DROPS Alaska
DROPS Alaska
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9350.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Seaman

Prjónuð peysa fyrir herra úr DROPS Alaska eða DROPS Big Merino með mynstri og sjalkraga. Stærð S - XXXL

DROPS Extra 0-812
DROPS Design: Mynstur nr x-382
Garnflokkur C
--------------------------------------------------------

Stærð: XS/S - M - L/XL - XXL – XXXL

GARN:
DROPS ALASKA frá Garnstudio
650-750-800-900-950 gr litur nr 49, ljós brúnn
200-200-200-250-250 gr litur 02, natur

Eða notið:
DROPS BIG MERINO frá Garnstudio
650-750-800-900-950 gr litur nr 05, mocca
200-200-200-250-250 gr litur nr 01, natur

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5: Lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4: Lengd 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 5.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
17 lykkjur á breidd og 22 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alaska
DROPS Alaska
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9350.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu M.1 til M.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 171-201-231-258-288 lykkjur á hringprjón 4 með litnum ljós brúnn DROPS Alaska eða í litnum mocca DROPS Big Merino.
Prjónið stroff = 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið í 5 cm. Skiptið yfir á hringprjón 5 og prjónið 1 umferð slétt JAFNFRAMT er fækkað um 27-33-39-42-48 lykkjur jafnt yfir = 144-168-192-216-240 lykkjur. Prjónið M.1.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist ca 25-27-30-33-35 cm – stillið af að prjónaðar séu minnst 2 umferðir á eftir 1 umferð með „doppum“ – prjónið M.2. Eftir M.2 eru prjónaðar 3 umferðir með litnum ljós brúnn / mocca áður en prjónaðar eru 23 umferðir með M.1. Eftir M.1 er prjónað M.3, síðan er prjónað með litnum ljós brúnn / mocca að loka máli. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 48-49-50-52-53 cm prjónið næstu umferð þannig: Fellið af 3-4-4-5-5 lykkjur fyrir handveg, prjónið 22-27-32-37-42 lykkjur, fellið af 23-23-25-25-27 lykkjur fyrir hálsmáli, prjónið 22-27-32-37-42 lykkjur, fellið af 5-7-7-9-9 lykkjur fyrir handveg, prjónið 67-77-89-99-111 lykkjur (= bakstykki) og fellið af 2-3-3-4-4 síðustu lykkjur fyrir handveg. Hvort stykki er nú prjónað fyrir sig.

BAKSTYKKI:
= 67-77-89-99-111 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður. JAFNFRAMT er fellt af fyrir handveg í byrjun hverrar umferðar í hvorri hlið: 3 lykkjur 0-0-1-1-2 sinnum, 2 lykkjur 0-1-1-2-3 sinnum og 1 lykkja 0-2-3-3-3 sinnum = 67-69-73-79-81 lykkjur eftir á prjóni. Þegar stykkið mælist 66-68-71-74-76 cm, fellið af miðju 21-21-23-23-25 lykkjur fyrir hálsmáli. Prjónið hvora öxl til loka fyrir sig. Fellið síðan af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsmáli = 22-23-24-27-27 lykkjur eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 68-70-73-76-78 cm.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
= 22-27-32-37-42 lykkjur. Fellið síðan af fyrir handveg í hlið á sama hátt og á bakstykki = 22-23-24-27-27 lykkjur. Fellið af þegar stykkið mælist ca 68-70-73-76-78 cm – ATH: Fellið af í sömu umferð í mynstri og á bakstykki:

