DROPS Lima
DROPS Lima
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8448.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Twilight

Prjónuð peysa fyrir herra í perluprjóni úr DROPS Lima eða DROPS Loves You III. Stærð S - XXXL.

DROPS 135-39
DROPS Design: Mynstur nr AC-019
Garnflokkur B
--------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS LIMA frá Garnstudio
550-600-650-750-850-950 gr litur nr 0619, beige

Eða notið:
DROPS LOVES YOU III frá Garnstudio
350-400-400-500-550-600 gr litur nr 03, brúnn

DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l og 28 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.

DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 3,5 – fyrir stroff.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Lima
DROPS Lima
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8448.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

TVÖFALT PERLUPRJÓN:
UMFERÐ 1 (= frá réttu): *Prjónið 1 l sl, 1 l br *, endurtakið frá *-*.
UMFERÐ 2 (= frá röngu): Prjónið sl yfir sl og br yfir br.
UMFERÐ 3 (= frá réttu): *Prjónið 1 l br, 1 l sl*, endurtakið frá *-*.
UMFERÐ 4 (= frá röngu): Prjónið br yfir br og sl yfir sl.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 213-234-255-288-318-351 l á hringprjóna nr 3,5 með Lima eða Love You III. Prjónið stroff 1 l sl, 2 l br. Þegar stykkið mælist 4 cm er prjónuð 1 umf í sléttprjóni JAFNFRAMT er fækkað um 53-58-63-72-78-87 l jafnt yfir (lykkjum er fækkað með því að prjóna ca 3. og 4. hverja l slétt saman) = 160-176-192-216-240-264 l.
Setjið tvö prjónamerki í stykkið, í byrjun umf og eftir 80-88-96-108-120-132 l (merkir hliðar). Skiptið yfir á hringprjóna nr 4. Prjónið nú hringinn í sléttprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 15 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt (þ.e.a.s. prjónað er aftan í lykkjubogann í stað framan, svo ekki myndist gat). Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 25 cm = 168-184-200-224-248-272 l.
Þegar stykkið mælist 47-48-49-50-51-52 cm er prjónað TVÖFALT PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – JAFNFRAMT eru felldar af 6 l í hvorri hlið fyrir handveg (felldar eru af 3 l hvoru megin við hvort prjónamerki).
Prjónið nú hvort stykkið til loka fyrir sig.

BAKSTYKKI:
= 78-86-94-106-118-130 l (umf 1 = ranga). Haldið áfram með tvöfalt perluprjón JAFNFRAMT er fellt af fyrir handveg í byrjun umf í hvorri hlið þannig: 2 l 0-1-2-4-6-8 sinnum og 1 l 1-2-3-4-5-6 sinnum = 76-78-80-82-84-86 l. Þegar stykkið mælist 64-66-68-70-72-74 cm er fellt af miðju 24-26-28-30-32-34 l fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið nú af 1 l í næstu umf frá hálsi (fellt er af með því að prjóna 2 síðustu l við háls saman) = 25 l eftir á öxl í öllum stærðum. Fellið af þegar stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm.

FRAMSTYKKI:
= 78-86-94-106-118-130 l (umf 1 = ranga). Prjónið tvöfalt perluprjón og fellið af fyrir handveg á sama hátt og á bakstykki, JAFNFRAMT þegar prjónað er 5 cm með perluprjóni á hæðina eru felldar af miðju 2 l fyrir hálsmáli í næstu umf frá réttu og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið nú af með því að prjóna 2 síðustu l við hálsmál saman (prjónið þær saman svo að mynstrið passi) í byrjun hverrar umf frá hálsi alls 12-13-14-15-16-17 sinnum. Þegar úrtöku er lokið eru 25 l eftir á öxl í öllum stærðum. Fellið af þegar stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.
Fitjið upp 63-66-69-72-75-78 l á sokkaprjóna nr 3,5 með Lima eða Love You III. Prjónið stroff 1 l sl, 2 l br. Þegar stykkið mælist 4 cm eru prjónuð 1 umf slétt JAFNFRAMT er fækkað um 15-16-17-18-19-20 l jafnt yfir (lykkjum er fækkað með því að prjóna ca 3. og 4. hverja l slétt saman) = 48-50-52-54-56-58 l. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 4. Setjið prjónamerki í byrjun umf. Prjónið nú sléttprjón. Þegar stykkið mælist 8 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki. Endurtakið útaukningu með 5-4½-3½-3-2½-2½ cm millibili alls 10-11-13-15-17-18 sinnum = 68-72-78-84-90-94 l. Þegar stykkið mælist 57-57-56-56-54-53 cm (ATH! Styttri mál í stærri stærðum vegna víðari handvegs og breiðari axla) prjónið tvöfalt perluprjón yfir allar l JAFNFRAMT eru felldar af 6 l við miðju undir ermi (felldar eru af 3 l hvoru megin við prjónamerki). Prjónið nú stykkið fram og til baka á hringprjóna. Haldið áfram að fella af fyrir handveg í byrjun umf í hvorri hlið þannig: 2 l 3-3-4-4-4-3 sinnum og síðan 1 l 3-4-4-5-8-13 sinnum. Fellið nú af 2 l í hvorri hlið þar til stykkið mælist 64-65-65-66-66-67 cm. Fellið af 3 l 1 sinni í hvorri hlið. Fellið af.
Stykkið mælist 65-66-66-67-67-68 cm.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlarsauma. Saumið ermar í.

