykkjur eftir á prjóni. Stykkið mælist nú ca 27-37-47 cm.

FRÁGANGUR:
Setjið þær lykkjur sem eftir eru á hringprjón nr 3, prjónið að auki upp lykkjur í kringum affellingarkantinn þannig að það verða ca 84-108-140 lykkjur á prjóni. Prjónið stroff með litnum milligrár í 2½ -3-3 cm, fellið laust af.

KANTUR Í KRINGUM OP FYRIR FRAMFÓT:
Prjónið upp ca 36-44-52 lykkjur á sokkaprjón 3 með litnum svartur í kringum allt opið fyrir annan framfótinn. Prjónið stroffprjón í 3-4-6 cm, fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Prjónið kant í kringum hitt opið fyrir framfót á sama hátt.

Brettið hálsmálið niður tvöfalt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 26.02.2019
Leiðrétting:..Prjónið síðan mynstur þannig: Stærð XS: M.1, M.2 og M.3 Stærð S: M.1, M.2, M.3 og M.4 Stærð M: M.1, M.2, M.3, M.4 og M.5.

Mynstur

symbols = svartur
symbols = milligrár
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Adventure Hike

Bianca, Netherlands

Adventure Hike

@knits_by_kamila, Poland

778. Adventure Hike

Olajda, Norway

Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-834

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (53)

country flag Stricklulu wrote:

Hallo, bis jetzt bin ich super zurecht gekommen mit dem muster! Aber aber mit dem letzten teil komme ich nicht klar die beinöffnungen sind gestrickt und der rest des musters und nun hängt sich mein hirn aus:was bedeutet die 2m 123mal 1m 8910 mal 2m 123 mal und 3m 1mal? Damit kann ich überhaupt nichts anfangen! Bitte um hilfe ich will schnell weitermachen.

08.01.2015 - 21:16

DROPS Design answered:

Das bezieht sich auf die verschiedenen Größen: 1-2-3 x, 8-9-10 x usw. steht jeweils für Gr. XS-S-M, Sie wählen also die Zahl, die zu der gewählten Größe passt. Sie müssen beidseitig abketten, je 2 M ketten Sie je nach Größe beidseitig 1x, 2x oder 3x ab, danach ketten Sie beidseitig je 1 M 8x, 9x oder 10x ab, danach dann beidseitig je 2 M 1x, 2x oder 3x und zuletzt je 3 M 1x.

08.01.2015 - 22:22

country flag Wernitznig Beate wrote:

Hab ihre strickanleitung für den rotweissen norwegerpulli vor mir ...werde bei Anleitung zu beinausschnitten leider nicht schlau...der hund hat doch 2 Vorderbeine...es steht leider nur eine maschenanzahl für 1 bein drin...also stimmt die restliche anleitung leider nicht mehr

13.12.2014 - 18:29

DROPS Design answered:

Doch, die Anleitung stimmt. Die Ausschnitte für die Beine ergeben sich an der Stelle, an der Sie jeweils 1 M abnehmen und zwar dadurch, dass Sie zuerst das Rückenteil und dann den Teil unter dem Bauch getrennt stricken. Dann schlagen Sie an den beiden Stellen, an denen Sie diesen "Schlitz" gestrickt haben, ja wieder 1 M an und stricken in Rd weiter. Die Schlitze sind die Beinausschnitte. Wie unter "Bein" beschrieben, fassen Sie dann M auf und stricken die Beine.

14.12.2014 - 14:00

country flag Ines Arenas wrote:

En las instrucciones de este patron hay un error. Cuando explica que hay que dividir la labor para hacer las mangas dice que en la espalda quedan 47 puntos y en realidad quedan 51 puntos en la talla xs. Creo que puede ayudarles o interesarles esta opinion. Muchas gracias por colgar estos patrones tan maravillosos.

12.12.2014 - 00:00

DROPS Design answered:

Hola Inés! Si a los 60 pts que tenemos le restamos 1 que cerramos, los 11 que deslizamos y 1 más que cerramos el total sería 60 - 13 = 47. Creo que el patrón está correcto.

13.12.2014 - 11:31

country flag Claudia wrote:

Hallo, wenn ich das Rückenteil in hin und Rückreihe stricke, wie passt bei 71Maschen das Muster denn noch, dieses besteht doch aus 12Maschen ?? Müsste ich dann nicht 72 Maschen für das Rückenteil haben ?

