DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8624.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale
DROPS 135-25
DROPS Design: Mynstur nr U-621
Garnflokkur B
--------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS KARISMA frá Garnstudio
350-400-450-500-550-600 gr litur nr. 21, milligrár
300-300-300-350-350-400 gr litur nr. 44, ljós grár

DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 4 – eða þá prjónastærð sem þarf til að 21 l og 28 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 3,5 – fyrir stroff.
DROPS TRÉ HNAPPAR duffel NR 520: 2 stk í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8624.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

TVÖFALT PERLUPRJÓN:
UMFERÐ 1: * Prjónið 1 l sl, 1 l br *, endurtakið frá *-*.
UMFERÐ 2: Prjónið sl yfir sl og br yfir br.
UMFERÐ 3: * Prjónið 1 l br, 1 l sl *, endurtakið frá *-*.
UMFERÐ 4: Prjónið br yfir br og sl yfir sl.
Endurtakið umf: 1-4.

RENDUR 1 (á við um fram- og bakstykki):
Prjónið til skiptis með litnum milligrár og ljós grár með 11-11-11½-12-12-12½ cm millibili.
ATH: Fyrsta röndin er mæld frá uppfitjunarkanti. Prjónið með litinn milligrár síðustu röndina á fram- og bakstykki sem og ermi til loka.

RENDUR 2 (á við um ermi):
Prjónið til skiptis með litnum milligrár og ljós grár með 10 cm millibili. ATH: Fyrsta röndin er mæld frá uppfitjunarkanti. Prjónið með litnum milligrár í síðustu rönd til loka.

ÚTAUKNING:
Aukið er út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúin (þ.e.a.s. aftan í lykkjubogann í stað framan) til þess að koma í veg fyrir göt.

MYNSTUR 1:
UMFERÐ 1: (= frá réttu): Prjónið slétt.
UMFERÐ 2: (= frá röngu): * Prjónið 1 l sl, 1 l br *, endurtakið frá *-*.
Endurtakið umf 1 og 2.

GARÐAPRJÓN: (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í hverri umf.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Peysan er prjónuð á hring á hringprjóna.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 213-234-255-288-318-351 l á hringprjóna nr 3,5 með litnum ljós grár DROPS Karisma.
Prjónið stroff þannig: * Prjónið 1 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-*. Þegar stykkið mælist 4 cm er prjónuð 1 umf slétt JAFNFRAMT er fækkað um 53-58-63-72-78-87 l jafn yfir (lykkjum er fækkað með því að prjóna ca 3. og 4. hverja l slétt saman) = 160-176-192-216-240-264 l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4 og prjónið í hring með TVÖFALT PERLUPRJÓN og RENDUR- sjá útskýringu að ofan.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 15-15-16-16-17-17 cm eru sett tvö prjónamerki í stykkið, 1 í byrjun umf og 1 eftir 80-88-96-108-120-132 l (merkir hliðar). Í næstu umf er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki – Lesið ÚTAUKNING = 4 nýjar l í umf. ATH: Nýju l eru prjónaðar inn jafnóðum í tvöfalda perluprjónið. Endurtakið útaukningu 1 sinni til viðbótar þegar stykkið mælist 30-30-32-32-34-34 cm = 168-184-200-224-248-272 l. Haldið áfram þar til stykkið mælist 47-48-49-50-51-52 cm (passið uppá að síðasta umf er 2. eða 4. umf í perluprjóni). Skiptið stykkinu við prjónamerki og hvort stykki er prjónað fyrir sig til loka.

BAKSTYKKI:
= 84-92-100-112-124-136 l (umf 1 = rétta). Haldið áfram með RENDUR 1 og TVÖFALT PERLUPRJÓN – JAFNFRAMT er fellt af fyrir handveg í hvorri hlið í annarri hverri umf þannig: Fellið af 3 l 1 sinni, 2 l 0-1-2-4-6-8 sinnum og 1 l 1-2-3-4-5-6 sinnum = 76-78-80-82-84-86 l. Þegar stykkið mælist 64-66-68-70-72-74 cm fellið af miðju 24-26-28-30-32-34 l fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð fyrir sig. Fellið af 1 l í næstu umf frá hálsmáli (fellið af með því að prjóna 2 síðustu l við háls saman) = 25 l eftir á öxl í öllum stærðum. Fellið laust af allar l þegar stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm.

