DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8624.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Nordic Midnight

Prjónuð peysa fyrir herra úr DROPS Karisma með norrænu mynstri. Stærð S – XXXL.

DROPS Extra 0-809
DROPS Design: Mynstur nr u-650.
Garnflokkur B
--------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

GARN:
DROPS KARISMA frá Garnstudio
550-600-650-700-750-850 g litur nr 37, dökk blágrænn
100-100-150-150-150-150 g litur nr 01, natur
50-50-50-50-50-50 g litur nr 55, ljós brúnn

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: Lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: Lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8624.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu M.1 til M.3. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni og sýnir 1 mynstureiningu af mynstri.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 210-228-246-270-306-330 lykkjur á hringprjón 3 með litnum dökk blágrænn DROPS Karisma.
Prjónið stroff 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið í 5 cm. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið 1 umferð slétt JAFNFRAMT því að fækka um 36-38-40-44-52-56 lykkjur jafnt yfir = 174-190-206-226-254-274 lykkjur.
Setjið 1 merki í byrjun umferðar og 1 merki eftir 87-95-103-113-127-137 lykkjur (þessi merki merkja hliðar). Haldið áfram í sléttprjóni.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 15 cm í öllum stærðum, fækkið um 1 lykkju hvoru megin við bæði merkin. Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 30 cm = 182-198-214-234-262-282 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 41-43-45-46-48-50 cm er sett 1 merki í miðjulykkju að framan og að aftan.
Síðan er mynsturteikning M.1 prjónuð – lykkja merkt með ör í mynsturteikningu á að passa við lykkju með merki mitt að framan / mitt að aftan – teljið út mynsturteikningu að hlið. Teljið upp á nýtt þegar komið er að merki í hlið þannig að mynstrið byrji alveg eins að framan og að aftan.
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 46-47-48-49-50-51 cm fellið af 6-10-14-20-30-36 lykkjur í hvorri hlið fyrir handveg (þ.e.a.s. 3-5-7-10-15-18 lykkjur hvoru megin við bæði merkin í hliðum).
Fram- og bakstykki er prjónað til loka hvort fyrir sig fram og til baka.

FRAMSTYKKI:
= 85-89-93-97-101-105 lykkjur. Prjónið mynsturteikningu M.1, síðan er M.2 prjónað og að lokum M.3, haldið síðan áfram með litnum ljós brúnn að loka máli (lykkja með ör í mynsturteikningu á að passa við lykkju með merki mitt að framan / mitt að aftan – teljið út að hlið).
Þegar stykkið mælist 58-60-62-64-66-68 cm, setjið miðju 15-17-17-19-19-21 lykkjur á þráð fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. JAFNFRAMT er fellt af í byrjun hverrar umferðar frá hálsmáli: 2 lykkjur 3 sinnum og 1 lykkju 3 sinnum = 26-27-29-30-32-33 lykkjur eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm.

BAKSTYKKI:
= 85-89-93-97-101-105 lykkjur. Prjónið eins og framstykki, lykkjur eru ekki felldar af fyrir hálsmáli fyrr en stykkið mælist 64-66-68-70-72-74 cm. Fellið af miðju 29-31-31-33-33-35 lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig – JAFNFRAMT eru felldar af 2 lykkjur í næstu umferð frá hálsmáli = 26-27-29-30-32-33 lykkjur eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist ca 66-68-70-72-74-76 cm – fellið af í sömu umferð í mynstri og á framstykki.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, skiptið yfir á stuttan hringprjón eftir þörf.
Fitjið upp 62-64-66-66-68-68 lykkjur á sokkaprjón 3 með litnum dökk blágrænn DROPS Karisma.
Prjónið stroff 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið í 5 cm.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 4 og prjónið 1 umferð slétt JAFNFRAMT er fækkað um 11 lykkjur í öllum stærðum jafnt yfir = 51-53-55-55-57-57 lykkjur. Setjið eitt merki í byrjun umferðar (= mitt undir ermi) og haldið áfram í sléttprjóni.
Þegar stykkið mælist 6 cm í öllum stærðum aukið út um 1 lykkju hvoru megin við merki. Endurtakið útaukningu alls 17-18-19-21-22-24 í stærð S: Í 9. hverri umferð, stærð M: Til skiptis í 8. og 9. hverri umferð, stærð L: Í 8. hverri umferð, stærð XL: Í 7. hverri umferð, stærð XXL: Til skiptis í 6. og 7. hverri umferð og í stærð XXXL: Til skiptis í 5. og 6. hverri umferð = 85-89-93-97-101-105 lykkjur.
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 53 cm í öllum stærðum, prjónið M.1 (lykkja með ör í mynsturteikningu = mitt á ermi – teljið út að hlið).
Eftir M.1 haldið áfram með litnum dökk blágrænn að loka máli. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 61-60-59-58-56-54 cm (styttra máli í stærri stærðum vegna hærri ermakúpu og breiðari axla) prjónið stykkið til loka fram og til baka frá miðju mitt undir ermi. Fitjið upp 1 nýja lykkju í hvorri hlið (= kantlykkja til að sauma í) og prjónið síðan þar til ermin mælist 63 cm í öllum stærðum. Fellið af.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma og saumið ermar í (einingin sem var prjónuð fram og til baka efst á ermi á að passa inn í affellingu fyrir handveg).

