DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2750.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Winter Woof

Prjónuð hundapeysa / peysa fyrir hund úr DROPS Snow. Stykkið er prjónað frá skotti að hálsi. Stærð XS-L.

DROPS 102-44
DROPS Design: Mynstur nr ee-002-h
Garnflokkur E eða C + C
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS –S – M – L

MÁL:
Yfirvídd: ca 23-37-43-53 cm
Lengd á bakstykki: ca 27-33-41-49, mælt meðfram baki.

Dæmi um hundategundir:
XS = Chihuahua, S = Bichon Frisé,
M = Cocker Spaniel, L = Border Collie

GARN:
DROPS SNOW frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki E)
100-150-200-200 g litur 84, páfuglablár

PRJÓNAR FYRIR STÆRÐ XS - S:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 7: Lengd 40 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 6: Lengd 40 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 7.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 6.

PRJÓNAR FYRIR STÆRÐ M - L:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 7: Lengd 40 cm og 60 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 6: Lengd 40 cm og 60 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 6.

PRJÓNFESTA:
12 lykkjur á breidd og 16 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2750.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

ÚTAUKNING:
Aukið er út á hvorri öxl þannig:
Aukið út á undan brugðnu lykkjunni (á undan 2 lykkjur slétt, mitt á öxl) og á eftir brugðnu lykkjunni (á eftir 2 lykkjur slétt, mitt á öxl). Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður brugðið. Aukið er út um 2 lykkjur á hvorri öxl (= 4 lykkjur í hverri útauknings umferð), það verða fleiri og fleiri lykkjur brugðið á hvorri öxl.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA FYRIR HUND - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring ofan frá og niður, berustykkið skiptist fyrir opi fyrir framfætur og fram- og bakstykki. Fram- og bakstykki er prjónað í hring, eftir það er stykkið prjónað fram og til baka með stuttum umferðum yfir bakstykki. Síðan er prjónað stroffprjón í hring neðst á peysunni. Í lokin er prjónað í hringum framfætur í hring á sokkaprjóna.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 28-40-48-56 lykkjur á sokkaprjón / hringprjón 6 með DROPS Snow.
Prjónið mismunandi eftir stærðum þannig:
STÆRÐ XS - S - L:
1 lykkja slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* og endið með 2 lykkjur brugðið og 1 lykkju slétt.
STÆRÐ M:
1 lykkja brugðið, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, prjónið frá *-* og endið með 2 lykkjur slétt og 1 lykkju brugðið.
ALLAR STÆRÐIR:
Haldið áfram í stroffprjóni í 6-6-8-8 cm, byrjun á umferð er mitt undir magastykki.

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir í sokkaprjóna / hringprjón 7, prjónið 1 umferð slétt og 1 umferð brugðið.
Setjið eitt prjónamerki til að mæla stykkið frá.
Næsta umferð er prjónuð þannig: 1-1-3-5 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt (= mitt á öxl), 2 lykkjur brugðið, 14-26-30-34 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt (= mitt á öxl), 2 lykkjur brugðið og 1-1-3-5 lykkjur slétt. Haldið áfram með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur – jafnframt í fyrstu umferð er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 6 lykkjur í stroffprjóni á hvorri öxl – lesið ÚTAUKNING. Aukið út um 1 lykkju í hverri umferð alls 7-7-8-7 sinnum, eftir það í 2. hverri umferð alls 0-1-2-4 sinnum = 56-72-88-100 lykkjur. Prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til stykkið mælist ca 5-6-8-10 cm frá prjónamerki.
Nú skiptist stykkið fyrir op fyrir framfætur þannig: Prjónið 3-5-7-9 lykkjur slétt (hálft magastykki), prjónið næstu 16-18-24-26 lykkjur slétt og setjið þær síðan á þráð fyrir framfót, prjónið 18-26-26-30 lykkjur slétt (bakstykki), prjónið næstu 16-18-24-26 lykkjur slétt og setjið þær síðan á þráð fyrir framfót og prjónið síðan þær 3-5-7-9 lykkjur sem eftir eru í umferð (hálft magastykki).
Setjið 1 nýtt prjónamerki til að mæla fram- og bakstykki frá, setjið það í mitt bakstykki.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Nú eru prjónaðar 2 umferðir fram og til baka yfir lykkjur frá magastykki þannig: Prjónið fyrstu 3-5-7-9 lykkjur slétt, snúið stykkinu. Prjónið 6-10-14-18 lykkjur brugðið, snúið stykkinu.
Prjónið næst 3-5-7-9 lykkjur slétt, setjið einn merkiþráð hér – byrjun á umferð (= mitt undir maga).
Nú er prjónað í hring frá réttu þannig:
Prjónið 3-5-7-9 lykkjur slétt, fitjið upp 2-4-6-8 nýjar lykkjur á prjóninn, prjónið 18-26-26-30 lykkjur slétt, fitjið upp 2-4-6-8 nýjar lykkjur á prjóninn, prjónið 3-5-7-9 lykkjur slétt = 28-44-52-64 lykkjur.
Prjónið sléttprjón hringinn þar til fram- og bakstykki mælist 3-6-8-10 cm frá prjónamerki.
Prjónið yfir fyrstu 3-6-8-10 lykkjur og setjið þær á þráð saman með síðustu 3-6-8-10 lykkjur í umferð (6-12-16-20 lykkjur mitt undir magastykki).
Prjónið sléttprjón út umferðina, snúið stykkinu. Nú er prjónað fram og til baka þannig:
UMFERÐ 1 (ranga): Lyftið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, herðið á þræði og prjónið brugðið út umferðina, snúið stykkinu.
UMFERÐ 2 (rétta): Lyftið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, herðið á þræði og prjónið slétt þar til 1 lykkja er eftir, snúið stykkinu.
Haldið áfram fram og til baka eins og útskýrt er að ofan og snúið við 1 lykkju fyrr í hverri umferð.
Prjónið þar til snúið hefur verið við alls 7-7-8-10 sinnum í hvorri hlið og síðasta umferð sé prjónuð yfir 8-18-20-24 lykkjur (mitt á bakstykki). Fram- og bakstykki mælist ca 13-16-19-24 cm frá prjónamerki á bakstykki. Setjið allar lykkjur til baka á prjóninn = 28-44-52-64 lykkjur.
Klippið þráðinn og byrjið frá byrjun á umferð (mitt undir magastykki) og prjónið 1 umferð brugðið yfir allar lykkjur – til að koma í veg fyrir göt þar sem stykkinu var snúið við, er hægt að taka þráðinn upp á milli þessa lykkja og prjóna þráðinn saman með næstu lykkju. Skiptið yfir á hringprjón 6 og prjónið stroffprjón hringinn (2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 3-5-6-7 cm. Fellið aðeins laust af. Fram- og bakstykki mælist 16-21-25-31 cm frá prjónamerki á bakstykki. Peysan mælist alls 27-33-41-49 cm frá uppfitjunarkanti til affellingarkants (mælt meðfram bakstykki).

