DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
DROPS Cotton Viscose
DROPS Cotton Viscose
54% Bómull, 46% Viscose
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS SS24

Blues

Hekluð peysa úr DROPS Safran og DROPS Cotton Viscose með ferningum og röndum. Stærð S-XXXL.

DROPS 136-23
DROPS Design: Mynstur nr E-183
Garnflokkur A
--------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS SAFRAN frá Garnstudio
300-300-350-350-400-450 gr litur nr 05, ljós bláfjólublár
Og einnig:
DROPS COTTON VISCOSE frá Garnstudio
150-200-200-200-250-250 gr litur nr 22, blár

DROPS HEKLUNÁL NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 1 ferningur = ca 6 x 6 cm og 22 l í mynstri verði 10 cm á breiddina.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
DROPS Cotton Viscose
DROPS Cotton Viscose
54% Bómull, 46% Viscose
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR:
Snúið við í hverri umf með st með 3 ll og snúið við í hverri umf með fl með 1 ll.

MYNSTUR:
Klippið ekki þráðinn frá við litaskipti, heldur látið hann fylgja áfram með til enda.
UMFERÐ 1 (Safran): Heklið 1 fl í hvern st.
UMFERÐ 2 (Safran): Heklið 1 st, 1 ll, hoppið yfir fyrstu fl, 1 st í næstu fl, * 1 ll, hoppið yfir 1 fl, 1 st í næstu fl *, endurtakið frá *-* út umf.
UMFERÐ 3 (Cotton Viscose): Heklið 1 fl í hvern st og 1 fl í hverja ll.
UMFERÐ 4 (Safran): Heklið 1 st í hverja fl.
UMFERÐ 5 (Safran): Heklið 1 st í hvern st.
UMFERÐ 6 (Cotton Viscose): Heklið 1 fl í hvern st.
UMFERÐ 7 (Cotton Viscose): Heklið 1 st í hverja fl.
UMFERÐ 8, 9 og 10 (Safran): Heklið 1 st í hvern st.
Endurtakið umf 1 til 10.

ÚRTAKA:
Fækkið lykkjum í lok umf þannig: Heklið fram að þeim fjölda l sem fækka á, snúið.
Fækkið lykkjum í byrjun umf þannig: Heklið kl yfir þann fjölda l sem fækka á.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fyrst eru ferningarnir heklaðir sem eru neðstir. Þeir eru síðan heklaðir saman í lóðrétta röð, síðan eru ferningarnir heklaðir saman á hliðum og mynda hring. Fram- og bakstykki er heklað fram og til baka hvort fyrir sig, frá ferningum og uppúr. Í lokin eru ermar heklaðar.

UMFERÐ 1:
FERNINGUR-1 – sjá einnig mynsturteikningu M.1:
Heklið 4 ll með Safran með heklunál nr 3,5 og tengið í hring með 1 kl í fyrstu ll.
UMFERÐ 1: Heklið 3 ll (= 1 st), 11 st um ll-hringinn, endið með 1 kl í 3. ll í byrjun umf, klippið frá.
UMFERÐ 2 (Skiptið yfir í Cotton Viscose): Heklið 2 ll, 1 fl í næsta st, 1 ll, * 1 fl í næsta st, 1 ll *, endurtakið frá *-* umf hringinn og endið með 1 kl í fyrstu fl.
UMFERÐ 3: Heklið 1 ll, 1 fl í 2. ll frá fyrri umf, * 4 ll, 1 fl um næstu ll frá fyrri umf *, endurtakið frá *-*, og endið með 1 kl í fyrstu fl í byrjun umf = 12 ll-bogar, klippið frá.
UMFERÐ 4 (Skiptið aftur í Safran): Heklið 2 ll, * 1 fl um fyrsta ll-boga, 4 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 4 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 8 ll, 1 fl um næsta ll-boga (=horn) *, endurtakið frá *-* út umf, í staðin fyrir síðustu fl, endið með 1 kl í fyrstu fl í byrjun umf. Klippið frá og festið enda.
Ferningurinn mælist ca 6 x 6 cm.

