Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
= natur | |
= ljós grár | |
= milligrár |
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Ocelot |
||||||||||
|
|
|||||||||
Prjónuð peysa fyrir herra úr DROPS Nepal með mynstri og sjalkraga. Stærð S - XXXL
DROPS Extra 0-808 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu M.1 til M.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 196-212-228-256-272-304 Lykkjur á hringprjón 4 með litnum milligrár DROPS Nepal. Prjónið stroff = 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið í 5 cm. Skiptið yfir í litinn ljós grár og prjónið stroff 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið eftir M.1. Þegar M.1 hefur verið prjónað einu sinni á hæðina, skiptið yfir á hringprjón 5. Prjónið 1 umferð slétt með litnum natur. JAFNFRAMT er fækkað um 46-50-54-58-62-70 lykkjur jafnt yfir = 150-162-174-198-210-234 lykkjur. Setjið 1 merki í byrjun umferðar og 1 merki eftir 75-81-87-99-105-117 lykkjur (þessi merki merkja hliðar).Prjónið síðan M.2. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 15 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði merkin – útauknar lykkjur er prjónaðar áfram í litnum natur. Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 30 cm = 158-170-182-206-218-242 lykkjur. Þegar stykkið mælist 46-47-48-49-50-51 cm – stillið af að prjónuð hefur verið minnst 1 umferð natur eftir 1 umferð með mynstri – prjónið næstu umferð þannig: Fellið af 3 lykkjur fyrir handveg, prjónið 24-27-30-36-39-45 lykkjur, fellið af 25 lykkjur fyrir hálsmáli, prjónið 24-27-30-36-39-45 lykkjur, fellið af 6 lykkjur fyrir handveg, prjónið 73-79-85-97-103-115 lykkjur (= bakstykki) og fellið af síðustu 3 lykkjur fyrir handveg. Hvert stykki er nú prjónað til loka fyrir sig. BAKSTYKKI: = 73-79-85-97-103-115 lykkjur. Haldið áfram með M.2 - JAFNFRAMT er fellt af fyrir handveg í byrjun hverrar umferðar í hvorri hlið: 3 lykkjur 0-0-0-0-1-1 sinni, 2 lykkjur 1-1-2-3-3-4 sinnum og 1 lykkja 2-2-3-4-4-5 sinnum = 65-71-71-77-77-83 lykkjur eftir á prjóni. Þegar stykkið mælist 64-66-68-70-72-74 cm, fellið af miðju 23 lykkjur fyrir hálsmáli. Prjónið hvora öxl til loka fyrir sig. Fellið síðan af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsmáli = 20-23-23-26-26-29 lykkjur eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm. HÆGRA FRAMSTYKKI: = 24-27-30-36-39-45 lykkjur. Fellið síðan af fyrir handveg í hlið á sama hátt og á bakstykki = 20-23-23-26-26-29 lykkjur. Fellið af þegar stykkið mælist ca 66-68-70-72-74-76 cm – ATH: Fellið af í sömu umferð í mynstri og á bakstykki. VINSTRA FRAMSTYKKI: Prjónið á sama hátt og hægra framstykki, nema gagnstætt. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, skiptið yfir á hringprjóna eftir þörf. Fitjið upp 48-52-56-56-60-60 lykkjur á sokkaprjón 4 með litnum milligrár. Skiptið yfir í litinn ljós grár og prjónið stroff 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið eftir M.1. Þegar M.1 hefur verið prjónað einu sinni á hæðina er skipt yfir á sokkaprjóna 5. Prjónið 1 umferð með litnum natur JAFNFRAMT því sem fækkað er um 9-7-11-11-9-9 lykkjur jafnt yfir = 39-45-45-45-51-51 lykkjur. Setjið 1 merki í byrjun umferðar (= mitt undir ermi) og prjónið M.2 – ATH: Mynstrið byrjar og endar alveg eins mitt undir ermi. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 8-8-8-8-10-10 cm aukið út um 1 lykkju hvoru megin við merki mitt undir ermi – útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur. Endurtakið útaukningu með 4½-5-4-3-3-2½ cm millibili alls 11-10-12-14-13-15 sinnum = 61-65-69-73-77-81 lykkjur. Þegar stykkið mælist 54-54-53-51-50-48 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna lengri ermakúpu og breiðari axla) fellið af 6 lykkjur mitt undir ermi (þ.e.a.s. 3 lykkjur hvoru megin við merki). Síðan er stykkið prjónað til loka fram og til baka – JAFNFRAMT er fellt af fyrir ermakúpu í byrjun hverrar umferðar í hvorri hlið: 2 lykkjur 2-2-2-3-3-4 sinnum og 1 lykkja 3-3-3-4-4-5 sinnum. Síðan eru felldar af 2 lykkjur í hvorri hlið þar til stykkið mælist 61 cm í öllum stærðum, síðan eru felldar af 3 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru, stykkið mælist ca 62 cm í öllum stærðum. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. SJALKRAGI: Byrjið mitt framan í vinstri hlið á affellingu í hálsmáli. Prjónið upp á hringprjón 4 með litnum natur: 34 til 44 lykkjur upp að öxl, síðan eru prjónaðar upp 24 til 26 lykkjur aftan í hnakka og í lokin 34 til 44 lykkjur niður meðfram vinstri hlið í affellingu í hálsmáli = 92 til 114 lykkjur. (Lykkjur eru ekki prjónaðar upp þar sem lykkjur voru felldar af að framan í hálsmáli). Prjónið 1 umferð slétt frá röngu JAFNFRAMT er aukið út jafnt yfir til 126-130-134-138-142-146 lykkjur. Prjónið síðan stroff eftir M.3 þannig (frá réttu): 2 kantlykkjur sem prjónaðar eru slétt í öllum umferðum * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 4 lykkjur eru eftir og endið með 2 lykkjur slétt og 2 kantlykkjum sem prjónaðar eru slétt í hverri umferð. Haldið svona áfram þar til sjalkraginn mælist ca 6 cm. Nú er aukið út um 1 lykkju í hverja af miðju 12 brugðnu eininganna, séð frá réttu (= aftan í hnakka) = 138-142-146-150-154-158 lykkjur. Prjónið áfram þar til M.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina, skiptið yfir í litinn milligrár og fellið síðan laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, kraginn mælist ca 15 cm. Leggið sjalkragann tvöfaldan (hægri hlið yfir vinstri hlið) neðst niðri í opi á hálsmáli og saumið fallega niður við hálsmál í gegnum bæði lögin. Saumið ermar í. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6934 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (23)
Stefania wrote:
Buongiorno, quanto filato serve per fare questa maglia in tinta unita in tg.M? Grazie
13.11.2023 - 08:27DROPS Design answered:
Buonasera Stefania, per un aiuto così personalizzato può rivolgersi al suo rivenditore DROPS di fiducia. Buon lavoro!
16.11.2023 - 20:49Guillermo wrote:
Qué tal! Los números en el esquema de la prenda, ¿son centímetros? Muchas gracias
14.05.2022 - 06:16DROPS Design answered:
Hola Guillermo, sí, las medidas son centímetros.
15.05.2022 - 23:56Sebastian wrote:
I have noticed that the Ocelot sweater sleeve cap is not aligning sleeves are too big and I'm knitting a small. Sleeves are buckling when trying to seam in the in set sleeves. Are there any tutorial to assist
12.05.2022 - 19:25DROPS Design answered:
Dear Sebastian, if you kept the correct tension for the sleeves, they should nicely fit in the armhole; this video might help you, you can first baste the sleeve if it helps. Happy knitting!
13.05.2022 - 08:07Kathrin wrote:
Frage bzgl Ocelot Pullover, Abschnitt Rücken, da heißt es für Gr XL: "Nach 68 cm die mittleren 23 M. für den Halsausschnitt abk. Weiter bei der nächsten R. 1 M. gegen den Halsausschnitt abk. = 23 M. Nach 70 cm abk. " Was heißt hier 1M gegen den Ausschnitt abketten? 23x 1M jeweils auf der Halsseite abketten? Dann wären das aber 23 eihen und entspricht nicht 2cm bis Ende der Rückenarbeit. ich verstehe hier die Anleitung nicht. Kann mit hier jmd helfen?
29.03.2022 - 20:44DROPS Design answered:
Liebe Kathrin, in XL werden Sie die 23 Maschen für den Halsausschnitt bei einer Länge von 70 cm (68 cm in L); dann ketten Sie 1 Masche am Anfang der nächsten Reihe ab Hals (= Rückreihe bei der rechten Schulter/Hinreihe bei der linken Schulter). Viel Spaß beim stricken!