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Prjónið á sama hátt og hægra framstykki nema gagnstætt.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, skiptið yfir á hringprjóna eftir þörf.
LESTU ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN ÞÚ PRJÓNAR ÁFRAM!
Fitjið upp 51-54-57-57-57 lykkjur á sokkaprjón 4 með litnum ljós brúnn. Prjónið stroff 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið í 5 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna 5 og prjónið 1 umferð slétt JAFNFRAMT er fækkað um 10-11-12-12-12 lykkjur jafnt yfir = 41-43-45-45-45 lykkjur. Setjið 1 merki í byrjun umferðar (= mitt undir ermi) og eitt merki í miðjulykkju í umferð (= mitt undir ermi). Prjónið M.1 – lykkja með ör í mynsturteikningu á að passa við lykkju með merki mitt á ermi – teljið út að hlið. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 7-7-9-9-10 cm aukið út um 1 lykkju hvoru megin við merki mitt undir ermi. Endurtakið útaukningu með 5-4½-3-2½-2 cm millibili alls 10-11-14-16-18 sinnum = 61-65-73-77-81 lykkjur – útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist ca 47 cm í öllum stærðum – stillið af að prjónaða hafa verið minnst 2 umferðir með „doppum“ – prjónið M.2 að loka máli (lykkja með ör í mynsturteikningu á að passa við lykkju með merki mitt á ermi – teljið út að hlið).
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 56-54-52-50-48 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna lengri ermakúpu og breiðari axla) fellið af 5-7-7-9-9 lykkjur mitt undir ermi (þ.e.a.s. lykkja með merki í og 2-3-3-4-4 lykkjur hvoru megin við hana). Prjónið síðan stykkið til loka fram og til baka – JAFNFRAMT er fellt af fyrir handveg í byrjun hverrar umferðar í hvorri hlið: 2 lykkjur 2-3-3-3-4 sinnum og 1 lykkja 1-2-3-4-5 sinnum. Síðan eru felldar af 2 lykkjur í hvorri hlið þar til stykkið mælist 61-61-61-61-61 cm, fellið síðan af 3 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru, stykkið mælist ca 62 cm í öllum stærðum.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasaumana.

SJALKRAGI:
Byrjið mitt framan í vinstri hlið á affellingu í hálsmáli. Prjónið upp á hringprjón 4 með litnum ljós brúnn: 34 til 42 lykkjur upp að öxl, síðan eru prjónaðar upp 24 til 28 lykkjur aftan í hnakka og í lokin 34 til 42 lykkjur niður meðfram vinstri hlið í affellingu í hálsmáli = 92 til 112 lykkjur. (Lykkjur eru ekki prjónaðar upp þar sem lykkjur voru felldar af að framan í hálsmáli).
Prjónið 1 umferð slétt frá röngu JAFNFRAMT er aukið út jafnt yfir til 123-129-138-144-150 lykkjur. Prjónið síðan stroff þannig (frá réttu): 1 kantlykkja sem er prjónuð slétt í öllum umferðum, * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 2 lykkjur eru eftir og endið með 1 lykkju slétt og 1 kantlykkju sem prjónuð er slétt í öllum umferðum.
Haldið svona áfram þar til sjalkraginn mælist ca 6 cm. Nú er aukið út um 1 lykkju í hverja af miðju 12 sléttu eininganna, séð frá réttu (= aftan í hnakka) = 135-141-150-156-162 lykkjur.
Prjónið áfram þar til kraginn mælist ca 11-11-13-13-15 cm, fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Leggið sjalkragann tvöfaldan (hægri hlið yfir vinstri hlið) neðst niðri í opi á hálsmáli og saumið fallega niður við hálsmál í gegnum bæði lögin. Saumið ermar í.

Mynstur

symbols = ljós brúnn
symbols = natur
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-812

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (35)

country flag Deborah wrote:

In binding off the sleeve cap (xxxl size). "AT THE SAME TIME bind off for the sleeve cap at the beginning of every row in each side: 2 sts 2-3-3-4 times. " Is this a TOTAL of 4 rows or is it a two row repeat and therefore a total of 8 rows?

14.11.2023 - 05:52

DROPS Design answered:

Hi Deborah, Each bind off is worked on both sides before moving on to the next one. So, as you say, a total of 8 rows. Happy knitting!

14.11.2023 - 06:30

country flag Cathy Browning wrote:

Regarding armhole bind off. On the initial row I am binding off I am ending with 3 bind off stitches. That leaves me bound off if the middle of armhole. How do I then start to work the back if I am still half way in the middle of armhole?

18.01.2022 - 02:50

DROPS Design answered:

Hi Cathy, Cut and fasten the strand, then begin on the back piece. Happy knitting!

