DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Super Sale
DROPS 135-2
DROPS Design: Mynstur nr DE-046
Garnflokkur A
--------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS DELIGHT frá Garnstudio
350-350-400-450-450-500 gr litur nr 01, grár

DROPS PRJÓNAR NR 3,5 – eða þá prjónastærð sem þarf til að 23 l og 30 umf með sléttprjóni verði = 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 3 – fyrir stroff.
DROPS TALA NR 534, silfruð: 6-6-7-7-7-7 stk.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í hverri umf.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir 6-6-7-7-7-7 hnappagötum í vinstra framstykki þegar stroffið mælist 1,5 cm.
1 hnappagat = fellið af 2 l og fitjið upp 2 nýjar l yfir þær sem felldar voru af í næstu umf. Fellið af fyrir hnappagati þegar framstykkið mælist (mælt frá neðri kanti):
Stærð: S: 4, 10, 16, 22, 28 og 34 cm.
Stærð: M: 5, 11, 17, 23, 29 og 35 cm.
Stærð: L og XL: 2, 8, 14, 20, 26, 32 og 38 cm.
Stærð: XXL: 3, 9, 15, 21, 27, 33 og 39 cm.
Stærð: XXXL: 4, 10, 16, 22, 28, 34 og 40 cm.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 131-143-155-167-185-203 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjóna nr 3 með Delight. Prjónið 1 umf brugðið frá röngu. Prjónið næstu umf frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju, * 3 l sl, 3 l br*, endurtakið frá *-* og endið með 3 l sl og 1 kantlykkju. Haldið áfram með stroff þar til stykkið mælist 4 cm. Skiptið yfir á prjóna nr 3,5. Prjónið 2 umf slétt með byrjun frá réttu – sjá útskýringu að ofan – jafnframt í 2. umf er fækkað um 36-39-43-44-48-54 l jafnt yfir = 95-104-112-123-137-149 l. Prjónið áfram í sléttprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 9 cm er aukið út um 1 l í hvorri hlið. Endurtakið útaukningu með 8-8-7-7-7-6 cm millibili alls 4-4-5-5-5-6 sinnum = 103-112-122-133-147-161 l. Þegar stykkið mælist 41-42-43-44-45-46 cm er fellt af fyrir handveg í byrjun hverrar umf í hvorri hlið þannig: 4 l 0-0-1-1-1-1 sinnum, 3 l 1-1-1-1-1-2 sinnum, 2 l 2-3-3-5-7-8 sinnum og 1 l 2-3-3-3-4-6 sinnum = 85-88-90-93-97-97 l. Þegar stykkið mælist 58-60-62-64-66-68 cm eru felldar af miðju 31-32-32-33-35-35 l fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Í næstu umf frá hálsmáli er felld af 1 l = 26-27-28-29-30-30 l eftir á hvorri öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka.
Fitjið upp 68-74-80-86-92-104 l (meðtalin er 1 kantlykkja í hlið og 1 kantlykkja við miðju að framan) á prjóna nr 3 með Delight. Prjónið 1 umf brugðið frá röngu. Prjónið næstu umf frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju, * 3 l br, 3 l sl *, endurtakið frá *-* og endið með 1 kantlykkju. Haldið áfram með stroff þar til stykkið mælist 4 cm. Skiptið yfir á prjóna nr 3,5. Prjónið 2 umf slétt með byrjun frá réttu, JAFNFRAMT í 2. umf er fækkað um 20-22-24-24-23-29 l jafnt yfir = 48-52-56-62-69-75 l. Prjónið áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 9 cm byrjar útaukning í hliðum eins og á bakstykki. Þegar stykkið mælist 36-37-38-39-40-41 cm er felld af 1 l við miðju að framan fyrir v-hálsmáli. Endurtakið með 1 cm millibili alls 17-17-17-18-19-19 sinnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 41-42-43-44-45-46 cm er fellt af fyrir handveg í hliðum eins og á bakstykki. Þegar úrtöku er lokið eru 26-27-28-29-30-30 l eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Prjónið á sama hátt og vinstra framstykki, nema spegilmynd.