FRAMSTYKKI:
= 84-92-100-112-124-136 l. Haldið áfram að prjóna RENDUR 1 og TVÖFALT PERLUPRJÓN. Byrjið að fella af fyrir handveg á sama hátt og á bakstykki í umf 1 (= rétta) – JAFNFRAMT eru miðju 26-28-30-32-34-36 l settar á þráð fyrir hálsmáli að framan. Nú er hvort stykki prjónað fyrir sig til loka. Fellið af fyrir handveg í hvorri hlið eins og á bakstykki. Þegar úrtöku er lokið eru 25 l á hvorri öxl. Haldið áfram með RENDUR 1 og TVÖFALT PERLUPRJÓN. Þegar stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm eru fellt laust af allar l.

ERMI:
Ermin er prjónuð í hring á sokkaprjóna.
Fitjið upp 63-66-69-72-75-78 l á sokkaprjóna nr 3,5 með litnum ljós grár DROPS Karisma.
Prjónið stroff: * Prjónið 1 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-*. Þegar stykkið mælist 4 cm er prjónuð 1 umf slétt –JAFNFRAMT er fækkað um 15-16-17-18-19-20 l jafnt yfir (lykkjum er fækkað með því að prjóna ca 3. og 4. l slétt saman)= 48-50-52-54-56-58 l. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 4 og setjið prjónamerki í byrjun á umf. Prjónið nú hringinn með TVÖFALT PERLUPRJÓN og RENDUR 2 – Sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 8-8-7-7-8-7 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerkin = 2 nýjar l. Endurtakið útaukningu með 4-3½-3-2½-2-2 cm millibili alls 10-11-13-15-17-18 sinnum = 68-72-78-84-90-94 l. Þegar stykkið mælist 49-49-48-48-47-45 cm (styttri mæling í stærri stærðum vegna víðari handvegs og breiðari axla) fellið af 3 l hvoru megin við prjónamerki (= 6 l fyrir miðju undir ermi). Prjónið nú stykkið fram og til baka á hringprjón. Haldið áfram að fella af fyrir handveg í hvorri hlið í annarri hverri umf þannig: Fellið af 2 l 2-2-3-3-5-5 sinnum og síðan 1 l 3-4-4-5-5-6 sinnum. Fellið af 2 l í hvorri hlið þar til stykkið mælist 56-57-57-58-59-59 cm, fellið af 3 l 1 sinni í hvorri hlið. Fellið laust af allar l. Þegar stykkið mælist ca 57-58-58-59-60-60 cm.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlarsauma með lykkjuspori. Saumið ermar í.

HÆGRI KRAGI:
Kraginn er prjónaður fram og til baka á hringprjóna nr 4 með litnum milligrár DROPS Karisma þannig: Prjónið upp l af þræði við miðju að framan (látið þráðinn vera áfram í fyrir vinstri kraga) = 26-28-30-32-34-36 l. Með byrjun frá næstu umf (= rétta) er prjónað nú MYNSTUR 1 – Sjá útskýringu að ofan. ATH: Setjið prjónamerki í lok umf 1 frá réttu. Þegar kraginn mælist 19-20-21-22-23-24 cm er prjónað áfram í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – til loka – Jafnframt eru prjónaðar styttri umf (með byrjun frá næstu umf frá réttu) þannig: Prjónið 2 umf yfir allar l, prjónið 2 umf yfir síðustu 20 l við miðju að framan *, endurtakið frá *-* þar til stykkið mælist 8-9-9-10-10-11 cm frá prjónamerki (á styttri hlutanum). Fellið af.