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Prjónið upp frá réttu ca 82 til 98 lykkjur í kringum hálsmál (meðtalin lykkja af þræði mitt að framan) á stuttan hringprjón 3 með litnum dökk blágrænn. Prjónið 1 umferð brugðið, síðan er prjónuð 1 umferð slétt JAFNFRAMT er aukið út jafnt yfir til 102-108-110-116-118-122 lykkjur.
Prjónið stroff 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið í ca 7 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Brjótið stroffið tvöfalt að röngu og saumið niður í kanti í hálsmáli frá röngu með smáum lausum sporum.

--------------------------------------------------------

HÚFA – sjá mynstur: 0-810

--------------------------------------------------------

Mynstur

symbols = dökk blágrænn
symbols = natur
symbols = ljós brúnn
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Nordic Midnight

Ainara, Denmark

Nordic Midnight

Sarah, Germany

Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-809

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (114)

country flag Joan Mikkelsen wrote:

Hejsa Når man læser opskriften og kommer til mønsteret, så står der at man skal starte med M.1. Men ser man på billedet af trøjen er det ikke denne mønster man starter med. Der ser det ud til at det er noget af M.3. også måske ikke, da det første mønster på ærmet og trøjer ikke ser ens ud på billedet. Så spørgsmålet er hvad skal man starte med??

11.10.2023 - 21:44

DROPS Design answered:

Hej Joan, du skal faktisk starte med M.1 både på ryg & forstykke og på ærmerne så de bliver ens. M.3 bruger du først når du kommer op til skulderen :)

17.10.2023 - 13:55

country flag Olga wrote:

Ik heb de mouw af en ik snap niet helemaal hoe ik hem vast moet maken aan de mouwkop. Welke vorm hoort de mouw te hebben? Het lijkt me dat de bovenkant van de mouw langer moet zijn dan de onderkant, maar ik kant geen steken af? Waarom moet ik heen en weer breiden als ik de naden toch aan elkaar moet naaien?

20.09.2023 - 16:02

DROPS Design answered:

Dag Olga,

De mouw heeft geen ronding (mouwkop) aan de bovenkant. Je breit het laatste stukje heen en weer omdat de mouw als het waar een stukje in het pand wordt geschoven. Dus een klein stukje van de onderarmnaad wordt aan het voorpand/achterpand genaaid. Zie ook de maattekening onderaan. Hier kun je zien dat er een kleine inham bij de oksel zit.

20.09.2023 - 19:50

country flag Eva Wikman wrote:

Vill ha svar på min fråga så jag kan fortsätta sticka, varför ska jag minska maskor efter resåren och inte öka som man brukar. Resåren blir ju större om mag gör så. Tacksam för svar snarast

31.07.2023 - 16:19

DROPS Design answered:

Hej Eva, om du inte minskar blir tröjan för bred. Resåren stickar du på mindre stickor och resåren drar ihop arbetet om du inte har ökat för resår.

