DROPS Andes
DROPS Andes
65% Ull, 35% Alpakka
frá 1408.00 kr /100g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 14080.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS Extra 0-819
DROPS Design: Mynstur nr EE-410
--------------------------------------------------------

PEYSA:
Stærð: S/M - L - XL – XXL

GARN:
DROPS ANDES frá Garnstudio
700-800-900-1000 g litur nr 0519, dökk grár

HÚFA:
Stærð: Ein stærð.

GARN:
DROPS ANDES frá Garnstudio
100 g litur nr 0519, dökk grár

HÁLSKLÚTUR:
Mál: ca 18 x 150 cm

GARN:
DROPS ANDES frá Garnstudio
200 g litur nr 0519, dökk grár

PRJÓNAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG PRJÓNAR NR 9.
10 lykkjur á breidd og 14 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 8: Lengd 40 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 8.
11 lykkjur á breidd og 15 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNFESTA:
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Andes
DROPS Andes
65% Ull, 35% Alpakka
frá 1408.00 kr /100g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 14080.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka sem síðan er saumað saman í lokin.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 50-54-58-62 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjóna 9 með DROPS Andes og prjónið sléttprjón. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 10 cm er aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið í 12. hverjum cm alls 3 sinnum = 56-60-64-68 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 41-42-43-44 cm fellið af fyrir handveg í hvorri hlið í annarri hverri umferð: 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 0-0-1-1 sinnum og 1 lykkja 2-3-2-3 sinnum = 46-48-50-52 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 57-59-61-63 cm fellið af miðju 8-10-10-10 lykkjur fyrir hálsmáli. Haldið áfram með hvort stykki fyrir sig. Fellið síðan af í byrjun hverrar umferðar frá hálsmáli: 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 2 sinnum = 15-15-16-17 lykkjur eftir á hvorri öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 64-66-68-70 cm.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið eins og framstykki. Fellið af fyrir handveg á sama hátt og á framstykki og prjónið áfram þar til stykkið mælist 62-64-66-68 cm. Nú eru felldar af miðju 14-16-16-16 lykkjur fyrir hálsmáli. Haldið áfram með hvora hlið fyrir sig. Í næstu umferð er felld af að auki 1 lykkja við hálsmál = 15-15-16-17 lykkjur eftir á hvorri öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 64-66-68-70 cm.

ERMI:
Fitjið upp 25-25-26-26 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjón 9 með DROPS Andes og prjónið áfram í sléttprjóni.
Jafnframt þegar stykkið mælist 11-12-13-14 cm er aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið með 4-3,5-3,5-3 cm millibili alls 10-11-11-12 sinnum = 45-47-48-50 lykkjur. Þegar ermin mælist 49-49-50-50 cm fellið af fyrir ermakúpu í hvorri hlið í annarri hverri umferð: 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkja 3-3-2-3 sinnum, síðan eru felldar af 2 lykkjur í hvorri hlið þar til stykkið mælist 56-57-59-60 cm að lokum eru felldar af 3 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru, stykkið mælist ca 57-58-60-61 cm.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Prjónið upp ca 48 til 52 lykkjur á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 9 með DROPS Andes (passið uppá að prjóna upp í lykkjurnar en ekki á milli – þetta er gert til að koma í veg fyrir göt). Prjónið sléttprjón hringinn. Þegar kantur í hálsmáli mælist 8-10 cm, fellið af.

FRÁGANGUR:
Saumið ermar í. Saumið erma og hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju.

-------------------------------------------------------

HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna / sokkaprjóna.

HÚFA:
Fitjið upp 56 lykkjur á hringprjón 8 með DROPS Andes.
Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið í 5 umferðir.
Haldið áfram í sléttprjóni hringinn þar til stykkið mælist ca 18 cm. Haldið síðan áfram í sléttprjóni JAFNFRAMT er lykkjum fækkað þannig:
Næsta umferð: * 2 lykkjur slétt saman, 5 lykkjur slétt *, endurtakið frá *-* = 48 lykkjur.
Prjónið 1 umferð slétt.
Næsta umferð: * 2 lykkjur slétt saman, 4 lykkjur slétt *, endurtakið frá *-* = 40 lykkjur.
Prjónið 1 umferð slétt.
Næsta umferð: * 2 lykkjur slétt saman, 3 lykkjur slétt *, endurtakið frá *-* = 32 lykkjur.
Prjónið 1 umferð slétt.
Næsta umferð: * 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt *, endurtakið frá *-* = 24 lykkjur.
Prjónið 1 umferð slétt.
Í næstu 2 umferðum eru allar lykkjur prjónaðar 2 og 2 slétt saman = 6 lykkjur eftir.
Klippið þráðinn og þræðið í 2 sinnum í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel.

-------------------------------------------------------

HÁLSKLÚTUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka.