HÁLSMÁL:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju framan í hálsmáli.
Prjónið upp 92-98-104-110-118-124 l í kringum hálsmál á hringprjóna nr 3,5 með byrjun við miðju að framan. Prjónið 1 umf slétt frá röngu JAFNFRAMT er aukið út um 37-37-40-43-47-50 l jafnt yfir (aukið er út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á milli ca 3. og 4. hverrar l og nokkrum sinnum aðeins þéttar. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn). Í næstu umf frá réttu er prjónað stroff þannig: Prjónið 1 l garðaprjón, * 1 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* þar til 2 l eru eftir, endið með 1 l sl og 1 l í garðaprjóni. Haldið áfram að fella laust af með sl yfir sl og br yfir br þegar stroffið mælist 3,5 cm. Leggið hægra stykki í kanti í hálsmáli yfir vinstra stykki í kanti í hálsmáli og saumið bæði stykkin niður neðst með nokkrum smáum sporum.

Mynstur

diagram measurements
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Twilight

Heike Mitteregger, Germany

Twilight

Anna, Czech Republic

Skrifaðu athugasemd um DROPS 135-39

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (64)

country flag Lieke wrote:

Waarom wordt er geminderd na de boord, het is ook een behoorlijk aantal steken ook?

29.03.2019 - 23:32

DROPS Design answered:

Dag Lieke,

Het ontwerp van dit model is zo dat de boord ongeveer dezelfde wijdte heeft van het kledingstuk. Doordat de boordsteek samentrekt in de breedte wordt er gemeerderd vlak na de boordsteek.

31.03.2019 - 11:35

country flag Mai wrote:

In the description of double seeds st in the back body do not know 2sts · times and 1st · times Do you mean k, k, p, not k, p, k, p

04.03.2019 - 11:32

DROPS Design answered:

Dear Mai, I'm not sure what you mean here, on back piece you work with double moss stitch, ie as explained under DOUBLE MOSS STITCH, - the video below shows how to work this pattern. Happy knitting!

04.03.2019 - 12:04

country flag Hilde wrote:

Dank voor uw antwoord maar ik bedoelde juist dat meestal het boord juist met opzet iets strakker is maar in dit model niet. Ik ga toch eerst maar breien zonder extra steken, verder is het namelijk precies het model dat ik zocht.

20.02.2019 - 17:26

country flag Hilde wrote:

Hartelijk dank voor uw antwoord. Ik heb nog een vraag: waarom worden in dit model zoveel extra steken voor het boord opgezet en daarna afgekant? Ik ben bang dat het gaat lubberen.

16.02.2019 - 11:28

DROPS Design answered:

Dag Hilde,

Het ontwerp van dit model is zo dat de boord ongeveer dezelfde wijdte heeft van het kledingstuk. Door de boordsteek trekt de boord samen in de breedte en daarom wordt er gemeerderd vlak na de boordsteek.

17.02.2019 - 19:27

country flag Hilde wrote:

Ik wil deze trui liever breien met boordpatroon 2r 2a. Moet ik dan hetzelfde aantal steken opzetten en minderen bij de overgang naar tricotsteek?

11.02.2019 - 12:39

DROPS Design answered:

Dag Hilde,

Je zet dan een meervoud van 4 steken op en je mindert inderdaad steken in de eerste naald tricotsteek (net als in het patroon)

13.02.2019 - 11:20

country flag Marina wrote:

Quanti gomitoli o grammi servono per la taglia xxl? Grazie.

03.12.2018 - 11:50

DROPS Design answered:

Buongiorno Marina. Trova l'indicazione del filato necessario, all'inizio del testo. Per la taglia XXL, servono 850 g di Lima. Buon lavoro!

03.12.2018 - 11:54

country flag Asli wrote:

Hi, I'm knitting both sleeves in the flat . I have reached the double seed section: Can you help me how to translate this to the flat version? "AT THE SAME TIME bind off 6 sts mid under sleeve (bind off 3 sts on each side of marker)." How do I bind off mid under sleeve while in the flat? Thanks!

14.05.2018 - 21:41

DROPS Design answered:

Dear Asli, bind off now 3 sts at the beg of next 2 rows (= 3 sts at the beg of RS row + 3 sts at the beg of WS row) and continue now as explained for your size (sleeve cap is worked back and forth in the pattern). Happy knitting!

15.05.2018 - 08:32

Nada wrote:

Hi there,the begining of the sleeve is with circular needle as the begining of the body? when sleeve reach75 cm i will continue with circular or double pointed needle?

02.02.2018 - 13:47

DROPS Design answered:

Dear Nada, sleeves are worked first in the round with double pointed needles then back and foth on double pointed needles or on circular needle (your choice). Happy knitting!

02.02.2018 - 15:27

country flag Ivan Bentzen wrote:

Hej, i opskriften angiver I at dobbelt perlestrik består af 1 ret, 1 vrang, etc., men så vidt jeg kan se består dobbelt perlestrik af 2 masker af gangen?

23.10.2017 - 06:44

DROPS Design answered:

Hei Ivan. I denne oppskriften er det dobbelt perlestrikk i HØYDEN, se beskrivelsen i oppskriften. (Dobbelt perlestrikk kan også være i bredden og både i bredden og høyden). God Fornøysele!

23.10.2017 - 14:10

country flag Judy Hankey wrote:

I am making Xlarge on pattern 135-39. I cast on 288 stitches, and the directions are to K1/P2 in rib. When I do that two places in each row seem to be out of sinc. When I should K1 the stitch to K into is a purl. Are the directions correct or is the cast on count off. I've tried this ribbing 3 times now.

26.12.2016 - 04:25

DROPS Design answered:

Dear Mrs Hankey, the video below shows how to work the double moss st in height. Happy knitting!

29.12.2016 - 14:07