FERNINGUR-2:
Fitjið upp með Cotton Viscose og heklið eins og FERNINGUR-1 frá umf 1 til 3, en víxlið garninu, svo að það verði Cotton Viscose í umf 1 og Safran í umf 2 og 3.
UMFERÐ 4 – sjá mynsturteikningu M.2:
Heklið með Safran þannig: Heklið 2 ll, 1 fl um fyrsta ll-boga, 4 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 4 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 4 ll, leggið ferninginn á röngu á móti FERNINGUR-1, heklið 1 fl um stóra ll-bogann á FERNINGUR-1 (= horn), 4 ll, 1 fl um næsta ll-boga á FERNINGUR-2, * 2 ll, 1 fl um næsta litla ll-boga á FERNINGUR-1, 2 ll, 1 fl um næsta ll-boga á FERNINGUR-2 *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, 4 ll, 1 fl um næsta stóra ll-boga á FERNINGUR-1 (= horn), 4 ll, 1 fl um næsta ll-boga á FERNINGUR-2. Heklið nú kringum FERNINGUR-2 þannig:** Heklið 4 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 4 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 8 ll, 1 fl um næsta ll-boga **, endurtakið frá **-** 1 sinni til viðbótar, í stað síðustu fl, endið með 1 kl í fyrstu fl í byrjun umf. Klippið frá og festið enda.

FERNINGUR-3:
Heklið eins og FERNINGUR-1 frá umf 1 til 3.
UMFERÐ 4: Heklið með Safran þannig: Heklið 2 ll, 1 fl um fyrsta ll-boga, 4 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 4 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 4 ll, leggið ferninginn á röngu á móti röngu á FERNINGUR-2, heklið 1 fl um stóra ll-bogann í annað hornið á FERNINGUR-2 (þ.e.a.s. á þeirri hlið þar sem FERNINGUR-2 er ekki heklaður saman við FERNINGUR-1), 4 ll, 1 fl um næsta ll-boga á FERNINGUR-3, * 2 ll, 1 fl um næsta litla ll-boga á FERNINGUR-2, 2 ll, 1 fl um næsta ll-boga á FERNINGUR-3 *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, 4 ll, 1 fl um næsta stóra ll-boga á FERNINGUR-2 (= horn), 4 ll, 1 fl um næsta ll-boga á FERNINGUR-3. Heklið nú í kringum FERNINGUR-3 þannig: ** Heklið 4 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 4 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 8 ll, 1 fl um næsta ll-boga **, endurtakið frá **-** 1 sinni til viðbótar en í stað fyrir síðustu fl, endið með 1 kl í fyrstu fl í byrjun umf. Klippið frá og festið enda.

FERNINGUR-4:
Heklið eins og FERNINGUR-2 frá umf 1 til 3 og heklið FERNINGUR-4 saman við FERNINGUR-3 á sama hátt og FERNINGUR-3 var heklaður við FERNINGUR-2.

UMFERÐ 2:
FERNINGUR-5:
Heklið eins og umf 1 til 3 eins og FERNINGUR-2.
UMFERÐ 4: Heklið með Safran þannig: Heklið 2 ll, 1 fl um fyrsta ll-boga, 4 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 4 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 4 ll, leggið ferninginn á röngu móti röngu á FERNINGUR-1, heklið 1 fl um fl sem hekluð var í hornið á milli FERNINGUR-1 og FERNINGUR-2, 4 ll, 1 fl um næsta ll-boga á FERNINGUR-5, * 2 ll, 1 fl um næsta litla ll-boga á FERNINGUR-1, 2 ll, 1 fl um næsta ll-boga á FERNINGUR-5*, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, 4 ll, 1 fl um næsta stóra ll-boga á FERNINGUR-1 (= horn), 4 ll, 1 fl um næsta ll-boga á FERNINGUR-5. Heklið nú þannig kringum FERNINGUR-5: ** Heklið 4 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 4 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 8 ll, 1 fl um næsta ll-boga **, endurtakið frá **-** 1 sinni til viðbótar, í stað síðustu fl, endið með 1 kl í fyrstu fl í byrjun umf. Klippið frá og festið enda.