27.06.2014 - 14:17

DROPS Design answered:

Antwort siehe unten! :-)

29.06.2014 - 14:06

country flag Claudia wrote:

Hallo, wenn ich das Rückenteil in hin und Rückreihe stricke, wie passt bei 71Maschen das Muster denn noch, dieses besteht doch aus 12Maschen ?? Müsste ich dann nicht 72 Maschen für das Rückenteil haben ?

27.06.2014 - 14:17

DROPS Design answered:

Liebe Claudia, Sie müssen ja nun die Beinöffnungen einarbeiten, daher ketten Sie insgesamt 2 M ab und das Muster geht dann nicht mehr ganz auf, Sie stricken es einfach beim letzten Rapport über 1 M weniger. Nach den Öffnungen für die Vorderbeine schlagen Sie diese beiden M ja wieder an und das Muster geht wieder auf.

28.06.2014 - 19:53

country flag Bernadette Condesso wrote:

I can't seem to be able to print any of the patterns. Suggestions?

18.04.2014 - 20:49

DROPS Design answered:

Dear Mrs Condesso, when you click on "print: pattern" a new window will open, take care that your browser allows this window, you will see an add in this window, then just click on "print pattern" to launch printing. Happy knitting!

19.04.2014 - 10:02

country flag Patricia wrote:

Hallo , jetzt hab ich auch ein Problem mit der Anleitung :( Lege ich nur einmal elf Maschen für die Vorderbeine auf einen hilsfaden und passt das später für beide Beine? Oder muß ich doch zwei mal elf Maschen still legen ? Liebe grüße und vielen Dank für eure Hilfe ^^

07.01.2014 - 13:33

DROPS Design answered:

Liebe Patricia, die 11 M sind für den Teil unter dem Bauch, der später gestickt wird. Sie stricken zunächst den Rücken, dann den Bauch. Zwischen diesen Teilen wurde je 1 M abgeketet, das ergibt die Öffnung (Schlitz) für die Vorderbeine.

08.01.2014 - 10:12

country flag Melidott wrote:

Hrjhej! Upptäckte ett litet fel i beskrivningen. Jag stickade tröjan i storlek M, det behövs 3 nystan av den gråa färgen och 2 nystan i svart! Men annals Blevins den jättefin :) tack!

01.01.2014 - 22:21

country flag Asaja wrote:

Liebes Drops Design-Team, leider verstehe ich ab der Aufteilung für Bauch und Rücken die Anleitung nicht mehr. Ich stricke mit einer Rundstricknadel; wenn ich 23 Maschen auf einen Hilfsfaden lege - muss ich dann einfach weiter rund Stricken? Oder muss ich hin und her stricken, und zum Nadelspiel wechseln? Und wie kann ich dann das Muster weiter stricken? So viele Fragen, aber ich kann es mir ohne Bilder / Video nicht vorstellen. Vielen Dank! Asaja

27.11.2013 - 21:40

DROPS Design answered:

Liebe Asaja, bei der Öffnung für die Vorderbeine können Sie nicht weiterhin rund stricken, sondern teilen die Arbeit und stricken Rücken- und Vorderteil über ein Stück separat. Dann wird wieder alles auf eine Rundnadel gelegt und zunächst in Runden weitergestrickt. Das Muster wird auch bei dem Teil in Hin-und Rück-R weitergestrickt (jede 2. Muster-R ist dann eine Rück-R).

28.11.2013 - 08:06

Sarah wrote:

J'aimerais savoir comment nous faisons les trous pour les pattes. Je ne comprends pas qu'il faut glisser 23 mailles mais juste une fois.

03.01.2013 - 02:07

DROPS Design answered:

Bonjour Sarah, à 18 cm (grande taille), vous divisez l'ouvrage pour les pattes avant : vous rabattez 1 m (ouverture patte), glissez les 23 m suivantes en attente, rabattez 1 m (2ème patte) et tricotez le dos sur les mailles suivantes pendant 10 cm. Vous reprenez ensuite les 23 m du devant et tricotez 10 cm aussi avant de monter 1 m de chaque côté et de joindre aux mailles du dos pour continuer en rond et terminer le manteau. Bon tricot !

03.01.2013 - 09:18