VINSTRI KRAGI:
Prjónið upp miðju l af þræði aftur frá réttu fyrir aftan hægri kraga = vinstri kraginn liggur undir hægri kraga. Prjónið á sama hátt og hægri kragi nema spegilmynd (prjónið styttri umf yfir síðustu 20 l við miðju að framan.

FRÁGANGUR:
Saumið hægri kraga við hægra framstykki og vinstri kraga við vinstra framstykki í ystu l. Saumið kragann saman við miðju að aftan og saumið að hálsi og að bakstykki.

LYKKJA FYRIR TÖLU:
Gerið 1 lykkju þannig: Snúið 2 þráðum með 40 cm með litnum milligrár og leggið þá saman tvöfalda. Gerið 1 lykkju til viðbótar eins. Festið lykkjurnar ca 4 og 11 cm frá neðri kant á hægra kraga (ca 1 cm frá kanti við miðju að framan). Þræðið lykkjuna í gegnum kragann með nál og festið endana á bakhlið. Saumið hnappa í vinstri kraga ca 2 og 4 cm innan við sauminn á vinstra framstykki.

Mynstur

diagram measurements
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 135-25

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (58)

country flag Mirjam De Nooij wrote:

Ik heb een vraag over de kraag: Neem aan de verkeerde kant st op in de st op de hulpdraad middenvoor (laat de st op de hulpdraad staan voor de linker kraag) = 26-28-30-32-34-36 st. Hoe doe ik dit ? Daar na verder breien en vervolgens bij de linker kraag: Zet de middelste st van de hulpdraad aan de verkeerde kant achter de rechter kraag terug op de nld = linker kraag achter de rechter kraag. Hoe doe ik dit ? Ik hier een filmpje van?

11.04.2024 - 14:26

DROPS Design answered:

Dag Mirjam,

Je neemt steken op van de hulpdraad, maar je laat de hulpdraad erin zitten zodat je later op precies dezelfde plek ook steken op kunt nemen voor de rechter kraag. Op deze manier krijg je 2 lagen over elkaar heen. Voor zover ik weet is er helaas geen filmpje van.

11.04.2024 - 20:28

country flag Asta Johannsen wrote:

Hallo liebes Drops-team, das ist wirklich ein schöner Pullover, jedoch zum Ende benötige ich doch einmal Hilfe. Ich bin nicht besonders begabt im Nähen und verstehe somit die Beschreibung für die Knöpfe. Es fängt schon an, dass ich w Schlaufen machen soll und für jeden Knopf 2 Schlaufen? Und wo kommt der Knopf zum Einsatz? Und wie soll ich den festnähen? Das mit den Angaben der Zentimeter habe ich, glaube ich, verstanden. Danke schön mal im Voraus.

17.09.2023 - 17:56

DROPS Design answered:

Liebe Frau Johannsen, machen Sie 2 Schlaufen (siehe Video - jede wird dann doppelt gefaltet um eine Schleife zu bilden und so angenäht, die 1. ca 4 cm von der untere Kante und die 2. ca 11 cm von der untere Kante (von den abgekettenen Maschen an der vorderen Mitte gemessen). Die Knöpfe werden ca ab 2 und 4 cm am anderen Teilen vom Kragen genäht - am besten legen Sie den Pullover flach und finden Sie die beste passende Höhe. Viel Spaß beim fertigstellen!

18.09.2023 - 15:53

country flag TATINCLAUX wrote:

Bonjour, Pourriez vous m'expliquer comment faire pour tricoter les mailles sur l'arrêt de maille et les laisser sur l'arrêt de mailles. Merci pour votre retour. Cordialement

17.08.2023 - 18:58

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Tatinclaux, lorsque vous glissez les mailles de l'encolure devant en attente, vous n'avez pas besoin de les tricoter, vous pouvez les glisser sur un fil (ou un arrêt de mailles) comme dans cette vidéo et les reprendre ensuite pour le col comme dans cette autre vidéo. Bon tricot!