FERNINGUR-6:
Heklið umf 1 til 3 eins og á FERNINGUR-1. Heklið nú þennan ferning við FERNINGUR-2 og FERNINGUR-5.
UMFERÐ 4: Heklið með Safran þannig: Heklið 2 ll, 1 fl um fyrsta ll-bogann, 4 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 4 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 4 ll, leggið ferninginn röngu á móti röngu á FERNINGUR-2, heklið 1 fl um fl sem hekluð var í hornið milli FERNINGUR-2 og FERNINGUR-3, 4 ll, 1 fl um næsta ll-boga á FERNINGUR-6, * 2 ll, 1 fl um næsta litla ll-boga á FERNINGUR-2, 2 ll, 1 fl um næsta ll-boga á FERNINGUR-6 *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, 4 ll, 1 fl um fl sem hekluð var í hornið milli FERNINGUR-5, FERNINGUR-2 og FERNINGUR-1, 4 ll, 1 fl um næsta ll-boga á FERNINGUR-6, ** 2 ll, 1 fl um næsta ll-boga á FERNINGUR-5, 2 ll, 1 fl um næsta ll-boga á FERNINGUR-6 **, endurtakið frá **-** 1 sinni til viðbótar, 4 ll, 1 fl um næsta stóra ll-boga í hornið á FERNINGUR-5, 4 ll, 1 fl um næsta ll-boga á FERNINGUR-6, 4 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 4 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 8 ll, 1 kl um fyrstu fl í byrjun umf. Klippið frá og festið enda.

FERNINGUR-7:
Heklið umf 1 til 3 eins og á FERNINGUR-2. Heklið nú saman ferninginn við FERNINGUR-6 og FERNINGUR-3 eins og FERNINGUR 6 var heklaður saman við FERNINGUR-5 og FERNINGUR-2.

FERNINGUR-8:
Heklið umf 1 til 3 eins og á FERNINGUR-1. Heklið nú saman ferninginn við FERNINGUR-7 og FERNINGUR-4 eins og FERNINGUR-7 var heklaður saman við FERNINGUR-6 og FERNINGUR-3.

Haldið áfram að hekla umf á sama hátt eins og umf 2, en víxlið garninu, svo að annar hver ferningur hefur Safran og Cotton Viscose í miðjunni.
Alls eru heklaðar 14-16-18-20-22-24 umf (þ.e.a.s. 56-64-72-80-88-96 ferningar) – JAFNFRAMT þegar síðasta umf er hekluð, eru ferningarnir festir saman bæði í næst síðustu umf og fyrstu umf, svo að þeir myndi hring.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Heklið nú fram- og bakstykki til loka hvort fyrir sig fram og til baka, svo að mynstrið verði eins alla leið.

FRAMSTYKKI:
LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR.
Heklið með Safran með heklunál nr 3,5 meðfram 7-8-9-10-11-12 af ferningunum á annarri hliðinni. Heklið 3 st í hvern ll-boga, þ.e.a.s. að það verði 12 st meðfram hverjum ferningi = 84-96-108-120-132-144 st alls í umf. Heklið nú MYNSTUR til loka – sjá útskýringu að ofan! JAFNFRAMT þegar stykkið mælist alls 26 cm, er aukið út um 1 l hvoru megin með því að hekla 2 l í næst síðustu l. Endurtakið útaukningu með 2-2-2-2½-2½-2½ cm millibili alls 4 sinnum = 92-104-116-128-140-152 l. Þegar stykkið mælist alls 35-36-37-38-39-40 cm, er fellt af fyrir handveg í hverri umf í hvorri hlið: Heklið 4 l 1 sinni, 3 l 0-0-1-2-3-4 sinnum, 2 l 0-2-2-3-3-4 sinnum og 1 l 2-3-4-4-5-4 sinnum – SJÁ ÚRTAKA! = 80-82-86-88-92-96 l eftir. Þegar stykkið mælist 44-46-48-50-52-54 cm, er fellt af fyrir hálsmáli. Það er gert með því að hekla ekki lengur yfir miðju 18-18-20-20-22-22 l (þ.e.a.s. að í umf 1 er einungis heklað yfir 31-32-33-34-35-37 l öðru megin). Fellt er af fyrir hálsmáli í hverri umf: 3 l 1 sinni, 2 l 1 sinni og 1 l 4 sinnum – SJÁ ÚRTAKA! Þegar úrtöku er lokið eru 22-23-24-25-26-28 l eftir á öxl. Klippið frá þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm. Heklið hina öxlina eins.

BAKSTYKKI:
Heklið eins og framstykki, en fellið ekki af fyrir hálsmáli. Heklið áfram þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm, nú eru heklaðir 2 cm yfir 22-23-24-25-26-28 l á hvorri öxl, áður en klippt er frá.

