Blues |
|||||||||||||
|
|
||||||||||||
Hekluð peysa úr DROPS Safran og DROPS Cotton Viscose með ferningum og röndum. Stærð S-XXXL.
DROPS 136-23 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Snúið við í hverri umf með st með 3 ll og snúið við í hverri umf með fl með 1 ll. MYNSTUR: Klippið ekki þráðinn frá við litaskipti, heldur látið hann fylgja áfram með til enda. UMFERÐ 1 (Safran): Heklið 1 fl í hvern st. UMFERÐ 2 (Safran): Heklið 1 st, 1 ll, hoppið yfir fyrstu fl, 1 st í næstu fl, * 1 ll, hoppið yfir 1 fl, 1 st í næstu fl *, endurtakið frá *-* út umf. UMFERÐ 3 (Cotton Viscose): Heklið 1 fl í hvern st og 1 fl í hverja ll. UMFERÐ 4 (Safran): Heklið 1 st í hverja fl. UMFERÐ 5 (Safran): Heklið 1 st í hvern st. UMFERÐ 6 (Cotton Viscose): Heklið 1 fl í hvern st. UMFERÐ 7 (Cotton Viscose): Heklið 1 st í hverja fl. UMFERÐ 8, 9 og 10 (Safran): Heklið 1 st í hvern st. Endurtakið umf 1 til 10. ÚRTAKA: Fækkið lykkjum í lok umf þannig: Heklið fram að þeim fjölda l sem fækka á, snúið. Fækkið lykkjum í byrjun umf þannig: Heklið kl yfir þann fjölda l sem fækka á. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fyrst eru ferningarnir heklaðir sem eru neðstir. Þeir eru síðan heklaðir saman í lóðrétta röð, síðan eru ferningarnir heklaðir saman á hliðum og mynda hring. Fram- og bakstykki er heklað fram og til baka hvort fyrir sig, frá ferningum og uppúr. Í lokin eru ermar heklaðar. UMFERÐ 1: FERNINGUR-1 – sjá einnig mynsturteikningu M.1: Heklið 4 ll með Safran með heklunál nr 3,5 og tengið í hring með 1 kl í fyrstu ll. UMFERÐ 1: Heklið 3 ll (= 1 st), 11 st um ll-hringinn, endið með 1 kl í 3. ll í byrjun umf, klippið frá. UMFERÐ 2 (Skiptið yfir í Cotton Viscose): Heklið 2 ll, 1 fl í næsta st, 1 ll, * 1 fl í næsta st, 1 ll *, endurtakið frá *-* umf hringinn og endið með 1 kl í fyrstu fl. UMFERÐ 3: Heklið 1 ll, 1 fl í 2. ll frá fyrri umf, * 4 ll, 1 fl um næstu ll frá fyrri umf *, endurtakið frá *-*, og endið með 1 kl í fyrstu fl í byrjun umf = 12 ll-bogar, klippið frá. UMFERÐ 4 (Skiptið aftur í Safran): Heklið 2 ll, * 1 fl um fyrsta ll-boga, 4 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 4 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 8 ll, 1 fl um næsta ll-boga (=horn) *, endurtakið frá *-* út umf, í staðin fyrir síðustu fl, endið með 1 kl í fyrstu fl í byrjun umf. Klippið frá og festið enda. Ferningurinn mælist ca 6 x 6 cm. FERNINGUR-2: Fitjið upp með Cotton Viscose og heklið eins og FERNINGUR-1 frá umf 1 til 3, en víxlið garninu, svo að það verði Cotton Viscose í umf 1 og Safran í umf 2 og 3. UMFERÐ 4 – sjá mynsturteikningu M.2: Heklið með Safran þannig: Heklið 2 ll, 1 fl um fyrsta ll-boga, 4 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 4 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 4 ll, leggið ferninginn á röngu á móti FERNINGUR-1, heklið 1 fl um stóra ll-bogann á FERNINGUR-1 (= horn), 4 ll, 1 fl um næsta ll-boga á FERNINGUR-2, * 2 ll, 1 fl um næsta litla ll-boga á FERNINGUR-1, 2 ll, 1 fl um næsta ll-boga á FERNINGUR-2 *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, 4 ll, 1 fl um næsta stóra ll-boga á FERNINGUR-1 (= horn), 4 ll, 1 fl um næsta ll-boga á FERNINGUR-2. Heklið nú kringum FERNINGUR-2 þannig:** Heklið 4 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 4 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 8 ll, 1 fl um næsta ll-boga **, endurtakið frá **-** 1 sinni til viðbótar, í stað síðustu fl, endið með 1 kl í fyrstu fl í byrjun umf. Klippið frá og festið enda. FERNINGUR-3: Heklið eins og FERNINGUR-1 frá umf 1 til 3. UMFERÐ 4: Heklið með Safran þannig: Heklið 2 ll, 1 fl um fyrsta ll-boga, 4 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 4 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 4 ll, leggið ferninginn á röngu á móti röngu á FERNINGUR-2, heklið 1 fl um stóra ll-bogann í annað hornið á FERNINGUR-2 (þ.e.a.s. á þeirri hlið þar sem FERNINGUR-2 er ekki heklaður saman við FERNINGUR-1), 4 ll, 1 fl um næsta ll-boga á FERNINGUR-3, * 2 ll, 1 fl um næsta litla ll-boga á FERNINGUR-2, 2 ll, 1 fl um næsta ll-boga á FERNINGUR-3 *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, 4 ll, 1 fl um næsta stóra ll-boga á FERNINGUR-2 (= horn), 4 ll, 1 fl um næsta ll-boga á FERNINGUR-3. Heklið nú í kringum FERNINGUR-3 þannig: ** Heklið 4 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 4 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 8 ll, 1 fl um næsta ll-boga **, endurtakið frá **-** 1 sinni til viðbótar en í stað fyrir síðustu fl, endið með 1 kl í fyrstu fl í byrjun umf. Klippið frá og festið enda. FERNINGUR-4: Heklið eins og FERNINGUR-2 frá umf 1 til 3 og heklið FERNINGUR-4 saman við FERNINGUR-3 á sama hátt og FERNINGUR-3 var heklaður við FERNINGUR-2. UMFERÐ 2: FERNINGUR-5: Heklið eins og umf 1 til 3 eins og FERNINGUR-2. UMFERÐ 4: Heklið með Safran þannig: Heklið 2 ll, 1 fl um fyrsta ll-boga, 4 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 4 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 4 ll, leggið ferninginn á röngu móti röngu á FERNINGUR-1, heklið 1 fl um fl sem hekluð var í hornið á milli FERNINGUR-1 og FERNINGUR-2, 4 ll, 1 fl um næsta ll-boga á FERNINGUR-5, * 2 ll, 1 fl um næsta litla ll-boga á FERNINGUR-1, 2 ll, 1 fl um næsta ll-boga á FERNINGUR-5*, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, 4 ll, 1 fl um næsta stóra ll-boga á FERNINGUR-1 (= horn), 4 ll, 1 fl um næsta ll-boga á FERNINGUR-5. Heklið nú þannig kringum FERNINGUR-5: ** Heklið 4 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 4 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 8 ll, 1 fl um næsta ll-boga **, endurtakið frá **-** 1 sinni til viðbótar, í stað síðustu fl, endið með 1 kl í fyrstu fl í byrjun umf. Klippið frá og festið enda. FERNINGUR-6: Heklið umf 1 til 3 eins og á FERNINGUR-1. Heklið nú þennan ferning við FERNINGUR-2 og FERNINGUR-5. UMFERÐ 4: Heklið með Safran þannig: Heklið 2 ll, 1 fl um fyrsta ll-bogann, 4 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 4 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 4 ll, leggið ferninginn röngu á móti röngu á FERNINGUR-2, heklið 1 fl um fl sem hekluð var í hornið milli FERNINGUR-2 og FERNINGUR-3, 4 ll, 1 fl um næsta ll-boga á FERNINGUR-6, * 2 ll, 1 fl um næsta litla ll-boga á FERNINGUR-2, 2 ll, 1 fl um næsta ll-boga á FERNINGUR-6 *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, 4 ll, 1 fl um fl sem hekluð var í hornið milli FERNINGUR-5, FERNINGUR-2 og FERNINGUR-1, 4 ll, 1 fl um næsta ll-boga á FERNINGUR-6, ** 2 ll, 1 fl um næsta ll-boga á FERNINGUR-5, 2 ll, 1 fl um næsta ll-boga á FERNINGUR-6 **, endurtakið frá **-** 1 sinni til viðbótar, 4 ll, 1 fl um næsta stóra ll-boga í hornið á FERNINGUR-5, 4 ll, 1 fl um næsta ll-boga á FERNINGUR-6, 4 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 4 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 8 ll, 1 kl um fyrstu fl í byrjun umf. Klippið frá og festið enda. FERNINGUR-7: Heklið umf 1 til 3 eins og á FERNINGUR-2. Heklið nú saman ferninginn við FERNINGUR-6 og FERNINGUR-3 eins og FERNINGUR 6 var heklaður saman við FERNINGUR-5 og FERNINGUR-2. FERNINGUR-8: Heklið umf 1 til 3 eins og á FERNINGUR-1. Heklið nú saman ferninginn við FERNINGUR-7 og FERNINGUR-4 eins og FERNINGUR-7 var heklaður saman við FERNINGUR-6 og FERNINGUR-3. Haldið áfram að hekla umf á sama hátt eins og umf 2, en víxlið garninu, svo að annar hver ferningur hefur Safran og Cotton Viscose í miðjunni. Alls eru heklaðar 14-16-18-20-22-24 umf (þ.e.a.s. 56-64-72-80-88-96 ferningar) – JAFNFRAMT þegar síðasta umf er hekluð, eru ferningarnir festir saman bæði í næst síðustu umf og fyrstu umf, svo að þeir myndi hring. FRAM- OG BAKSTYKKI: Heklið nú fram- og bakstykki til loka hvort fyrir sig fram