18.08.2023 - 08:13

country flag Claudia wrote:

Guten Morgen, Ich meinte, dass ich den Text/Anweisungen Rechter Kragen und linken Kragen leider nicht verstehe. Liebe Grüße

17.03.2023 - 07:11

DROPS Design answered:

Liebe Claudia, sollte Ihnen die vorrige Antwort nicht helfen können, können Sie uns bitte mehr sagen, welches Teil vom Kragen, Sie nicht verstehen? So kann man Ihnen am besten helfen. Danke für Ihr Verständnis.

17.03.2023 - 08:56

country flag Claudia wrote:

Guten Tag, das mit dem Kragen verstehe ich leider überhaupt nicht?? Liebe Grüße

12.03.2023 - 15:06

DROPS Design answered:

Liebe Claudia, die stillgelegten Maschen stricken Sie zuerst von der Rückseite aber diese stillgelegten Maschen sollen Sie still lassen (sie werden gestrickt aber sie sollen auf einem Faden/einer extra Nadel bleiben, da sie für den linke Kragen später noch mal gestrickt werden). Dann stricken Sie zuerst im Muster-1, dann krausrechts mit verkürzten Reihen (für den Schlalkragen). Viel Spaß beim stricken!

13.03.2023 - 09:52

country flag Kay Campbell wrote:

I have just finished knitting this jumper but have found the sleeve cap too short when I tried to sew the sleeve in, should I just knit up extra rows without shaping to accommodate the length? Many thanks

15.10.2022 - 04:02

DROPS Design answered:

Dear Kay, if you have been following the measurements while working the sleeve, the sleeve cap should fit the armhole. You should redo the sleeve cap and when you need to cast off stitches for shaping the sleeve cap, check the measurements of the sleeve cap and the armhole so that they fit. In the case that they still don't fit you can simply add a few extra rows to lengthen the sleeve cap. Happy knitting!

17.10.2022 - 00:06

country flag Saskia wrote:

Hoi, ik heb nog nooit meegemaakt dat er na een boord steken geminderd worden. Gaat het boord dan niet lubberen? En wat is het effect hiervan? Waarom wordt hier niet `gewoon` gemeerderd? Heeft dit misschien te maken met het verder breien in gerstekorrel?

17.08.2022 - 15:16

DROPS Design answered:

Dag Saskia,

In sommige patronen wordt er inderdaad gemeerderd na de boordsteek om ervoor te zorgen dat de boord wat wijder is dan de rest.

17.08.2022 - 16:41

country flag Sawnuy wrote:

Hallo, 2 R. nur über die äussersten 20 M. stricken. Ist es die Richtung Ärmel ? Vielen Dank

14.12.2021 - 20:59

DROPS Design answered:

Liebe Sawnuy, beim rechten Kragen fangen Sie die verkürtzten Reihen mit einer Hinreihe an, so daß diese 20 Maschen die ersten bei der Hin-Reihe sind. Beim linken Kragen sind diese 20 Maschen die ersten der Rückreihe. Viel Spaß beim stricken!

15.12.2021 - 08:04

country flag Anita wrote:

Op 8 december 2020 heb ik een vraag gesteld over de wijze waarop de kraag moet worden bevestigd aan voor en achterland. Graag zou ik een reactie krijgen, zodat ik de trui kan afwerken. Mvg Anita

15.02.2021 - 21:05

DROPS Design answered:

Dag Anita,

Excuses voor de late reactie. De vraag is zojuist beantwoord. Hopelijk kun je nu verder.

16.02.2021 - 14:31

country flag Anita wrote:

Ik wil de kraag aan de trui zetten, maar weet niet goed hoe dit hoort te passen. In het patroon voor de kraag staat een overgang naar de ribbelsteek. Hoort deze overgang samen te vallen met de schoudernaad?

08.12.2020 - 23:05

DROPS Design answered:

Dag Anita,

De overgang van gerstekorrel naar ribbelsteek valt inderdaad samen met de schoudernaad. Dus waar de kraag aan het achterpand genaaid wordt heb je ribbelsteek en aan de voorkant heb je gerstekorrel.

16.02.2021 - 14:30