ERMI:
Heklið 4-4-4-5-5-5 ferninga – eins og umf-1 á fram- og bakstykki, en að auki er fyrsti og síðasti ferningurinn heklaður saman svo að það myndist hringur.
Heklið nú st meðfram annarri hliðinni af ferningunum með heklunál nr 3,5 með Safran þannig: Heklið 3 st í hvern og einn af þeim 2 smáu ll-bogunum í hverjum ferningi og 4 st í hvern ll-boga í hornið (= 14 st í hvern ferning) = 56-56-56-70-70-70 st alls. Haldið áfram með MYNSTUR fram og til baka eins og á fram- og bakstykki. Þegar stykkið mælist 10-10-8-8-8-8 cm, er aukið út um 1 l hvoru megin, endurtakið útaukningu með 2½-1½-1½-2-1½-1 cm millibili alls 9-12-14-10-12-16 sinnum = 74-80-84-90-94-102 l. Þegar stykkið mælist 32-31-30-29-27-26 cm (styttri mæling í stærri stærðum vegna víðari handvegs og breiðari axla), fækkið lykkjum fyrir handveg í hverri umf í hvorri hlið – SJÁ ÚRTAKA: 4 l 1 sinni, 2 l 3 sinnum og 1 l 2-3-4-6-8-9 sinnum, síðan eru fækkað um 2 l í hvorri hlið þar til stykkið mælist 39 cm, fækkið um 3 l 1 sinni hvoru megin. Klippið frá, ermin mælist ca 40 cm í öllum stærðum.
Heklið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið hliðar- og ermasauma kant í kant yst í lykkjubogann. Saumið í ermar á fram- og bakstykki.
Heklið nú þannig neðst niðri kringum ermar og kringum fram- og bakstykki með Cotton Viscose: Heklið 1 fl í fyrsta ll-boga, *5 ll, 1 fl í næsta ll-boga *, endurtakið frá *-*, endið með 5 ll og 1 kl í fyrstu fl. Heklið eins í kringum hálsmál, en hoppið þá yfir ca 1 cm á milli hverra ll-boga.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 29.06.2012
UMFERÐ 4 (Skiptið aftur í Safran): Heklið 2 ll, * 1 fl um fyrsta ll-boga, 4 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 4 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 8 ll, 1 fl um næsta ll-boga (=horn)...

Mynstur

symbols = 1 loftlykkja
symbols = 1 fastalykkja
symbols = 1 keðjulykkja
symbols = 1 stuðull
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 136-23

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (58)

country flag Rosemary wrote:

Hello, There seem to be three colours used in this pattern but only two are listed in the materials. It looks like a green. Can you help please? I love your yarns and patterns. You are the website I go to first. Everything I make is always admired.

10.04.2024 - 11:24

DROPS Design answered:

Dear Rosemary, thank you very much. This pattern has been made with 2 yarns from yarn group A; as Cotton Viscose is now discontinued, use the yarn converter to see the possible alternatives and matching amount of yarn; Safran used here was colour no 05, colour name might have been changed but colour number is the right one. Happy crocheting!

10.04.2024 - 13:49

country flag Monica Berta wrote:

Quisiera hacer este modelo pero parece que el hilo "Cotton Viscose" ya no está en su surtido: por qué hilo puedo sustituirlo? Puedo urilizar, por ejemplo, otro color o el color más similar dentro del surtido de Safran? Gracias.

22.02.2023 - 20:48

DROPS Design answered:

Hola Monica, sí, puedes sustituirlo por Safran sin problemas.

26.02.2023 - 22:28

country flag Ellinor wrote:

Hej! Jag har en fundering över gur jag ska minska för ärmhålen. Jag virkar tröjan i storlek S och har precis maskat av de 4 första maskorna på vardera sida. Sedan står det att jag ska maska av 3 maskor 0 ggr och 2 maskor 0 ggr. Ska jag räkna detta som 2 varv innan jag maskar av nästa 1 maska 2 ggr eller maskar jag av 1 maska 2 ggr direkt pp varvet efter det att jag maskade av 4 maskor?