30.03.2022 - 07:37BritishKoala wrote:
Hi, I'm confused on the measurements given for which size. How do you work it out for the pattern? As in measuring it the person in relation to the numbers in the diagram. Thank you
19.06.2020 - 21:56DROPS Design answered:
Dear BritishKoala, rather measure a similar garment he has and likes the shape to compare them in those in the measurement - read more here. Happy knitting!
22.06.2020 - 07:26Antje Dumrath wrote:
Ich habe schon viele Ihrer Anleitungen mit Erfolg gestrickt, aber bei dieser Anleitung komme ich mit der Anweisung für den Kragen nicht klar. Wie strickt man 2 Randm? Und folgenden Satz verstehe ich gar nicht: Nach ca. 6 cm in den mittleren 12 li.- Partiene je 1 M. aufnehmen... usw. Für eine zügige Antwort bin ich sehr dankbar. Fröhliche Grüße Antje Dumrath
10.06.2020 - 18:19DROPS Design answered:
Liebe Frau Dumrath, Kragen wird hier in Reihen gestrickt, mit 2 Randmaschen krausrechts (und 2 rechte Maschen) beidseitig. Nach 6 cm werden Sie 1 Maschen in den mittleren 12 linke-Partien (von der Vorderseite gesehen) zunehmen, so daß der Kragen so aussieht: 2 M kraus rechts, Bündchen 2 M re/2 M li (Seite Vorderteil), dann 12 Mal (2 M re, 3 M li) (ca gegen Hals Rückenteil), und dann wieder 2 M re/2 M li (Seite Vorderteil) und 2 M kraus rechts. Viel Spaß beim stricken!
11.06.2020 - 08:15Nicole wrote:
EN MÊME TEMPS, à 8-8-8-8-10-10 cm de hauteur totale, augmenter 1 m de chaque côté du marqueur milieu sous la manche – tricoter les augmentations en jacquard. Répéter ces augmentations 11-10-12-14-13-15 fois au total tous les 4½-5-4-3-3-2½ = 61-65-69-73-77-81 m. Est-ce au total tous les 41/2 rang ou cm. Merci
23.07.2019 - 19:18DROPS Design answered:
Bonjour Nicole, il s'agit de cm. Bon tricot!
23.07.2019 - 19:30Mandy Gibbon wrote:
Did all that. Sleeve did not fit nicely, it was far too small. I have now followed the length of the sleeve on pattern 'Limestone', i.e. to length 66 cm rather than 62 - finished it last night, and it fits perfectly!!
18.01.2019 - 10:23Mandy Gibbon wrote:
I am knitting the XL size. Following the instructions and the lengths there is no way the sleeve fits the space I have for the armhole there is about 3 ins difference. Tension OK, Length measurements are OK, but the sizing you give is way out. My chest size is 51cm and your diagram says 61. I'm struggling to know what to do as the sleeve just wont fit although the length of the body from armhole to shoulder is exact, I have reknitted decreasing part of sleeve and still nowhere near.
17.01.2019 - 19:03DROPS Design answered:
Dear Mrs Gibbon, in size XL, the armholes should be 23 cm. When all inc in sleeves are done there are 73 sts (= approx. 43 cm), then you continue sleeve cap from 51 cm to 62 cm = 11 cm length casting off sts on each side for sleeve cap as explained in the pattern. Sew first the shoulders, then pin sleeve around the armhole, it should fit nicely. Should do need any further assistance, please show your work to your store - even sending them a picture per Email- they will have a better overview. Happy knitting!
18.01.2019 - 08:29Cable Girl wrote:
I’m working on the sleeve for this pattern right now. I’m unsure what “pattern begins and ends same way” refers to regarding diagram M2. It shows 18 stitches in the diagram and since I’m knitting a large size I currently have 45 stitches. Do I do the diagram 2.5 times and start over at the marker? If so, how do I accommodate the increases into the pattern?
17.07.2018 - 03:47DROPS Design answered:
Dear Gable Girl, it simply means that the pattern is symmetric on the both sides of the sleeve. So when you start knitting the pattern you should first center it over the the middle stitch, and take care that it is symmetric, after the increases as well. Happy Knitting!
17.07.2018 - 07:50