ERMI:
Stykkið er prjónað fram og til baka.
Fitjið upp 68-68-74-74-80-80 l (meðtalin er 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjóna nr 3. Prjónið 1 umf brugðið frá röngu. Prjónið nú stroff þannig: Prjónið 1 kantlykkju, * 3 l sl, 3 l br *, endurtakið frá *-* og endið með 1 kantlykkju. Prjónið þar til stroffið mælist 9 cm. Skiptið yfir á prjóna nr 3,5. Prjónið 2 umf slétt með byrjun frá réttu, JAFNFRAMT í 2. umf er fækkað um 13-11-15-13-14-13 l jafnt yfir = 55-57-59-61-66-67 l. Prjónið áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 12-12-14-15-15-18 cm er aukið út um 1 l í hvorri hlið. Endurtakið útaukningu með 3½-3-2½-2-2-1½ cm millibili alls 12-14-16-18-18-20 sinnum = 79-85-91-97-102-107 l. Þegar stykkið mælist 56-55-54-54-52-50 cm (ATH! Styttri mæling í stærri stærðum vegna víðari handvegs og breiðari axla) fellið af 3 l í byrjun á 2 næstu umf við handveg. Haldið áfram úrtöku fyrir handveg í byrjun hverrar umf í hvorri hlið: 2 l 3-4-4-4-4-4 sinnum, 1 l 3-3-5-6-9-14 sinnum, síðan eru felldar af 2 l í hvorri hlið þar til stykkið mælist 63-63-63-64-64-65 cm. Fellið af 3 l 1 sinni í hvorri hlið, fellið síðan af. Stykkið mælist ca 64-64-64-65-65-66 cm.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlarsauma og saumið ermar í. Saumið erma- og hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju.

KANTUR AÐ FRAMAN OG HÁLSMÁL:
Kanturinn er prjónaður fram og til baka á hringprjóna.
Prjónið upp 418-430-442-454-466-478 l innan við 1 kantlykkju á hringpjrón nr 3 með Delight (prjónað er upp meðfram hægra framstykki, aftan í hálsmáli og niður meðfram vinstra framstykki). Prjónið 3 umf slétt JAFNFRAMT í 3. umf er aukið út um 35 l jafnt yfir = 453-465-477-489-501-513 l (lykkjufjöldi verður að vera deilanlegur með 6+3). Prjónið næstu umf frá réttu þannig: Prjónið 3 l garðaprjón, * 3 l sl, 3 l br * endurtakið frá *-* og endið með 3 l sl og 3 l í garðaprjóni. Þegar stroffið mælist 1,5 cm er fellt af fyrir 6-6-7-7-7-7 HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan – í vinstri kanti að framan. Þegar kantur að framan mælist ca 3 cm er fellt af með sl yfir sl og br yfir br. Saumið tölur í.

Mynstur

diagram measurements
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 135-2

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (28)

country flag Juliette wrote:

Bonjour, A la fin des côtes, pour le dos comme pour les devants, est ce que les diminutions doivent être réalisées sur les deux rangs (rang endroit et envers après les côtes) ou sur un seul ? Aussi, comment est il possible de bien répartir les diminutions (toutes les combiens de mailles ?) Merci d'avance ! Merci d'avance !

24.09.2022 - 19:51

DROPS Design answered:

Bonjour Juliette, les 36-39-43-44-48-54 diminutions du dos et les 20-22-24-24-23-29 diminutions diminutions du devant (après les côtes) se font au rang tricoté à l'endroit sur l'envers - cette leçon vous aidera à calculer comment répartir ces diminutions. Bon tricot!

26.09.2022 - 09:15

country flag Gabriela wrote:

Cuantos puntos hay que rematar en la primera fila de las sisas? No esta indicado Gracias!

28.10.2020 - 10:18

DROPS Design answered:

Hola Gabriela. Tienes razón. Ha sido una errata al publicar el patrón. Para la sisa cerramos como sigue: 4 pts 0-0-1-1-1-1 vez, 3 pts 1-1-1-1-1-2 veces, 2 pts 2-3-3-5-7-8 veces y 1 pt 2-3-3-3-4-6 veces.

01.11.2020 - 12:55

country flag Gabriela wrote:

Hola! Quisiera por favor me digan cuantos puntos debo rematar al principio de las sisas, ya que para la primera rematada solo indican 1 vez (para talla XL) Gracias!