19.08.2021 - 20:42

DROPS Design answered:

Hej Ellinor. Du maskar av 1 m 2 ggr direkt på varvet efter du maskade av 4 maskor. Mvh DROPS Design

20.08.2021 - 09:04

country flag Sabina wrote:

Hej! Jag vill gärna virka denna tröjan, men cotton viscose har utgått. Vilket garn bör jag ersätta med för att få så lik struktur som möjligt? Mvh Sabina

02.07.2021 - 21:44

DROPS Design answered:

Hei Sabina. Vi har nok dessverre ikke et garn som er helt lik den som er utgått. Siden denne genseren også er heklet i DROPS Safran, kan du erstatte Cotton Viscose med Safran, du vil ikke få den "glansen" som Cotton Viscose hadde, men Safran tilhører sammen garngruppe som Cotton Viscose gjorde. Bare husk å overholde heklefastheten som ståri oppskriften. mvh DROPS design

05.07.2021 - 14:13

country flag Anneloes wrote:

Beste, Waarom krijg ik geen antwoord op mijn vraag, de 22-10-2019?

30.10.2019 - 10:14

DROPS Design answered:

Dag Anneloes,

Over het hoofd gezien, maar ik heb je vraag nu beantwoord, dus hopelijk kun je nu verder.

30.10.2019 - 10:46

country flag Anneloes wrote:

Beste, ik moet meerderen/minderen op het pant en de mouwen, maar nu is mijn vraag.... moet ik de steken dan achtereen meerderen/minderen per toer, of juist verspreid? Gr. Anneloes

22.10.2019 - 10:04

DROPS Design answered:

Dag Annelies,

Op de panden meerder je aan de om de 2-2-2½-2½-2½ cm in de hoogte in totaal 4 keer. Je meerdert dan aan de zijkanten (zoals beschreven in het patroon). Voor de mouwen geldt het zelfde bij het meerderen en als je aan het einde moet minderen voor de mouwkop is dit ook telkens aan de zijkanten, dus je kant dan aan het begin van de naald de te minderen steken af.

30.10.2019 - 10:45

country flag Anneloes wrote:

Hoi, ik wil verdergaan met het patroon, maar ik kom met de open vierkantjes niet ui. Ik hen een rij van 6 vierkanten, waarin ik dus 72 stukjes in de lossen lussen heb gehaakt. Ik houd aan het eind telkens 1 steek over, bij het haken van de gaatjes. (1 stokje, 1 losse, 1 stokje, enz.) Wat doe ik fout? Gr. Anneloes

27.09.2019 - 07:51

DROPS Design answered:

Dag Anneloes,

Als ik het goed begrijp heb haak je maat L en heb je dus in totaal 72 vierkantjes gehaakt. In de kleinste maat heb je al 7 vierkantjes op het voorpand en het achterpand (dus 14 in de rondte), ik begrijp dus niet goed hoe je op een rij van 6 vierkanten komt. (Als je verder gaat met de panden vanaf de vierkantjes haak je steeds 3 stokjes in elke lossenlus van de vierkantjes.)

27.09.2019 - 15:01

country flag Sara wrote:

Hallo! Ich bin nun beim Fertigstellen dieses schönen Pullis. Wie ist denn der allerletzte Satz in der Anleitung (bei: Zusammennähen) gemeint? "Rund um den Hals wiederholen jedoch zwischen jedem Lm-Bogen ca. 1cm überspringen." Heißt das, man soll nach jedem/ immer nach einem Zentimeter eine feste Masche stricken und dazwischen die 5 Lm? Danke für eine Antwort! Sara

04.09.2018 - 14:56

DROPS Design answered:

Liebe Sara, ja genau so wird die Kante gehäkelt. Viel Spaß beim häkeln!

05.09.2018 - 07:44

Barbara Lightfoot wrote:

Hi, I am not quite sure how to join the end of the bottom piece, when complete, to the front of itself? Before, we have been joining a square into an L shaped gap downwards, but now we must join two squares side by side together before one of them is complete, upwards?

04.06.2018 - 11:34

DROPS Design answered:

Dear Mrs Lightfoot, on 2nd row with squares, crochet last round on 1st square together with the bottom square along only 1 side. When working next squares, crochet the last round on next square together with the side of the previous square on row 2, then along side of next square from previous row (= 2 sides are crocheted tog). When working last square on row, you crochet the last round to the previoius square on same row, to the next square on previous row and to the first square same row (= along 3 sides). Happy crocheting!

04.06.2018 - 13:22

Hanaa Zahran wrote:

Hi, I will make this pattern and I want it a bit longer can u help me how to add rows in this pattern thank you for your help.

08.04.2018 - 10:47

DROPS Design answered:

Dear Mrs Zahran, we are unfortunately not able to adapt every single pattern to each individual request. For any further assistance you are welcome to contact the store where you bought the yarn, even per mail or telephone. Happy crocheting!

09.04.2018 - 10:22