07.08.2023 - 11:57

country flag Eva Wikman wrote:

Är det fel på mönstret ?? Ska man minska maskor efter resåren ? Har aldrig varit med om det på alla tröjor jag har stickat

28.07.2023 - 15:59

DROPS Design answered:

Hej Eva, ja, eller så vil bolen bli for smal (du behöver flere masker i resåren, da den ellers trækker arbejdet sammen) :)

04.08.2023 - 14:42

country flag CHALANI FONSEKA JENSEN wrote:

Hi I knitted the sweater with the smallest size but its bit bigger than I want. How I go to the next smaller size which XS ?

21.02.2023 - 20:24

DROPS Design answered:

Dar Mrs Fonseka Jensen, you will find all finished measurements for each size in the chart at the bottom of the pattern - this might help you to adjust to the required measurments/size. This lesson might help you. Happy knitting!

22.02.2023 - 08:35

country flag Catrin Håkansson wrote:

Fattar inte hur man gör under armen när det står att jag ska sticka fram och tillbaka, och lägga upp en maska , jag stickar ju med rundstickar , ska man inte maska av för ärmhålen som fram och bak stycket ?

20.01.2023 - 21:16

DROPS Design answered:

Hei Catrin. Du strikker rundt til ermet måler 61-60-59-58-56-54 cm, legg opp 1 ny maske og snu arbeidet. Strikk fra vrangen pinnen ut og legg opp 1 ny maske. Strikk frem og tilbake (på rundpinne) til ermet måler 63 cm. Det felles ikke av masker på ermet, slik det gjøres på for-bakstykket. mvh DROPS Design

23.01.2023 - 10:44

country flag Michaela wrote:

Pre českú verziu chyba dôležitá veta, ktorú som našla v komentároch ešte z roku 2018 a do návodu to nebolo doplnene. Ak budete pliesť predný diel treba pri oddelení ociek na pomocnú ihlicu ďalej uberať nasledovne: AT THE SAME TIME bind off at beg of every row from neck: 2 sts 3 times and 1 st 3 times = 26-27-29-30-32-33 sts remain on shoulder.

17.01.2023 - 00:04

country flag Sara Jones wrote:

Thanks for your last reply. The video about casting on is really helpful. Please could you just clarify where in the pattern I cast on the extra two stitches? Is it right at the end of the sleeve when it is the full 63cm before casting off, or does it not matter where they go?! Thanks again

28.11.2022 - 22:29

DROPS Design answered:

Dear Mrs Jones, you will cast on these 2 new stitches when sleeve measures 61-60-59-58-56-54 cm from the cast on edge, then continue working the sleeve cap back and forth on needle . Happy knitting!

29.11.2022 - 10:04

country flag Sara Jones wrote:

I’m coming towards the end of my first sleeve & wonder when I should “cast on one new stitch in each side”. I’ve finished the pattern M1 & am about to continue just in the blue until the finished measurement. I’m unsure when to cast on the new stitches & which technique would be best. Am I casting on these two extra stitches on one occasion or repeatedly? Thank you

28.11.2022 - 09:07

DROPS Design answered:

Dear Mrs Jones, this video shows how to cast on new stitches on the side; use this technique to cast one only 1 stitch at the end of the first row from the right side then 1 stitch at the end of the first row from the wrong side; Happy knitting!

28.11.2022 - 10:36

country flag Sara Jones wrote:

Just discovered I’ve knitted too far in the front so need to rip back a few rows to cast off the middle 19 stitches for the neck (size XL). I’m not sure what to do with the instructions to cast off 2 stitches 3 times & 1 stitch 3 times. Is this on consecutive rows & always in the middle of the front i.e. closest to the neck opening? This would mean casting off on a knit row then a purl row? Is there a video to help with this? Thank you

29.10.2022 - 22:18

DROPS Design answered:

Dear Sara, you need to cast off at the beginning of each row from the neck (that is, the stitches closest to the neckline). So, you cast off in rows from the right side when working the right front and rows from the wrong side when working the left front. Cast off 2 stitches in the next 3 rows from the right side, for example, and then cast off 1 stitch in the next 3 rows (from the same side as before). You can see all relevant videos for this pattern under the pattern instructions. Happy knitting!

30.10.2022 - 22:35