25.10.2020 - 18:34

DROPS Design answered:

Ver la respuesta arriba

01.11.2020 - 13:31

country flag Trine wrote:

Jeg strikker XXL, lige nu venstre forstykke. Efter udtagning af 1 m i hver side 5 gange som på rygstykket (står der i opskriften) er jeg på 79 masker. Jeg skal tage 1 m ind 19 gange til V hals samt i alt 25 m til ærme, som på rygstykket. Det giver mig 35 m tilbage på pinden, men i opskriften står der, at der kun skal være 30 m. Hvad gør jeg galt?\r\ndet er irriterende, når der i opskriften bliver henvist til et andet afsnit, så man skal springe rundt og mellemregninger mangler

16.10.2019 - 02:07

DROPS Design answered:

Hej Trine, når jeg tæller maskerne sammen får jeg 30... du har 92, tager 23 ind, 5 ud i siden, 19 ind til v-hals og 25 ind til ærmegab = 30 masker. God fornøjelse!

16.10.2019 - 15:35

country flag Sh wrote:

Hallo . er staat in het patroon dat je bij de armsgaten bij het voorpand MOET Aafkanten net zoals bij het achterpand bij maat xl. maar als je dat doet kom je uit op 34 reststeken ipv 29

25.03.2019 - 13:18

country flag Mariella wrote:

Bellissimo spegazioni ottime fatto senza problemi complimenti

16.02.2019 - 19:13

country flag Kelly wrote:

Ik heb laatst dit garen gekocht maar het lijkt niet op het garen van het patroon. Twee jaar geleden heb ik dezelfde garen gekocht en dit leek exact op de kleur van dit patroon. De garen die ik nu hebt besteld is aan de zwarte kant in plaats van de mooie overgang vn lichtgrijs/donkergrijs. Ik zou graag de garen willen hebben die lijkt op de vest die de man aan heeft. Hopelijk bestaat dit nog wel want ik vind de kleur van toen veel mooier. De kleur die ik wil is gemaakt met dyelot 1124.

30.08.2018 - 17:18

DROPS Design answered:

Dag Kelly, De kleur kan inderdaad enigszins verschillen per verfbad. Om garen te bestellen met een bepaald verfbad(nummer) kun je het beste contact opnemen met de winkel waar je het garen hebt gekocht. Misschien hebben ze nog garen van dat verfbad en is het mogelijk om bollen te ruilen.

31.08.2018 - 11:52

country flag Marion wrote:

Bonjour je souhaite realizer le modèle Coast Living, mais je ne suis pas sure de comprendre un point. La bande d'encolure est à realizer sur des aiguilles circulaires? Pourquoi? et ne peut on pas le faire sur des aiguilles droites? Merci d'avance

12.04.2018 - 16:34

DROPS Design answered:

Bonjour Marion, les mailles de la bordure d'encolure sont effectivement relevées avec l'aiguille circulaire pour avoir suffisamment de place pour y loger toutes les mailles (d'un bas du devant à l'autre), mais on tricote ensuite en allers et retours. Bon tricot!

12.04.2018 - 16:48

country flag W.cevaal wrote:

Vraag in het patroon staat na de boord te hebben gebreid dat je moet minderen klopt dit wel en als je het wel moet doen wat wordt er bedoelt met de steken verhouding ik vindt het zo raar dat je na de boord moet minderen met vr gr mevr cevaal

11.09.2017 - 16:31

DROPS Design answered:

Hallo W. Cevaal, Dat klopt, je moet bij dit minderen na de boord. Met de stekenverhouding wordt bedoelt dat je met (in dit geval) 23 steken en 30 naalden in tricotsteek uit moet komen op 10 cm breed en 10 cm hoog. Brei altijd een proeflapje en pas evt. de naalddikte aan om uit te komen op de juiste stekenverhouding.

13.09.2017 - 16:26

country flag W.cevaal wrote:

Hoe moet ik het patroon aanpassen oom 4 x xl te maken mvgr w.cevaal

14.08.2017 - 15:24

DROPS Design answered:

Hallo W. Cevaal, Het patroon is geschreven tot en met maat xxxl. Bedoel je met 4 keer xl: xxxxl? Als je het vest wat groter wilt maken, zou je naar eigen inzicht een aantal extra steken op kunnen zetten. Op basis van de stekenverhouding kun je uitrekenen hoeveel extra steken je op moet zetten. Als voorbeeld: Als je het achterpand 5 cm breder wilt maken moet je in dit geval 11 a 12 steken extra op zetten.

15.08.2017 - 15:47