FRAMFÓTUR:
Notið sokkaprjóna 6, setjið 16-18-24-26 lykkjur frá öðrum þræðinum á prjóninn, prjónið til viðbótar upp 4-6-8-10 lykkjur í lykkjurnar sem fitjaðar voru upp eftir berustykki = 20-24-32-36 lykkjur. Prjónið hringinn í stroffprjóni (2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) – passið uppá að 2 lykkjur slétt frá mitt á öxl sé prjónað slétt í stroffprjóni. Prjónið þar til stykkið mælist 3-6-8-10 cm, fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Endurtakið í kringum hitt opið fyrir framfót á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 07.11.2023
Mynstrið hefur verið endurskoðað og umorðað.
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Winter Woof

Juli, Canada

Winter Woof

Doris, Germany

Winter Woof

Hermina, Netherlands

Skrifaðu athugasemd um DROPS 102-44

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (20)

country flag Lucia Battisti wrote:

Buongiorno sono arrivata alla lavorazione del corpo (precisamente al punto dove dice "continuare in piano come segue :") , non capisco cosa significa tirare il filo. Grazie

04.04.2024 - 11:19

DROPS Design answered:

Buonasera Lucia, deve tirare il filo perchè c'è una maglia passata. Buon lavoro!

04.04.2024 - 23:30

country flag Ivana wrote:

Hola, para talla M según el patrón desde el cuello hasta la apertura de la manga son 13cm (31-18=13) y después 10cm elástico un total de 23cmMANGA No se corresponde con la foto y si es talla S tampoco .segun el patrón la manga es larguísima. Gracias

05.10.2022 - 09:20

DROPS Design answered:

Hola Ivana, la manga o pata del jersey son solamente los 10 cm del elástico. Los 13 cm son del dibujo del cuerpo, y no la propia pata. Ten en cuenta que los tamaños de los perros son aproximados y hay mucha variación entre razas, por lo que puede que sea necesario ajustar las medidas de ciertas partes para cada perro.

09.10.2022 - 23:01

country flag Deborah wrote:

For a size L you need how many balls of \"snow\"yarn? It says 300g for L =6 balls? Also, my dog is 44 lb 26\" chest will the L size be ok... should I use larger needle us 11? Also, some comments said the US English instructions were difficult to follow. Have the directions been clarified? Thank you for your help. I am an advanced beginner., but I would really like to try this sweater pattern for my dog, Beau!

23.08.2022 - 08:40

DROPS Design answered:

Dear Deborah, correct you will need 300 g DROPS Snow / 50 g a ball = 6 balls for a size L. Check the measurements give for each size to find the appropriate size. Read the pattern and feel free to use this space to ask your questions if you have some. Happy knitting!

23.08.2022 - 13:30

country flag Doris wrote:

Die kleinste Größe S passt auch meiner Katze!

24.07.2022 - 16:18

country flag Trine Ergarth wrote:

Super flot trøje, men jeg synes ikke billedet viser, hvor lang halsen er på denne model

24.01.2022 - 15:00

country flag Annelouise wrote:

Er i tvivl om udtagningerne. Er det kun på hveranden pind eller er det på de første 8 pinde, hvorefter man så bare fortsætter ribben til arbejdet måler hvad det skal?

21.12.2021 - 11:07

DROPS Design answered:

Hei Annelouise. Du øker 1 maske på hver side av de 2 feltene med 2vrang-2rett-2vrang. Du øker på hver 2.pinne 8 ganger (=16 omganger). mvh DROPS Design

21.12.2021 - 13:48

country flag Chantal wrote:

Bonjour est-ce que je peut prendre des aiguilles normal .pourquoi bou ron aiguille circulaire merci

28.01.2021 - 18:34

DROPS Design answered:

Bonjour Chantal, vous trouverez ici une leçon donnant quelques astuces sur les aiguilles circulaires et comment adapter un modèle sur aiguilles droites. Bon tricot!

29.01.2021 - 07:41

country flag Jonna wrote:

Ohjeesta puuttuu ennen helmaresoria nurja ja oikea kerros.

19.11.2020 - 21:35

country flag Ma wrote:

The pattern is Very difficult to understand for beginner.

13.10.2019 - 09:38

country flag Mia wrote:

I love garn studio’s design however very difficult to understand with way of writing pattern.wish if pattern is written like US pattern which step by step all Row.

13.10.2019 - 09:37