18.01.2022 - 08:10

country flag Cathy wrote:

I should have been more clear on my question. My question relates to the pattern at neck area. Not sure when to stop and start the chart with a crew neck jumper. I will try to find one with a pattern and a crew neck and attempt to follow those instructions. Thank you so much for getting back to me previously :)

26.12.2021 - 14:11

DROPS Design answered:

Dear Cathy, you need to skip the separation for the neck in the front and continue working until 8 cm remain in the front before reaching the final measurements, which is when the round neck would begin. Happy knitting!

31.12.2021 - 19:50

country flag Cathy Browning wrote:

Is there a way to change the collar of this jumper to crew neck instead of shawl while maintaining the pattern?

22.12.2021 - 16:41

DROPS Design answered:

Dear Cathy, in that case, you shouldn't bind off for the neck in the front; you should continue working over these stitches. Then you would need to make the necessary changes to make a round neck; you can see such jumpers in the Men's jumper section. Happy knitting!

25.12.2021 - 19:27

country flag Zsuzsa wrote:

Thanks so much for the additional descriptions in the comments, it helped me a lot. Just a side note: I had also more than one remaining yarn ball. And I knitted the L/XL size, and the sleeve was too long for my boyfriend, so I had to cut about ~10 cm.

13.06.2021 - 17:14

country flag Sandra wrote:

Begrijp niet helemaal welke naalden waarvoor nodig zijn... Mouwboord, rondbreinaald 4 mm, welke lengte moet dit zijn? Rest van de mouw, 5 mm, wanneer gebruik je naalden zonder knop en wanneer rondbreinaald? En hoe lang is die rondbreinaald voor de mouw dan? Waar zijn breinaalden zonder kop, 4 mm dan voor bedoeld?

29.09.2020 - 14:44

DROPS Design answered:

Dag Sandra,

Voor de boordsteek heb je 4 mm nodig en voor tricotsteek heb je 5 mm nodig. Zelf gebruik ik altijd een rondbreinaald, zowel voor de mouw als voor de panden, maar je kunt ook sokkenbreinaalden (naalden zonder knop) nemen, zodat je met 4 naalden de mouwen kunt breien. Het is maar net wat je zelf het handigst vindt.

10.10.2020 - 11:39

country flag Anne Maurer wrote:

Wird beim Modell seaman M1 39cm gestrickt oder beinhalten diese 30cm das Bündchen?

01.08.2019 - 12:18

DROPS Design answered:

Liebe Anne, die 30 cm beinhalten das Bündchen, es werden also 30 cm ab dem Anschlag gemessen. Die Maßangaben beziehen sich in der Regel auf die Gesamtlänge. Viel Spaß beim Weiterstricken! :-)

02.08.2019 - 09:22

country flag Gisele wrote:

Is there a tutorial on how to start knitting this shawl collar?

11.01.2019 - 04:47

DROPS Design answered:

Dear Gisele, there is no tutorial to this shawl, start picking the sts on the right side of front piece (beg on the bottom of neckline, just after the last st cast off for neck mid on front piece), then pick up the sts along neck on back piece and down along the left side of front piece to the first st cast off for neck on mid front. Work then back and forth in rib, increasing in the P- sections (see previous answers). Happy knitting!

11.01.2019 - 09:40

country flag Gisele wrote:

Am I increasing 12 sts in each of the back 12 sts at the back of the neck?

10.01.2019 - 18:31

DROPS Design answered:

Dear Gisele, you are increasing a total of 12 sts = 1 stitch in each of the middle 12 purl-sections on mid back of the neck. Happy knitting!

11.01.2019 - 09:11

country flag Gisele wrote:

My only her question is to clarify the “increase 1 sts in each of the middle 12 k sections”. Can you please explain more how to do that. Thank you!

10.01.2019 - 18:28

DROPS Design answered:

Dear Gisele, to make the collar wider on the back on neck, you will increase 1 stitch in each of the 12 P2-sections on mid back on collar and will then work as before K1, P2 over the first and last sts and P3 in the middle 12 purl sections of the rib. This video shows how to increase a stitch in a Purl-section. Happy knnitting!

11.01.2019 - 09:09