og til baka, svo að mynstrið verði eins alla leið. FRAMSTYKKI: LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR. Heklið með Safran með heklunál nr 3,5 meðfram 7-8-9-10-11-12 af ferningunum á annarri hliðinni. Heklið 3 st í hvern ll-boga, þ.e.a.s. að það verði 12 st meðfram hverjum ferningi = 84-96-108-120-132-144 st alls í umf. Heklið nú MYNSTUR til loka – sjá útskýringu að ofan! JAFNFRAMT þegar stykkið mælist alls 26 cm, er aukið út um 1 l hvoru megin með því að hekla 2 l í næst síðustu l. Endurtakið útaukningu með 2-2-2-2½-2½-2½ cm millibili alls 4 sinnum = 92-104-116-128-140-152 l. Þegar stykkið mælist alls 35-36-37-38-39-40 cm, er fellt af fyrir handveg í hverri umf í hvorri hlið: Heklið 4 l 1 sinni, 3 l 0-0-1-2-3-4 sinnum, 2 l 0-2-2-3-3-4 sinnum og 1 l 2-3-4-4-5-4 sinnum – SJÁ ÚRTAKA! = 80-82-86-88-92-96 l eftir. Þegar stykkið mælist 44-46-48-50-52-54 cm, er fellt af fyrir hálsmáli. Það er gert með því að hekla ekki lengur yfir miðju 18-18-20-20-22-22 l (þ.e.a.s. að í umf 1 er einungis heklað yfir 31-32-33-34-35-37 l öðru megin). Fellt er af fyrir hálsmáli í hverri umf: 3 l 1 sinni, 2 l 1 sinni og 1 l 4 sinnum – SJÁ ÚRTAKA! Þegar úrtöku er lokið eru 22-23-24-25-26-28 l eftir á öxl. Klippið frá þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm. Heklið hina öxlina eins. BAKSTYKKI: Heklið eins og framstykki, en fellið ekki af fyrir hálsmáli. Heklið áfram þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm, nú eru heklaðir 2 cm yfir 22-23-24-25-26-28 l á hvorri öxl, áður en klippt er frá. ERMI: Heklið 4-4-4-5-5-5 ferninga – eins og umf-1 á fram- og bakstykki, en að auki er fyrsti og síðasti ferningurinn heklaður saman svo að það myndist hringur. Heklið nú st meðfram annarri hliðinni af ferningunum með heklunál nr 3,5 með Safran þannig: Heklið 3 st í hvern og einn af þeim 2 smáu ll-bogunum í hverjum ferningi og 4 st í hvern ll-boga í hornið (= 14 st í hvern ferning) = 56-56-56-70-70-70 st alls. Haldið áfram með MYNSTUR fram og til baka eins og á fram- og bakstykki. Þegar stykkið mælist 10-10-8-8-8-8 cm, er aukið út um 1 l hvoru megin, endurtakið útaukningu með 2½-1½-1½-2-1½-1 cm millibili alls 9-12-14-10-12-16 sinnum = 74-80-84-90-94-102 l. Þegar stykkið mælist 32-31-30-29-27-26 cm (styttri mæling í stærri stærðum vegna víðari handvegs og breiðari axla), fækkið lykkjum fyrir handveg í hverri umf í hvorri hlið – SJÁ ÚRTAKA: 4 l 1 sinni, 2 l 3 sinnum og 1 l 2-3-4-6-8-9 sinnum, síðan eru fækkað um 2 l í hvorri hlið þar til stykkið mælist 39 cm, fækkið um 3 l 1 sinni hvoru megin. Klippið frá, ermin mælist ca 40 cm í öllum stærðum. Heklið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið hliðar- og ermasauma kant í kant yst í lykkjubogann. Saumið í ermar á fram- og bakstykki. Heklið nú þannig neðst niðri kringum ermar og kringum fram- og bakstykki með Cotton Viscose: Heklið 1 fl í fyrsta ll-boga, *5 ll, 1 fl í næsta ll-boga *, endurtakið frá *-*, endið með 5 ll og 1 kl í fyrstu fl. Heklið eins í kringum hálsmál, en hoppið þá yfir ca 1 cm á milli hverra ll-boga. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (58)
Lena wrote:
Superfin! Kan tänka mig att göra den men sticka upptill.
27.12.2011 - 19:34Breg wrote:
Sympa ce modèle et ses couleurs en font un pull agréable à porter à toute occasion , il a ma préférence
21.12.2011 - 17:38Alie wrote:
Mooi patroon om te maken super
17.12.2011 - 14:26DO wrote:
Un modèle au crochet qui peux être sympa pour l'été
17.12.2011 - 11:15Sabrina wrote:
Tres jolis ce modele
14.12.2011 - 21:18Antonella wrote:
Delizioso
12.12.2011 - 17:30Lotta wrote:
Mycket fin modell!
12.12.2011 - 11:26Janice wrote:
I love the style and the colours of this sweater
10.12.2011 - 19:29Janice wrote:
I love the style and the colours of this sweater
10.12.2011 - 19:29Janice wrote:
I love the style and the colours of this sweater
10.12.2011 - 19:29