HÁLSKLÚTUR:
Fitjið upp 22 lykkjur á prjón 8 með DROPS Andes.
Prjónið stroff með 2 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið þannig:
UMFERÐ 1: 2 lykkjur slétt, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* 4 sinnum, 4 lykkjur slétt.
UMFERÐ 2: 2 lykkjur slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, endurtakið frá *-* 4 sinnum, 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt.
Endurtakið umferð 1 og 2.
Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur þar til stykkið mælist ca 150 cm.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-819

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (44)

country flag RP wrote:

In het patroon bij het voorpand staat: Meerder bij een hoogte van 10 cm 1 st aan iedere kant iedere 12 cm in totaal 3 keer = 56-60-64-68 st. Wordt hiermee bedoeld dat je op een hoogte van 10cm, 24 cm(10+12) en 36 cm (24+12) 1 st aan iedere kant moet meerderen? En moet er na de 1e st en voor de laatste st op de naald aan de zijkanten worden gemeerderd of op een andere plaats tussen de steken op de naald? Alvast bedankt voor het antwoord!

23.11.2023 - 10:04

DROPS Design answered:

Dag RP,

Ja klopt, je meerdert de eerste keer op 10 cm, 12 cm verderop meerder je nog een tot slot nog eens 12 cm verderop meerderen. Je meerdert aan elke zijkant, dus inderdaad na de eerste steek en voor de laatste steek op de naald.

25.11.2023 - 09:14

country flag Ivy wrote:

If I were to use a circular needle for the front and back ? 9mm, but how long in/cm should the circular needles be? I will use 9mm x 16 in circular for the sleeves, correct?

30.12.2020 - 16:31

DROPS Design answered:

Dear Ivy, you can use a long circular needle 31.5 inches/80 cm for body. For sleeve you might use double pointed needles at the beginning and/or use magic loop. Happy knitting!

04.01.2021 - 13:07

country flag Jane W Collins wrote:

May I add short rows in back to make the back longer?

25.10.2020 - 18:49

DROPS Design answered:

Dear Jane! Yes, why not? That is actually a really good idea! Happy knitting!

25.10.2020 - 21:26

country flag Lara wrote:

Estou a fazer este modelo em agulhas circulares e não queria de fazer as mangas à parte. Já entendi que tenho de fazer as instruções ao contrário, mas estou a ter dificuldades em perceber quantas malhas deixo em espera. Qual a vossa sugestão? Já agora para o tamanho S, nas cavas, arremato 3malhas numa volta, faço uma voltade meia e depois 2voltas com 1malha arrematada, certo?

27.09.2020 - 17:43

DROPS Design answered:

Boa tarde, Obrigado pelo seu interesse nos nossos modelos, Infelizmente, não podemos ajudá-la quanto à sua pergunta porque se trata de uma versão alterada de um modelo. Se adicionou ao número de malhas do corpo, o número de malhas das duas mangas, talvez seja de colocar essas malhas em espera (de cada lado da peça). Quanto aos arremates, são feitos volta sim, volta não, como indica. Bom Tricô!

28.09.2020 - 16:30

country flag Gail Cunningham wrote:

The instructions say "with Andes cast on..." .Is this just referring to the yarn or is this a specific type of cast on?

18.08.2020 - 01:46

DROPS Design answered:

Hi Gail, This is the name of the yarn. Happy knitting!

18.08.2020 - 07:21

country flag Ivy wrote:

About how many stitches would be left to bind off once the length of the sleeve cap is achieved? Thanks and sorry for all the questions!

21.01.2020 - 23:59

DROPS Design answered:

Dear Ivy, the number of remaining stitches will vary depending on your tension in height (and size worked), make sure you cast off the same number of stitches on each side - most important here is length = measurements and not the number of stitches. Happy knitting!

22.01.2020 - 09:46

country flag Ivy wrote:

The front worked out perfectly according to the inches given after the armholes were bound off.

18.01.2020 - 22:48

country flag Ivy wrote:

Sleeves - I see in the pattern that once you reach your length and then bind off for armholes - the measurement is about 2.75 inches but mine is more like 4 + inches. I did 3 st - once, 2st - 2 times, 1 st - 3 times and then 2st each side . This makes 14 rows of knitting which measures actually about 4.5 inches in length. This is far more than 2.75 inches?

18.01.2020 - 22:41

DROPS Design answered:

Dear Ivy, the sleeve cap should measure 8-9-10-11 cm which are 3.15-3.54-3.94-4.33 inches - does your tension match in height? you should have 15 rows = 4". Happy knitting!

20.01.2020 - 09:07

country flag Ivy wrote:

Thanks so much for your reply to my questions - love the pattern!

18.01.2020 - 12:44

country flag Ivy wrote:

I have knit the body and sleeves longer. I measured my son from armpit to wrist and armpit to waist and knit accordingly to the length the sleeves and body of sweater needs to be. Should I also make the sleeve cap a few rows longer and the chest portion of the front and back of the sweater a few rows longer as well?

17.01.2020 - 03:08

DROPS Design answered:

Dear Ivy, when adding length to the body, this extra length should be added before armholes, so that you can keep the correct measurements on armholes and top of sleeve/sleeve cap. Happy knitting!

17.01.2020 - 09:07